Morgunblaðið - 13.02.2013, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2013
Trjáklippingar
Trjáfellingar
Stubbatæting
Vandvirk og snögg þjónusta
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
NAOMI WATTS
TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI
100/100
„Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir
sem fólk verður að sjá á árinu.“
100/100
„Ógnvænlega vel gerð.“
NAOMI WATTS TILNEFND
TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
-VARIETY
-HOLLYWOOD REPORTER
STATHAM Í SINNI
BESTU HASARMYND TIL ÞESSA
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
VIP
VIP
WARM BODIES FORSÝNING KL. 8
HANSEL AND GRETEL KL. 6 - 8 (10:10 3DÓTEXTUÐ)
HANSEL AND GRETEL VIPKL. 6 - 10:10
BULLET TO THE HEAD KL. 6 - 8 - 10:10
BULLET TO THE HEAD VIP KL. 8
PARKER KL. 8 - 10:30
GANGSTER SQUAD KL. 5:30 - 10:30
JACK REACHER KL. 10:30
THE IMPOSSIBLE KL. 5:40 - 8
WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 5:50
KRINGLUNNI
HANSEL AND GRETEL KL. 6 - 8- 10:10
BULLET TO THE HEAD KL. 8 - 10:10
GANGSTER SQUAD KL. 8 - 10:30
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 15:30 ÖSKUDAGSBÍÓ
WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 15:20 ÖSKUDAGSBÍÓ
CHASING MAVERICKS KL. 15:20 ÖSKUDAGSBÍÓ
BULLET TO THE HEAD KL. 5:50 - 8 - 10:10
HANSEL AND GRETEL KL. 8 - 10:10
PARKER KL. 5:30 - 8 - 10:30
GANGSTER SQUAD KL. 8 - 10:30
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
HANSEL AND GRETEL KL. 8
BULLET TO THE HEAD KL. 8 - 10
PARKER KL. 10
AKUREYRI
HANSEL AND GRETEL KL. 8 - 10
BULLET TO THE HEAD KL. 8 - 10
“STALLONE IS BACK TO HIS BEST”
-ZOO
ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ
JEREMY RENNER Í AÐALHLUTVERKI
ÖSKUDAGSBÍÓ
400.KRMIÐINN Á MERKTAR MYNDIR
FORSÝND
750.KR MIÐINN FYRIR
VINI OKKAR Á FACEBOOK
FRÍÐINDAKLÚBBNUM
Sögusvið kvikmyndarinnarHoly Motors er nokkuðóhefðbundið. Sköllótturmaður, Monsieur Oscar, er
keyrður um París í limósínu og opn-
ar reglulega umslög sem innihalda
„verkefni“. Í bílnum klæðir hann sig
í búninga og dulargervi og bregður
sér út úr eðalvagninum til að leika
ýmis hlutverk á borð við betlara,
dauðvona mann, þrívíddarmynda-
leikara, mislyndan föður tánings-
stúlku og einhvers konar skrímsli
sem ráfar inn í tískuljósmyndatöku
og veldur glundroða, svo fátt eitt sé
nefnt. Óskilgreint yfirvald virðist
útvega honum verkefnin og fylgst
er með „leik“ hans gegnum faldar
myndavélar. Oscar virðist standa á
einhvers konar tímamótum og hon-
um er tjáð af yfirboðurum sínum að
ekki sé fullkomin ánægja með störf
hans og heilsu hans hrakar út
myndina.
Manni verður ljóst á fyrsta
stundarfjórðungi að ekki er um
eiginlegan söguþráð að ræða því
stöðugt er skipt um sögur, sem get-
ur verið þokkalegasta aðferð við að
ramma inn einhverja stærri heild
en getur líka komið út sem hálfgert
stefnuleysi. Stundum koma tónlist-
aratriði og söngatriði sem jaðra við
að vera einhver menntuð kald-
hæðni. Myndin líður áfram á hraða
snigilsins og þegar þokkalega
áhugaverðar samtalssenur vekja
von um meiri atburðarás taka jafn-
an við langar þöglar senur sem
minna frekar á innsetningu en kvik-
mynd.
Ekki er laust við að ég hafi fundið
til vanmáttar á köflum vegna þessa
höktandi flæðis; upplifunin er ekki
ólík því að horfa á gríðarlega til-
komumikið málverk í vinnslu þar
sem reglulega er málað yfir mynd-
ina þegar hún fer að taka á sig ein-
hverja mynd.
Holy Motors er þó mikið augna-
yndi. Það má heldur ekki gleyma
því að stórskrýtnar og óhefð-
bundnar kvikmyndir hafa oft áhrif
sem vara lengur en afspilun þeirra.
Núna í þessum rituðu orðum er
jafnvel einhver upprennandi kvik-
myndagerðarmaður eða -kona að
falla fyrir þessari mynd og mun
seinna nýta sér eitthvað úr henni til
að gera eitthvað sem mun ná til
stærri hóps. Hver veit?
En það er ekki laust við að það
grípi mann ákveðið vonleysi þegar
líða tekur á myndina og manni verð-
ur ljóst að sennilega sé hún ekki að
fara að toppa sig úr þessu. Á vissan
hátt gefur myndin þannig undir fót-
inn í upphafi að maður býst við að
meira gerist. Og það er nú oftast
þannig að skemmtilegra er að horfa
á myndir þegar það gerist mikið í
þeim, að maður tali nú ekki um þeg-
ar maður fer að reyna að ráða í hvað
muni gerast næst. Slíkt á sér aldrei
stað í Holy Motors því þá sjaldan að
eitthvað gerist, þá bara gerist það.
Engu að síður; prýðileg „art-
house“-mynd sem er áferðarfögur
og býður upp á fjölmörg glæsileg
atriði, sem virka nánast eins og stíl-
æfing fyrir metnaðarfullan leik-
stjóra, tökumann, leikmynda-
hönnuð, búningadeild og hljóð-
hönnuð. Mest krefjandi hlutverkið
er þó hlutverk áhorfandans og end-
irinn er hvalreki á fjörur þeirra sem
vilja túlka hluti upp á eigin spýtur.
Höktandi „Upplifunin er ekki ólík því að horfa á gríðarlega tilkomumikið málverk í vinnslu þar sem reglulega er
málað yfir myndina þegar hún fer að taka á sig einhverja mynd,“ segir m.a. í gagnrýni um Holy Motors.
Heilagar vélar!
Bíó Paradís
Holy Motors bbnnn
Leikstjóri: Leos Karax. Leikarar: Denis
Lavant, Édith Scob, Eve Mendes, Kylie
Minogue, Élise Lhomeau, Jeanne Dis-
son, Michel Piccoli. Frakkland-
Þýskaland, 2012. 115 mínútur.
ARI ELDJÁRN
KVIKMYNDIR
125 ára ártíðar Vincents Van Goghs
verður minnst með nýrri teikni-
mynd. Myndin, sem ber titilinn Lov-
ing Vincent, verður samansett af
56.800 teikningum frá þrjátíu lista-
mönnum. Um er að ræða nokkurs
konur hrollvekju sem fjallar um at-
burðina sem leiddu til sjálfsmorðs
málarans skammt utan við París ár-
ið 1890. Sagan er sögð með viðtölum
við þær persónur sem van Gogh mál-
aði í verkum sínum. Haft hefur verið
eftir einum framleiðenda myndar-
innar að hann hafi ákveðið að setja
framleiðsluferlið á þessu óvenjulega
verkefni í gang eftir að hann þurfti
að bíða í biðröð í fimm klukkustund-
ir til þess eins að komast inn á safn í
ónafngreindum bæ sem sýndi verk
málarans fræga.
Sjálfsmynd Vincent van Gogh er enn
vinsæll 123 árum eftir dauða sinn.
Teiknuð hrollvekja
um van Gogh
Úkraínski sjón-
varpsmaðurinn
Vitalii Sediuk stal
óvænt senunni
við afhendingu
Grammy-verð-
launanna um sl.
helgi. Honum
tókst að smygla
sér framhjá ör-
yggisgæslunni og
hljóp upp á sviðið í þann mund sem
tónlistarkonan Adele var að taka við
fyrstu verðlaunum kvöldsins og tjáði
söngkonunni aðdáun sína. Hann var
í framhaldinu handtekinn. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem Sediuk vekur
athygli því þegar Men in Black 3 var
frumsýnd í Moskvu rauk hann að
Will Smith á rauða dreglinum og
kyssti hann við litla hrifningu leik-
arans. Á kvikmyndahátíðinni í Fen-
eyjum 2011 tróð hann vendi af hort-
ensíum í fangið á Madonnu sem
brást ókvæða við enda hefur söng-
konan löngum haft óbeit á umrædd-
um blómum.
Sjónvarpsmaður
hrellir fræga fólkið
Vitalii Sediuk