Morgunblaðið - 13.02.2013, Síða 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta í 90 ár
LINNETSSTÍG 2 | SÍMI: 565-4854
Mánudag - Föstudag 11:00 - 18:00 | Laugardagur 11:00 - 14:00
Handsmíðað í Hafnarfirði síðan 1993
www.siggaogtimo.is
Á fundi með for-
mönnum stjórn-
málaflokkanna þann 4.
febrúar sl. um framtíð
aðildarviðræðna við
ESB varð Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni
og Bjarna Benedikts-
syni tíðrætt um að það
væri ekkert til þess að
semja um við Evrópu-
sambandið því sambandið byggðist á
sáttmálum sem ekki væri vikið frá.
Fyrirspyrjendur spurðu hvernig þeir
gætu haldið þessu fram og komu með
nokkur dæmi um sérlausnir og und-
anþágur sem vitað er að samið hefur
verið um milli ESB og ýmissa aðild-
arríkja. Þeir Sigmundur og Bjarni
vildu ekki gera mikið úr þeim og
sagði Bjarni m.a. að þau dæmi sem
nefnd voru væru ekki af þeirri stærð-
argráðu sem Ísland þyrfti á að halda
og vörðuðu ekki slíka hagsmuni eins
og sjávarútvegurinn er fyrir okkur
Íslendingum.
Af þessu tilefni fletti ég upp á
skýrslu Evrópunefndar forsætisráðu-
neytisins skipaðrar af Davíð Odds-
syni árið 2004. Skýrslan kom út árið
2007 og ber heitið Tengsl Íslands og
Evrópusambandsins. Hana er að
finna á vef ráðuneytisins en í henni
eru nefnd fjölmörg dæmi um sér-
lausnir og undanþágur sem ESB hef-
ur samið um í aðildarviðræðum.
Hér eru nokkur þeirra:
Þegar Grikkir gengu inn í Evrópu-
sambandið var sérákvæði um bómull-
arframleiðslu sett inn í aðildarsamn-
ing þeirra, en bómullarrækt var mjög
mikilvæg fyrir grískt efnahagslíf.
Þótti ljóst að landbúnaðarstefnan
gæti að óbreyttu stefnt þessum mik-
ilvæga atvinnuvegi í
hættu og tókst Grikkj-
um því að fá sérstöðu
bómullarræktunar við-
urkennda í aðild-
arsamningum sínum.
Hið sama gerðist
þegar Spánverjar og
Portúgalar gengu í
ESB og þessi ákvæði
hafa nú almennt gildi
innan landbún-
aðarstefnunnar. Malta
og Lettland sömdu
einnig um tilteknar sér-
lausnir í sjávarútvegi í aðildarsamn-
ingum sínum, sem fela í sér sérstakt
stjórnunarsvæði fiskveiða á til-
teknum svæðum, en þær lausnir
byggjast á verndunarsjónarmiðum
og fela ekki í sér undanþágu frá regl-
unni um jafnan aðgang.
Eitt þekktasta dæmið um sérlausn
er að finna í aðildarsamningi Dan-
merkur árið 1973, en samkvæmt
henni mega Danir viðhalda löggjöf
sinni um kaup á sumarhúsum í Dan-
mörku. Í þeirri löggjöf felst m.a. að
aðeins þeir sem búsettir hafa verið í
Danmörku í a.m.k. fimm ár mega
kaupa sumarhús í Danmörku, en þó
er hægt að sækja um undanþágu frá
því skilyrði til dómsmálaráðherra
Danmerkur.
Malta samdi um svipaða sérlausn í
aðildarsamningi sínum, en sam-
kvæmt bókun við aðildarsamninginn
má Malta viðhalda löggjöf sinni um
kaup á húseignum á Möltu og tak-
marka heimildir þeirra sem ekki hafa
búið á Möltu í a.m.k. fimm ár til að
eignast fleiri en eina húseign á eyj-
unni. Rökin fyrir þessari bókun eru
m.a. að takmarkaður fjöldi húseigna,
sem og takmarkað landrými fyrir ný-
byggingar, sé til staðar á Möltu og
því sé nauðsynlegt að tryggja að
nægilegt landrými sé til staðar fyrir
búsetuþróun núverandi íbúa.
Í aðildarsamningi Finnlands og
Svíþjóðar 1994 var fundin sérlausn
sem felst í því að samið var um að
Finnum og Svíum yrði heimilt að
veita sérstaka styrki vegna landbún-
aðar á norðurslóðum, þ.e. norðan við
62. breiddargráðu. Sú lausn felur í
sér að þeir mega sjálfir styrkja land-
búnað sinn sem nemur 35% umfram
önnur aðildarlönd. Í aðildarsamningi
Finnlands er einnig ákvæði um að
styrkja megi svæði sem eiga í alvar-
legum erfiðleikum með aðlögun að
hinni sameiginlegu landbún-
aðarstefnu ESB og Finnar hafa nýtt
það ákvæði til að semja við ESB um
sérstuðning fyrir Suður-Finn-
land.Stuðningur við harðbýl svæði
(Less Favoured Area, LFA) varð til
við inngöngu Bretlands og Írlands í
ESB, en þessi ríki höfðu áhyggjur af
hálandalandbúnaði sínum og því var
samið um sérstakan harðbýlisstuðn-
ing til að tryggja að landbúnaðurinn
gæti staðið af sér samkeppni við frjó-
samari svæði Evrópu. Finnland, Sví-
þjóð og Austurríki sömdu einnig sér-
staklega um þannig stuðning í
aðildarsamningi sínum og sem dæmi
má nefna að 85% Finnlands voru skil-
greind sem harðbýlt svæði. Í aðild-
arsamningi Möltu er ákvæði um að
Malta verði skilgreint sem harðbýlt
svæði, auk þess sem í sérstakri yf-
irlýsingu er fjallað um eyjuna Gozo
og m.a. tiltekið að hún verði flokkuð
sérstaklega með tilliti til styrkja
vegna sérstakra aðstæðna á henni.
Mörg fleiri dæmi eru tekin í skýrsl-
unni. Ég legg til að þeir félagar, og
allir áhugasamir, sæki hana á netinu
og lesi sér betur til um málið.
Er um eitthvað að semja? –
Auðvitað eru sérlausnir
Eftir Sigurlaugu
Önnu
Jóhannsdóttur
» Landbúnaðarstefnan
hefði getað stefnt
þessum mikilvæga at-
vinnuvegi í hættu og
tókst Grikkjum því að fá
sérstöðu bómullarrækt-
unar viðurkennda.
Sigurlaug Anna
Jóhannsdóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri
Já Ísland.
Hvers virði er þjóð-
fáni Íslendingum?
Þetta er erfið spurning
því svo virðist sem
fleiri en ein þjóð finnist
undir samheitinu Ís-
lendingar. Það eru
gamlingjar með sitt
rugl um ungmenna-
félögin, sjálfstætt, full-
valda ríki o.s.frv. Það
er yngsta kynslóðin
sem hefur enga tilfinningu fyrir þjóð-
fánanum og vita sumir varla hvernig
hann lítur út enda ekki taubútur sem
þau hengja út við nein tækifæri. Á
milli þessara tveggja hópa eru svo
margar þjóðir sem hver um sig hefur
mismunandi afstöðu til þjóðfánans, en
eiga það þó helst allar sameiginlegt að
eiga ekki fánastengur né fána til að
draga upp á þær. Jafnframt að hafa
þá tilfinningu að best sé að láta þetta
alveg vera því annars sé hætta á að
fólk gleymi að taka fánann niður á
réttum tíma og lögreglan fari þá að
skipta sér af málinu.
Nokkur hópur karla og kvenna hef-
ur þrátt fyrir þetta ástand myndað hóp
til að reyna að koma því til leiðar að
þjóðfáninn verði notaður meira en nú
er gert. Hópurinn samanstendur m.a.
af fulltrúum fjöldasamtaka og má í því
sambandi nefna skátahreyfinguna,
íþróttahreyfinguna og ungmenna-
félögin. Í samstarfi við nokkra þing-
menn var lagt fram á Alþingi fyrr í vet-
ur frumvarp sem miðar að því að auka
notkun þjóðfánans með því að liðka um
þær reglur sem gilt hafa um notkun
hans sem fána og sem merkis á varn-
ing sem framleiddur er á Íslandi.
Þingsályktunartillaga var einnig lögð
fram sem hvatti forsætisráðuneytið,
sem er í forsvari fyrir þjóðfánann, til
samstarfs við frjáls félagasamtök um
það að auka notkun fán-
ans.
Þrátt fyrir miklar
annir þingsins eru vonir
bundnar við að frum-
varpið hljóti afgreiðslu
og samþykki á Alþingi
og það sama gildir um
þingsályktun-
artillöguna. Stuðnings-
menn vonast til þess að
með hækkandi sól verði
æ oftar hægt að sjá
þjóðfána Íslendinga
blakta við hún, ekki aðeins við stofn-
anir ríkis og sveitarfélaga þar sem
skylda er að flagga á opinberum fána-
dögum, heldur líka við heimili fólks,
fyrirtæki og sumarhús um allt land.
Þetta myndi kalla fram samkennd og
þjóðarstolt auk þess sem útlent ferða-
fólk þyrfti ekki lengur að velkjast í
vafa um það hvort Ísland sé sjálfstætt
ríki eða hluti af Danmörku eins og nú
er iðulega ályktað. Þar ræður m.a.
fánaleysið auk skjaldarmerkis dansks
konungs á húsi þjóðþingsins og stytta
af dönskum konungi við skrifstofu
forsætisráðherra.
Þingmenn eru hvattir til að af-
greiða fyrrnefnd þingmál og stuðla
þannig þótt í litlu sé að því að lands-
menn geti stoltir litið upp til síns
þjóðfána oftar en nú er mögulegt.
Þjóð og þjóðfáni
Eftir Sigurð
Jónsson
Sigurður Jónsson
» Í samstarfi við
nokkra þingmenn
var lagt fram á Alþingi
fyrr í vetur frumvarp
sem miðar að því að
auka notkun þjóðfán-
ans.
Höfundur er áhugamaður
um aukna notkun þjóðfánans.