Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013
...alveg með’etta
Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þessi plata er alfarið unnin af vina-
hópnum mínum, en ég er órúlega
heppinn að eiga svona marga fína fé-
laga,“ segir Hreimur Örn um fyrstu
sólóplötu sína Eftir langa bið sem
hann sendi frá sér síðla síðasta árs.
Vísar hann þar m.a. til vina sinna í
hljómsveitinni Made in Sveitin sem
að stórum hluta er mönnuð tónlist-
arfólki úr Landi og sonum fyrir
mannabreyt-
ingar hljóm-
sveitarinnar
árið 1997 sem
og strákanna
úr Vinum
Sjonna, þeirra
Vignis Snæs
Vigfússonar,
Benedikts Brynleifssonar og Pálma
Sigurhjartasonar. „Stoð mín og
stytta í öllu upptökuferlinu var Addi
800 sem ásamt Árna Þór Guðjóns-
syni hefur haldið utan um allt
vinnsluferli plötunnar,“ segir
Hreimur.
Á plötunni eru tíu frumsamin lög
eftir Hreim sem jafnframt á texta
við helming laganna. Elstu lögin
samdi Hreimur árið 1999 og það
yngsta frá 2008, en upptökur hófust
2006. Spurður hvernig honum hafi
tekist að mynda þá heild sem á plöt-
unni birtist þegar lögin eru samin og
tekin upp á svo löngu tímabili segir
Hreimur að galdurinn felist í upp-
tökuferlinu. „Þannig var upptöku-
ferlið svipað á öllum stigum málsins.
Við völdum að halda í þann hráleika
sem fæst með því að telja í lögin og
taka þau upp í einni töku, alveg eins
og gert var í gamla daga. Af því við
höfum tæknina með okkur í liði gát-
um við leikið okkur aðeins með upp-
tökurnar eftir á, bætt við og lagað.
Sköpunarferlið var mjög afslapp-
að þar sem við unnum í lögunum þar
til allir voru orðnir sáttir. Helsta
markmið mitt var að þetta yrði ein-
falt og einlægt, enda vildi ég ekki
reyna að búa til eitthvað sem ég ekki
er,“ segir Hreimur, en lögin voru
m.a. tekin upp í Puk-stúdíóinu í Dan-
mörku og í sumarbústað undir Eyja-
fjöllum. „Þessi hráleiki gerir það líka
að verkum að ég get slegið upp tón-
leikum með litlum sem engum fyrir-
vara, sem er mjög gaman. Ég get því
farið hvert sem er, hvenær sem er
með aðeins tvo til þrjá vini mína og
haldið tónleika,“ segir Hreimur.
Alls ekki alvarlegur gaur
Aðspurður segist hann hafa fylgt
plötunni eftir seinni hluta síðasta árs
með útgáfutónleikum í Austurbæ og
smærri tónleikum víðs vegar um
landið. „Ég á hins vegar eftir að
fylgja henni enn meira eftir, enda lít
ég ekki á plötuna sem skyndi-
fjárfestingu heldur hafði ég að leið-
arljósi við gerð hennar að hún myndi
standast tímans tönn,“ segir Hreim-
ur. Hann mun ásamt hljómsveitinni
Made in Sveitin spila á Sauðárkróki,
Siglufirði og Akranesi um páskana.
„Við spilum dagskrá sem nefnist
Bestu lög Hreims þar sem leikin
verða lögin af nýju plötunni í bland
við lög sem Land og synir gerðu
fræg á sínum tíma og öll þjóðhátíð-
arlögin mín,“ segir Hreimur.
Aðspurður segist Hreimur eiga
mjög auðvelt með að semja lög og
melódíur. „Ég sendi hins vegar ekki
hvað sem er frá mér, því ég vil að
lögin séu flott og endist. Árið 2001
hitti ég dægurlagahöfundinn Des-
mond Child á fundi í Bandaríkjunum
og hann brýndi fyrir mér að ég
skyldi ávallt hafa það í huga þegar
ég væri að semja að tónlistin þyrfti
að endast,“ segir Hreimur og bætir
við að hann líti á sjálfan sig meira
sem skemmtikraft en bara tónlistar-
mann. „Það skemmtilegasta sem ég
geri er að halda uppi stemningu
hvort heldur er í partíi eða á tón-
leikum. Það er erfitt fyrir mig sem
listamann að ætla að gera voða al-
varlega plötu, því ég er alls ekki al-
varlegur gaur. Ég er ekki að fara að
semja um stríðshrjáðar þjóðir eða
fátækt vegna þess að ég er ekki al-
veg svona djúpur,“ segir Hreimur.
Talandi um skemmtikraft þá hef-
ur flutningur þinn á þekktum dæg-
urlagatextum með þýskum hreim
vakið athygli bæði á FM, Bylgjunni
og Spurningabombunni á Stöð 2.
Hvernig kom þetta til?
„Ég byrjaði á þessu í tengslum við
Poppquiz sem ég stóð fyrir á Dönsku
kránni. Ég kann ekkert í þýsku, en
tek reiðan Þjóðverja úr Indiana Jon-
es-mynd mér til fyrirmyndar. Þegar
maður les söngtexta á borð við
„Mamma Mia“ með ABBA upp á
ensku með þýskum framburði á fólk
oft erfitt með að átta sig á upprun-
anum, sem er skemmtilegt,“ segir
Hreimur og tekur fram að hann sé
iðulega beðinn að koma og sjá um
poppquiz í ýmsum fyrirtækjum og
þá fái þýski hreimurinn alltaf að
fljóta með.
Ekki er hægt að sleppa Hreimi án
þess að forvitnast um hvort aðdá-
endur þurfi að bíða jafnlengi eftir
næstu plötu og þeirri fyrstu. Því
svarar Hreimur neitandi. „Ég geri
fastlega ráð fyrir að senda frá mér
næstu plötu innan tveggja til þriggja
ára, enda á ég tugi laga sem ég get
valið úr. Mig langar til að taka Jónas
Sig. mér til fyrirmyndar og geri ráð
fyrir meiri tilraunamennsku á næstu
plötu. Þannig verður næsta plata
örugglega örlítið hressari en sú
fyrsta,“ segir Hreimur.
Endist „Ég sendi ekki hvað sem er frá mér, því ég vil að lögin séu flott og
endist,“ segir Hreimur og tekur þar Desmond Child sér til fyrirmyndar.
Eftir langa bið
er fyrsta sólóplata
Hreims Arnar
„Einfalt og einlægt“
H.S.K
- MBL
ZERO DARK TIRTY Sýndkl.6-9
THE LAST STAND Sýndkl. 5:45-8-10:15
VESALINGARNIR Sýndkl.9
THE HOBBIT 3D (48 ramma) Sýndkl.6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
12
12
16
16
EIN BESTA
HASARMYND ÁRSINS!
“Magnþrungin og
eftirminnileg”
T.V. - Bíóvefurinn
Frábær spennumynd byggð á
leitinni af Osama Bin Laden.
5 óskarstilnefningar
3 óskarstilnefningar
SÝND Í
3D(48 ramma)
“Ekta hátíðarævintýri fyrir alla famelíuna.”
-Séð & Heyrt/Vikan
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
GLUGGAR OG GLERLAUSNIR
idex.is - sími: 412 1700
- merkt framleiðsla
• tré- eða ál/trégluggar
og hurðir
• hámarks gæði og ending
• límtré úr kjarnaviði af norður
skandinavískri furu
• betri ending
— minna viðhald
• lægri kostnaður þegar fram
líða stundir
• Idex álgluggar eru íslensk
framleiðsla
• hágæða álprófílakerfi
frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir
og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga
Byggðu til framtíðar
með gluggum frá Idex
BESTI LEIKAR ÁRSINS - BESTI LEIKSTJÓRI ÁRSINS - BESTA MYND ÁRSINS
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
- H.S.S., MBL ” - Þ. Þ., FRÉTTATÍMINN
- S.S., LISTAPÓSTURINN
” - G.F.V., VIÐSKIPTABLAÐIÐ
-H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ
KON-TIKI KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
LINCOLN KL. 5.50 - 9 14
DJANGO KL. 10 16
VESALINGARNIR KL. 5.50 - 9 12
LIFE OF PI 3D KL. 5.20 10
-EMPIRE
ZERO DARK THIRTY KL. 9 16
LINCOLN KL. 6 14
DJANGO KL. 6 16
THE LAST STAND KL. 9 16
“MÖGNUÐ MYND Í
ALLA STAÐI”
-V.J.V., SVARTHÖFÐI
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
ZERO DARK THIRTY KL. 4.30 - 8 LÚXUS KL. 8 16
DJANGO KL. 8 - 10.20 LÚXUS KL. 4.30 16
LINCOLN KL. 5 14
LAST STAND KL. 8 - 10.40 16
VESALINGARNIR KL. 4.30 12
HÁKARLABEITA 2 KL. 3.20 L
THE HOBBIT 3D KL. 4.30 12
LIFE OF PI 3D KL. 8 10