Morgunblaðið - 13.02.2013, Síða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013
✝ Stefán Ragn-arsson fæddist
í Reykjavík hinn 1.
apríl 1953. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 6. febr-
úar 2013. For-
eldrar hans voru
hjónin Ragnar
Stefánsson fulltrúi,
f. 19. febrúar
1918, d. 16. júní
1985, og Sigríður Erna Ást-
þórsdóttir húsmóðir, f. 18.
september 1924, d. 11. nóv-
ember 1979. Stefán var yngst-
1976, í sambúð með Lovísu El-
ísabetu Sigrúnardóttur tónlist-
arkonu, f. 10. september 1982.
2) Íris, kerfisstjóri, f. 25. jan-
úar 1977. Dóttir hennar er
Sara Helena Bjarnadóttir Blön-
dal nemi, f. 30. september
1996. Börn Stefáns og Elínar
eru: 1) Fríða kennari, f. 22.
október 1984, 2) Ragnar Bjarni
bankastarfsmaður, f. 24. des-
ember 1992.
Stefán lauk prófi frá
Verslunarskólanum og síðar
Stýrimannaskólanum á Dalvík.
Stefán var stýrimaður á ýms-
um skipum, millilandaskipum,
togurum og dagróðrabátum.
Útför Stefáns verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag, 13.
febrúar 2013, kl. 13.
ur fjögurra systk-
ina. Þau eru:
Ásdís, f. 1945, Ást-
þór, f. 1946, og
Anna Eyvör, f.
1948.
Stefán kvæntist
Esther Helgu Guð-
mundsdóttur ráð-
gjafa, f. 23. desem-
ber 1954, þau
skildu. Síðar var
Stefán í sambúð
með Elínu Bjarnadóttur kenn-
ara, f. 8. ágúst 1958. Börn Stef-
áns og Estherar eru: 1) Agnes
Erna, söngkona, f. 11. janúar
Það er undarlegt skrifa um
Stebba litla bróður minn. Það er
líka skrítið að kalla hann ennþá
litla bróður, því hann var þó orð-
inn 59 ára þegar hann lést. Við
vorum ekki mikið saman fullorðin
bæði af landfræðilegum orsökum
og annars svo mínar bestu minn-
ingar um hann tengjast bernsku
okkar og þær vil ég varðveita.
Stebbi var fallegt barn, dökkur
á brún og brá, með mosagræn
augu og bros sem bræddi hjörtu
allra sem því var beint að. Stebbi
var ótrúlega heillandi og hafði
einstakt lag á því að fá það sem
hann ætlaði sér án hávaða og
frekju, en aðallega með mælsk-
unni.
Hann vafði mömmu oft um
fingur sér, ekki síst vegna þess að
hann byrjaði snemma að yrkja
yndislegar vísur til hennar. Þær
voru fullar af ást og aðdáun og
margar furðuvel ortar miðað við
aldur hans.
Hann orti aldrei til mín en ég
minnist þess oft hlæjandi í hjarta
mínu, þegar hann var að gabba
mig til að gera eitthvað fyrir sig;
lána honum fyrir bíómiða eða ein-
hverju bráðnauðsynlegu, að tala
máli hans við mömmu þegar hann
þurfti leyfi fyrir einhverju, að
skutla honum eitthvað þegar
mikið lá við eða eitthvert annað
smáræði. Hann gat fært fram
endalaus rök fyrir greiðanum og
oftar en ekki enduðu þessi sam-
skipti okkar á þann veg að hann
var eiginlega að gera mér greiða
með því að lofa mér að gera hon-
um greiða – eða þannig. Hann var
líka óhemju stríðinn en alltaf var
stríðnin græskulaus og meiddi
engan og þannig var hann, ljúfur
og vinsamlegur allt til æviloka.
Síðustu ævidaga sína dvaldi
hann á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi og ef einhver staður
nálgast himnaríki þá er þetta
hann. Virðing og væntumþykja
einkennir allt það góða starf sem
þar fer fram og ég þakka starfs-
fólkinu þar af öllu hjarta hversu
fallega honum var sinnt síðustu
vikurnar í lífinu.
Stebbi andaðist á miðvikudegi
og er jarðaður á miðvikudegi og
því finnst mér við hæfi að fylgja
honum úr hlaði með þessu ljóði
eftir Stein Steinarr:
Miðvikudagur. – Og lífið gengur sinn
gang,
eins og guð hefir sjálfur í öndverðu
hugsað sér það.
Manni finnst þetta dálítið skrítið, en
samt er það satt,
því svona hefir það verið og þannig er
það.
Þér gangið hér um með þann sama
svip og í gær,
þér sigrandi fullhugar dagsins, sem
krónuna stýfið.
Í morgun var haldið uppboð á eignum
manns, sem átti ekki nóg fyrir skuld-
um. Þannig er lífið.
Og mennirnir græða og mennirnir tapa
á víxl,
og mönnum er lánað, þó enginn skuld
sína borgi.
Um malbikuð strætin berst múgsins
háværa ös,
og Morgunblaðið fæst keypt niðr’ á
Lækjartorgi.
Miðvikudagur. – Og lífið gengur sinn
gang,
og gangur þess verður víst hvorki auk-
inn né tafinn.
Dagbjartur múrari eignaðist dreng í
gær,
í dag verður herra Petersen kaup-
maður grafinn.
(Steinn Steinarr.)
Hvíldu í friði, elsku Stebbi.
Anna Eyvör Ragn-
arsdóttir, Úgga.
Í dag kveð ég hann Stefán
minn, eftir mikil veikindi þar sem
hann sýndi ótrúlegan baráttu-
vilja og þrautseigju.
Við Stebbi vorum í sambúð
lengi og eignuðumst tvö börn
saman, Fríðu og Ragnar Bjarna.
Fyrir átti hann Írisi og Agnesi og
á hann eitt barnabarn hana Söru
Helenu.
Þó svo að sambúð okkar Stef-
áns hafi verið lokið þá var mikið
samband á milli okkar og finnst
mér ákaflega tómlegt núna. Það
leið ekki sá dagur öðruvísi en við
töluðumst við, hvort heldur í síma
eða hittumst.
Stefán veiktist af krabbameini
fyrir sex árum. Í maí síðastliðn-
um vorum við kölluð inn til hinstu
kveðju. En Stefán var ekki á því
að kveðja þá og var kraftaverki
líkast að fylgjast með hvernig
honum tókst að rísa upp úr
dauðastríðinu. Þeir níu mánuðir
sem hann fékk til viðbótar, voru
honum dýrmætir þó svo hann
hafi verið inn og út af spítala, því
eins og hann sagði sjálfur frá þá
gafst honum tími til að styrkja og
endurnýja sambandið við sína
nánustu.
Stefán var sjómaður og var oft
langdvölum frá heimilinu. Síðari
ár okkar í Sandgerði stundaði
hann helst dagróðra. Það var
aldrei lognmolla í kringum
Stebba, hann sótti í spennu,
leiddist hversdagslegt amstur og
sú venjubundna rútína sem fylgdi
fjölskyldulífi.
Hann átti góða vini og oft var
glatt á hjalla. Þó að gleðistund-
irnar hafi verið margar var lífið
ekki áfallalaust. Óregla og eirð-
arleysi spillti fyrir honum og
markaði. Stebbi var ekki gagn-
rýninn svona yfirleitt, en átti erf-
itt með að þola stífar reglur og
lög, enn síður að fara eftir þeim
og gluggapóst þoldi hann alls
ekki. Ekki einasta að honum
fyndist hönnunin ljót og pappírs-
eyðslan fráleit þá leiddist honum
að borga reikningana sem honum
fundust yfirleitt of háir.
Við slitum samvistum ári áður
en Stebbi veiktist, en héldumst
náin, vorum góðir vinir og skipt-
um hvort annað máli.
Það sem einkenndi Stebba var
hversu ljúfur hann gat verið og
skemmtilegur, dýr, börn og
menn hændust að honum. Hann
var jafnréttissinnaður, fordóma-
laus og var umhugað um náttúr-
una. Stebbi tók ætið málstað lít-
ilmagnans og þoldi ekki óréttlæti.
Stebbi fór létt með nám og leik,
mikill íslenskumaður, orti stund-
um sjálfur og var afskaplega list-
rænn.
Stefán hætti sjómennsku eftir
að hann veiktist og dvaldi þá á
Kiðafelli í Kjós þar sem hann
hafði verið í sveit ungur drengur.
Þar aðstoðaði hann við húshald
og ferðamennsku og leið vel enda
sveitin falleg og fólkið gott og
reyndust Kiðafellssystkinin hon-
um vel.
Síðastliðna þrjá mánuði naut
Stefán kærleiksríkrar umönnun-
ar starfsfólksins á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi og fyr-
ir það var Stebbi innilega þakk-
látur, hann vildi hvergi annars
staðar vera eins og staðan var.
Nú verða ferðirnar upp á líknar-
deild ekki fleiri og sakna ég þess,
þar var notalegt að koma.
Ég kveð Stefán minn, barns-
föður og besta vin með söknuði.
Elín.
Stefán Ragnarsson
✝ Sigurður Þórð-arson fæddist í
Reykjavík 26. júní
1927. Hann lést á
elliheimilinu Grund
hinn 28. janúar
2013.
Foreldrar hans
voru Kristín Þor-
bergsdóttir, f. 7.4.
1900, d. 25.09. 1995,
og Þórður Jónsson,
f. 2.8. 1896, d. 15.7.
1986. Systir hans er Helga Þórð-
ardóttir, f. 30.3. 1935.
Sigurður kvæntist hinn 11.
september 1993 Þóru Gísladótt-
ur, f. 19. júlí 1932.
Sigurður starfaði sem verk-
stjóri hjá Reykjavíkurborg alla
sína starfsævi eða þar til hann
hætti störfum 1996.
Mest var hann á
stórum vinnuvélum
og mikið í sand-
gryfjunum á Korp-
úlfsstöðum og í
Leirvogstungu. Sig-
urður ólst upp og
bjó frá þriggja ára
aldri á Fossagötu 14
í Reykjavík þar til
hann fór á Grund
síðastliðið sumar.
Foreldrar hans byggðu þar um
1930 og annaðist hann foreldra
sína af mikilli natni eftir að þau
komust á efri ár.
Útför Sigurðar fer fram frá
Kópavogskirkju miðvikudaginn
13. febrúar 2013 kl. 15. Jarðsett
verður í Kópavogskirkjugarði.
Í dag kveðum við elskulegan
frænda minn, hann Sigga á
Fossagötunni. Ég hef notið
þeirra forréttinda að hafa þekkt
hann alla mína ævi enda fæddist
ég í borðstofunni á Fossagötunni
fyrir 55 árum. Frá því ég var
smápatti sótti ég mikið í að vera
þar hjá afa og ömmu og Sigga um
helgar og í fríum. Siggi var alltaf
til staðar með ótrúlega þolin-
mæði og tilbúinn að gera ýmis-
legt skemmtilegt með mér, gutt-
anum, sem alltaf vildi hafa nóg
fyrir stafni. Snemma byrjaði
hann að kenna mér á bíl. Um 8
ára aldurinn var ég farinn að
stýra bíl hjá honum og svo að
keyra sjálfur um 10 ára aldurinn,
fyrsta Broncoinn hans. Vinsælt
var að keyra kringum flugvöllinn
í Vatnsmýrinni og alltaf var Siggi
frændi tilbúinn að koma með, láta
það eftir frænda sínum og ala upp
í honum bíladelluna. Á þessum
árum vann Siggi í sandgryfjun-
um í Leirvogstungu í Mosfells-
sveit. Oft þurfti Siggi að vinna á
laugardögum þar og sótti ég mik-
ið í að fá að koma með þó að ég
þyrfti að vakna eldsnemma. Því
fyrir bíladellustrák voru gryfj-
urnar ævintýraland. Þegar Siggi
fór að moka á vörubílana fékk ég
að hafa Broncoinn í torfærur í
gryfjunum, bæði í snjó og sandi.
Og alltaf treysti Siggi mér fyrir
bílnum sínum. Hann sagði bara
við mig, passaðu bara að festa
hann ekki. Einhverju sinni kom
einn vörubílstjórinn til Sigga og
sagði honum að bíllinn hans væri
á ferð í gryfjunum en enginn væri
við stýrið. Ég var nú ekki hærri í
loftinu en það þá. Hann fór í
mörg ferðalög um Ísland á jepp-
unum sínum. Þá voru líka með
foreldrar mínir og bræður.
Eitt sinn fórum við Fjallabaks-
leið nyrðri og keyrðum eftir ár-
farvegi lengi vel uns ég gat ekki
orða bundist og spurði. Hvert
rennur vegurinn nú? Mikið var
hlegið að þessu og minntist Siggi
oft á þetta seinna. Nánast alla
sína ævi bjó Siggi á Fossagöt-
unni. Hann bjó þar með ömmu og
afa og annaðist þau heima af mik-
illi alúð eins lengi og hægt var.
Afi bjó heima við sæmilega heilsu
nánast alveg fram í andlátið, en
hann dó 1986. Amma var léleg til
heilsunnar seinni árin og þurfti
umönnum heima þegar Siggi var
í vinnunni.
Þar kom Þóra inn í líf hans, en
hún annaðist ömmu í veikindum
hennar heima. Þau giftu sig árið
1993 og voru þau mjög samstiga
og hamingjusöm saman alla tíð.
Þeirra áhugamál var garðræktin
og viðhaldið á húsinu. Þau rækt-
uðu þau kartöflur og grænmeti í
stórum garði við húsið. Þau höfðu
mikið yndi af þessu og aldrei sást
illgresi þar á bæ á meðan heilsan
leyfði. Seinustu 3 árin sáum við
Sigrún um garðinn en árangur-
inn varð aldrei sá sami. En Siggi
hafði alltaf jafn gaman af að
koma út í garð til okkar og
spjalla. Seinasta árið hrakaði
heilsu Sigga frænda hratt og svo
fór að Þóra gat ekki annast hann
heima. Það reyndist henni afar
erfitt. Hann komst að á Grund sl.
sumar og var þar fram til dán-
ardags.
Þóra heimsótti hann þar dag-
lega og gerði honum lífið léttara á
alla lund eins og hægt var. Elsku
Þóra, þrátt fyrir þinn mikla missi
veit ég að þú stendur áfram sterk
með góðar minningar um góðan
dreng. Þakka þér fyrir allt sem
þú gerðir fyrir mig á lífsleiðinni.
Kristján Þór Guðmundsson.
Siggi frændi á Fossagötunni
var fallegur að utan sem innan,
gull af manni sem vildi allt fyrir
alla gera og gerði.
Þegar ég kynnist Sigga, var ég
aðeins 15 ára gömul, nýbúin að
kynnast Kristjáni mínum. Mér
var tekið með mikilli hlýju af
þeim Þórði, Kristínu (ömmu og
afa ) og Sigga frænda á Fossagöt-
unni eins og hann var kallaður,
þegar Kristján fór fyrst með mig
í heimsókn. Við komum mikið til
þeirra.
Þegar við keyptum nýjan bíl
var þetta fyrsti staðurinn sem
farið var á til að sýna bílinn og
leyfa Sigga frænda að taka í,
enda var hann mikill áhugmaður
um bíla og fannst ekkert eins
gaman að taka í bílana sem bræð-
urnir komu með á hlaðið. Siggi
var einn lengi vel og bjó alla tíð
með foreldrum sínum og hugsaði
um vel um þau ásamt henni
Helgu systur sinni, tengdamóður
minni
Þórður faðir hans dó 1986
Kristín var áfram heima og með
heimilishjálp var það mögulegt í
nokkur ár. Hún dvaldist síðan á
Hvítabandinu og lést þar árið
1995. Siggi kynnist síðan ástinni
sinni henni Þóru sem kom og var
hjá Kristínu í veikindum hennar
heima og það var mikill lukka fyr-
ir hann og ekki síður hana að þau
skyldu ná saman á efri árum. Þau
voru innilega ástfangin, samhent
og glöð og gaman að koma til
þeirra. Við vorum hálfgerðir
heimalningar síðustu 3 árin þeg-
ar heilsunni hjá þeim fór að
hraka, sáum um garðinn og það
sem þurfti til að létta þeim verkin
og lundina.
Þetta voru skemmtilegar
stundir sem við áttum. Siggi kom
út að fylgjast með slætti og upp-
töku á grænmeti og var nú stund-
um hvumsa yfir hvað ég væri nú
eiginlega að rækta þarna í garð-
inum hjá honum. Er þetta nú
ætt? spurði hann oft. Við sátum
síðan með þeim og spjölluðum um
alla heima og geima og gamla
daga.
Síðasta ár var erfitt fyrir þau
bæði. Siggi var kominn með Alz-
heimer og gat ekki verið lengur
heima. Þóra átti mjög erfitt með
að láta í minni pokann vegna
þess. Hún, þessi dugnaðarforkur,
fór nánast á hverjum degi til hans
og var frændi hennar, hann Jo-
seph, sem keyrði hana nánast
alltaf til hans er hann var á
Hrafnistu, Landakoti og núna
síðast á Grund þar sem hann lést.
Hún gat þó ekki verið hjá honum
síðust stundirnar vegna sinna
veikinda.
Það var henni erfið ákvörðun
að selja Fossagötuna síðastliðið
sumar en hárrétt. Við hjálpuðum
henni við það ferli. Hún keypti
síðan fallega íbúð á Grandavegi
11. Allt gerðist þetta mjög hratt.
Íbúðin var keypt 25. okt. og við
máluðum og gerðum það sem
þurfti og hún var flutt inn 28. okt.
og Fossagatan afhent 1. nóv. Það
var mikill söknuður að selja ætt-
arsetrið sem búið var að vera í
fjölskyldunni síðan 1930. En nýtt
upphaf og nýtt líf, það er það sem
lífið snýst um.
Elsku Siggi, takk fyrir sam-
fylgdina öll þessi yndislegu ár.
Kæra Þóra, þú sterka kona,
missir þinn er mikill en lífið held-
ur áfram og við verðum hér fyrir
þig og elskum þig.
Hverfur margt
huganum förlast sýn
þó er bjart
þegar ég minnist þín.
Allt er geymt
allt er á vísum stað
engu gleymt,
ekkert er fullþakkað.
(Oddný Kristjánsdóttir.)
Kær kveðja.
Sigrún Birna
Dagbjartsdóttir.
Sigurður
Þórðarson
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
PAUL SVEINBJÖRN JOHNSON,
lögfræðingur og fyrrum aðalræðismaður
Íslands í Chicago,
Grenimel 16,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund
föstudaginn 8. febrúar.
Útförin fer fram í Neskirkju föstudaginn 15. febrúar kl. 15.00.
Áslaug Ragnhildur Holm Johnson,
Sonja Ragnhildur Johnson, Marc C. Johnson,
Pétur Snæbjörn Johnson,
Birgir Þór Johnson, Santok Johnson,
Kathleen Johnson Menlove, Lynn Menlove,
Knut Sveinbjörn Johnson
og barnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR HALLGRÍMSSON
lyfjafræðingur,
lést mánudaginn 11. febrúar á líknardeild
Landspítalans.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
mánudaginn 18. febrúar kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á
Hjálparstarf kirkjunnar.
Anna Guðrún Hugadóttir,
Vera Guðmundsdóttir, Þórarinn Blöndal,
Daði Guðmundsson, Dianne Y. Guðmundsson,
Hugi Guðmundsson, Hanna Loftsdóttir,
Alma Guðmundsdóttir,
Eva Magnúsdóttir,
Tinna Magnúsdóttir,
Hildur Blöndal,
Unnar Blöndal,
Jóhanna Hugadóttir,
Una Hugadóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir og afi,
BJARNI BJARNASON,
Héðinshöfða,
Tjörnesi,
lést laugardaginn 9. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Húsavíkurkirkju
laugardaginn 16. febrúar kl. 11.00.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Orgelsjóð Húsavíkurkirkju.
Sigrún Ingvarsdóttir,
Erla Bjarnadóttir, Kjartan Traustason,
Kristín og Arney Kjartansdætur,
Katý Bjarnadóttir,
Guðmundur Bjarni Harðarson.