Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 16
FRÉTTASKÝRING Baldur Arnarson baldura@mbl.is Feneyjanefndin gerir fjölda athuga- semda við stjórnarskrárfrumvarpið í drögum að áliti sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fékk í hendur síðdegis í fyrradag. Athuga- semdirnar eru víðtækar og varða alla níu kafla frumvarpsins. Feneyjanefndin var stofnuð árið 1990 af aðildarríkjum Evrópuráðsins og hafði í upphafi það hlutverk að veita ríkjum sem brotist höfðu und- an oki kommúnismans ráðgjöf við gerð stjórnarskrár. Nefndin hefur eins og nafnið bendir til aðsetur í Feneyjum og fundar fjórum sinnum ár hvert. Nefndarmennirnir sem unnu álitið koma allir frá Evrópu en þeir eru Jacqueline de Guillenchmidt, Frakk- landi, Jan Helgesen, Noregi, Wolf- gang Hoffmann-Riem, Þýskalandi, Jean-Claude Scholsem, Belgíu, og Jørgen Steen Sørensen, Danmörku. En fjöldi ríkja á fulltrúa í nefndinni. Skorti þýðingu Tekið er fram í inngangi álitsins að nefndarmenn hafi fengið þýðingu á frumvarpinu á ensku, auk þess sem hluti af greinargerðinni sem fylgir frumvarpinu hafi borist þeim í enskri þýðingu. Þá hafi nefndin fengið upplýsingar frá ýmsum embættismönnum og öðrum heim- ildarmönnum. Jafnframt hafi hún fengið í hendur upplýsingar frá sér- fræðingahóp sem yfirfór tillögur stjórnlagaráðs í haust. Nefndarmenn taka einnig fram að gera beri þann fyrirvara við álitið að því sé ekki ætlað að vera djúpstæð greining á frumvarpinu. Tíminn sem nefndinni hafi verið skammtaður hafi enda verið alltof naumur. Skort- ur á efni um frumvarpið á ensku hafi einnig átt sinn þátt í því. Með hliðsjón af tímaramma stjórnarskrármálsins á Íslandi hafi nefndin ákveðið að afhenda íslensk- um stjórnvöldum drögin áður en hún kemur næst saman til fundar dagana 8. til 9. mars næstkomandi. Álitið er í 189 liðum og vekur at- hygli að í 13. lið segir að eftir efna- hagshrunið hafi kviknað sú hug- mynd á Íslandi að leggja drög að nýrri stjórnarskrá. En það gengur lengra en frumvarp Jóhönnu Sigurð- ardóttur forsætisráðherra í nóvem- ber 2009 um ráðgefandi stjórnlaga- þing sem hefði það hlutverk að endurskoða stjórnarskrána. Stiklað er á stóru í athugasemdum Feneyjanefndarinnar í grafinu hér fyrir ofan en að auki má geta nokk- urra athugasemda í niðurlagi álits- ins. Ber þar fyrst að nefna þá at- hugasemd nefndarinnar í lið 129 að svo virðist sem hugmyndir um þjóðaratkvæðagreiðslur og virkari þátttöku almennings í lýðræðisferl- inu séu sóttar til Sviss, lands sem hafi „sérkennilegt“ stjórnskipulag þar sem helstu stjórnmálaflokkar séu saman í varanlegri samsteypu- stjórn. Í slíku fyrirkomulagi sé stjórnarandstaðan veik og því geti verið álitið nauðsynlegt að tryggja beinni áhrif almennings í þjóðarat- kvæðagreiðslum en víðast þekkist. Öðru máli gegni um hefðbundnari stjórnkerfi, lík því sem sé við lýði á Íslandi, þar sem ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan skiptist á að fara með völdin, enda geti beint inngrip almennings, þ.e. í gegnum þjóðar- atkvæði, haft veruleg áhrif á stjórn- málin sem og pólitískan stöðugleika. Hætta á pólitískum skipunum Nefndin gagnrýnir einnig í lið 138 að í 96. grein frumvarpsins skuli kveðið á um að ráðherrar skuli skipa dómara. Er það talið skapa svigrúm til pólitískra stöðuveitinga. Betur fari á að forsetinn skipi dómara sam- kvæmt tillögu óháðra sérfræðinga. Skal í þessu efni tekið fram að í frumvarpinu er kveðið á um að bera þurfi skipan ráðherra undir forseta. Nefndin tekur svo fram í lið 179 að hætta sé á að ekki skapist næg sam- staða um frumvarpið til að það verði staðfest á næsta þingi. Þá segir í lið 182 að orðalag sé óljóst í fjölda greina nýja stjórnar- skrárfrumvarpsins sem geti, þrátt fyrir skýringar í greinargerð, leitt til erfiðleika við framkvæmd og túlkun laga. Jafnframt telur nefndin í lið 183 að stofnanakerfið sem frumvarp- ið leiði af sér sé fremur flókið og að skortur á samkvæmni einkenni það. Það eigi jafnt við um völdin sem þingið, ríkisstjórnin og forsetinn muni hafa sem og jafnvægið milli þeirra og öll samskipti. Loks er lagt til í lið 188 að farið verði yfir þær leiðir sem séu færar til að breyta stjórnarskrá og næstu ríkisstjórn eftirlátið að halda endurskoðuninni áfram. Þá gefist sá tími sem þurfi til að fara yfir þær athugasemdir og spurningar sem fjölmargir hags- munaaðilar hafi lagt fram, þar með talin Feneyjanefndin, þannig að hægt sé að betrumbæta frumvarpið. Víða fundið að frumvarpi  Feneyjanefndin gerir fjölda athugasemda við stjórnarskrárfrumvarpið  Segist ekki hafa fengið nægan tíma til að vinna ítarlega greiningu  Telur ráðlegt að næsta ríkisstjórn haldi málinu áfram Morgunblaðið/Golli Í nefndinni Jan Helgesen, vinstri, og Thomas Markert, ritari nefndarinnar, á blaðamannafundi á Íslandi 17. janúar. Álit Feneyjanefndarinnar á stjórnarskrárfrumvarpi Feneyjanefndin hefur lagt fram 31 blaðsíðu skýrslu í 189 liðum um stjórnarskrárfrumvarpið. Er hér gripið niður í nokkra þeirra. Liður 30: Fundið er að því að ákvæði um ýmis réttindi í II. kafla frumvarpsins, Mannréttindi og náttúra, séu óskýr og að ekki sé gerð aðgreining á milli hefðbundinna mannréttindaákvæða og ávæða sem varða félagsleg réttindi og réttindi sem kveða á um skyldur ríkis- ins gagnvart einstaklingum, svo sem í gegnummennta- og heilbrigðiskerfið. Liður 32: Nefndin telur réttindinmjög almennt orðuð, þar séu fremur lýsingar ámarkmiðum en skýrar leiðsagnir. Liður 41: Nefndin leggur til aðmann- réttindakaflinn verði endurskoðaður með athugasemir hennar í huga. Ýmis nýbreytni í frumvarpinu frá núverandi stjórnarskrá sé tilgreind í ákvæðum sem séu ekki nógu skýr. Það geti valdið ágreiningi um túlkun og um leið valdið almenningi vonbrigðum. Liður 46: Vikið er að réttinum til lífs í frumvarpinu með þeim orðum að það sé skilningur nefndarinnar að hann hefjist við fæðingu. Tekið er fram að engar skýringar séu í frumvarpinu um þetta atriði að því er varðar hið umdeilda mál fóstureyðingar. Hins vegar er vikið að afstöðu Mannréttinda- dómstóls Evrópu til þess hvernig beri að túlka slík ákvæði. Liður 47: Gerðar eru athugasemdir við 11. grein frumvarpsins þar sem segir að ekki megi gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða að munum, nema samkvæmt dómsúr- skurði eða sérstakri lagaheimild. Telur nefndin þetta ákvæði ekki nógu skýrt, meðal annars m.t.t. til lögregluleitar. Liður 49: Nefndin telur að 12. grein frumvarpsins um rétt barna gangi of langt en þar segir að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir í málum sem það varðar. Er það mat nefndar- innar að þetta geti gengið of langt í sérhæfðum og flóknum málum. Eru íslensk stjórnvöld hvött til þess að íhuga þetta vandlega. Liður 53: Í umsögn nefndarinnar um 15. grein frumvarpsins um upplýsingarétt er það harmað að ný stjórnarskrá skuli einkum vera gerð í ljósi ófaranna sem leiddu til efnahagshrunsins. Heppilegra sé að ákvæði um upplýsingarétt geti átt við lengra inn í framtíðina. Segir m.a. Í 15. greininni að upplýsingar og gögn í fórum stjórnvalda skuli vera tiltæk án undandráttar. Liður 54: Ákvæði 16. greinarinnar um að tryggja skuli frelsi fjölmiðlameð lögum er óskýrt, að mati nefndarinnar. Liður 55: Ákvæði 18. greinarinnar um trúfrelsi þykir til bóta. Liður 59: Feneyjanefndin telur athyglisvert að lagt sé til að dómþing skuli háð í heyranda hljóði. Hún bendir hins vegar á afstöðu Mannrétt- indadómstóls Evrópu, nánar tiltekið ákvæði um að takmarka megi aðgang fjölmiðla og almennings að réttar- höldum,m.a. í ljósi almannahagsmuna og hagsmuna barna og unglinga. Telur nefndin því rétt að endurskoða orðalag ákvæðisins þannig að ljóst sé að þessar undantekningar geti átt við. Tekið skal fram að í frumvarpinu er tekið fram að dómari geti ákveðið að dómþing skuli ekki háð í heyranda hljóði með vísan til allsherjarreglu, öryggis ríkisins eða hagsmuna málsaðila og vitna. Liður 64: Nefndin telur að verulega rýmkaðar heimildir til að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslummuni veikja Alþingi. Liður 68: Stofnun Lögréttu er fagnað en henni er ætlað að fara yfir frumvörp m.t.t. þess hvort þau standist stjórnar- skrá og alþjóðlegar skuldbindingar. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.