Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013 Jóhanna Sigurðardóttir, leið-togi Samfylkingarinnar, held- ur því fram í grein í Frétta- blaðinu að ríkisstjórnarflokkarnir hafi „fetað leiðina til gagnsærra og opnara þjóð- félags“. Þetta kann að hljóma vel en þegar á reynir taka stjórnarliðar jafnan afstöðu með pukri og lokuðu þjóðfélagi.    Nýjasta dæmið er frá því ámánudag þegar stjórnar- liðar fengu í hendur álit Feneyja- nefndarinnar á frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Ríkisstjórnin leggur mikla áherslu á að af- greiða frumvarpið sem fyrst en nú bar svo við að ekkert lá á að birta álitið. Og ekki nóg með að stjórnarliðar á þingi færu sér hægt í að afhenda álitið, heldur afhentu þeir það með kröfu um að haldinn yrði trúnaður um hvað í því stæði.    Í Fréttablaðinu mátti í gær sjáhver tilgangurinn var með pukrinu. Þar birtist frétt undir fyrirsögninni „Engin sprengja í Feneyjaskýrslu“ þar sem sagði að samkvæmt „upplýsingum Frétta- blaðsins“ væri „engin stór- sprengja í umsögn hinna erlendu sérfræðinga en heldur engin toppeinkunn gefin“.    Eins og greint var frá í Morg-unblaðinu sama dag var ekki aðeins ein „stórsprengja“ í álitinu heldur margar. En Frétta- blaðið lét sér nægja að birta spuna ríkisstjórnarinnar og til- gangurinn með pukrinu var ein- mitt að reyna að stýra frétta- flutningnum og umræðunni.    Þetta er hið opna og gagnsæjaþjóðfélag ríkisstjórnarinnar og fulltrúa hennar í hnotskurn. Jóhanna Sigurðardóttir Pukrið, spuninn og „stórsprengjan“ STAKSTEINAR Veður víða um heim 12.2., kl. 18.00 Reykjavík 2 léttskýjað Bolungarvík -1 heiðskírt Akureyri -1 skýjað Kirkjubæjarkl. 2 alskýjað Vestmannaeyjar 3 léttskýjað Nuuk -7 skýjað Þórshöfn 5 alskýjað Ósló -5 snjókoma Kaupmannahöfn -2 snjókoma Stokkhólmur -1 snjókoma Helsinki -2 frostrigning Lúxemborg -2 skýjað Brussel -1 skýjað Dublin 3 súld Glasgow 3 skýjað London 2 skýjað París 2 skýjað Amsterdam 0 léttskýjað Hamborg 0 skýjað Berlín 1 skýjað Vín 0 alskýjað Moskva 0 alskýjað Algarve 15 skýjað Madríd 11 léttskýjað Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 12 léttskýjað Róm 11 léttskýjað Aþena 13 skýjað Winnipeg -8 skýjað Montreal 2 alskýjað New York 5 alskýjað Chicago -3 alskýjað Orlando 22 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 13. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:29 17:56 ÍSAFJÖRÐUR 9:45 17:50 SIGLUFJÖRÐUR 9:28 17:32 DJÚPIVOGUR 9:01 17:23 Árið 2013 hefur verið afar hlýtt það sem af er. „Nú eru liðnar réttar sex vikur frá áramótum og sýndarvorið heldur áfram. Já, auðvitað er það ekkert vor – en meðalhiti það sem af er ári hefur samt verið á svipuðu róli og gerist í þriðju viku apríl- mánaðar, rétt fyrir sumardaginn fyrsta,“ segir Trausti Jónsson veð- urfræðingur í daglegugum pistli sínum á Moggablogginu. „Næstu daga verða varla hlýindi en ekki heldur kuldar og spár lengra fram í tímann eru ekki kuldalegar. Standi veðurlag af þessu tagi nógu lengi verður það merkilegt,“ segir Trausti. Upplýsingar liggja fyrir um morgunhita í Stykkishólmi allt aft- ur til 1846. Meðalhiti kl. níu fyrstu 42 daga ársins í ár er 1,9 stig. Að- eins fjórum sinnum hefur árið byrj- að betur, árin 1987, 1929, 1972 og 1964. Hæstur var meðalhitinn árið 1987, eða 2,5 gráður. Í Reykjavík og Akureyri liggja upplýsingar um daglegan hita ekki alveg á lausu nema aftur til 1949, segir Trausti. Á því tímabili hafa fyrstu 42 dag- arnir aðeins fjórum sinnum orðið hlýrri en nú. Á Akureyri átta sinn- um á sama tímabili. Þrátt fyrir góða byrjun á febrúar er hann ekki kominn nærri topp- sæti. Meðalhiti í hlýjasta febrúar í Reykjavík er 5 stig árið 1932. „Sýn- ist helst að hiti afgang mánaðarins þyrfti að haldast í einum sjö stigum til að nútímanum takist að toppa það. Slíku er alla vega ekki spáð þessa dagana,“ segir Trausti. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Styrmir Kári Hlýindi Regnhlífar hafa verið al- gengar í borginni undanfarið. Hiti á svip- uðu róli og í apríl Aðalfundur Marel hf. 2013 Aðalfundur Marel hf. verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, miðvikudaginn 6. mars nk., kl. 16:00. Dagskrá: • Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins. • Breyting á samþykktum félagsins með hliðsjón af 1. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 um kynjahlutföll stjórnarmanna. • Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf. • Önnur mál, löglega borin fram. Fundarstörf munu fara fram á ensku. Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði teknar þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en sjö dögum fyrir fundinn. Frekari upplýsingar um tímafresti þá sem gilda í tengslum við rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar, leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, o.fl. er að finna á heimasíðu félagsins, www.marel.com/agm. Þar er jafnframt að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. ársskýrslu félagsins, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2012, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu m.v. 12. febrúar 2013, umboðsform auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða aðgengilegar hluthöfum sjö dögum fyrir fundinn á framangreindri síðu á vef félagsins sem og á skrifstofu félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ. Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang. Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15.30. Stjórn Marel hf. marel.com

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.