Morgunblaðið - 13.02.2013, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst
LAGNAEFNI FYRIR
TÖLVUR OG NET
Digitus net lagnaefnið hefur verið á
markaðnum um allan heim
síðan 1994 við góðan orðstýr.
Frá þeim fáum við allt sem
Gerir mögulegt að
senda HDMI merki
frá háskerpu
myndlykli í mörg
sjónvörp langar
vegalengdir um
tölvunet.
HD
MI
DRE
IFIN
G
NÝJUNG HJÁ OKKUR
þarf til að gera gott
netkerfi fyrir heimili
eða fyrirtæki.
Ég ætla að mæta í prinsessubúningi í vinnuna á morgun ogleyfa minni innri prinsessu að koma dálítið fram. Ég geri aðsjálfsögðu þá kröfu að allir samstarfsmenn mínir mæti líka í
búningi,“ segir Svanhvít Júlíusdóttir, sem er 25 ára í dag.
„Afmælið í dag kallast á við fjögurra ára afmælið mitt sem bar
líka upp á öskudag. Þá fékk ég smaragðsgrænan prinsessubúning í
afmælisgjöf og dansaði allan daginn á öskudagsballi í Vitanum í
Hafnarfirði. Það er einn af mínum eftirminnilegustu afmælisdögum.
Í tilefni dagsins kom yfirmaðurinn minn líka með gluggaþvotta-
græjur inn til mín í gær og þreif alla gluggana í kringum mig svo ég
fengi notið útsýnisins og sólarinnar.“
Svanhvít er fædd og uppalin í Hafnarfirði. Hún er stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík. Þar gegndi hún meðal annars emb-
ætti forseta Framtíðarinnar, formanns annarra tveggja nemenda-
félaga Menntaskólans. Svanhvít er auk þess með BSc-gráðu í verk-
fræði frá Háskóla Íslands. Samhliða verkfræðinámi starfaði hún hjá
ÍTR en starfar um þessar mundir hjá Hagstofunni.
„Annar eftirminnilegur afmælisdagur var þegar ég varð tvítug.
Þá var ég flugfreyja í Abu Dhabi og þurfti að fljúga til Manilla. Ég
flaug 8 tíma fram í tímann og þegar ég lenti í Manilla þá átti ég bara
16 tíma afmælisdag út af tímamismuninum.“ gunnardofri@mbl.is
Svanhvít Júlíusdóttir er 25 ára í dag
Afmælisprinsessan Svanhvít Júlíusdóttir á fallegum vetrardegi.
Í prinsessubúningi
á afmælisdaginn
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Njarðvík Andrés
Bjarmi fæddist 8.
maí kl. 11.16. Hann
vó 4.625 g og var
54 cm langur. For-
eldrar hans eru
Hrefna Björk Sig-
urðardóttir og
Freyr Brynjarsson.
Nýr borgari
T
ómas Ingi fæddist á Ak-
ureyri og ólst þar upp.
Hann lauk stúdents-
prófi frá MA 1963,
stundaði nám í frönsku
og sagnfræði við HÍ 1963-64,
stundaði nám í frönsku og frönsk-
um bókmenntum, ensku og at-
vinnulandafræði 1964-70 við Uni-
versité de Montpellier í Frakklandi
og lauk þaðan Maitre-ès-lettres
modernes-prófi 1970.
Tómas Ingi var kennari við MA
1970-91, aðstoðarskólameistari MA
1973-83, hótelstjóri Hótel Eddu á
Akureyri 1971-73 og ritstjóri Ís-
lendings 1984-85.
Tómas Ingi var alþm. Norður-
landskjördæmis eystra frá 1991 og
menntamálaráðherra 2002-2003.
Hann sat í iðnaðarnefnd Alþingis
1991-95, í menntamálanefnd 1991-
2001, í umhverfisnefnd 1991-99, í
sérnefnd um stjórnarskrármál
1994-96, í utanríkismálanefnd 1995-
2002, var formaður utanríkismála-
nefndar 1997-2002, sat í heilbrigðis-
og trygginganefnd 1999-2002 og í
fjárlaganefnd 2001-2002.
Tómas Ingi var varabæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins á Akureyri
1974-76, sat í skipulagsnefnd Akur-
eyrar um árabil og var formaður
hennar 1991-92, formaður Háskóla-
nefndar Akureyrar 1985-87, sat í
stjórn Háskólans á Akureyri 1988-
90, var formaður Skógræktarfélags
Eyfirðinga 1983-91, í stjórn Skóg-
ræktarfélags Íslands 1985-91, í
stjórn KA 1988-91, í stjórn Slipp-
stöðvarinnar á Akureyri 1991-92.
sat í Rannsóknarráði ríkisins 1991-
93, var í stjórn Vetraríþrótta-
miðstöðvar Íslands 1995-2002, var
varaformaður Ferðamálaráðs Ís-
lands 1993-99 og var formaður
ráðsins 1999-2002, formaður nefnd-
ar um menningartengda ferðaþjón-
ustu 1999-2001 og höfundur
skýrslu sem nefndin gaf út, var
formaður útvarpslaganefndar 1992-
94, var formaður nefndar um
stefnumótun ríkisstjórnarinnar í
málefnum upplýsingasamfélagsins
1995-96 og sat í endurskoðunar-
nefnd um stjórn fiskveiða 1999-
2001.
Á erlendum vettvangi
Tómas Ingi var fulltrúi Íslands í
Þingmannasamtökum NATO 1991-
93 og formaður Íslandsdeildar
NATO-þingsins 1999-2002. Hann
var formaður Íslandsdeildar ÖSE-
þingsins 1993-95, fulltrúi Íslands á
þingi Evrópuráðsins, sat í Vísinda-
Tómas Ingi Olrich, fyrrv. menntamálaráðherra - 70 ára
Menning Tómas Ingi og Nína voru viðstödd opnun Hörpu í maí 2011.
Frönskuskotin heims-
sýn menntamanns
„Íslendingar“ er nýr
efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu.
Þar er meðal annars sagt
frá merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem hjónavígslum,
barnsfæðingum eða öðrum
tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is