Morgunblaðið - 13.02.2013, Page 2
Karlmaður lést í
fyrrinótt er
hann féll af
svölum í port-
inu við JL-
húsið í Vestur-
bæ Reykjavík-
ur. Samkvæmt
upplýsingum frá
lögreglu bendir ekkert til þess að
lát mannsins hafi borið til með
saknæmum hætti. Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu rannsakar til-
drög slyssins. Nokkrir voru yfir-
heyrðir í gær í því skyni að varpa
ljósi á atburðarásina sem leiddi til
slyssins.
Karlmaður lést er
hann féll af svölum
í Vesturbænum
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Jónína Geirlaug Ólafsdóttir fagnar í dag aldarafmæli
sínu en hún fæddist 13. febrúar 1913 á Álftarhóli í
Austur-Landeyjum í Rangárvallasýslu. Hún er mjög
hress og segist ætla að halda upp á daginn heima hjá
syni sínum, Birni Frey Lúðvíkssyni sem sjálfur er
kominn á áttræðisaldur. Jónína býr í eigin íbúð í
Breiðholtinu og segist ekki vera á förum þaðan.
„Heilsan er sem betur fer góð og ég staulast hérna á
milli með stafinn minn. Ég hef því ekkert að gera á
elliheimili og mig langar heldur ekki inn á slíka stofn-
un,“ segir Jónína sem þakkar guði fyrir góða heilsu.
Jónína fór ung að vinna í vistum hjá fólki í Reykja-
vík en sjálf segir hún þá vinnu hafa verið mikla og
erfiða. „Ég kom til Reykjavíkur einhvern tímann í
kringum stríðsárin og vann þá m.a. hjá elskulegu
fólki á Sóleyjargötunni um tíma en vinnan var ansi
mikil og ekki skemmtileg. Síðar hóf ég svo störf hjá
Flugleiðum og vann við það að þrífa flugvélar flug-
félagsins og í raun allt sem þurfti að þrífa og pússa,“
segir Jónína en hún starfaði hjá Flugleiðum í nærri
því þrjá áratugi eða þangað til að hún var komin á
eftirlaunaaldur.
Eins og algengt var í sveitum landsins var bær for-
eldra Jónínu torfbær og var hann ekki innréttaður
fyrr en hún var vaxin úr grasi og seinna meir var
byggt steinhús við bæinn sem stendur enn í dag að
sögn Jónínu. „Hús og bæir voru heldur ekki upphit-
aðir á þessum tíma og það gat verið mjög kalt á vet-
urna,“ segir Jónína sem minnist þess að sérstaklega
hafi verið kalt frostaveturinn mikla 1918. „Faðir
minn þurfti að fara á hverjum morgni og brjóta ís af
brunninum og sópa snjó og klaka af skepnunum en
það var ekki farið út úr húsi nema bara til að huga að
þeim.“
Allir hjálpuðust að eftir Kötlugosið
Sama ár og frostaveturinn mikli gekk yfir landið
var eldgos í Kötlu og segir Jónína að þá hafi fólk haft
lítið milli handanna og lítið til skiptanna. „Við áttum
ekki mikið á þeim tíma en hjálpsemin var mikil hjá
öllum. Þeir sem áttu eitthvað meira milli handanna
deildu því með öðrum,“ segir Jónína sem hefur upp-
lifað tímana tvenna á sínum hundrað árum.
Morgunblaðið/Kristinn
Stórafmæli Jónína Geirlaug Ólafsdóttir býr ein í íbúð sinni í Breiðholtinu en hún fagnar í dag 100 ára afmæli
sínu. Jónína ætlar að halda upp á það hjá syni sínum í Garðabæ um helgina í faðmi fjölskyldunnar.
Rifjar upp Kötlugos á
100 ára afmælinu sínu
Hefur engan áhuga á að fara á elliheimili
Karl á fertugsaldri hefur verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 21.
febrúar í tengslum við rannsókn
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu á umfangsmiklu fíkniefnamáli.
Maðurinn var handtekinn í fyrra-
dag. Fjórir aðrir eru í gæslu-
varðhaldi.
Málið snýst um smygl á veru-
legu magni af því sem talið er
vera sterkt fíkniefni, en það var
sent í nokkrum póstsendingum til
landsins. Rannsókn málsins miðar
vel.
Fimmti maðurinn í
haldi vegna smygls
Vestmannaeyja-
bær hefur
stefnt Síldar-
vinnslunni og
Q44 ehf. vegna
kaupa og sölu á
útgerðar-
félaginu Bergi-
Hugin, með
tveimur skipum
og tilheyrandi
kvóta, frá
Vestmannaeyjum.
Síldarvinnslan keypti Berg-
Hugin af félaginu Q44 í ágúst
2012 en félagið var í eigu Magn-
úsar Kristinssonar og fjölskyldu,
eftir því sem fram kemur í stefn-
unni. Bærinn telur að hann eigi
rétt á að ganga inn í kaupsamning
á grundvelli forkaupsréttar sveit-
arfélags að fiskiskipum í samræmi
við 12. grein laga um stjórn fisk-
veiða.
Í tilkynningu frá bænum er bent
á að hér sé um að ræða 10% af
hagkerfi Vestmannaeyja.
Stefnir Síldarvinnsl-
unni og Q44 ehf.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Neysla örvandi vímuefna á borð við
amfetamín og kókaín hefur minnkað
eftir hrun. Rítalínneysla virðist hafa
komið að einhverju leyti í staðinn, að
sögn Þórarins Tyrfingssonar, yfir-
læknis á Sjúkarhúsinu Vogi. Það sem
af er febrúar hafa tvö smyglmál tengd
innflutningi umtalsverðs magns
sterkra fíkniefna, amfetamíns eða
kókaíns, verið í fréttum.
Í ársriti SÁÁ, 2007-2010, segir m.a.
að stóraukning hafi orðið á neyslu
örvandi fíkniefna á árinu 1995 með til-
komu e-pillunnar og mikillar neyslu
ungs fólks á henni og amfetamíni.
„Segja má að amfetamínfaraldur hafi
geisað á Íslandi undanfarin ár,“ segir
í skýrslunni. Lítillega dró úr vandan-
um á árunum 2001 og 2002 en svo
færðist hann í aukana aftur. Árið 2009
voru stórneytendur amfetamíns sem
greindust á Vogi 622 talsins.
Þórarinn segir að greinilega hafi
minna komið til landsins af ólöglegu
amfetamíni eftir hrun og nýjum til-
fellum fíkla í örvandi efni hafi fækkað.
Á Vogi hafa tilfellin verið talin saman,
þ.e. menn nota ýmist amfetamín eða
rítalín. Í ljós kom að menn færðu sig
meira yfir í rítalín úr amfetamíni án
þess að tilfellum amfetamínfíkla fjölg-
aði. „Það varð greinilega tilfærsla á
neyslunni, hún minnkaði á ólöglegu
amfetamíni og jókst á rítalíni. Það er
nokkuð ljóst,“ sagði Þórarinn.
Fíklar færa sig á milli örvandi efna
eftir því hvert framboðið er hverju
sinni, að sögn Þórarins. „Fólk færir
sig úr amfetamíni í rítalín ef rítalínið
er á boðstólum en ekki amfetamín.
Það færir sig yfir í kókaín ef það á
pening og nóg er af kókaíni. Svona
gengur þetta til og frá,“ sagði Þór-
arinn. Hann sagði að fíklum í örvandi
vímuefni, þ.e. amfetamín og skyld
efni, kókaín og rítalín, hefði heldur
fækkað hér á landi upp á síðkastið
þegar á heildina sé litið. Einnig hefur
dregið úr áfengisneyslu.
Vaxandi umfang á Vogi
Umfangið á Sjúkrahúsinu Vogi,
þ.e. fjöldi þeirra sem fóru í afeitrun og
eins í framhaldsmeðferð, var meira
árið 2012 en árin þar á undan. Fara
verður alveg aftur til ársins 2007 til að
finna svipað umfang, að sögn Þórar-
ins. Þótt þjónustan væri aukin varð til
langur biðlisti eftir meðferð á Vogi á
fyrrihluta ársins 2012 en slíkt hefur
ekki sést frá því fyrir hrun. Langi bið-
listinn hefur verið viðvarandi síðan.
Hvort þetta endurspeglaði meiri
neyslu eða minni þjónustu annars
staðar vissi Þórarinn ekki. Hann
bendir á að sprautufíklar séu að eld-
ast og verða veikari. Eins hafi færst í
vöxt að eldra dagdrykkjufólk óski eft-
ir þjónustu á sjúkrahúsinu.
Teikn um minni fíkn í örvandi efni
Talning á Vogi sýndi að menn færðu sig úr amfetamíni í rítalín án þess að fíklum hafi fjölgað
Biðlisti eftir þjónustu á Vogi lengdist á fyrrihluta 2012 og hefur verið viðvarandi síðan
Morgunblaðið/Heiðar
Vogur Umfangið á sjúkrahúsinu var meira á árinu 2012 en árin þar á undan.
Biðlisti myndaðist á fyrrihluta árs 2012 og hefur verið viðvarandi síðan.
Umferðarstofa vill brýna fyrir
ökumönnum að fara sérstaklega
varlega í dag, öskudag. Gera má
ráð fyrir að börn í alls konar bún-
ingum verði áberandi víðsvegar
um landið. Í tilkynningu frá Um-
ferðarstofu eru ökumenn hvattir
til að halda athygli og einbeitingu
við akstur auk þess að virða há-
markshraða og nota ekki síma
meðan á akstri stendur. Þá eru
foreldrar hvattir til að brýna fyrir
börnunum aðgæslu og sjá til þess
að börnin séu vel sýnileg og noti
endurskinsmerki.
Morgunblaðið/Skapti
Fjör Margar furðuverur verða á ferli í dag
Ökumenn keyri var-
lega á öskudaginn
Fyrri umræðu um
fiskveiðistjórnar-
frumvarp ríkis-
stjórnarinnar
lauk klukkan
rúmlega átta í
gærkvöldi, eftir
að forseti Alþingis
tók stjórnarskrár-
málið af dagskrá
fundarins. Þá
varð ljóst að um-
ræða um það myndi ekki hefjast í
gærkvöldi.
Stjórnarskrárfrumvarpið er hins
vegar á dagskrá þingfundar í dag og
væntanlega einnig á föstudag.
Áformuð hefur verið umræða um ut-
anríkismál á morgun.
Nokkrir þingmenn stjórnarand-
stöðunnar voru enn á mælendaskrá í
gærkvöldi þegar dagskráin breyttist.
Illugi Gunnarsson lauk við að svara
andsvari og mælendaskráin tæmdist.
Málið er þar með komið til annarrar
umræðu og atvinnuveganefndar.
Kvóta-
frumvarp
til nefndar
Stjórnarskrár-
frumvarp á dagskrá
Alþingi Annir eru
framundan á þingi.