Morgunblaðið - 01.02.2013, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2013
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Kaffivélar fyrir
skrifstofur
og mötuneyti
Fullkomið kaffi,
espresso, cappucicino
eða latté macchiato
með einni snertingu.
Tilboðsverð kr. 276.675 m.vsk.
Verð frá kr. 325.500 m.vsk.
Tilboð
Stjórn Heimdallar heiðraði í gær þá sem henni þóttu hafa staðið sig best í
baráttunni gegn Icesave. Heiðraðir voru nokkrir einstaklingar og hópar,
ásamt Morgunblaðinu, sem var heiðrað „vegna staðfestu blaðsins og góða
og málefnalega fréttamennsku í kringum Icesave deiluna“. Á myndinni eru
f.v.: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður Heimdallar, Sigríður Á.
Andersen, Advice-hópnum, Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokks, Frosti Sigurjónsson, Advice-hópnum, Pétur H. Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, Sveinn Tryggvason og Jón Helgi Egilsson, Advice-
hópnum, Sigurður Kári Kristjánsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæð-
isflokks, Ólafur Nielsen, fv. formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna,
Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, og Einar Smárason, vara-
formaður Heimdallar. Fjarverandi voru Unnur Brá Konráðsdóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og
aðstandendur InDefence, sem einnig voru heiðruð.
Talin hafa staðið sig best í baráttunni gegn Icesave-samningunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einstaklingar og hópar heiðraðir af Heimdalli
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Svo virðist sem sala á sólar-
landaferðum hafi farið vel af stað nú
í vetur að því er fulltrúar tveggja
stórra ferðaskrifstofa segja.
„Árið í fyrra var mjög gott, eigin-
lega það besta eftir hrun, og það
varð aukning á milli ára. Ég á von á
að þetta ár verði ekki síðra og jafn-
vel betra miðað við móttökurnar
sem við höfum fengið. Það er greini-
legt að fólk ætlar að ferðast í ár,“
segir Þyri Kristínardóttir, sölustjóri
Heimssýnar, um bókanir fyrirtæk-
isins á sólarlandaferðum.
Nú sé fjölskyldufólk farið að
ferðast í auknum mæli en stopp hafi
komið á ferðir þess hóps eftir hrun-
ið. „Það er gaman að sjá þann mark-
að styrkjast aftur,“ segir hún.
Þá virðast endalok Icesave-
málsins hafa hvatt einhverja til að
leggjast í ferðalög.
„Daginn sem Icesave-dómurinn
féll komu tveir viðskiptavinir sem
tóku það sérstaklega fram að þeir
væru að bóka ferð í tilefni af þessum
góðu fréttum!“ segir Þyri.
Lofar góðu fyrir sumarið
„Það er bullandi sala og hún fer
betur af stað en í fyrra. Þetta lofar
góðu fyrir sumarið,“ segir Steinunn
Tryggvadóttir, sölustjóri Úrvals/
Útsýnar, en hún er einnig með
Sumarferðir og Plúsferðir á sínum
snærum.
Fyrirtækið hefur auglýst mikið að
undanförnu og hefur boðið upp á
kynningarverð á völdum ferðum og
tilboð sem gilda í sólarhring.
„Það ýtir kannski við þeim sem
eru ákveðnir í að fara af stað. Við er-
um himinlifandi með viðbrögðin.“
Vinsælustu áfangastaði fyrirtæk-
isins í sólinni segir Steinunn vera
spænsku staðina Tenerife og Al-
mería.
Lausn Icesave kveikti í fólkinu
„Bullandi“ sala á sólarlandaferðum að undanförnu Salan fer betur af stað
en í fyrra Fjölskyldufólk sagt hugsa sér til hreyfings eftir stopp síðustu árin
Morgunblaðið/Ásdís
Sólarströnd Margir ætla að bregða sér í sólina næsta sumar.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Engar hraðamyndavélar hafa verið í
notkun við gatnamót á höfuðborgar-
svæðinu frá árinu 2009, að sögn að-
stoðaryfirlögregluþjóns. Hlutverk
búnaðarins er jafnframt að mynda þá
sem aka gegn rauðu ljósi.
„Þær voru í kössum og færðar á
milli helstu gatnamóta. Nú er unnið
að endurnýjun á þessum búnaði í
samstarfi við Reykjavíkurborg og
Vegagerðina. Við gerum ráð fyrir því
að ráðin verði bót á málinu á þessu
ári,“ segir Kristján Ólafur Guðnason,
aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu.
„Bilun í búnaði varð til þess að
myndavélarnar duttu út. Við ætluð-
um að gera við búnaðinn en ákveðið
var að endurnýja
hann. Kostnaður-
inn við það er
mikill og enn er
eftir að klára
það,“ segir Krist-
ján Ólafur.
Um er að ræða
þrjár myndavélar
sem teknar voru
í notkun á höfuð-
borgarsvæðinu á
árunum 1997-1998. Ásamt því að
fylgjast með hraða ökutækja er bún-
aðinum ætlað að mynda þá sem
keyra á móti rauðu ljósi. „Búnaður-
inn virkaði mjög vel á meðan hans
naut við,“ segir Kristján.
Að sögn Auðar Þóru Árnadóttur
hjá Vegagerðinni er kostnaður við að
koma upp nýrri myndavél við gatna-
mót um 10 milljónir króna. Þegar
hafi myndavél verið keypt en tækni-
legir örðugleikar hafi leitt til þess að
ekki hafi verið hægt að koma vélinni
upp.
Hraðamyndavél í ómerktum bíl
Þó engar myndavélar hafi verið við
gatnamót er, að sögn Kristjáns, ein
hraðamyndavél í notkun í ómerktum
bíl. Er hún gjarnan á vettvangi í
hverfum þar sem íbúar hafa kvartað
undan hraðakstri. „Hann er í notkun
á öllu höfuðborgarsvæðinu. Sérstak-
lega við grunnskóla og á stöðum þar
ábendingar hafa borist okkur vegna
hraðaksturs eða þar sem slys hafa
verið tíð. Upplýsingar úr þessum
mælingum hafa sveitarfélögin getað
nýtt sér og gert ráðstafanir þar sem
við á,“ segir Kristján.
Tómir myndavélakassar
Engar hraðamyndavélar við gatnamót frá árinu 2009
Tómt Myndavéla-
kassar eru tómir.
Hæstiréttur stað-
festi í gær sýknu-
dóm Héraðsdóms
Reykjaness yfir
Einari Marteins-
syni, fyrrverandi
forseta Vítis-
engla á Íslandi,
en hann var
ákærður fyrir
aðild að sér-
staklega hættu-
legri líkamsárás, þegar ráðist var
inn á heimili konu aðfaranótt 22.
desember 2011 og hún beitt grófu
ofbeldi. Einar og annar maður voru
sýknaðir af ákærum í málinu en
Hæstiréttur þyngdi dóma fjögurra
annarra einstaklinga sem voru sak-
felldir í héraðsdómi.
Hæstiréttur stað-
festi sýknudóm
Einar
Marteinsson
Hæstiréttur hefur dæmt fjóra karl-
menn í fangelsi fyrir sérstaklega
hættulega líkamsárás á grískan
ferðamann í miðborg Reykjavíkur
7. maí 2010. Þyngsti dómurinn er
þriggja ára fangelsi og var dóm-
urinn þyngdur um eitt ár. Refsing
annarra var milduð eða staðfest.
Árásin var gerð í Þingholtsstræti
og nokkru síðar í Bankastræti.
Mennirnir veittust í félagi að manni
með ofbeldi, meðal annars með
ítrekuðum höggum og spörkum
víðsvegar í líkama hans, höfuð og
andlit.
Maðurinn sem varð fyrir árásinni
lést 14. desember árið 2011 í út-
hverfi Rómar á Ítalíu.
Fjórir menn dæmdir
fyrir líkamsárás
Hæstiréttur vís-
aði í gær máli
Samkeppnis-
stofnunar gegn
olíufélögunum
frá héraðsdómi.
Var þeim gert
að greiða 15
milljónir króna
til ríkisins í
málskostnað í héraði og fyrir
Hæstarétti og sömu upphæð til
Samkeppniseftirlitsins. Samkeppn-
isráð ákvað árið 2004 að leggja
sektir á olíufélögin Esso, Olís og
Skeljung fyrir ólögmætt samráð
en þeirri ákvörðun skutu félögin
til áfrýjunarnefndar samkeppn-
ismála sem dæmdi þau til að
greiða samtals 1.505 milljónir
króna í sekt. Með niðurstöðu
Hæstaréttar í gær stendur sú
ákvörðun og áréttar Samkeppn-
iseftirlitið það í sérstakri tilkynn-
ingu sem send var út í kjölfar
dómsins í Hæstarétti.
Þurfa að
greiða sektir