Morgunblaðið - 01.02.2013, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2013
Fyrirtækið Marmeti vinnur að bygg-
ingu nýrrar hátæknifiskvinnslu í
Sandgerði. Heildarfjárfesting verk-
efnisins er áætluð 609 milljónir og
gert er ráð fyrir 41 starfsmanni við
rekstur vinnslunnar. Nýja fisk-
vinnsluhúsið verður um 2.000 fer-
metrar að stærð þar sem megin-
áherslan verður lögð á vinnslu á
ferskum fiski. Húsið býður þó einnig
upp á frystingu, en afkastageta þess
er um 4 til 5 þúsund tonn á ári.
Í gær voru undirritaðir samningar
sem byggjast á lögum um ívilnanir
vegna nýfjárfestinga á Íslandi, en
heimilt er í lögum að veita afmark-
aðar ívilnanir ef sannað þykir að
starfsemi fyrirtækja hafi í för með sér
umtalsverðan ávinning fyrir þjóð-
arbúið. Samningana undirrituðu Örn
Erlingsson, útgerðarmaður í Kefla-
vík, forsvarsmaður fyrirtækisins, og
Steingrímur J. Sigfússon atvinnuveg-
aráðherra.
Að sögn Sigrúnar Árnadóttur, bæj-
arstjóra í Sandgerðisbæ, er þetta
mikil lyftistöng fyrir samfélagið, enda
skapist þarna tugir langtímastarfa.
Það verði að teljast nokkuð gott fyrir
bæjarfélag sem telur um 1.600 manns
og hefur glímt við mikið atvinnuleysi.
Sigrún segir að mikið sé að gerast í
bæjarfélaginu. Verið er að endurgera
annað fiskvinnsluhús og þá er þriðja
húsið, einnig tengt sjávarútvegi, í
byggingu við Norðurgarð.
Ný hátæknifiskvinnsla rís
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Sandgerði Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri fylgist með undirskriftinni í gær.
Heildarfjárfesting verkefnisins í Sandgerði er áætluð 609
milljónir króna Skapar 41 nýtt starf í bæjarfélaginu
Tuttugu manns sóttu um stöðu ráðu-
neytisstjóra í umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytinu, en ráðuneytið auglýsti
starfið laust til umsóknar þann 12.
janúar síðastliðinn. Sérstök hæf-
isnefnd metur hæfni umsækjenda og
skilar síðan greinargerð til ráðherra.
Hæfisnefndina skipa Ásta Bjarna-
dóttir, ráðgjafi hjá Capacent, sem er
formaður nefndarinnar, Arnar Þór
Másson, skrifstofustjóri í forsæt-
isráðuneytinu, og Brynhildur Davíðs-
dóttir, dósent við Háskóla Íslands.
Umsækjendurnir eru: Anna Maria
Gomes lögfræðingur,
Arkadiusz Domzal, M.Sc. í um-
hverfisfræði, Bárður Steinn Róberts-
son lögfræðingur, Bjarki Jóhann-
esson sviðsstjóri, Davíð Egilson
verkfræðingur, Hafsteinn Pálsson
verkfræðingur, Helgi Geirharðsson
verkefnastjóri, Hugi Ólafsson skrif-
stofustjóri,
Jenný Dögg Björgvinsdóttir sjáv-
arútvegsfræðingur, Krzysztof
Snarski mannauðsstjóri, Margrét
Lilja Gunnarsdóttir, BA í lögfræði,
Ólafur Fannar Heimisson þjónustu-
fulltrúi, Sigríður Auður Arnardóttir
skrifstofustjóri, Sigurður Guðjónsson
forstjóri, Sigurður H. Helgason fram-
kvæmdastjóri, Simon Reher sagn-
fræðingur, Soffía Björk Guðmunds-
dóttir framkvæmdastjóri, Stefanía G.
Kristinsdóttir framkvæmdastjóri,
Stefán Thors forstjóri og Þórhalla
Arnardóttir, M.ed. í líffræði.
Tuttugu
vilja stýra
ráðuneytinu
KORTIÐ GILDIRTIL
31. janúar 2013
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
MOGGAKLÚBBURINN
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1100
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á mbl.is/postlisti.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
2 FYRIR 1
Á TAPAS BARNUM
AF ÓVISSUFERÐ
MOGGAKLÚBBUR
Framvísið Moggaklúbbs-
kortinu áður en pantað er.
Tilboðið er í boði mánudaga og
þriðjudaga til og með 26. febrúar 2013
ATH! Gildir ekki með öðrum tilboðum.
RESTAURANT- BAR
Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík | Sími 551 2344 | www.tapas.is
Starfsfólk kvenlækningadeildar
21A á Landspítala hélt kaffiboð til
heiðurs Vilborgu Örnu Gissurar-
dóttur suðurpólsfara í vikunni og
þakkaði henni stuðninginn. Vil-
borg Arna gekk 1.140 kílómetra
og safnaði áheitum fyrir Líf,
styrktarfélag kvennadeildar LSH.
Sérstaklega var safnað fyrir kven-
lækningadeildina til að bæta að-
búnað fyrir sjúklinga og aðstand-
endur þeirra. Nú þegar hafa
safnast yfir 13 milljónir króna.
Vilborg hélt úti bloggsíðunni Lífs-
spor.is og er hún enn opin.
Starfsfólk kvennadeilda lýsti að-
dáun sinni á þeim kjarki og því
þori sem Vilborg Arna hefði og
óskaði henni innilega til hamingju
með þetta mikla afrek. Við kom-
una afhenti starfsfólkið henni gjaf-
ir, þar á meðal nuddinniskó fyrir
lúna fætur. Einnig fékk hún hár-
vörur, baknuddtæki og blóm.
Kaffiboð með
Vilborgu
Pólfari Vilborgu Örnu var fagnað af
starfsfólki kvenlækningadeildar.