Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 1
Óábyrgt » Formaður Sjálfstæðisflokks- ins segir tímabært að stjórn- arliðar geri sér grein fyrir því að óábyrgt sé og óraunhæft að halda áfram með málið. » Formaður Framsóknar- flokksins segir óhugsandi að ljúka afgreiðslu málsins á þeim fáu dögum sem eftir eru. Baldur Arnarson Helgi Bjarnason Feneyjanefndin harmar að stjórnar- skrárfrumvarpið skuli öðrum þræði taka mið af efnahagshruninu og at- burðum sem leiddu til þess. Þá legg- ur nefndin til að í þeirri vinnu sem framundan sé við endurskoðun stjórnarskrárinnar verði horft til forgangsmála fyrir íslensku þjóðina og atriða sem meiri sátt er um. Þetta kemur fram í drögum að áliti nefndarinnar um stjórnarskrár- frumvarpið en í inngangi þess er tekið fram að hún hafi aðeins fengið hluta greinargerðar um frumvarpið á ensku. Það sé m.a. þess vegna sem greiningin sé ekki ítarleg. Nefndin gerir fjölda athugasemda við frumvarpið, m.a. þá að horft skuli til Sviss við rýmkun heimilda til að efna til þjóðar- atkvæðagreiðslna. Vikið er að áhrifum hrunsins á frumvarpssmíðina í umfjöllun um ávæði um upplýsingarétt og má skilja af álitinu að nefndarmönnum þykir tillögurnar of róttækar. Rétt sé að horfa til lengri tíma. Þá er lagt til að mannréttinda- kaflinn verði endurskoðaður enda séu ýmis ákvæði þar óskýr. Brugðist hefur verið við Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, segir að búið sé að bregð- ast við mörgu sem fram komi í áliti Feneyjanefndarinnar. Það komi fram í breytingartillögum meirihluta nefndarinnar. Þá hafi ýmislegt verið athugað og ákveðið að breyta ekki. MVíða fundið að »16-17 Frumvarpið of róttækt  Feneyjanefndin harmar að stjórnarskrárfrumvarpið skuli mótast af hruninu  Forystumenn stjórnarandstöðunnar segja óraunhæft að halda áfram með málið M I Ð V I K U D A G U R 1 3. F E B R Ú A R 2 0 1 3  Stofnað 1913  36. tölublað  101. árgangur  SENDIR EKKI HVAÐ SEM ER FRÁ SÉR ÖRUGG ALLAN TÍMANN HJÖRTUN SLÁ EINS Í SÚDAN OG GRÍMSNESI BLOODGROUP 38 ALHEIMSBYLTING UN WOMEN 10FYRSTA SÓLÓPLATA HREIMS 40 Hjúkrunar- fræðingar sömdu  Efnið kynnt í dag Morgunblaðið/Golli Hjúkrun Margir hafa sagt upp. Samningar tókust í gærkvöldi um stofnanasamning hjúkrunarfræð- inga við Landspítalann. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags ís- lenskra hjúkrunarfræðinga, sagðist ekki geta gefið upplýsingar um efni samningsins en hann yrði kynntur fyrir hjúkrunarfræðingum í dag. Hjúkrunarfræðingar sem sagt hafa upp störfum hafa frest til morg- undagsins til að draga uppsagnir til baka. Héðinsfjörður var baðaður töfraskini þegar Sig- urður Ægisson var þar staddur ásamt Fróða Brinks Pálssyni og króatískum blaðamanni og ljósmyndara eftir miðnætti 12. febrúar. Króat- inn kom gagngert til Íslands til að sjá norðurljós og varð honum að ósk sinni. „Himinninn var al- stirndur og allt í einu lýstist fjörðurinn af norðurljósum,“ sagði Sigurður. „Það myndaðist kóróna og ljósin tvístruðust í allar áttir.“ Norðurljósin tvístruðust í allar áttir í Héðinsfirði Morgunblaðið/Sigurður Ægisson  Nú bíða 456 manns, sem eru með 595 dóma á bakinu, eftir að hefja afplánun í fangelsum landsins. Þar eru pláss fyrir um 150 fanga í einu. Plássunum fjölgar þegar nýtt fangelsi á Hólmsheiði rís en einnig er verið að þróa ný fullnustuúr- ræði, s.s. samfélagsþjónustu, og nokkrir sæta rafrænu eftirliti með ökklabandi. »6 Um 450 bíða eftir fangelsisvist Skagfirskur sveitabiti H VÍ TA H Ú SI Ð / SÍ A Mýksti brauðosturinn á markaðnum nú á tilboði! Fáanlegur 26% og 17%.  Hvorki áætl- anir um tekjur né gjöld tónlist- ar- og ráð- stefnuhússins Hörpu hafa staðist. Þegar ríki og borg fengu hálfbyggt húsið í fangið og ákváðu í upphafi árs 2009 að halda byggingu þess áfram, var tekið fram að ekki væri gert ráð fyrir frekari framlögum eigenda. Það stóðst ekki því nú hefur ver- ið ákveðið að leggja 1.434 millj- ónir aukalega til reksturins á ár- unum 2013-2016. Ella stefndi í þrot. »4 1,4 milljarðar til að halda Hörpu á floti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.