Morgunblaðið - 12.01.2013, Blaðsíða 27
Rekstrarumhverfi
lítilla og meðalstórra
fyrirtækja
Talið er að um 90% Ís-
lendinga sem starfa á al-
mennum markaði vinni hjá
litlum og meðalstórum fyr-
irtækjum. Aðgerðir stjórn-
málamanna hafa ekki í
nægjanlega ríkum mæli
beinst að því að skapa þess-
um fyrirtækjum ásætt-
anlegt rekstrarumhverfi. Of
mikil áhersla hefur verið
lögð á stóru fyrirtækin sem
eru í raun örfá hér á Ís-
landi. Stórfyrirtækin eru nauðsynleg en
þau eiga ekki að fá alla athygli stjórnmál-
anna. Leggja verður mun meiri áherslu á
þau litlu og meðalstóru en nú er gert.
Ísland hefur undirgengist miklar kvaðir
með samningnum um hið Evrópska efna-
hagssvæði. Eftirlitsþátturinn er umfangs-
mikill og margbrotinn. Reglugerðir eru
flóknar og dýrar í framkvæmd. Tafsamt
og dýrt er að afla opinberra leyfa og upp-
fylla skilyrði þeirra. Svona mætti lengi
telja. Þá hafa Íslendingar sjálfir leitt í lög
og sett í reglugerðir kröfur sem enn þyngja
rekstrarumhverfið. Hvaða vit er t.d. í því
að það þurfi 13 leyfi og mikinn eftirlit-
skostnað ef einyrki vill fara út í skelrækt
eða af hverju þarf fullkomna slátrunar-
aðstöðu og ómælt eftirlit ef bóndi vill slátra
búpeningi sínum heima á býli? Það hlýtur
að vera hægt að fara einhvern milliveg frá
því sem nú er.
Einyrki sem þarf, til að mynda, að leita
réttar síns gagnvart skattayfirvöldum þarf
að nýta sér þjónustu endurskoðenda og
lögfræðinga sem hafa þann aðalstarfa að
sinna stórfyrirtækum. Kostnaðurinn er
slíkur að aflafé einyrkjans hverfur eins og
dögg fyrir sólu. Af hverju eru gerðar nærri
sömu kröfur til ársreikninga litla fyrirtæk-
isins og þess stóra? Af hverju þarf það að
uppfylla sömu bókhaldsreglur með tilheyr-
andi kostnaði? Af hverju þarf litla fyr-
irtækið að lúta sömu eftilitsreglum og það
stóra? Það er eitthvað bogið við það hvern-
ig við Íslendingar höfum komið hlutunum
fyrir varðandi litlu fyrirtæki sem
mynda flest störf og greiða
hæstu launin.
Annar þáttur er skattlagning
lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Tryggingagjaldið sem nú nemur
rúmum 8% af launum er mjög
íþyngjandi fyrir litlu fyrirtækin
en einnig þau mannaflsfreku sem
oftar en ekki starfa í nýsköp-
unargreinum. Þar á ég t.d. við
hugbúnaðarfyrirtæki sem oft
greiða há laun en eru með hlut-
fallslega litlar tekjur. Af hverju
ætti fjárfestir sem ætlar sér að fjárfesta
ekki fremur að beina sjónum sínum að fyr-
irtæki sem er frekt á fjármagn en síður á
starfsmenn til að sleppa við skattlagningu
sem er með öllu óháð afkomu félagsins eins
og tryggingagjaldið er?
Skattaívilnanir vegna hlutafjárkaupa
gegna mikilvægu hlutverki þegar kemur að
því að hvetja til fjárfestingar. Hugsanlega
væri ráð að um sérstaka ívilnun væri að
ræða þegar fjárfest er í hlutafé lítilla og
millistórra fyrirtækja. Þannig myndum við
styrkja grunn þeirra og hvetja þau áfram.
Mín skoðun er sú að það þurfi að taka
rekstrarumhverfi lítilla og meðalstórra fyr-
irtækja til gagngerrar endurskoðunar. Þar
starfa flestir og þar er uppspretta vel laun-
aðra starfa í framtíðinni. Með því er ég
ekki að segja að stórfyrirtækin eigi að
verða útundan heldur að það verði að sinna
þeim litlu a.m.k. til jafns.
Eftir Tryggva Þór
Herbertsson
Höfundur er þingmaður NA-kjördæmis.
» Tryggingagjaldið sem nú
nemur rúmum 8% af laun-
um er mjög íþyngjandi fyrir
litlu fyrirtækin en einnig þau
mannaflsfreku sem oftar en
ekki starfa í nýsköpunar-
greinum.
Tryggvi Þór
Herbertsson
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013
Allir í strætó Ungdómurinn er vissulega stór hópur þeirra sem nota almenningssamgöngur eins og Strætó, en þó flækist alltaf einn og einn eldri með, enda ódýr ferðamáti og afslappandi.
Styrmir Kári
Nú um áramótin tóku gildi lög
um menningarminjar sem fela með-
al annars í sér að öll hús og mann-
virki hundrað ára eða eldri skuli
friðuð, en samkvæmt 2. mgr. 29. gr.
laganna er óheimilt að breyta, rífa
eða flytja hús sem er hundrað ára
eða eldranema með leyfi ríkisstofn-
unar, sem nefnist Minjastofnun Ís-
lands. Lögin ganga raunar enn
lengra því þar er einnig kveðið á um
að eigendum húsa sem byggð voru
1925 eða fyrr sé skylt að leita álits
Minjastofnunar með minnst sex
vikna fyrirvara hyggist þeir breyta þeim, flytja
þau eða rífa. Við þessa lagabreytingu urðu um
2.500 hús sjálfkrafa friðuð nú um áramótin. Áður
voru um 500 hús friðuð, en samkvæmt eldri lögum
voru öll hús byggð fyrir árið 1850 friðuð.
Friðun húss hefur í för með sér stórkostlegt
inngrip í eignarrétt sem varinn er af 72. gr.
stjórnarskrár, en eiganda friðaðrar fasteignar er
meira að segja óheimilt að framkvæma end-
urbætur eða sinna nauðsynlegu viðhaldi nema
með leyfi Minjastofnunar, en sækja þarf um leyfi
með minnst sex vikna fyrirvara. Brot á lögunum
varða við 177. gr. almennra hegningarlaga, þ.e.
fangelsi allt að þremur árum.
Markmið nýrra laga um minjavernd er að
„stuðla að verndun menningarminja og tryggja að
íslenskum menningararfi verði skilað óspilltum til
komandi kynslóða“. Sum gömul hús hafa sann-
arlega menningar- og sögulegt gildi, en flest ekki.
Meginþorri bárujárnsklæddra timburhúsa mið-
bæjar Reykjavíkur var til að mynda byggður af
miklum vanefnum og með allsherjarfriðun húsa
hundrað ára og eldri er gengið freklega á mann-
réttindi húseigenda. Það að hlutir séu gamlir ger-
ir þá ekki sjálfkrafa að merkilegum minjum með
sögulegt gildi. Hundrað ára reglan er ekki rök-
studd að neinu marki í athugasemdum með frum-
varpi því sem varð að lögum.
Það er bæði eðlileg og sanngjörn krafa að í mál-
um sem þessum sé gætt meðalhófs og að eigendur
friðaðra húsa hafi að minnsta kosti frjálsar hend-
ur um minniháttar breytingar til að hámarka
notagildi. Flest þeirra húsa sem orðin eru hundr-
að ára og eldri hafa tekið miklum breytingum svo
sem með nýrri klæðningu, nýjum gluggum, við-
byggingum og tilfæringum innanhúss. Nú í sum-
ar tóku stjórnvöld forskot á lögin og meinuðu eig-
anda hússins við Fríkirkjuveg ellefu að
framkvæma minniháttar breytingar á stiga inn-
anhúss. Sú breyting hefði aukið notagildi hússins
mikið fyrir eigandann, en ekki valdið varanlegu
tjóni á byggingunni.
Íslensk stjórnvöld, sem skipa fyrir um friðun
húsa, hafa sjálf umturnað gömlum
friðuðum húsum í eigu ríkissjóðs.
Þannig var skipulagi Safnahússins
við Hverfisgötu nýlega umbylt og
ekki eru mörg ár síðan allar innrétt-
ingar voru rifnar niður í Stjórn-
arráðshúsinu við Lækjartorg og
settar upp nýtískulegar. Og ekki
nema eðlilegt að húsum sé breytt,
þau færð til og ný reist í staðinn til
að koma til móts við nýja tíma og
nýjar þarfir.
Á umliðnum árum hefur verið
gengið allt of langt í friðun húsa.
Húsin neðst á Laugavegi eru dæmi
um hörmulegar afleiðingar ofstækis í þessum
málum. Einn stjórnmálamaðurinn vildi end-
urreisa eitthvað sem hann kallaði „nítjándu aldar
götumynd Laugavegar“. Sú götumynd er ekki til
og hefur aldrei verið til, enda byggðist Laugaveg-
urinn að mestu leyti á tuttugustu öldinni. Í þess-
um anda voru reist ónýt verslunarhús neðst á
Laugavegi með háum þrepum og engum útstill-
ingargluggum. Í umræddum smáhýsum er að
auki svo lágt til lofts að hæfir ekki nútíma-
verslunarhúsnæði.
Og úr því að rætt er um menningarverðmæti
þá eru þau ekki síður fólgin í atvinnustarfseminni
en húsunum. Flestir Reykvíkingar muna eftir
Reykjavíkurapóteki við Austurstræti, sem var
elsta og eitt glæsilegasta fyrirtæki landsins með
útskornum harðviðarinnréttingum. Hnignun mið-
borgarinnar varð þess valdandi að þetta fyrirtæki
og mörg önnur gamalgróin stórveldi í verslun
hurfu á braut. Fyrirtækin höfðu þjónað Reykvík-
ingum um áratugi, greitt skatta og skyldur, veitt
fjölda manns atvinnu og sett svip sinn á borgina.
Það má með skynsamlegum rökum segja að hin
gamalgrónu fyrirtæki hafi haft meira menning-
arlegt gildi en húsin sem þau voru starfrækt í.
Rétt er að gæta meðalhófs í húsverndarmálum,
ganga ekki of langt á mannréttindi fasteignaeig-
enda og huga sem best að notagildi húsa fyrir
starfsemi á 21. öldinni. Þannig hlúum við best að
þeim menningararfi sem er fólginn í gömlum hús-
um. Allsherjarfriðun húsa hundrað ára og eldri er
hins vegar glórulaus frá sögulegu jafnt sem hag-
nýtu sjónarmiði.
Eftir Björn Jón Bragason
»Rétt er að gæta meðalhófs í
húsverndarmálum og
ganga ekki of langt á mann-
réttindi fasteignaeigenda.
Björn Jón
Bragason
Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka kaup-
manna og fasteignaeigenda við Laugaveg.
Húsafriðun á villigötum