Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013 F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M ! KRINGLUNNISími: 5513200 ERUM AÐ TAKA UPP NÝJAR VÖRUR FYRIR BÖRN! Mannréttindi í stjórnarskrá verða til umfjöllunar á 6. fundi háskól- anna um fyrirhugaðar breytingar á stjórnarskrá. Fundurinn er haldinn í dag kl. 12-14 í Háskóla Íslands. Sérstakur gestur er Ei- vind Smith, prófessor við laga- deild Oslóarháskóla. Aðrir frum- mælendur eru Björg Thoraren- sen, prófessor við lagadeild Há- skóla Íslands, og Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við laga- deild Háskóla Íslands. Fund- arstjóri er Róbert Spanó, prófess- or og forseti lagadeildar Háskóla Íslands. Á fundinum verður m.a. horft til endurskoðunar á mannrétt- indaákvæðum norsku stjórnar- skrárinnar og borið saman við aðferðir við breytingar á íslensku stjórnarskránni. Fundaröð Háskólarnir hafa að undanförnu staðið fyrir fundum um stjórnarskrána. Fjalla um mannrétt- indi í stjórnarskrá Á borgarafundi Dögunar og fleiri samtaka í Iðnó á mánudagskvöld var samþykkt ályktun þar sem segir m.a. að hagsmunir fjár- málafyrirtækja og peningavalds eigi að víkja fyrir almannaþörfum og hagsmunir almennings, umhverf- is og fyrirtækja, sem framleiði raun- veruleg verðmæti, njóti forgangs. Þá var áréttuð krafa kjósenda um alvörulýðræði og þess krafist að mannréttindi verði virt í raun með því að verðtrygging verði afnumin samkvæmt tímasettri áætlun. Hagsmunir peninga- valds víki Frá borgarafund- inum í Iðnó. Hilmar Veigar Pétursson, fram- kvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtæk- isins CCP, fjallar um sögu þess og hraðan vöxt í fyrirlestri í stofu 132 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, í dag klukkan 12. CCP var stofnað árið 1997 og er þekktast fyrir fjölspilunarnet- leikinn EVE Online sem hóf göngu sína árið 2003. Fyrirtækið stefnir á útgáfu skot- leiksins DUST 514 fyrir PlayStat- ion 3 leikjavélar og er einnig með leikinn World of Darkness í þróun. Fjallað um sögu CCP STUTT Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Ísland hefur helst úr lestinni á mörgum sviðum frá 2006 þegar efna- hagsleg lífskjör eru borin saman við Danmörku, Noreg og Svíþjóð.“ Þetta er ein af meginniðurstöðum nýrrar skýrslu ASÍ þar sem borin eru sam- an lífskjör á Norðurlöndunum 2006- 2012. Samanburðurinn er á mörgum sviðum Íslandi mjög í óhag. Íslend- ingar vinna að jafnaði lengri vinnu- viku til að halda uppi lífskjörum sam- bærilegum við það sem gerist annars staðar á Norðurlöndum og munurinn er því meiri ef tekið er tillit til vinnu- tíma. Breytingar á skattkerfinu hér og auknar tilfærslur hafa orðið til þess að hlífa þeim tekjulægstu í saman- burði við hinar Norðurlandaþjóð- irnar en aftur á móti hefur staða hjóna og sambýlisfólks með börn versnað miðað við samanburð- arlöndin frá 2006. Fram kemur í skýrslunni sem kynnt var í gær að verulegur sam- dráttur fjárfestingar hér á landi er áhyggjuefni en fjárfesting hefur ekki náð sér á strik eftir hrun og er enn langt undir sögulegu meðaltali. Þá er mikil skuldsetning hins opinbera sögð vera ein stærsta ógnin við lífs- kjör Íslendinga og mikill samdráttur samneyslunnar hefur komið hart nið- ur á heilbrigðis- og menntakerfinu. Vinna mikið til að halda uppi sambærilegum lífsstaðli Sambærileg rannsókn var gerð ár- ið 2006 en í þessum nýja samanburði hallar verulega á Ísland að því er fram kemur í lokakafla skýrslunnar. „Dregið hefur úr landsframleiðslu yfir tímabilið 2006-2012 og er staða Íslendinga og Dana verri í þjóðhags- legu samhengi en hinna ríkjanna. Sérstaklega er staða Íslendinga slök þegar litið er til langrar vinnuviku og ljóst að Íslendingar þurfa að vinna mikið til að halda uppi sambæri- legum lífsstaðli.“ Gerður er m.a. launasamanburður milli landanna eftir skatta þar sem tekið er tillit til tilfærslna hins op- inbera á borð við barnabætur og húsaleigubætur og skoðað hvaða áhrif skattkerfisbreytingar hér á síð- ustu árum hafa haft á ákveðna hópa. Þegar vinnutími er skoðaður í tengslum við landsframleiðslu leiða niðurstöðurnar í ljós „að Íslendingar þurfi að vinna meira en aðrir Norð- urlandabúar til að afla álíka efna- hagslegra lífskjara, minni ávinning af hverri vinnustund og hafi þar af leiðandi lakari lífskjör þar sem frí- tími er styttri“. Heilbrigðisútgjöld lækka Þá kemur fram í skýrslunni að sé litið til útgjalda til heilbrigðismála sem hlutfall af heildarútgjöldum sjá- ist áhrif niðurskurðarins þar sem út- gjöld hafa snarlækkað hér á landi á meðan flestar hinar Norðurlanda- þjóðirnar hafa haldið sínu striki. Samanburður á skattþrepum milli landanna leiðir í ljós að tekjuskattur á lág- og millitekjufólk er hæstur á Íslandi. Tekjuskattur er hins vegar hæstur í Svíþjóð fyrir tekjur hærri en hálfa milljón á mánuði og hæsta skattþrepið er einnig að finna í Sví- þjóð, þar sem heildarskattur á hæstu tekjur er 57% á meðan lægsta há- tekjuskattþrepið er að finna á Ís- landi eða 46,24%. Samanburður á skattþrepum gefur hins vegar tak- markaða mynd af raunverulegri skattbyrði að því er fram kemur í skýrslunni. Gerður er ítarlegur sam- anburður á skattbyrði mismunandi hópa miðað við tekjutengingar, bæt- ur o.fl. Í niðurstöðunum segir að breyt- ingar á skattkerfinu og auknar til- færslur hafi orðið til þess að hlífa þeim tekjulægstu hér á landi. „Tek- ist hefur með tilfærslum að bæta stöðu ákveðinna hópa, sbr. ein- stæðra foreldra, í flestum tekjuhóp- um í samanburði við hinar Norð- urlandaþjóðirnar. Aftur á móti hefur staða hjóna og sambýlisfólks með börn versnað miðað við samanburð- arlöndin frá 2006,“ segir í skýrsl- unni. Þar kemur einnig fram að staða einstæðra foreldra batnar töluvert gagnvart nágrannalöndunum þegar tekið er tillit til bóta en sömu sögu er ekki að segja ef staða hjóna í sömu tekjuhópum er skoðuð sökum tekju- skerðinga og fyrirkomulags bóta á Íslandi. „Þessi hraða tekjuskerðing, og tvöfalda kerfi einstæðra og sam- býlisfólks, verður til þess að bóta- kerfið nær ekki að bæta hlutfallslega stöðu hjóna gagnvart öðrum Norð- urlandaþjóðum og verður þvert á móti til þess að staða hjóna versnar gagnvart samanburðarhópum eftir því sem laun hækka,“ segir þar enn- fremur. Sýnt er fram á að tekjuskerðing bóta hefur þau áhrif að staða hjóna með tvö börn versnar hlutfallslega gagnvart hinum Norðurlandaþjóð- unum þegar ráðstöfunartekjur eru bornar saman og tekið hefur verið tillit til tilfærslna. „Af þeim sökum verður munurinn mestur milli Ís- lands og Noregs, þar sem hjón í tekjuhærri viðmiðunarhópum hafa allt að 53% meiri ráðstöfunartekjur en hjón á Íslandi, og minnstur milli Svíþjóðar og Íslands eða 32%.“ Ísland hefur helst úr lestinni  Dökk mynd af lífskjörum á Íslandi í samanburði við aðrar Norðurlandaþjóðir í nýrri skýrslu ASÍ  Þótt tekist hafi að hlífa þeim tekjulægstu hefur staða hjóna og sambýlisfólks með börn versnað Hlutfallslegur munur ráðstöfunartekna samanburðarhópa Ísland (100 til samanburðar) Svíþjóð Danmörk Noregur Heimild: Eurostat og ASÍ 160% 140% 120% 100% 80% 60% 40% 20% 0% Ós ér hæ ft sta rfs fól k: Ein sta kli ng ar Ós ér hæ ft sta rfs fól k: Ein stæ ðir Þjó nu sta , u mö nn un og sa la: Ein sta kli ng ar Þjó nu sta , u mö nn un og sa la: Ein stæ ðir Sé rfr æð ist ör f: Ein sta kli ng ar Sé rfr æð ist ör f: Ein stæ ðir Hj ón í ó sé rh æf ðu m stö rfu m me ð t vö bö rn Hj ón í þ jón us tu og sé rh æf ðu iðn . s tar fi m eð tvö bö rn Hj ón í s ér fræ ði og stj ór ne nd a- sta rfi me ð t vö bö rn 11 9 1 35 1 41 11 6 1 29 13 3 12 6 13 0 14 3 11 9 12 6 13 5 13 3 14 2 1 59 12 9 13 8 15 7 12 9 13 6 14 8 12 9 12 8 1 45 13 2 13 8 1 53 Í samanburði ASÍ á skattbyrði milli Norðurlandanna kemur fram að skattbyrði á lægstu tekjur er umtalsvert léttari á Ís- landi en annars staðar á Norð- urlöndum. Skattbyrði hátekna er hins vegar minni hér en annars staðar á Norðurlöndunum. „Af Norðurlandaþjóðunum er Ísland eina landið þar sem launa- menn hækka um skattþrep undir meðaltekjum. Það í bland við tekjutengingar tilfærslna hins opinbera dregur úr hvata til auk- ins vinnuframlags hjá hinum tekjulægri,“ segir í úttektinni. Skattþrep eru mismunandi eftir löndunum en á Íslandi fær- ist launafólk upp úr lægsta skattþrepi við 50-70% af meðal- tekjum. Þetta leiðir meðal ann- ars til hraðrar aukningar á skatt- byrði undir meðaltekjum en á tekjubilinu 475-675 þúsund er skattbyrði meiri á Íslandi en í Svíþjóð og Noregi og frá 325- 475 þúsund er hún svipuð og gerist í Noregi. Vegna lengri vinnuviku eru Íslendingar lengur að afla sér meðaltekna. Skattur dreg- ur úr hvata MISMUNANDI SKATTBYRÐI Morgunblaðið/Golli Vinnutími er líkari því sem tíðkast í Austur-Evrópu en Norðurlöndunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.