Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 13.02.2013, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013 Nánar á heilsa.is Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum Blandan byggist upp á fljótandi lífrænu járni, sérvöldum jurtum, ávaxta djús og blöndu af c- og b-vítamíni, til að auka járnbúskap líkamans. Floradix er jurtablanda sem hjálpar til við að auka járnmagnið í blóðinu, án aukefna. Ertu slöpp? Getur verið að þig vanti járn? Lokadagar útsölu 60-70% afsláttur Engjateigur 5• Sími 581 2141• www.hjahrafnhildi.is• Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 Vertu vinurokkará facebook www.birkiaska.is Birkilauf- Betulic Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Útsala Allt að 70% afsláttur Mörkinni 6 - sími 588 5518 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-16 www.topphusid.is NÆG BÍLASTÆÐI FLOTTAR KÁPUR, LITLAR STÆRÐIR KR. 14.900 Framleiðendum og útflytjendum á fiski til Spánar, Ítalíu og Portúgal býðst að taka þátt í sameiginlegu markaðsstarfi. Ríkisstjórnin leggur verkefninu til fjármagn gegn jafnháu mótframlagi greinarinnar. Íslandsstofa og Íslenskir saltfiskframleiðendur (ÍSF) eru aðilar að verkefninu en þjónustuaðilar og aðrir hagsmunaaðilar geta einnig gerst aðilar. Kynning á verkefninu verður í Borgartúni 35 í Reykjavík, fimmtudaginn 14. feb. kl. 11. Markmið og framkvæmd verkefnisins sem og þátttaka fyrirtækja verður kynnt á fundinum. Fundurinn verður einnig sendur út á netinu. Nánari upplýsingar um fundinn á www.islandsstofa.is og hjá Guðnýju Káradóttir í síma 511 4000, gudny@islandsstofa.is. Skráning með tölvupósti á islandsstofa@islandsstofa.is. Fulltrúar áhugahóps um ferðafrelsi afhentu forseta Al- þingis, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, yfir 14 þúsund undirskriftir í gær. Með framtakinu vill hópurinn mót- mæla nýju frumvarpi til náttúrulaga og skorað er á þingmenn að samþykkja frumvarpið ekki óbreytt. Áhugahópurinn hefur mótmælt hinum ýmsu ákvæðum í lögunum, m.a. á þeim forsendum að lögin hefti för al- mennings um íslenska náttúru. Enn er hægt að mótmæla fyrihugðum lagabreyt- ingum á vefsíðunni ferdafrelsi.is. Logi Már Einarsson, meðlimur í áhugahópi um ferðafrelsi, segir að hófleg bjartsýni sé innan hópsins þó auðvitað standi vonir til að þingmenn bregðist við þeim mikla fjölda undir- skrifta sem liggi fyrir. Fulltrúar stjórnmálaflokkanna séu meðvitaðir um óánægjuna og nú sé bara að vona það besta. Morgunblaðið/Ómar 14 þúsund mótmæla lagabreytingum „Það er bara svart framundan. Þetta er að verða svo skelfilegt ástand að maður veit ekki alveg í hvorn fótinn maður á að stíga,“ segir Ásgerður J. Flosadóttir um ástandið í samfélag- inu en hún er formaður Fjölskyldu- hjálpar Íslands. Í dag hefjast reglulegar matarút- hlutanir Fjölskylduhjálpar aftur. Opið er í húsnæði samtakanna í Eskihlíð 2-4 frá 14-16.30 í dag. Þá verða einnig þrír hárgreiðslumeist- arar á svæðinu og boðið verður upp á hársnyrtingu án endurgjalds. Á morgun verður Fjölskylduhjálp með matarúthlutun í Reykjanesbæ á milli kl. 16 og 18 í Grófinni 10C. Þess má geta að í Reykjanesbæ er hár- greiðslustofa sem býður upp á hár- snyrtingu án endurgjalds gegn beiðni frá Fjölskylduhjálp. Hjálpa þeim sem verst standa „Við opnum fyrir almenna matar- úthlutun í dag, til þeirra hópa sem verst standa. Reyndar höfum við verið með matarúthlutanir undan- farið upp á hvern einasta virka dag en höfum farið hljóðlega þar sem við höfum aðal- lega verið að að- stoða fólk í gegn- um stofnanir og samtök,“ segir Ásgerður. Frá og með deginum í dag verður Fjölskylduhjálp með matar- úthlutanir annan og fjórða miðviku- dag í mánuði í Reykjavík auk þess að vera með úthlutanir í Reykjanesbæ annan og fjórða fimmtudag í mánuði. Ásgerður segir að ef vel ætti að vera þyrfti að úthluta átta sinnum í mán- uði á hvorum stað. Hinsvegar hafi samtökin ekki bolmagn til frekari út- hlutana að sinni. Hún hvetur al- menning og fyrirtæki til að styrkja starf samtakanna hvort sem það er í formi peninga-, matar- eða fatagjafa, margt smátt geri eitt stórt. heimirs@mbl.is Þyrftu að úthluta mat mun oftar  Fjölskylduhjálp segir ástandið skelfilegt Ásgerður Jóna Flosadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.