Morgunblaðið - 01.02.2013, Page 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2013
Íslandsbanki hefur stefnt breska
kaupsýslumanninum Kevin Stanford
til greiðslu ríflega 74 milljóna króna
skuldar. Stefnan er birt í Lögbirt-
ingablaðinu, en þar kemur fram að
greiðslan sé til komin vegna skuldar
á 50,5 milljóna króna skuldabréfi
sem var upphaflega útgefið hinn 24.
september árið 2007.
Skilmálum skuldabréfsins var
breytt á þann veg að höfuðstóllinn
varð 64,3 milljónir og skyldi upp-
hæðin greiðast með fimm afborgun-
um á tólf mánaða fresti frá og með 1.
nóvember árið 2009. Kevin Stanford
stóð hins vegar ekki við fyrstu
greiðsluna.
Greiðslufall varð því á láninu hinn
1. nóvember 2009 og nam krafa Ís-
landsbanka þá með áföllnum vöxtum
um 64 milljónum króna. Krafist er
dráttarvaxta frá þeim tíma að fjár-
hæð samtals 9,8 milljónir króna.
Fram kemur í Lögbirtingablaðinu
að ekki hafi tekist að birta stefnuna
fyrir Stanford þar sem hann sé með
óþekkt heimilisfang. Því hafi Ís-
landsbanki birt hana í Lögbirtinga-
blaðinu. Málið verður þingfest í hér-
aðsdómi Reykjaness þann 13. mars
næstkomandi.
Fyrir hrun íslenska bankakerfis-
ins var Stanford einn af erlendum
viðskiptafélögum eigenda fjárfest-
ingafélagsins Baugs og kom hann að
ýmsum fjárfestingum á Íslandi. Átti
hann meðal annars eignarhlut í eign-
arhaldsfélögunum Materia Invest og
Sólin skín. Stanford var jafnframt
fjórði stærsti hluthafinn í Kaupþingi
og átti 4,3% hlut í bankanum áður en
hann féll haustið 2008.
Morgunblaðið/Ómar
Stefna Íslandsbanki hefur stefnt breska kaupsýslumanninum Kevin Stan-
ford vegna greiðslufalls á ríflega 64 milljóna króna láni í nóvember 2009.
Stefnir Stanford
um 74 milljónir
Kevin Stanford skuldar Íslandsbanka
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
FÍB AÐILD SPARNAÐUR OG ÖRYGGI
FÍB AÐILD MARGBORGAR SIG
Lögfræðiráðgjöf
FÍB Aðstoð
Þétt afsláttarnet
Hagsmunagæsla
Allt þetta innfalið og meira til!
Ársaðild FÍB er aðeins kr. 6.600.-
Gerast félagsmaður í dag?
Síminn er 414-9999 eða fib.is
Félag íslenskra bifreiðaeigenda Skúlagötu 19 101 Reykjavík Sími. 414 9999 fib@fib.is www.fib.is
Tækniráðgjöf
Eldsneytisafsláttur