Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013 Erlingur B. Thoroddsen Raufarhöfn Önundur Kristjánsson, útgerðar- maður á Raufarhöfn, sá ekki ástæðu til að sitja heima á 80 ára afmælisdegi sínum, enda þekktur fyrir allt annað en að hanga heima, þegar sá guli gefur sig. Hann hélt í róður í bítið á mánudagsmorguninn á bát sínum Þorsteini GK 15, sem er 50 tonna eikarbátur, smíðaður í Svíþjóð 1946, en Önundur eignaðist hann árið 1972. Tíðindamaður brá sér niður á löndunarbryggju, þegar Þorsteinn lagðist að síðdegis þennan merka dag, og varð vitni að því þegar stjórnendur GPG Fiskverkunar á Raufarhöfn færðu afmælisbarninu tertu í tilefni dagsins. „Varstu að fá hann?“ spurði tíð- indamaður að lokinni tertuathöfn. „Þetta eru rúm fjögur tonn í dag, en frá mánaðamótum erum við bú- in að fá um 50. Stór og góður fisk- ur,“ svaraði afmælisbarnið og fylgdist með lönduninni út um kýr- augað. „Það er ekkert verið að sitja heima á svona tímamótum?“ hélt tíðindamaður áfram. „Það er engin ástæða til þess, á meðan maður fær að róa og heilsan leyfir. Ég er ekk- ert að hætta,“ svaraði afmælis- barnið alvarlegt á svip. „Og konan með stórafmæli á miðvikudaginn. Verðurðu heima þá?“ En eiginkona hans Una Elías- dóttir verður 75 ára þann dag. „Ja, þú segir nokkuð. Verður hún 75 ára á miðvikudaginn?“ Glettnin skein úr augum hans, þegar hann leit yfir þilfarið og fylgdist með lönduninni, þar sem barnabarn hans, Eva María Hilmarsdóttir, stjórnaði löndun. „Ætli maður rói ekki, ef gefur,“ svaraði þessi aldna kempa, sem hoppar ennþá á milli skips og bryggju eins og unglingur. Hangir ekki heima þegar sá guli gefur sig  Önundur Kristjánsson á Raufarhöfn reri til fiskjar á 80 ára afmælisdegi sínum  Eiginkonan á stórafmæli í dag Morgunblaðið/Erlingur B. Thoroddsen Í brúnni Önundur Kristjánsson skipstjóri í bát sínum Þorsteini GK. Löndun Barnabarn Önundar, Eva María Hilmarsdóttir, stjórnaði löndun. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Erlendum föngum sem afplána óskilorðsbundna refsingu á Íslandi hefur fjölgað geysihratt síðustu árin eða um 260% frá 2007, eins og fram kom í blaðinu í gær. Þeir eru nú 91. Flestir eru þeir frá Póllandi en einn- ig eru nokkrir frá Litháen og Níger- íu, aðeins einn var sendur til heima- landsins. Páll Winkel fangelsis málastjóri segir að fjölgunin stafi líklega fyrst og fremst af því að lög- reglan standi sig vel. En erfitt sé að senda þá fanga til heimalandsins sem ekki vilji fara. „Í flestum tilvikum vilja þeir ekki fara til heimalandsins vegna þess að aðbúnaður í fangelsum sumra land- anna er ákaflega slæmur og brýtur á margan hátt mannréttindareglur,“ segir Páll. „Þegar þeir vilja ekki fara tekur við mjög þungt ferli milli ráðu- neyta landanna til að koma þeim til afplánunar í sínu heimalandi. Hins vegar hafa Íslendingar verið miklu duglegri að brjóta af sér í útlöndum en margir gera sér grein fyrir. Á ákveðnu tímabili sendum við 10 úr landi en tókum við 24 Íslendingum.“ Fangelsismálastjórn hefur nú til umráða um 150 rými í stofnunum sínum, þar af eru tvær, Kvíabryggja og Sogn, svonefnd opin fangelsi. Alls bíða 456 manns á biðlista eftir af- plánun og eru þeir með alls 595 dóma á bakinu. Páll segist vongóður um að nú verði nýtt fangelsi á Hólmsheiði loks að veruleika. Einn- ig sé verið að þróa önnur fullnustu- úrræði eins og samfélagsþjónustu og nokkrir sæta rafrænu eftirliti með ökklaböndum. Jafngildir fjöldi þeirra 5-7 fangaplássum, að sögn Páls. Hann segir þetta kerfi hafa gengið vel og það þurfi að þróa frek- ar. Eitt sinn var Kvíabryggja eink- um fangelsi fyrir þá sem fengu dóma fyrir tiltölulega saklaus brot eins og meðlagsskuldir. Er það enn svo? „Nei, við höfum svo lengi þurft að forgangsraða inn í fangelsin. Flestir sem þar eru nú eru dæmdir fyrir mjög alvarleg brot, manndráp, fíkni- efnabrot, kynferðisbrot og stór auðgunarbrot en líka síbrotamenn.“ Yfir 450 á biðlista eftir afplánun í fangelsum  Rafrænt eftirlit með ökklaböndum ber góðan árangur Ýmis úrræði » Fangar geta stundum fengið að afplána allt að níu mánaða óskilorðsbundinn dóm með samfélagsþjónustu. » Fanginn má ekki vera með önnur mál í gangi í réttar- kerfinu og verður að sjálfsögðu að teljast hæfur til að gegna umræddu starfi. » Einnig geta fangar afplánað með búsetu hjá Vernd. Morgunblaðið/Ómar Þrengsli Litla-Hraun er fyrir löngu orðið of lítið fangelsi. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Tollgæslan hefur að undanförnu stöðvað smyglara með mikið af am- fetamíni, kókaíni og e-töflum í fórum sínum. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkni- efnadeildar lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu, segir af- ar erfitt að meta hvort sala og neysla á áður- nefndum fíkni- efnum og svo- nefndu lækna- dópi hafi aukist í landinu. „Hvað varðar ræktun á kannabis er staðan mjög svipuð og verið hef- ur, amfetamín er ráðandi í þessum sterku efnum og það hafa verið gerðir upptækir stórir skammtar af því, mest þó erlendis síðustu mán- uðina,“ segir Karl Steinar. „En svo eru mál enn þá í rannsókn. Á síðasta ári var tekið mikið magn erlendis sem að einhverju leyti var á leiðinni til Íslands. En það er mjög erfitt að tjá sig um það núna vegna þess að það eru svo mörg mál í rannsókn og ekki búið að leiða þau til lykta.“ Hann segir að alltaf sé erfitt að átta sig á því hvort magnið í umferð hafi aukist eða toll- og lögreglu- yfirvöldum hafi einfaldlega tekist að klófesta hlutfallslega meira af efn- unum en áður. Hægt og bítandi hafi samstarfið við erlend yfirvöld aukist síðustu árin, einkum eftir að Íslend- ingar komu sér upp skrifstofu hjá Europol 2007. Frá þeim tíma séu stærstu málin ekki einangruð við Ís- land, innlendu brotahóparnir tengist með einhverjum hætti við erlenda brotahópa. Það kalli á flóknari rann- sóknir og oft lengri tíma. Danska lögreglan lýsti í fyrra mikilli ánægju með vinnu íslenskra lögreglumanna í sambandi við stórt kókaínmál þar í landi. Karl Steinar er minntur á ummæli lögreglu- manna hér fyrir nokkrum árum sem álitu að yfirvöldum tækist að jafnaði að klófesta 5-10% af öllum fíkniefn- um sem seld væru. Hefur þetta hlut- fall breyst? „Það veit í rauninni enginn,“ svar- ar hann. „Þetta eru algerar getgát- ur. Við höfum oft sagt að við teljum að hlutfallið sé hærra hér á Íslandi en hvort það er svo veit ég ekki, ég á erfitt með að beinlínis rökstyðja þetta. En það eru ákveðin atriði sem vinna með okkur. Við höfum alla- vega verið hlutfallslega að leysa mörg stór og umfangsmikil mál sem hafa haft alþjóðlega skírskotun og vakið talsverða athygli.“ Nú sé svo komið að framleiðsla á kannabis sé nær eingöngu innlend, nær engu smyglað. Áður hafi menn oft verið með mikla ræktun á sama stað, mörg hundruð plöntur. En nú sé orðið algengara að þeir stundi framleiðsluna í minna húsnæði, jafn- vel í íbúðarhverfum eða tjöldum og segi efnin aðeins vera til eigin nota. Fíkniefnamál krefjast alþjóð- legs samstarfs  Óljóst hvort umfangið hefur aukist Markaðsrannsóknir » Ein aðferðin til að meta stærð markaðarins og hvort magn ólöglegra fíkniefna auk- ist eða minnki er að kanna verðmyndun. » Ef verð á markaðnum hækk- ar er líklegt að magnið hafi minnkað, ef það lækkar er framboðið meira. Markaðs- lögmálin virka einnig á ólögleg- um mörkuðum. Karl Steinar Valsson –– Meira fyrir lesendur Morgunblaðið gefur út ÍMARK sérblað fimmtudaginn 28. febrúar og er tileinkað íslenska markaðsdeginum sem ÍMARK stendur fyrir, hann verður haldinn hátíðlegur 1. mars n.k. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, föstudaginn 22. febrúar. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is ÍMARK íslenski markaðsdagurinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.