Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013 ✝ Birna Stein-grímsdóttir fæddist 31. júlí 1954 í Reykjavík. Hún lést af slysför- um 3. febrúar 2013. Foreldrar Birnu eru Steingrímur B. Björnsson, f. 5. maí 1928, og Ásta Sig- urdís Valdimars- dóttir, f. 25. maí 1933. Systkini Birnu eru Ingibjörg Sigríður Steingrímsdóttir, f. 11. nóv- ember 1949, Benedikta Sigríður Steingrímsdóttir, f. 11. mars 1953, Guðrún Auður Björns- dóttir, f. 24. ágúst 1959, Jón Hörður Ragnarsson, f. 4. maí 1949, og dóttir þeirra er Drífa Harðardóttir, f. 28. júní 1977. Dætur Drífu eru Salma María, f. 18. apríl 2007, og Sara Amelía, f. 25. júlí 2009. Birna útskrifaðist frá Hjúkrunarskóla Íslands í októ- ber 1975. Birna starfaði við Landspítalann, Sjúkrahús Akra- ness, Herlev-sjúkrahúsið í Dan- mörku, Hrafnistu og á Landa- koti. Lengst af starfaði hún þó við St. Jósefsspítalann í Hafn- arfirði, lyflækningadeild eða frá september 1991 þar til spít- alanum var lokað í lok nóv- ember 2011. Þar af var hún deildarstjóri frá ágúst 1998. Birna var mjög virk fjall- göngukona og hafði unnið til þó nokkurra viðurkenninga í tengslum við það. Jarðarförin fer fram frá Digraneskirkju 13. febrúar 2013 kl. 15. Hrafn Björnsson, f. 25. október 1962, Björn Steingríms- son, f. 6. nóvember 1962, Ingibjörg Lí- ney Steingríms- dóttir, f. 27. mars 1968. Eiginmaður Birnu er Þórarinn Hannesson, f. 26. ágúst 1953. Dætur þeirra eru a) Vala Þórarinsdóttir, f. 11. júní 1981, börn hennar eru Andri Freyr, f. 5. janúar 2004, og Sunneva, f. 17. apríl 2010, b) Heiða Þór- arinsdóttir, f. 26. júní 1989. Fyrri eiginmaður Birnu var Við kveðjum þig að sinni og munum þig hvert á sinn hátt. Munum fallegu augun þín sem voru svo full af lífi, elsku og um- hyggju, brosið þitt bjarta sem yljaði inn að hjartarótum, litla faðminn þinn sem var svo stór og gjöfull að allir vildu koma þar við og kraftinn sem bjó í þínum litla líkama. Þú áttir svo mikið að gefa og gafst. Hljópst svo um fjöll og firnindi til að sinna sjálfri þér, upplifa fegurðina og hreinleika fjalla og einhvern veginn féllstu inn í það umhverfi, enda tónn af sama meiði, þú og hinn íslenski fjallasalur. Hreinn og tær. Við kveðjum þig með erindum úr ljóði Snorra frá Geitafelli. Það hvarflaði í hug minn lítið ljóð, ég les það við hvíluna þína. Því þú varst hetja svo hlý og góð það háleita vildir þú sýna. Þú trúðir á lífið, land og þjóð á ljós sem í myrkrinu skína. Ég á ekki þekkingu orð eða róm þín afrek og hugprýði að sýna. Ég hlusta á kvöldsins klukknahljóm með kinnroða og skuldina mína. Ég tíni í huganum brosandi blóm og breiði á hvíluna þína. Hafðu þökk. Mamma, Ingibjörg, Benedikta, Guðrún Auður og Jón Hrafn. Birna mágkona mín var ein- stök manneskja. Prýdd flestum kostum sem skartað verður. Hún var hlý, skilningsgóð, þolgóð, heiðvirð og brosti svo nálægðin fylltist birtu. Það er um Birnu líkt og sagt er um afburðafólk að guðirnir taka snemma til sín þá sem þeir elska mest. Og við sem kynntumst Birnu, og þekktum, elskuðum hana. Hún bjó bróður mínum og börnum þeirra heimili sem var í senn fagurt og þangað var gott að koma. Birna var hjúkrunarfræðing- ur, helguð starfi sínu og hlúði af alúð að þeim sem veikir voru og nutu umönnunar hennar. Hún var einkar vel að sér og var í senn hjúkrandi og læknandi. Jafnan umtöluð sem best meðal góðra. Og þannig var með flest það sem Birna tók sér fyrir hend- ur. Hún skilaði góðu verki og all- ir treystu henni. Birna var einnig dugleg úti- vistarmanneskja, dáði fallega El- liðaárdalinn sem þau bjuggu við. Þau Þórarinn áttu svo sannar- lega margt sameiginlegt. Heilsu- samlegt líf, útivist, heilsufagleg mál og ekki minnst elsku hvort til annars. Hún var bróður mínum vinur og skjól í erfiðu starfi hans. Þau ólu fallega upp dætur sínar og hafa skilið eftir handa okkur frændgarð, börn og barnabörn sem verða okkur frændfólkinu ávallt nánust og kærust. Stórt skarð er höggvið í fjöl- skyldu okkar. Skarð sem ekki verður fyllt, aðeins grætt, og þá helst með því að fóstra í huga okkar góðu stundirnar sem Birna gaf okkur og þá frábæru fyrir- mynd sem hún var. Í því liggur vonin. Það er sagt að englar séu ein- ungis góðir og geti aldrei gert illt. Séu ávallt góðir. Birna var engill. Við sendum Þórarni, dætrun- um og barnabörnunum hlýjasta hug okkar, vefjum Birnu bænum okkar. Segjum eins og Andri ömmudrengur Birnu skildi eftir handa ömmu sinni: „Amma, ég elska þig eins mikið og hjartað þolir.“ Megi minningin um Birnu Steingrímsdóttur verða ljós á vegi framtíðarinnar, okkur fjöl- skyldunni sem og öllum er Birna sýndi þá ástúð sem henni var svo eðlislæg. Jón Gunnar. Á sunnudaginn, í blindbyl á Holtavörðuheiði, fékk ég símtal þar sem mér var sagt að konan sem fallið hafði í Esjunni hefði verið Bía frænka mín og hún væri látin. Þetta voru orð sem hugur minn náði engan veginn utan um, en svo kom sorgin. Minningarnar eru margar og er ég svo þakklát fyrir þær allar. Það fyrsta sem ég hugsaði var auðvitað hvað hún hefur alltaf verið góð við mig, kom í allar mínar útskriftir og skírnir allra minna barna. Við áttum rosalega gott samtal þegar ég heimsótti hana fyrir jólin, en þá var hún að reyna að baka hina fullkomnu formköku samkvæmt einhverri uppskrift úr blaði. Þetta var ekki hennar fyrsta tilraun eftir þess- ari uppskrift, þar sem kakan var ýmist hrá að innan eða sykurinn sem var ofan á brann. En eins og sannri húsmóður sæmir þá gaf hún mér þessa dýrindis köku, sem hvorki var hrá né brunnin, með ískaldri mjólk. Fyrir jólin síðustu bað Bía mig að sauma handa sér peysu og hef ég sjald- an verið jafn hrærð og montin, að ef hún í alvörunni vildi eitthvað sem ég bjó til þá hlyti það pott- þétt að vera gæði. Jólaboð stór- fjölskyldunnar var í síðasta sinn sem við komum öll saman. Það var yndisleg stund þar sem talað var hátt og mikið. Þær systur voru í sínu besta formi og sást þar greinilega hvaðan ég og börnin mín höfum okkar frábæru eiginleika. Enn næ ég því ekki að Bía frænka mín sé farin og ég muni aldrei sjá hana aftur, ekki muni ég aftur mæta í aðventukaffi til hennar né hún í veislu hjá mér. Mikið rosalega mun ég sakna hennar og minningin um yndis- fagra og góða konu lifir í hjarta mínu. Lífsins leiðin snöggt tók endi Leiðangurinn farinn frá Hamingju hugsanir þér ég sendi Hugur minn er þér hjá Mikið þakklæti er mér efst í huga Mikill var þinn lífsins kraftur Andann skal þó ekki að buga Því á endanum við hittumst aftur (G.D.S.) Ég bið Guð að umvefja þig mjúkum örmum sínum um leið og ég þakka þér samfylgdina á lífsleiðinni. Elsku Þórarinn, Drífa, Vala og Heiða, ég sendi ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur og megi Guð styrkja ykkur á sorgar- brautinni. Ingunn Elfa. Kveðja frá Everest-hópi Útivistar Góður göngufélagi og vinur er fallinn frá í hörmulegu slysi. Eft- ir stöndum við, félagar hennar, hnípin og spyrjum af hverju þetta þurfti að gerast. Birna Steingrímsdóttir var fé- lagi í Everest-hópi Útivistar. Henni dugði ekki einn gönguhóp- ur heldur var hún einnig félagi í öðrum gönguhópum, auk þess sem hún fór í gönguferðir á eigin vegum. Hún naut þess að takast á við fjöllin og sigra þau. Hún var í fantagóðu formi og gaf korn- ungu fólki ekkert eftir þegar lagt var á brattann. Auk þess var hún frábær félagi, afskaplega ljúf og elskuleg í allri umgengni, glöð og skemmtileg. Þessi hógværa og netta kona skilur eftir sig stórt skarð hjá Everest-hópnum. Hún kom í nánast allar göngur hópsins, það þurfti eitthvað mjög sérstakt til að Birna mætti ekki í göngu. Hennar verður sárt saknað. Göngufélagarnir í Everest- hópnum þakka Birnu af alhug fyrir góða og ánægjulega sam- fylgd. Fjölskyldu hennar sendum við okkar hlýjustu samúðar- kveðjur. Fyrir hönd félaga í Everest- hópi Útivistar, Kristíana Baldursdóttir. Elsku besta vinkona. Það dimmdi og kólnaði í hjarta mér þegar ég fékk fréttina um að þú værir dáin, elsku Birna mín. Þvílíkur sársauki og sorg sem gagntók mig. Ég kynntist þér þegar ég byrjaði að vinna á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði haust- ið 1995. Fyrstu þrjá dagana var ég eins og skuggi þinn. Fylgdi þér eftir í einu og öllu og þú sett- ir mig vel inn í starfið sem við unnum báðar. Kenndir mér á tæki og tól, rétt handtök og að hlusta á og virða sjúklingana. Allt þetta hef ég haft að leiðar- ljósi í starfi mínu og það nýtist mér enn í dag . Ég var svo lán- söm að við smullum saman og urðum vinkonur nánast frá fyrstu kynnum. Ég hreifst af hversu dugleg þú varst og út- sjónarsöm. Skipulögð og fagleg fram í fingurgóma. Sama hvað kom upp, þá leystir þú úr vanda- málum róleg og yfirveguð. Síðar þegar þú varðst deildarstjóri varstu réttlát, skilningsrík og laðaðir það besta fram í fari allra. Árin liðu og vinátta okkar óx og dafnaði. Við hittumst oft fyrir ut- an vinnutímann og ræddum alla heima og geima. Við ræddum um fjölskyldurnar okkar, börn og auðvitað barnabörnin þegar þau fæddust eitt af öðru. Vorum báð- ar svo stoltar mömmur og ömm- ur, gátum endalaust montað okk- ur af okkar fólki og sagt sögur af því. Við áttum sameiginlegt áhuga- mál sem var fjallgöngur og gönguferðir um fallega landið okkar. Við áttum saman margar yndislegar stundir á fjöllum. Það skipti ekki máli hvort það var sól eða rigning. Við klæddum okkur bara eftir veðri og héldum á vit ævintýranna. Mikill stærðar- munum var á okkur og þegar það hvessti bauðst ég í gamni til að binda þig við mig því ég fyki hvergi. Þú hlóst bara og glettnin skein úr fallegu augunum þínum. Oftar en ekki gleymdum við okk- ur í lítilli laut eða sátum á stein- um í fjallshlíðum og tíminn flaug áfram. Þú bentir á allan fjalla- hringinn og þuldir upp nöfn fjallanna sem ég átti eftir að ganga með þér, en auðvitað varst þú búin að klífa þau öll áður. Síð- asta sumar bættist Stebbi minn í tveggja manna hópinn okkar. Þetta var ógleymanlegt fjalla- sumar og við fórum í ófáar fjall- göngurnar með þér, Birna mín. Þú smitaðir manninn minn með ákafa þínum og áhuga og hann geystist upp og niður fjallshlíð- arnar á meðan þú sagðir okkur frá staðháttum og atburðum sem þar höfðu gerst. Þú snertir líf svo margra, elsku Birna mín, og breytingin að missa þig verður svo sár og erfið. En minningin er ljúf. Elsku Þórarinn, Heiða, Vala, Drífa og fjölskyldur, megi góður Guð styrkja ykkur og styðja í þessari miklu sorg. Þín. Erla. Takk Bía mín fyrir að vera vinkona mín. Vinátta okkar byrjaði í skól- anum við Eiríksgötuna. Á vist- inni tengdust vinaböndin þéttar vegna námsins og nýrrar lífs- reynslu. Oft sátum við saman í skólanum. Á lausum stundum saumaðir þú út en ég tók í heklu- nálina. Og margt var saumað á þeim árum. Þú bauðst mér norð- ur til Húsavíkur því þér fannst ótækt að ég hefði engin plön fyrir páskahelgina. Oft var skottast í Akurgerði í heimsókn. Ég heim- sótti þig svo á Akranes. Við átt- um góða daga í Köben ’78 þegar þú sýndir mér Herlev. Og við fór- um í dýragarðinn og á Bakken í stóra rússíbanann. Og þá var Drífa í kerrunni, lítið spons. Við vorum svo herbergisfélagar í Ed- inborg og á Geysi þegar hollið okkar var að ferðast og ganga í tilefni útskriftarafmæla okkar. Samtölin okkar voru hnitmið- aðar spurningar og mjög hrein- skilin svör sem við geymdum hvor hjá annarri. Sátum þá þétt saman og horfðumst fast í augu og vorum fljótar að afgreiða mál- in. Alltaf var eins og við hefðum hist í gær. Gleði, jákvæðni, ein- lægni og hreinskilni var alltaf í öllum okkar samskiptum. Kná, smá, trú, trygg, orðvör, með blik í augum og risastór manneskja var hún Bía mín. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur til Tóta, dætra, ættingja og vina Bíu. Sjáumst í Sumarlandinu. Erla Ragna Ágústsdóttir. Það var haustið 1972 að 60 ungmenni settust á skólabekk í Hjúkrunarskóla Íslands. Stærsti hópur sem hafði verið tekið inn í skólann í einu. Öll þessi ung- menni voru full eftirvæntingar og tilbúin að læra til ævistarfs- ins. Birna var ein af okkur. Í þá daga bjuggu flestir á heimavist í skólanum og urðu góð kynni og mikill vinskapur á milli nema sem haldist hefur alla tíð. Í Hjúkrunarskóla Íslands voru ekki bekkir heldur „holl“ og þau einkennd með bókstöfum og var einfaldlega farið eftir stafrófinu. Við vorum í L-holli Hjúkrunar- skóla Íslands. Eftir útskrift tvístruðust allir hver í sína átt og Birna vann m.a. á Landspítalanum, Akranesi, í Danmörku, á Landakoti og lengst af sem deildarstjóri á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði. Hún var kröftug í starfi og stóð m.a. kornung fyrir leshring á Akra- nesi og vildi með því bæta þekk- ingu starfsmanna og auka hæfni þeirra í starfi. L-hollið hittist sjaldan fyrstu árin eftir útskrift en í tilefni af 25 ára útskriftarafmæli urðu straumhvörf í samskiptum okk- ar. Þá var ákveðið að halda til Edinborgar í helgarferð í tilefni afmælisins. Við áttum samt erfitt með að sjá okkur á Princess Street í marga daga svo við fund- um á netinu ferðaskrifstofu sem fór með okkur í gönguferð í einn dag. Sá dagur mun aldrei gleym- ast því illskuveður var í borginni, þakplötur fuku af húsum og tré rifnuðu upp með rótum. Ekki hafði það áhrif á okkur og geng- um við ótrauðar á Ben Lawers. Skosku leiðsögumennirnir höfðu aldrei séð kvennahóp svona vel útbúinn til göngu og duglegan. Á toppinn fórum við og Birna var þar fremst í flokki enda höfðum við hinar ekki roð við henni. Eftir þessa ferð hefur hópur- inn farið árlega í gönguferðir, bæði innanlands og utan. Ferð- irnar hafa verið okkur mjög mik- ilvægar og einnig fyrir maka okkar sem hafa náð að kynnast vel. Vináttuböndin hafa styrkst með hverri ferð sem við höfum farið. Síðasta ferð okkar var á Snæ- fellsnesið. Þar kusum við Birnu í nefnd til að skipuleggja næstu ferð og var nefndin búin að skipuleggja ferðina að mestu og verður erfitt fyrir okkur að fara í þá ferð án hennar. Birna var létt á sér eins og fjallageit. Hún var með afbrigð- um hógvær og sýndi það sig ein- mitt best í göngunum þegar hún tók forystuna. Þá miklaðist hún ekki af því hversu góður fjalla- maður hún var. Hún þurfti ekki að sýnast, hún var bara hún sjálf, glaðvær, traust, skynsöm, góður félagi og tilbúin að hjálpa, og nut- um við skólasystur hennar oft góðra ráða. Yndisleg skólasystir og frá- bær ferðafélagi er fallin frá. Það er stórt skarð í hópnum sem eng- inn fyllir. Við minnumst Birnu sem frábærs hjúkrunarfræðings sem vann af einurð og heiðar- leika að því að bæta líðan skjól- stæðinganna og hafði metnað fyrir hjúkrun. Á sama hátt hlúði hún að vinskapnum við hollsyst- urnar. Hennar verður sárt sakn- að. Við vottum Þórarni, Drífu, Völu, Heiðu og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð og biðjum góðan Guð að styrkja þau. F.h. hjúkrunarfræðinga úr L- holli. Sigríður, Ólafía, Björk, Ingi- björg og Jóhanna. Ég tel mig lánsama að hafa fengið að kynnast Birnu þótt veikindi mín hafi þurft til. Um- hyggjan, kærleikurinn og nær- gætnin sem hún sýndi mér í veik- indum mínum er mér ómetanleg. Það var fyrir hana og samstarfs- fólk hennar á St. Jósefsspítala sem gerðu spítalann svo sérstak- an og langar spítalainnlagnir bærilegar. Þegar hún labbaði fram hjá stofunni minni vissi ég hver þar var á ferð, stuttu skrefin og rösk- legt göngulagið einkenndu vinnusemi hennar og dugnað. Birna gaf mér meira en hún þurfti og tók krók á leið sína til að allt gengi sem best alls staðar. Umönnun hennar einkenndist af fagmennsku og góðvild hvort sem var í mánaðarlegri lyfjagjöf eða í innlögnum sem stundum vöruðu svo mánuðum skipti. Á fimmtán árum mynduðust góð tengsl þótt þau væri á milli sjúk- lings og þess sem hann annaðist. Hún nuddaði tærnar mínar, sat hjá mér þegar ég fékk martraðir, strauk enni mitt með þvottapoka og bleytti kverkar mína með blautum svampi. Hún hjálpaði mér að annast dóttur mína þótt það væri ekki nema brot úr degi því henni þótti leitt að vita af móður og ungbarni aðskildum vikum saman. Hún spurði reglu- glega hvernig börnin mín hefðu það og sagði mér stolt frá barna- börnum sínum. Birna gaf mér von þegar illa gekk og bros þegar vel gekk. Hún studdi erfiðar ákvarðanir, fræddi mig og annaðist. Hún veitti mér öryggi með nærveru sinni og fróðleik. Myndir og minningar geymi ég og varðveiti. Hugur minn er hjá fjölskyldu Birnu, börnum hennar og barna- börnum, vinum hennar og vinnu- félögum og öllu hennar sam- ferðafólki. Megi Guð veita þeim öllum styrk á þessum erfiðu tím- um. Ósk Matthíasdóttir. Það var mikið áfall að heyra að góð vinkona og samstarfsmaður til margra ára, Birna Steingríms- dóttir hjúkrunarfræðingur, hefði farist í fjallgönguferð sunnudag- inn 3. febrúar sl. Hvers konar útivist og fjallgöngur voru henn- ar áhugamál sem hún stundaði af miklum krafti með vinum og göngufélögum. Hún var sann- kölluð fjallageit. Lífið er hverfult og á svip- stundu var henni kippt í burtu og er það okkur öllum sem til henn- ar þekktum mikið reiðarslag. Birna hóf störf á St. Jósefs- spítala í Hafnarfirði árið 1992. Birna Steingrímsdóttir HINSTA KVEÐJA Langt af fjöllum hríslast lækirnir og laða þig margir til fylgdar. En vegurinn er einn, vegurinn velur þig, hvert spor þitt er stigið. Og frá upphafi allra vega fór enginn þá leið nema þú. (Snorri Hjartarson) Hörður, Guðrún, Una og Ragnar frá Akranesi. ✝ Ástkær stjúpfaðir okkar, bróðir, vinur, afi og langafi, HANNES HAFLIÐASON, Hrafnistu, Reykjavík, áður Kleppsvegi 126, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 14. febrúar kl. 13.00. Kolbrún Benjamínsdóttir, Margrét Benjamínsdóttir, Sigurður Tryggvason, Hafdís Hafliðadóttir, Ingibjörg Hafliðadóttir, Aðalheiður Hafliðadóttir, Ragnar Hafliðason, Friðlaugur Friðjónsson, afa- og langafabörn og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.