Morgunblaðið - 01.02.2013, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1. F E B R Ú A R 2 0 1 3
Stofnað 1913 26. tölublað 101. árgangur
LEIKRITIÐ NÓTTIN
NÆRIST Á DEG-
INUM FRUMSÝNT
UPPVAKNINGAR
FJÖLMENNTU Á
HVERFISGÖTU
SPÁNVERJAR VÍÐA
Í FREMSTU RÖÐ Í
ÍÞRÓTTUM
BARÁTTA 39 ÁSTÆÐUR ÍÞRÓTTIRSÁLFRÆÐITRYLLIR 38
Þúsundir
flytja frá
Íslandi
Óvenjumargir
fóru eftir hrun
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ef flutningsjöfnuðurinn á hverja
þúsund íbúa er skoðaður kemur í ljós
að tölurnar eru svipaðar undir lok sjö-
unda áratugarins, þegar síldin fór, og
eftir efnahagshrunið 2008. Þegar
brottflutningurinn er hins vegar lagð-
ur saman yfir nokkur ár eru erfiðleik-
arnir orðnir meiri en sjá má í öðrum
niðursveiflum,“ segir Ólöf Garðars-
dóttir, prófess-
or í sagnfræði
við Háskóla Ís-
lands, um
íbúaþróunina.
Fjallað er um
búferlaflutn-
inga á síðustu
20 árum í Morg-
unblaðinu í dag
og kemur þar
fram að öll árin
nema þrjú hafa
fleiri íslenskir
ríkisborgarar
flutt frá landinu
en til þess.
Hlutfallið er öf-
ugt hjá erlendum ríkisborgurum.
Alls fluttust 936 íslenskir ríkisborg-
arar frá landinu í fyrra og eru brott-
fluttir umfram aðflutta á tímabilinu
1993-2012 alls 14.155, eða nærri tveir
á dag öll árin.
Til samanburðar eru aðfluttir er-
lendir ríkisborgarar umfram brott-
flutta alls 22.904 á tímabilinu. Bætt-
ust 617 í hópinn í fyrra.
Brynjólfur Sigurjónsson, sérfræð-
ingur hjá Hagstofunni, segir það
langtímaþróun að fleiri íslenskir ríkis-
borgarar flytjist frá landinu en til
þess. Flestir þeirra sem flytji af landi
brott séu námsmenn.
„Straumurinn liggur alltaf út. Það
er bara þannig,“ segir Brynjólfur.
MStöðugur straumur »6
Meistaradeildin í hestaíþróttum hófst í Ölfushöll-
inni í gærkvöldi fyrir troðfullu húsi áhorfenda.
Keppt var í fjórgangi en úrslit lágu ekki fyrir
þegar blaðið fór í prentun. Var þetta fyrsta mót-
ið af sex en þar sem deildin fer nú í gang í tíunda
skiptið var fyrst sérstök opnunarhátíð í höllinni.
Hér undirbúa sig fyrir mót liðsfélagarnir Sig-
urður Sigurðarson með Loka frá Selfossi og Sig-
urbjörn Bárðarson með Hróður frá Laugabóli.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Meistaradeildin hafin í hestaíþróttum
Húsfyllir í Ölfushöllinni og mikil stemning á opnunarhátíð í gærkvöldi
Töluverður samdráttur hefur verið
í útflutningi á lambakjöti til landa
Evrópusambandsins og verðið
lækkað. Á liðnu ári voru til dæmis
aðeins flutt út 11 kíló af lambakjöti
til Spánar og mikill samdráttur og
verðlækkanir hafa líka orðið á
Bretlandseyjum.
Árið 2010 var flutt út 3.571 tonn
af lambakjöti en 2.457 tonn
ná liðnu ári. Munurinn er
1.114 tonn.
Í fyrra nam útflutn-
ingsverðmæti lamba-
kjöts 1.774 millj-
ónum króna en
2.136 milljónum
2010. Meðalverðið
lækkaði á síðasta ári úr
736 krónum á kíló í 635 kr.
Sigurður Eyþórsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
sauðfjárbænda, segir að talsverðar
vonir hafi verið bundnar við Spán-
armarkað en efnahagsástandið í
landinu, mikið atvinnuleysi og
minnkandi kaupmáttur, hafi leitt til
minni eftirspurnar. Verð-
lækkunina megi rekja
til mikils útflutn-
ings á lambakjöti
frá Nýja-Sjálandi
til landa Evrópu-
sambandsins.
Þrátt fyrir góða
sölu innanlands hafi
orðið nokkur birgða-
söfnun. »12
Aðeins 11 kg af lambakjöti til Spánar
Skíðasvæðið í Skálafelli verður
opnað um helgina. Svæðið var opið
í fyrra en hafði ekki verið opið árin
tvö þar á undan. Að sögn fram-
kvæmdastjóra svæðisins verður í
það minnsta opið fram að páskum.
Menn vinna nú hörðum höndum á
snjótroðurum til að gera allt klárt
fyrir opnun. Hefur starfsfólk verið
þar að verki allan janúarmánuð.
Áfram verður hægt að fara í Blá-
fjöll en einungis hefur verið hægt
að hafa opið þar í 21 dag frá því í
desember. Ekki er snjóleysi um að
kenna heldur mikilli vindatíð. »14
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Snjórinn troðinn Snjótroðarar gerðu skíðabrekkur í Skálafelli tilbúnar fyrir
skíðaiðkendur sem eflaust iða í skinninu eftir að renna sér þar um helgina.
Opnað í
Skálafelli
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Flestar breytingarnar sem gerðar
hafa verið frá frumvarpinu sem var
lagt fram í fyrra eru til hins verra
fyrir útgerðina,“ sagði Friðrik J.
Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, um fiskveiðistjórnunarfrum-
varpið sem Steingrímur J. Sigfússon
atvinnuvegaráðherra lagði fram í
gær.
„Þetta er í grundvallaratriðum
sama frumvarpið sem mun veikja ís-
lenskan sjávar-
útveg og draga úr
hagkvæmni hans.
Það á að skerða
aflaheimildir enn
meira en áður.
Áfram er gert ráð
fyrir að þorskur
verði skertur um
9,5% og meira
þegar heildar-
aflamark nær
240.000 tonnum. Þá verða 50% tekin
til viðbótar. Enn er gert ráð fyrir að
taka 9,8% af steinbít, 6,9% af ýsu og
7,2% af ufsa. Við mótmælum því
harðlega að þessar fjórar tegundir
séu skertar meira en aðrar. Lagt er
til að skerða allar aðrar tegundir um
7%. Þetta eru allt of miklar skerð-
ingar,“ sagði Friðrik.
Ein af stóru breytingunum, að
mati Friðriks, er sú að nú á að setja
mun meira af aflaheimildum í hend-
ur ríkisins sem verður mjög stór
þátttakandi á kvótamarkaði í gegn-
um kvótaþing. Hlutverk þess verður
annars vegar að vera vettvangur
fyrir viðskipti með aflamark en hins
vegar að selja eða leigja aflaheim-
ildir sem ríkið tekur af útgerðunum.
Friðrik minnti á að frumvarpið
sem lagt var fram í fyrra hefði feng-
ið mjög neikvæðar umsagnir frá
flestum. Hann sagði þær umsagnir
enn vera í fullu gildi.
„Það er augljóst mál að þetta
frumvarp er gamalt vín á nýjum
belgjum,“ sagði Einar K. Guðfinns-
son, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
MMikill kvóti fer til kvótaþings »2
Breytingar til hins verra
Nýja fiskveiðistjórnunarfrumvarpið er í grundvallaratriðum það sama og lagt var
fram í fyrra, að sögn LÍÚ Mun veikja íslenskan sjávarútveg og draga úr hagkvæmni
Friðrik J.
Arngrímsson
14.155
brottfluttir um-
fram aðflutta árin
1993-2012
617
erlendir ríkis-
borgarar bættust
við í fyrra