Morgunblaðið - 12.01.2013, Qupperneq 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Myndlistarkonan Jóna Hlíf Halldórs-
dóttir og fatahönnuðurinn Guðjón
Sigurður Tryggvason opna í dag kl.
17 fyrstu samsýningu sína í Kling &
Bang galleríi og nefnist hún Reflar –
brot úr einkalífi 2002 – 2012. Þar sýna
þau innsetningu sem þau unnu saman
og samanstendur hún af textaverki,
hljóðverki og hreyfiverki sem mynda
frásögn. Sú frásögn er byggð á sam-
skiptum Jónu og Guðjóns, m.a. bréfa-
sendingum og samtölum sem spanna
tíu ár, 2002-12.
„Við Guðjón erum búin að vera vin-
ir í áratug og erum miklir tölvupósts-
vinir, skrifumst mikið á og þar sem
við vinnum bæði við skapandi greinar
erum við oft að fá komment frá hvort
öðru fyrir hugmyndir. Fyrir um fimm
árum síðan töluðum við um hvað það
væri gaman að halda sýningu saman
og nú er komið að því,“ segir Jóna,
spurð að því hvernig samstarfið hafi
komið til.
Jóna segir þau Guðjón hafa búið til
nýja leturgerð fyrir sýninguna og val-
ið ýmsar setningar úr tölvupóstum.
„Svo getur áhorfandinn komið og
reynt að finna út hvað er á bakvið
munstrið,“ segir Jóna leyndardóms-
full en gefur blaðamanni eina setn-
ingu til hugleiðingar: Humar og
rækjur eru okkar ær og kýr.
Vinir búa til eigin tungumál
– En hver er hugmyndin að baki
sýningunni?
„Ég myndi segja að hugmyndin á
bakvið þetta væri hvernig samskipti
og samskipti milli vina eru, hvernig
vinir búa til sín eigin tungumál sem
kannski enginn annar skilur. Við erum
líka að vinna með myndlæsi, textalæsi
og fagurfræðina í vinskap, tungumáli
og myndmáli,“ útskýrir Jóna.
– Þið eruð ekki bara með textaverk
heldur líka hljóð- og hreyfiverk.
Hvernig lýsa þau sér?
„Hljóðverkið er mjög einfalt, taktur
„búmm, búmm, búmm“ sem er mjög
persónulegur taktur sem við notum á
milli okkar. Það er taktur í tungumál-
inu og formunum, ryþmi í þessu öllu
saman og við erum að undirstrika það
með þessu hljóðverki. Svo erum við
með hjólabretti því það er mikill leikur
í þessu og okkur langaði að hafa ein-
hverja hreyfingu, upp á rýmið að gera.
Hjólabrettin binda allt saman og
koma kannski með þetta „naive-a“,
barnið í manni og gera heildarmynd-
ina og konseptið betra,“ segir Jóna að
lokum.
Frekari upplýsingar má finna á
http://this.is/klingogbang/.
Samskipti Vinirnir Jóna Hlíf og Guðjón í sýningarsal Kling & Bang gallerís
að Hverfisgötu 42. Innsetning þeirra verður þar fram til 10. febrúar.
Fagurfræði
vináttunnar
Jóna og Guðjón sýna í Kling & Bang
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Samhengi hlutanna nefnist sýning
sem opnuð verður í Listasafninu á
Akureyri í dag kl. 15, en þar sýna
Finnur Arnar Arnarsson og Þórar-
inn Blöndal ný verk unnin með
blandaðri tækni. „Við erum miklir
vinir og ekki ósennilegt að það skili
sér inn í sýninguna. Við höfum unnið
talsvert saman í gegnum tíðina, s.s. í
leikhúsinu sem leikmyndahönnuðir
og við gerð sýninga á ýmsum
byggðasöfnum, en þetta er í fyrsta
sinn sem við sýnum saman,“ segir
Finnur Arnar.
Spurður um verk sín á sýninguni
segir Finnur að þau séu afrakstur af
hugmyndum sem hann hafi gengið
með í höfðinu sl. ár. „Ég sýni m.a.
tvö vídeóverk þar sem myndin er
tvískipt hlið við hlið. Síðan er ég með
ljósmyndaverk sem samanstendur
af sjö ljósmyndum af þurrkuðum
blómum. Þau tíndi ég vestur á fjörð-
um í fyrra eða hittiðfyrra, þurrkaði
þau inni í Biblíu og þegar þau voru
orðin vel pressuð lét ég ljósmynda
opnurnar,“ segir Finnur. Hann við-
urkennir fúslega að hann sé með
þessu verki ásamt fleirum að velta
fyrir sér tilvistarspurningum um líf
og dauða, sköpun og tortímingu og
hinn hverfula tíma. „Annað ljós-
myndaverk á sýningunni eru tvær
portrettmyndir af mér daginn fyrir
og daginn eftir ófrjósemisaðgerð
sem ég fór í þegar mér fannst fjöl-
skyldan vera orðin nógu stór. Með
þessu verki er ég að velta fyrir mér
hvað sé að vera frjór og ófrjór í víð-
um skilningi, en það er ákveðið skref
að láta gelda sig.“
Vinnustofa í kúlu
Þórarinn hefur smíðað sérstaka
kúlu inn í sýningarrýmið. Í frétta-
tilkynningu frá Sjónlistamiðstöðinni
á Akureyri kemur fram að val Þór-
arins á hnettinum hafi leitt af sér
sannkallaða töfrasmíð, þ.e. vinnu-
stofu listamannsins sem rúmist sjálf
innan í hveli. „Fyrir hvert nýtt verk-
færi eða efnivið, sem Þórarinn telur
nauðsynlegt að koma sér upp á
vinnustofunni í kúlunni, verður jafn-
framt að endurskapa sérhvern nýjan
hlut sem þannig er kominn til sög-
unnar. Og þannig áfram koll af kolli
allt þar til fullsmíðaður hnöttur hef-
ur fæðst af öðrum langtum stærri.“
Þess ber að lokum að geta að sýn-
ingin stendur til 3. mars, en opið er
alla daga nema mánudaga og þriðju-
daga milli kl. 13-17. Aðgangur er
ókeypis.
Tilvistarspurningar
Vinir „Við erum miklir vinir og ekki ósennilegt að það skili sér inn í sýn-
inguna,“ segir Finnur Arnar Arnarsson sem sýnir með Þórarni Blöndal.
Samhengi hlut-
anna opnuð á Akur-
eyri í dag
Kristinn G. Jóhannsson opnar
myndlistarsýningu í Mjólkurbúðinni
í Listagilinu á Akureyri í dag kl. 15.
„Hvað sem annars má segja um
þessi verk verður því með engu móti
haldið fram, með réttu, að þeim hafi
verið hróflað upp í skyndi eða í óða-
goti,“ segir Kristinn m.a. um sýn-
inguna og rifjar upp að sum verk-
anna hafi hann fyrst skorið til fyrir
rúmum þrjátíu árum.
„En nú loksins hefur mér auðnast
það eftirlæti að koma verkunum til
annarrar meðvitundar. Þau eru orð-
in eins og mig minnir ég hafi ætlað
þeim í upphafi … Þar sem þetta
verkefni hefur tekið mig þrjátíu ár
og ég að nálgast áttrætt er ekki talið
líklegt ég ljúki öðru slíku verki. Er
þó langlífi í ættum sem að mér
standa … Þess vegna má, held ég,
lofa ykkur því, að með þessu ljúki út-
skornu, grafísku og þrykktu lífi
mínu.“ Kristinn varð stúdent frá MA
árið 1956 og nam myndlist á Akur-
eyri, í Reykjavík og í Edinburgh
College of Art. Hann efndi til fyrstu
sýningar sinnar á Akureyri 1954 og
hefur síðan sýnt bæði oft og víða
jafnt heima sem erlendis.
Sum verkanna 30 ár í vinnslu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Listamaður Kristinn G. Jóhannsson.
Ljósmyndasýningunni Fólkið á
Þórsgötu - Skyndimyndir frá ár-
unum 2004-2012, sem sýnd hefur
verið í Þjóðminjasafni Íslands, lýk-
ur nú um helgina. Á sýningunni eru
ljósmyndir af íbúum Þórsgötu í
Reykjavík, ýmist á heimilum sínum
eða við aðrar aðstæður. Höfundur
er Alda Lóa Leifsdóttir.
„Hver manneskja er veröld, ein-
stök og helg. Þegar hún hverfur
endar heimurinn, veröld sem var
og kemur aldrei aftur. Mestu verð-
mæti lífsins, allt það sem aðeins
rúmast í hjarta einnar manneskju
glatast að eilífu … Samfélag á milli
okkar er sjálfstæð veröld, heimur
sem við mótum úr þeim hliðum sem
við snúum hvert að öðru. Þegar við
förum hverfur hann ekki, það sem
við lögðum til situr eftir og hjálpar
öðru fólki til að tengjast,“ segir
m.a. í sýningartexta.
Ljósmynd/Alda Lóa Leifsdóttir
Minning Ein af þeim myndum sem gefur
að líta á sýningunni Fólkið á Þórsgötu.
Sýningarlok á
Fólkinu á Þórsgötu
LISTASAFN ÍSLANDS
Laugardaginn 12. janúar
tvær nýjar sýningar opnaðar
Aðdráttarafl
Björk Viggósdóttir
Teikningar
Ingólfur Arnarsson
Tónleikar
Sunnudaginn 13. janúar kl. 20
Sæunn Þorsteinsdóttir selló
Sam Armstrong píanó
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Síðasta sýningarhelgi ljósmyndasýninganna:
Fólkið á Þórsgötu-Skyndimyndir frá árunum 2004-2012 og
Þvert yfir Grænlandsjökul 1912-1913
Sunnudagur 13. janúar kl. 14-16:
Alda Lóa Leifsdóttir spjallar við gesti um sýninguna Fólkið á Þórsgötu
Aðrar sýningar á Þjóðminjasafni:
Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár
Einvígi aldarinnar. Fischer og Spassky – 40 ár
Ratleikir, spennandi safnbúð og kaffihús.
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17
REK; Anna Hallin & Olga Bergmann 10.11.2012 – 27.1.2013
VETRARBÚNINGUR 10.11.2012 – 27.1.2013
HÆTTUMÖRK 19.5.2012– 27.1.2013
SUNNUDAGSLEIÐSÖGN kl. 14
um sýningar safnsins í fylgd Rakel Pétursdóttur safnafræðings.
SAFNBÚÐ - Listaverkabækur, gjafakort og listrænar gjafavörur.
KAFFISTOFA - Heit súpa í hádeginu, úrval kaffidrykkja og heimabakað meðlæti.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
UMHVERFIS LANDIÐ Á FÁEINUM ÁRATUGUM og FORNMENN
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616
Opið þriðjudaga til fimmtudaga kl. 11-14, sunnudaga kl. 13-16
www.listasafn.is
Calum Colvin sýnir í anddyri
Skoski myndlistarmaðurinn Calum Colvin sýnir myndverk í anddyri Norræna
hússins 5.-20.janúar 2013. Myndir hans eru á mörkum ljósmyndunar og málverks.
Borderlines
Í heilt ár unnu 12 ungir ljósmyndarar frá fjórum frábrugðnum löndum á
landamærum Evrópu að ólíkum verkum í kring um þemað landamæri.
Áfram Ísland
Hægt verður að fylgjast með leik Íslands og Rússlands 12. janúar kl. 16.55.
Leikurinn er sýndur í sal Norræna hússins á breiðtjaldi.
Norræna húsið, Sturlugötu 5, s. 551 7030
www.norraenahusid.is , nh@nordice.is
Opið alla virka daga 9-17, helgar 12-17. Aðgangur ókeypis.
NORRÆNA HÚSIÐ
Söfn • Setur • Sýningar
Gísli B.
Fimm áratugir í grafískri hönnun
Opið alla daga nema mán. kl. 12-17.
Verslunin KRAUM í andddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is