Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013
takmarkaðra refsiaðgerða í sam-
starfi við önnur ríki, hugsanlega með
því að takmarka frekar aðgang
Norður-Kóreumanna að fjármagni,
en forðist að reita þá til reiði með
harkalegum aðgerðum. „Kínverjar
munu auðvitað ekki viðurkenna [tak-
mörkuðu refsiaðgerðirnar] vegna
þess að þeir vilja ekki auðmýkja
Norður-Kóreumenn,“ hefur AFP
eftir Wang Dong.
Vilja knýja fram viðræður
Fréttaskýrandi The New York
Times segir að kjarnorkutilraun
Norður-Kóreumanna sé prófsteinn á
stefnu nýs leiðtoga kínverska komm-
únistaflokksins, Xi Jingping, í utan-
ríkismálum. Viðbrögð hans við kjarn-
orkutilrauninni geti gefið
vísbendingar um hvernig leiðtogi Xi
verði og hvernig hann sjái tengslin
við Bandaríkin fyrir sér.
Toshimi Shigemura, japanskur
sérfræðingur í málefnum Norður-
Kóreu, telur að markmið Norður-
Kóreustjórnar með kjarnorkutil-
rauninni sé að knýja fram viðræður
að nýju milli Kóreuríkjanna tveggja,
Bandaríkjanna, Kína, Rússlands og
Japans. „Hún tók mikla áhættu en ég
tel ekki að þeim takist þetta,“ hefur
breska blaðið The Telepgraph eftir
Shigemura.
Prófsteinn
á nýjan leið-
toga Kína
Talið ólíklegt að Kínverjar grípi til
harkalegra aðgerða gegn Norður-Kóreu
Óttast að hljóta sömu
örlög og Gaddafi
» Fall einræðisstjórnar
Muammars Gaddafis í Líbíu er
talið hafa styrkt Norður-Kóreu-
stjórn í þeirri trú að hún þurfi
að þróa kjarnavopn til að af-
stýra því að reynt verði að
steypa henni af stóli.
» Gaddafi hafði samþykkt að
hætta að reyna að verða sér
úti um gereyðingarvopn. Þegar
honum var steypt af stóli sagði
N-Kóreustjórn fall hans sýna
hvað yrði um ríkisstjórnir sem
afsöluðu sér kjarnavopnum.
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Kína er álitið eina landið sem gæti
knúið einræðisstjórnina í Norður-
Kóreu til að láta af tilraunum sínum
til að þróa kjarnavopn sem hægt
væri að beita í árásum með lang-
drægum eldflaugum. Ólíklegt þykir
þó að stjórnin í Kína grípi til harðra
refsiaðgerða gegn Norður-Kóreu-
mönnum eftir að þeir sprengdu
kjarnorkusprengju í tilraunaskyni í
þriðja skipti í fyrrinótt.
Kínverjar óttast að harðar refsi-
gerðir gegn stjórn Norður-Kóreu
leiði til glundroða í landinu og verði
til þess að hundruð þúsunda eða jafn-
vel milljónir flóttamanna streymi
þaðan yfir landamærin til Kína. Kín-
verjar hafa einnig áhyggjur af því að
fall Norður-Kóreustjórnar geti orðið
til þess að Kóreuríkin tvö sameinist
fyrir atbeina Bandaríkjanna sem
styrki stöðu sína á Kóreuskaga með
bandarískri herstöð við landamærin
að Kína. Án aðstoðar Kína myndi
Norður-Kóreustjórn falla.
Utanríkisráðuneytið í Kína mót-
mælti kjarnorkutilrauninni í gær,
sagði að kínversk stjórnvöld væru
andvíg henni og Norður-Kóreumenn
hefðu sprengt kjarnorkusprengjuna
„þrátt fyrir almenna andstöðu al-
þjóðasamfélagsins“. Ráðuneytið
sagði hins vegar ekkert um hvort til
greina kæmi að refsa Norður-Kóreu-
stjórn fyrir brot á ályktunum
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
„Ég tel að Kínverjar séu bálreiðir
yfir þessari tilraun,“ hefur fréttaveit-
an AFP eftir Stephanie Kleine-
Ahlbrandt, sérfræðingi hugveitunn-
ar International Crisis Group í mál-
efnum Norðaustur-Asíu. Hún telur
þó ólíklegt að Kínverjar refsi
Norður-Kóreustjórn harkalega þar
sem þeim sé fyrst og fremst umhug-
að um að tryggja stöðugleika á
Kóreuskaga.
Wang Dong, sérfræðingur í mál-
efnum Norðaustur-Asíu í Peking-há-
skóla, tekur í sama streng. Hann tel-
ur líklegt að Kínverjar grípi til
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
var kallað saman til skyndifundar í
gær til að ræða kjarnorkutilraun
Norður-Kóreumanna eftir að leið-
togar fjölmargra ríkja höfðu for-
dæmt hana.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði að
kjarnorkusprengingin væri „skýrt
og alvarlegt brot“ á ályktunum ör-
yggisráðsins og ögrun sem stefndi
friði á Kóreuskaga í hættu.
Norður-Kóreumenn sögðu að
kjarnorkusprengjan, sem sprengd
var í fyrrinótt, hefði verið smærri
en helmingi öflugri en önnur kjarn-
orkusprengja sem þeir sprengdu
árið 2009. Hefði sprengjan verið
smærri virðast þeir hafa færst nær
því markmiði sínu að búa til kjarna-
odd sem væri nógu lítill til að hægt
væri að beita honum í árás með
langdrægri eldflaug, að sögn
vopnasérfræðinga.
Eldflauga- og kjarnorkuáætlun N-Kóreu
Byggt á gervihnatta-
myndum sem voru
rannsakaðar í
janúar
Desember 1985
Norður-Kóreumenn undirrita
samninginn um bann við
útbreiðslu kjarnavopna (NPT)
Febrúar 1993
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin
(IAEA) krafðist þess að fá að
rannsaka staði sem grunur lék á
að tengdust kjarnorkutilraunum
Júní 1994
N-Kórea segir sig úr IAEA
Ágúst 1998
Þriggja þrepa eldflaug af gerðinni
Taepodong 1 skotið yfir Japan
Desember 2002
Lokað fyrir eftirlitskerfi IAEA, eftirlits-
mönnum stofnunarinnar vísað úr landi
Janúar 2003
Segir upp samningnum um bann
við útbreiðslu kjarnavopna
Febrúar 2005
N-Kóreustjórn tilkynnir að landið
eigi kjarnavopn
Júlí 2006
Langdrægum eldflaugum skotið
á loft í tilraunaskyni, m.a.
Taepodong 2-flaug sem lenti
í Japanshafi
9. október 2006
Kjarnorkusprengja sprengd
neðanjarðar í fyrsta skipti
Apríl 2009
Þriggja þrepa Unha 2-flaug skotið
á loft, en tilraunin virðist hafa
misheppnast
25. maí 2009
Önnur kjarnorkusprengja
sprengd neðanjarðar
Nóvember 2010
Erlendum sérfræðingum leyft að
skoða byggingu þar sem
úran er auðgað
Apríl 2012
Misheppnuð tilraun til að skjóta
Unha 3-flaug
Desember 2012
Unha 3-flaug skotið á loft,
gervihnetti komið á
braut um jörðu
Janúar 2013
N-Kóreustjórn tilkynnir að kjarnorku-
tilraun sé fyrirhuguð og haldið verði
áfram að skjóta eldflaugum
Þriðja kjarnorkutilraun Norður-Kóreu
N-Kóreumenn buðu þjóðum heims birginn í gær með því að sprengja kjarnorkusprengju í tilraunaskyni
KÍNA
Yongbyon-
kjarnorkumiðstöðin
PJONGJANG
Sohae
Eldflauga-
skotpallur
Punggye-ri
(Tilraunin fór
fram hér)
75 km
SEOUL
SUÐUR-
KÓREA
Stjórnbyrgi
Byggingar sem
tengjast
tilrauninni
Tilraunastaðurinn
Tilraunagöng
Breitt var yfir
innganginn í
janúar til að
reyna að leyna
undirbúningi
tilraunarinnar
Hvernig varð sprengingarinnar vart?
GERVIHNETTIR
Greindu rafsegulbylgjur,
ljósleiftur, kjarnorkugeislun
EFTIRLITSFLUGVÉLAR
Bandarísk WC 135-vél
getur greint geislavirk
efni eftir kjarnorku-
sprengingu
MERKI UM GEISLAVIRKAR KJARNATEGUNDIR
Efni í loftinu rannsökuð
2006: Xenon-samsæta með massatöluna 133
greindist í Kanada
2009: engin slík merki fundust
STYRKUR JARÐSKJÁLFTA
Sprengjan í gær :
5,1 stig
2006 : 4,1
2009 : 4,5
HLJÓÐBYLGJUR
Lágtíðnibylgjur
greindust eftir
sprenginguna árið
2009 en ekki
árið 2006
Kim Il-Sung
1948 - 1994
Kim Jong-Il
1994 - 2011
Kim Jong-Un
2011 -
Sprengjan sprakk
neðanjarðar og
sprengikrafturinn
var áætlaður um
6-7 kílótonn.
Sprengikraftur
sprengjunnar sem
varpað var á
Hiroshima var
15 kílótonn
12. febrúar 2013
Þriðja kjarnorkusprengjan
sprengd neðanjarðar
Japanar ætla að senda
flugvélar til að taka
loftsýni
Skrefi nær
kjarnaoddi
í eldflaug?
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Fyrir þá sem hönnun