Morgunblaðið - 01.02.2013, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2013
Nánar um
LGG+ á ms.is/lgg Fyrir fulla virkni
Ein á dag
Nú með
bláberjabragði
Nýjun
g
bláber
ja
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
Gunnar Kristjánsson
Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra,
telur mjög mikilvægt að gera áætlun um vöktun ástands-
ins í Kolgrafafirði á norðanverðu Snæfellnesi. Sem kunn-
ugt er drapst mikið af síld í firðinum fyrir áramótin og rak
töluvert af henni á land.
Svandís fór vestur í Kolgrafafjörð í vettvangsferð í gær.
Hún byrjaði á að kynna sér aðstæður við bæinn Eiði í
Kolgrafafirði og ræddi við ábúendur. Síðan var haldið í
fjöruna neðan við bæinn en hún er nú þakin grútarkúlum.
„Það var mjög fróðlegt að ganga þarna um með heima-
mönnum. Það er gríðarlega mikill grútur þarna í fjör-
unni,“ sagði Svandís í samtali við Morgunblaðið. Hún
sagði heimamenn segja að grúturinn hefði brotnað hraðar
niður upp á síðkastið en þeir hefðu þorað að vona.
Mikilvægt að afla sem mestra upplýsinga
Eftir að hafa heimsótt Kolgrafafjörð hélt ráðherra með
föruneyti sínu í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grund-
arfirði. Í för með ráðherranum voru m.a. forstjóri Um-
hverfisstofnunar og fulltrúar Hafrannsóknastofnunar, auk
starfsfólks Náttúrustofu Vesturlands, sveitarstjórnarfólk
af svæðinu og heimamenn. Á fundinum voru og fulltrúar
úr heilbrigðisnefndum og umhverfisnefnd. Rætt var um
úrræði og viðbrögð við umhverfisslysinu í Kolgrafafirði.
Vísindamenn fóru yfir hugsanlegar ástæður síldardauð-
ans, stöðu málsins og mögulega þróun í framhaldinu, að
því er segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Svandís sagði að starfsmenn Náttúrustofu Vesturlands
hefðu vaktað fuglalífið í firðinum og Hafrannsóknastofn-
unin skoðað bæði súrefnismettun og aðra þætti í sjónum.
Menn voru sammála um mikilvægi þess að afla sem
mestra upplýsinga. Svandís sagði það hafa verið sína nið-
urstöðu að leggja til að gerð yrði vöktunaráætlun í sam-
vinnu við heimamenn og þær stofnanir sem að málinu
koma til þess að fylgjast ítarlega með framvindu málsins.
Hún sagði þennan viðburð vera einstakan, hvort sem litið
væri til Íslands eða víðar.
„Svona hefur ekki gerst í þessum mæli svo vitað sé,“
sagði Svandís. Hún sagði það vera gríðarlega mikilvægt
og forgangsmál að vakta vel hver framvinda málsins yrði,
ekki síst þegar náttúran færi að lifna við í vor. Stilla þyrfti
saman strengi stofnana sem vakta ástandið og afla gagna,
en einnig þarf að meta hvort grípa þurfi inn í með ein-
hverjum hætti á síðari stigum.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Kolgrafafjörður Bjarni Sigurbjörnsson (t.v.), bóndi á Eiði, lýsir aðstæðum fyrir Svandísi Svavarsdóttur umhverf-
isráðherra og fylgdarliði hennar í fjörunni á Eiði. Mikill grútur er í fjörunni og fylgir honum mikill fnykur.
Vöktunaráætlun gerð
fyrir Kolgrafafjörð
Umhverfisráðherra ræddi við heimamenn um ástandið
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Langvía Grútarblaut langvía var í fjörunni í Kolgrafa-
firði. Hún var handsömuð og verður reynt að hreinsa
grútinn úr fiðrinu á næstu dögum.
Fulltrúum hjúkrunarfræðinga voru
settir úrslitakostir á fundi sam-
starfsnefndar Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga og Landspítala
í gærmorgun, samkvæmt frétt sem
birt var á vefsvæði Fíh í gær. For-
maður félagsins var boðaður á fund
í fjármála- og efnahagsráðuneytinu
á miðvikudag, þar sem honum voru
kynnt útspil ríkisstjórnarinnar og
það fjármagn sem er til ráðstöfunar
vegna endurskoðunar stofnana-
samnings.
Kannast ekki við upphæðina
Í fréttum Ríkisútvarpsins í gær-
kvöldi kom fram að stjórnvöld
hygðust veita rúmar 400 milljónir á
ársgrundvelli til endurskoðunar-
innar en í samtali við mbl.is í gær
sagðist Elsa B. Friðfinnsdóttir, for-
maður Fíh, ekki kannast við þá tölu.
„Þetta er hærri tala en ég hef
heyrt áður. Að auki verður að taka
tillit til þess að þetta er með launa-
tengdum gjöldum þannig að það
verður að byrja á því að draga 25%
frá og skipta upphæðinni síðan á
milli þeirra 1.348 hjúkrunarfræð-
inga sem vinna á Landspítalanum,“
sagði Elsa.
Hún sagðist ekki vilja tjá sig um
hvaða upphæð hefði verið nefnd á
fundum deiluaðila fyrr en hún hefði
verið kynnt hjúkrunarfræðingum á
Landspítalanum á kynningarfundi
næstkomandi mánudag.
Með eða án samnings
„Við viljum auðvitað helst að stétt-
arfélagið sé með í því að koma þess-
um peningum út og gera við okkur
samning. En ef ekki næst samningur
munum við koma þessum peningum
til okkar hjúkrunarfræðinga án
stofnanasamnings,“ sagði Björn
Zoëga, forstjóri Landspítala, við
mbl.is í gær.
Hann sagði það mjög skýrt af
hálfu ríkisstjórnarinnar að meiri
peningar væru ekki til í bili og að
næsta skref í jafnlaunastefnu stjórn-
valda yrði tekið í kjarasamningum.
holmfridur@mbl.is
Settir úrslitakostir
á samningafundi
Ekki til meiri peningar í bili Efna
til kynningarfundar á mánudag
Björn
Zoëga
Elsa B.
Friðfinnsdóttir
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðherra, lagði
fram í gær nýtt frumvarp til laga um
stjórn fiskveiða. Það er þriðja frum-
varpið sem lagt er fram á þessu kjör-
tímabili um heildarendurskoðun á
lögum um stjórn fiskveiða.
Helstu breytingar frá frumvarp-
inu sem var lagt fram á síðasta þingi
eru m.a. að nú er gert ráð fyrir því að
verulegu aflamarki verði ráðstafað í
kvótaþing til útleigu á vegum ríkis-
ins. Í frumvarpinu kemur fram áætl-
un til þriggja ára um heimildir sam-
kvæmt svonefndum 2. flokki.
Aflamarki sem kemur til ráðstöfunar
á hverju fiskveiði-
ári samkvæmt
aflahlutdeild í 2.
flokki á að skipta
með reglugerð til
úthlutunar á
kvótaþingi, til
strandveiða og til
sérstakra ráð-
stafana eins og
bóta og byggða-
kvóta, línuíviln-
unar o.fl. Í frumvarpinu er gerð til-
laga um að tekjur af ráðstöfun
aflamarks úr flokki 2 á kvótaþingi
skiptist í þessum hlutföllum: Ríkið
fái 40%, sveitarfélög 40% og mark-
aðs- og þróunarsjóður tengdur sjáv-
arútvegi fái 20%.
Áætlun gerir ráð fyrir að í kvóta-
þing renni tæp 19 þúsund þorskígild-
istonn (þíg) fiskveiðiárið 2013/14, en
það mun aukast og er gert ráð fyrir
að í kvótaþing renni tæp 33 þúsund
þíg tonn fiskveiðiárið 2015/16.
„Hluti af aukningunni er tilfærsla
frá byggðakvóta, línuívilnun og skel
og rækjubótum en megnið er afla-
mark sem fengið er með varnalegri
tilfærslu frá aflahlutdeildarhöfum,“
segir í athugasemdum við frumvarp-
ið. Þá er gert ráð fyrir því að fastri
aflahlutdeild verði ráðstafað til
strandveiða.
Skerðing aflahlutdeilda fiskiskipa
á að taka gildi þegar frá upphafi
næsta fiskveiðiárs, 2013/2014. Lagt
er til að hverjum eiganda fiskiskips
verði gert að gangast undir nýting-
arleyfi frá og með næsta fiskveiðiári.
Nýtingarleyfið mun heimila honum
að stunda veiðar á þeim hlutdeildum
sem hann ræður yfir. Lagt er til að
nýtingarleyfin gildi í 20 ár frá 1.
september 2013. Ekki er mælt fyrir
um sjálfkrafa úthlutun hlutdeild-
anna til 15 ára í senn við upphaf
hvers fiskveiðiárs að fimm árum
liðnum frá gildistöku frum-
varpsins.
Þá er kveðið á um að ráð-
herra skuli, eigi síðar en í des-
ember 2016, leggja fram frum-
varp þar sem mælt verði fyrir
um ráðstöfun nýtingarleyfa og
aflahlutdeilda að liðnum 20
ára úthlutunartímanum.
Mikill kvóti fer til kvótaþings
Nýtt frumvarp til laga um stjórn fiskveiða lagt fram í gær Ráðstafa á veru-
legu aflamarki í gegnum kvótaþing ríkisins Skerðing á núverandi aflaheimildum „Það er augljóst mál að þetta
frumvarp er gamalt vín á nýjum
belgjum,“ sagði Einar K. Guð-
finnsson, þingmaður Sjálfstæð-
isflokks, um nýtt frumvarp
Steingríms J. Sigfússonar.
Einari leist illa á það sem hann
var búinn að sjá af frumvarpinu.
„Þarna ganga aftur gamlir kunn-
ingjar sem voru metnir af sér-
fræðingum sem komust að þeirri
niðurstöðu á sínum tíma að
þessi leið sem ætlunin væri að
feta myndi leiða til lakari og
veikari sjávarútvegs sem
myndi gefa þjóðinni minni
heildarafrakstur.“ sagði Einar.
hjorturjg@mbl.is
Gamalt vín á
nýjum belgjum
NÝJA FRUMVARPIÐ
Einar K.
Guðfinnsson
Steingrímur J.
Sigfússon