Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 5
FRÉTTIR 5Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013 Um síðustu áramót voru landsmenn alls 321.857 og hafði fjölgað um 2.282 í fyrra. Þetta jafngildir fjölg- un um 0,7% á árinu. Konum fjölgaði nokkuð meira en körlum eða um 1,4% á móti 0,03%, samkvæmt upp- lýsingum frá Hagstofu Íslands. Karlar eru sem fyrri heldur fleiri en konur. Fólksfjölgun var á höfuðborgar- svæðinu, en þar voru íbúar 2.081 fleiri 1. janúar 2013 en ári fyrr. Það jafngildir 1,0% fjölgun íbúa á einu ári. Hlutfallslega varð fólksfjölg- unin hins vegar mest á Vest- fjörðum, þar sem fjölgaði um 1,1%, eða 77 frá síðasta ári. Fólki fjölgaði einnig á Austurlandi, um 78 ein- staklinga (0,6%), og um 90 (0,4%) á Suðurlandi. Minni fólksfjölgun var á Vesturlandi (0,1%) og Norður- landi eystra (0,03%). Fólksfækkun var á tveimur land- svæðum, Norðurlandi vestra þar sem fækkaði um 28 manns, eða 0,4% og á Suðurnesjum en þar fækkaði um 36, eða 0,2%. Konum fjölgar hraðar  Landsmenn voru 321.857 um áramótin Morgunblaðið/Árni Sæberg „Það eru fyrst og fremst aðstæður úti í heimi ásamt hækkandi heims- markaðsverði sem hafa þessi áhrif. Bæði hafa Vesturlönd að miklu leyti hætt að kaupa olíu af Íran og svo virðist einnig sem gíslatakan í Alsír hafi verið kveikjan að þeirri hækkun sem við sjáum núna,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Lítraverð á bensíni hefur farið úr 246,8 krónum í 264,4 krónur á þeim 43 dögum sem liðnir eru af árinu. Það er hækkun upp á 17,6 krónur á mjög skömmu tímabili. Að fylla 50 lítra bensíntank kostaði 12.340 krón- ur um áramótin. Í gær hefði sam- bærileg áfylling kostað 13.220 krón- ur, tæplega 900 krónum meira en um áramót. Bensínverð hefur að sögn Runólfs ekki verið hærra síðan í apr- íl í fyrra. „Meginskýringin á þessum hækk- unum um þessar mundir er sú að heimsmarkaðsverð fer mjög hratt hækkandi. Í ársbyrjun kostaði lítri af bensíni á heimsmarkaði 92 til 93 krónur en var 107 krónur fyrr í vik- unni,“ sagði Runólfur. „Hækkanirnar eru því fyrst og fremst vegna utanaðkomandi þátta en ekki heimatilbúinn vandi.“ gunnardofri@mbl.is Bensínverð í hámarki Bensínverð Hækkandi heimsmarkaðsverð og veikari króna eru helstu skýringar mikilla hækkana á bensínverði síðustu daga. Verðhækkanir bensín- og dísilverðs Meðalverð mánaðar (kr.) 266,3 Júlí 2012 Ágúst 2012 Sept. 2012 Okt. 2012 Nóv. 2012 Des. 2012 Jan. 2013 12. feb. 2013 270 265 260 255 250 245 240 264,4 246,9 244,4 257,9 260,9 246,2 256,3 Heimild: FÍB / gsmbensin.is  Algengasta útsöluverð á bensíni 264,4 krónur  Mikil hækkun frá áramótum  7,1% hækkun á 43 dögum Geislafræðingar Sjúkrahússins á Akureyri, sem eru 12 talsins, skora á stjórn- völd að vinna að samningum við geislafræðinga og aðra heilbrigðis- starfsmenn Landspítalans. „Geislafræðingar vinna mikilvægt og krefjandi starf við greiningu og meðferð sjúklinga á heilbrigðisstofnunum landsins. Krafist er háskólanáms og stöð- ugrar starfsþjálfunar sökum mik- illar tækniþróunar. Síðustu ár hefur álag á starfsfólk spítalanna aukist verulega eins og fram hefur komið í fjölmiðlum. Hefur það bitnað á þjón- ustu við sjúklinga og heilsu starfs- manna. Landsbyggðarspítalarnir, s.s. Sjúkrahúsið á Akureyri, eru þar engin undantekning. Sendum við fagfélögum okkar stuðning í þessari mikilvægu og erfiðu baráttu,“ segir í yfirlýsingu geislafræðinganna. Styðja baráttu geislafræðinga ÖSKUDAGUR Í ARION BANKA Í tilefni af öskudeginum gefum við krökkum sem koma í útibú bankans, sérstakt öskudags- Andrésblað. Blaðið er fullt af skemmtilegum myndasögum og er afhent á meðan birgðir endast. Góða skemmtun! © DISN EY

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.