Morgunblaðið - 13.02.2013, Síða 31

Morgunblaðið - 13.02.2013, Síða 31
Það kom fljótlega í ljós að hún var vel fallin til stjórnunarstarfa og nokkrum árum síðar tók hún við stöðu deildarstjóra lyflækn- ingadeildar. Hún var jákvæð, dugleg, ákveðin, úrræðagóð og ósérhlífin með vakandi auga fyrir þörfum sjúklinganna. Birna var mikill leiðtogi sem hélt vel utan um samstarfsfólkið sitt, meðal annars með því að efna til göngu- og sumarferða. Leiðtoginn kom einkar vel í ljós þegar hún leiddi hópinn allt fram í lokun spítalans og hélt honum áfram saman eftir það. Hún var sannur hjúkrunar- fræðingur sem hafði mikinn fag- legan metnað fyrir hönd deildar sinnar og var það henni kapps- mál að sjúklingar fengju þar sem allra besta þjónustu. Stjórnend- ur og samstarfsfólk allt bar mikla virðingu fyrir Birnu og hennar störfum. Fjölskyldan var hennar stolt og missir þeirra er mikill. Við vottum þeim okkar innilegustu samúð og biðjum góðan Guð að styrkja þau um ókomna tíma. Blessuð sé minning Birnu sem vakir með okkur öllum. Fv. hjúkrunarstjórnendur St. Jósefsspítala í Hafnarfirði, Dórothea Sigurjónsdóttir, Gunnhildur Sigurðardóttir, Kristín Ólafsdóttir, Ragn- hildur Jóhannsdóttir og Sig- ríður Kristinsdóttir. „Góðan daginn, á ekki að ganga í dag? Það spáir góðu eftir vinnu, við drífum okkur bara.“ Þetta voru oft fyrstu orð hennar Birnu að morgni fimmtudags, sem voru fastir göngudagar í hópi góðra vinnufélaga við St. Jósefsspítalann í Hafnarfirði. Deildarstjórinn okkar, Birna Steingrímsdóttir, var drífandi, fjölhæf og sterkur leiðtogi sem reyndist okkur samstarfsfólki sínu góð fyrirmynd. Þessir eig- inleikar ásamt mörgu fleiru gerðu Birnu okkar að þeirri frá- bæru manneskju sem hún var. Hún var glaðsinna og jákvæð, hugsaði hratt og hreyfði sig hratt, stálminnug og fljót að til- einka sér það sem hún lærði. Væri hún í vafa um einhvern sjúkdóm eða meðferð kynnti hún sér í snatri möguleikana í stöð- unni og stóð síðan klár á öllu saman. Hún var frábær fag- manneskja, hvort sem var í hjúkrun eða stjórnun. Hún for- gangsraðaði í daglega lífinu, setti aðra í forgang og virtist alltaf hafa tíma til hvers sem var. Hún talaði almennt ekki mikið um sína hagi eða miklaðist af sínu, en var góður hlustandi sem sinnti þörfum og óskum annarra, hún var alltaf til taks. Vellíðan okkar samstarfsfólksins í vinnuni á St. Jósefsspítala talar sínu máli, en þar átti Birna sinn stóra þátt í að skapa heild, sem er bundin svo sterkum „systra“böndum sem frekast má vera. Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Jóhannes úr Kötlum) Við kveðjum hana Birnu okkar með hjartans þökk, virðingu og söknuði og munum halda „göng- unni“ áfram í hennar anda. Við vottum ykkur, kæra fjölskylda, okkar dýpstu samúð. Með þökk. Fyrir hönd vinkvenna á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði, Anna María Guðmunds- dóttir og Nanna Árnadóttir. Lífið er alltaf að minna okkur á hve hverfult það er og blákalt eins og við nú upplifun við fráfall elsku Birnu Steingrímsdóttur (Bíu). Þetta minnir okkur á að njóta dagsins í dag og hlúa að þeim sem næst okkur standa, því enginn veit hvernig morgundag- urinn verður. Ég veit að Bía mín lifði eftir þessu og sárt er til þess að hugsa að dagarnir hennar í þessu lífi verða ekki fleiri. Bía var mín besta æskuvin- kona. Ég kynntist henni fljótlega eftir að hún flutti til Húsavíkur með fjölskyldu sinni þegar stjúp- faðir hennar sr. Björn H. Jóns- son var ráðinn prestur þar. Við fundum mjög fljótt að við áttum samleið og vorum saman flestar stundir. Ég dvaldi á prestssetrinu á Hringbrautinni til kl. 22 flest kvöld og var yf- irleitt í mat, nokkuð sem var móður minni til ama því hún vildi að ég mætti í kvöldmat heim. Við lærðum saman, spiluðum rommí, gerðum handavinnu, hlógum og töluðum heil ósköp saman og stundum stálumst við til að spila á plötuspilarann þegar enginn var heima. Þetta var stórkostleg- ur gripur sem ekki var til á hverju heimili. Tónlistarsmekk- urinn á þeim tíma náði yfir Sim- on og Garfunkel og Vínarvalsa. Ekki sungum við mikið því Bía mín var ekki mikill söngfugl en dansað gátum við. Strax komu góðir kostir Bíu í ljós. Alltaf var fínt í herberginu hennar. Hún var mjög skipulögð og öguð í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, hún setti niður ákveðinn tíma til að læra og svo var frí. Mjög oft settist hún niður með útsaum, krosssaum, sem var hennar ástríða á þessum árum og eru til ófá falleg verk eftir hana. Til að mynda saumaði hún sem unglingur sýningareintök fyrir hannyrðaverslun í Reykjavík og fékk í staðinn frágang á sínum útsaumsverkum. Það var ekki fyrr enn á full- orðinsárum að ég gerði mér grein fyrir því hve mikil og góð áhrif hún hafði á mig og minn þroska. Ef við vorum ekki sam- mála sem kom afar sjaldan fyrir gátum við alltaf leyst úr því með samtölum. Þessa eiginleika veit ég að hún ræktaði áfram og það lof sem hún fær frá samstarfs- fólki sem hafði hana sem yfir- mann segir allt sem segja þarf. Bía kunni líka að setja sér mark- mið og hætti yfirleitt ekki fyrr enn hún hafði náð þeim. Það gat verið að klára útsaum eða reikna algebrudæmið þar til það varð rétt. Aldrei að gefast upp við hálfklárað verk. Því kemur þessi áhugi hennar á fjallaklifri mér ekki á óvart. Ákafinn við að ná tindinum, sigrast á fjallinu. Leiðir okkar lágu líka saman í Hjúkrunarskóla Íslands og áfram lærðum við saman og brölluðum ýmislegt. Margar ljúf- ar minningar frá þessum tíma koma upp í hugann, sveitaferð á Oddgeirshóla, bíóferðir, böll, matarboð og svona mætti lengi telja. Eftir að við urðum fullorðnar og fjölskyldurnar stækkuðu varð minna um samskipti en við hitt- umst þó alltaf einu sinni á ári með „hjúkkunum í L-holli“ og áttum saman eina helgi á sumri og var þá alltaf eins og við hefð- um hist í gær. Það voru forrétt- indi að fá að eiga Bíu sem bestu vinkonu, hennar er sárt saknað. Við Ölli vottum eiginmanni, dætrum og öðrum ástvinum þeirra okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Bíu. Anna Ólafsdóttir. Kveðja frá skóla- systkinum á Húsavík. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherj- ardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar. Fyrir hönd árgangs 1954, Kristín og Dögg. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013 Halldór Magnússon hét afi minn og langafi barna minna. Hann er nú farinn og ég er í sorg. Hann var 82 ára og kvaddi þennan heim um nótt. Hann var ákveðinn, hlýlegur og fámáll maður. Afi var samt ekki að deyja í fyrsta sinn tæknilega séð. Fyrir sjö árum dó hann í tvær mínútur í kjölfar þess að hafa veikst og lagst í dá. Þar sem ég sat við rúmið og hélt í hönd hans var ég með djúpa eftirsjá í hjarta. Þennan mann, sem var afi minn, þekkti ég ekki. Ég hafði sjaldan heimsótt hann og nú var hann að kveðja þennan heim. En afi fékk annað tækifæri til lífsins. Þessi at- burður hafði mikil áhrif á mig og ég ákvað að láta þetta tæki- færi ekki renna mér úr greip- um. Nú skyldi ég tala meira frá hjartanu og bíða ekki fram á síðasta dag með að tjá fólki væntumþykju mína; sama þótt mér fyndist ég ekki þekkja hann, þætti þagnirnar stundum óþægilegar eða fengi neftóbak- skorn límd við andlitið þegar ég kyssti hann á kinn, skyldi ég kynnast honum. Mér til undr- unar tók það ekki nema nokkr- ar heimsóknir eftir þessa ákvörðun að mér fannst ég vera í návist vinar og kærleiksríks bandamanns. Svona man ég afa: hann sat alltaf á rúminu sínu og hlustaði á útvarpið í botni og leit upp þegar ég kom inn. „Nei ertu komin“ heyrði ég alltaf sagt og brosið tók á móti mér. Þetta andartak, þetta blik sem mætti mér alltaf fyllir hjarta mitt núna ómældri gleði í sorg- inni. Þagnirnar sem ég hafði átt svo erfitt með urðu mér ynd- Halldór S. Magnússon ✝ Halldór S.Magnússon fæddist í Reykjavík 27. maí 1930. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Sól- túni við Sóltún í Reykjavík 13. jan- úar 2013. Útför hans fór fram frá Fella- og Hóla- kirkju 25. janúar 2013. islegar stundir. Við hlógum líka og skemmtum okkur saman. Glettinn fór hann með vísu sem kórvinur hans orti. Fyrsti bassi gerist gleiður, glymur hátt í söl- unum. Hátt nú syngur herða- breiður, Halldór sterki úr Dölunum. Þegar ég var í námi fórum við fimm samnemendur á dval- arheimilið til afa og vorum með tónleika í matsalnum. Við sung- um og spiluðum allar á gítar og fólkið tók undir í söng. Einnig sungum við systurnar fyrir hann í 80 ára afmælinu hans. Hann komst ekki í brúðkaup okkar hjóna 2010 en ég fór beint til hans eftir veisluna því ég vildi að hann væri hluti af deginum. Vænst þykir mér um þær stundir er við sátum saman á rúminu hans og hann hélt í hönd mína. Ég kveð hann með söknuði en ég er líka svo glöð að hafa kynnst honum betur. Ég bý ætíð að því og finnst ég svo rík fyrir að hafa átt hann að. Afi, mér þótti svo vænt um þig og mér finnst erfitt að kveðja þig. Velvilji þinn og hlýja til mín voru orðin að ein- hverju sem ég gat reitt mig á. Þú varðst að styrkum kletti í lífi mínu og nú þarf ég að laga mig að þessum missi. En betra er að hafa misst en aldrei átt. Ég myndi gera þetta allt upp á nýtt ef ég gæti. Ég er svo þakk- lát að hafa getað tjáð þér oft hvað ég var glöð að þú skyldir komast aftur til lífs því ég fékk tækifæri til að kynnast þér upp á nýtt og við vorum aldrei eins náin áður. Guð gefur okkur tækifæri og mér finnst forrétt- indi að hafa kynnst kærleika þínum. Hvíl þú í friði, elsku afi minn. Ég hef ekki hætt að biðja fyrir þér og ég bið þess að þú biðjir áfram fyrir mér. Ég hafði alltaf svo mikla trú á bænum þínum. Þín. Sunna. Sólin til fjalla fljótt fer að sjóndeildarhring, tekur að nálgast nótt, neyðin er allt um kring. Dimmt er í heimi hér, hættur er vegurinn; ljósið þitt lýsi mér, lifandi Jesús minn. (Hallgrímur Pétursson.) Elsku afi minn var Halldór sterki úr Dölunum. Á sama tíma og mér þykir leitt hversu hratt dauðann bar að er ég þakklát fyrir að hafa getað eytt síðustu áramótunum mínum með honum. Ég mun alltaf muna eftir hátíðleikanum er við sátum saman í hlýrri þögn, deildum glettnum brosum, með- an áramótamessan ómaði í kyrrsælum matsal Sóltúns. Starfsfólk Sóltúns á innilegar þakkir skildar fyrir að hlúa svona vel að afa á síðustu metr- unum. Það var ómetanlegt fyrir okkur ástvini hans að finna hversu vel honum leið hjá ykk- ur. Á sama tíma og mig langar að þakka ykkur, langar mig að minnast með fjölskyldunni þeirra stunda sem ég hef fengið að njóta með afa og reyna að lýsa hvað þau veittu mér. Ég er þakklát fyrir þá hlýju og mildi sem afi sýndi ávallt, í orðum og verkum. Alltaf þegar ég kom til hans spratt fram brosið og birtan af andlitinu hans, sem síðan fylgdi knús sem sýndi hvað honum þótti heimsóknin kærkomin. Síðan tók við stutt spjall. Hann var ekki margorður, eins og ég reyndi að laða fram sögur af harmonikkuárunum eða frekari lýsingar af pólitískri afstöðu hans sem birtist m.a. í því að hann neitaði að klæðast rauðu. En sama hvert umræðuefnið var, í orði eða þögn breiddi mýktin yfir allt, eins og þögult mal er hann horfði hlýlega til mín með glettnu augnaráði, brosandi út í annað. Ég er viss um að hann brosir eins núna kominn í faðm Nönnu sinnar og englanna. Hann var mér fyr- irmynd, bæði hvernig hann sýndi þögulan styrkleika í sín- um erfiðleikum og einnig í þeirri varfærnu hlýju sem hann sýndi. Þessir kostir sem ég upplifði í honum munu vera mér veganesti er ég tekst á við framtíðarverkefni sem lífið mun hafa í för með sér. Hann hafði einstakt lag á að blása glettni og hlýju inn í ólík- legar aðstæður, bara með því að sitja og brosa á vissan hátt, eða hvernig hann hélt manni í faðminum. Hlýja hans og kær- leikur virkaði eins og lykill sem opnaði hjartalása, lása sem voru sem betur fer ekki of ryðgaðir til að taka mót geislum gæskunnar þar sem þeir birt- ust, streymandi um varfærnis- lega líkt og gárandi geislabaug- ar. Ég veit að afi myndi lýsa þessu orðalaust mun betur. En með þessum fáu orðum kveð ég Halldór afa og bið að hann sé ævinlega Guðs blessaður og sæll. María Guðrún Gunnlaugsdóttir. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför bróður okkar og frænda, ÓLAFS JÓNS MAGNÚSSONAR frá Bæ í Króksfirði. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Landspítalans fyrir góða umönnun síðustu ár. Gunnlaugur Magnússon, Arndís K. Magnúsdóttir, systkinabörn og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SNJÓLAUG SVEINSDÓTTIR, lést í Holtsbúð, Vífilsstöðum, miðvikudaginn 6. febrúar. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 15. febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma (FAAS). Jónas Brjánsson, Helga Hrönn Jónasdóttir, Grímur T. Tómasson, Brjánn Jónasson, Andrea Rúna Þorláksdóttir, Haukur Jónasson og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við fráfall og jarðarför STEFÁNS PÉTURS EGGERTSSONAR verkfræðings. Kristín Gunnarsdóttir, Hulda Stefánsdóttir, Pétur Þ. Óskarsson, Gunnar Stefánsson, Arna Björk Jónsdóttir, Eggert Stefánsson, Annabel Baxter og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, HALLDÓRS S. MAGNÚSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sóltúns í Reykjavík fyrir frábæra hjúkrun og umönnun. Sigríður Halldórsdóttir, Gunnlaugur Garðarsson, Magnús Halldórsson, Helga Bragadóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, þakkir og hlýhug vegna andláts og við útför GÍSLA PÁLSSONAR, Hofi, Vatnsdal. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis- stofnunarinnar á Blönduósi. Vigdís Ágústsdóttir og fjölskylda. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLAFÍA G. ALFONSDÓTTIR frá Hnífsdal, Hæðargarði 29, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 6. febrúar, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 15. febrúar kl. 13.00. Gréta Jóakimsdóttir, Odd T. Marvel, Helga S. Jóakimsdóttir, Sigurður B. Þórðarson, J. Gunnar Jóakimsson, Sólveig Þórhallsdóttir, Kristján G. Jóakimsson, Sigrún Sigvaldadóttir, Aðalbjörg Jóakimsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.