Morgunblaðið - 26.02.2013, Síða 18

Morgunblaðið - 26.02.2013, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013 ● Útboð Lánamála ríkisins á ríkis- bréfaflokknum RIKB31 síðastliðinn föstudag tókst með ágætum að mati Greiningar Íslandsbanka. Mikil þátt- taka var í útboðinu, en alls bárust 23 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7,3 milljarðar króna að nafnverði. Ákváðu Lánamál að taka 14 tilboðum fyrir 5,8 milljarða að nafnverði á 6,72% ávöxtunarkröfu. Í takti við væntingar bötnuðu kjör töluvert frá útboðinu í janúar eða sem nemur um 18 punkt- um. Flokkurinn er nú 38,4 milljarðar króna að stærð, en gæti raunar stækkað um 580 milljónir króna til viðbótar ef aðalmiðlarar nýta sér rétt til að kaupa 10% af nafnverði seldra bréfa í útboðinu. Vel heppnað útboð rík- isvíxla og góð þátttaka Breska útgáfufyrirtækið Pearson, eigandi viðskiptablaðsins Financial Times, átti ekki auðvelda daga á síð- asta ári en hagnaður fyrirtækisins dróst saman um 66% á milli ára. Hinn mikli samdráttur er einkum rakinn til vaxtar rafrænnar útgáfu á kostnað prentaðra miðla og bóka. Hagnaður Pearson nam 326 millj- ónum punda á síðasta ári samanbor- ið við 957 milljónir punda árið 2011. Varar útgáfan við því að næstu tólf mánuðir eigi eftir að verða erfiðir í rekstrinum og boðar mikla endur- skipulagningu í rekstrinum. Hlutabréf í breska útgáfufélaginu Pearson féllu um 4% í London í gær- morgun, þegar tilkynnt hafði verið um samdráttinn. Aðstæður erfiðar Nýr forstjóri Pearson, John Fall- on, segir að aðstæður séu erfiðar og miklar breytingar í gangi við upp- bygginguna. Það þýði að hefðbundin útgáfa fyrirtækisins sé undir miklum þrýstingi. Hins vegar sé mikil eftirspurn eft- ir fræðsluefni og rafræn útgáfa Pearson gangi vel. Í tilkynningu Pearson kemur fram að unnið verði að endurskipulagningu til þess að styrkja stöðu fyrirtækisins, meðal annars í rafrænni útgáfu kennslu- efnis. Sameinast keppinautnum Fallon tók nýverið við starfi for- stjóra af Marjorie Scardino, sem ný- verið lét af starfi forstjóra eftir að hafa gegnt því í sextán ár. Var hún fyrst kvenna til að stýra fyrirtæki sem er í FTSE 100 vísitölunni í Bret- landi. Undir lok síðasta árs var tilkynnt að bókaútgáfa Pearson, Penguin, myndi sameinast keppninautnum, Random House. Er þetta gert til þess að draga úr kostnaði við útgáfu en hefðbundin bókaútgáfa á í harðri samkeppni við útgáfu rafbóka. Áætl- ar fyrirtækið að um 100 milljónir punda muni sparast á ári, með sam- einingunni við Random House. Pearson og móðurfélag Random, þýska útgáfufélagið Bertelsmann, ætla að stofna sameignarfélagið Penguin Random House og er stefnt að því að ljúka samrunanum síðar á árinu. Pearson tilkynnti í gær að 150 milljónum punda yrði varið í endur- skipulagningu rekstrar í ár, meðal annars við að slíta Penguin frá móð- urfélaginu. Fram kom í tilkynningunni að þeir fjármunir sam sparast við samein- ingu forlaganna verðir nýttir til þess að efla hvers konar rafræna útgáfu fyrirtækisins. Fyrr í febrúarmánuði kom fram að bandarísk samkeppnisyfirvöld hafa heimilað samruna Penguin og Random House. Við samrunann verður 53% hlutur félagsins í eigu Bertelsmann, móðurfélags Random House og 47% hlutur verður í eigu Pearson. Reiknað er með því að samruna fyrirtækjanna ljúki á síðari hluta þessa árs. Fimmtíu gráir skuggar gáfu vel Random House hefur á undan- förnum misserum stórhagnast á út- gáfu rafbóka eins og „Fifty Shades of Grey“ (Fimmtíu gráir skuggar) eftir EL James og binda fyrirtækin vonir við að áframhaldandi vöxtur á eftirspurn eftir rafbókum, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu, muni auðvelda þeim reksturinn á næstu árum. Sala Amazon á rafrænum bók- um í Bretlandi á fyrrihluta árisins 2012 var um 13% af tekjum fyrirtæk- isins, samkvæmt upplýsingum sam- taka bókaútgefenda í Bretlandi (e. The Publishers Association). Hefðbundin útgáfa á í vök að verjast AFP FT 150 milljónum punda verður varið í endurskipulagningu FT. - Hagnaður Pearson dróst saman um 66% á liðnu ári ● Stofnað hefur verið nýtt íslenskt hátæknifyrirtæki á sviði tölvuöryggis sem sérhæfir sig í rannsóknum, þróun og fræðslu, að því er segir í frétta- tilkynningu frá Syndis. Markmið fyr- irtækisins er að efla íslenskt upplýs- ingaöryggi. Syndis mun einnig framkvæma ör- yggisúttektir á fyrirtækjum og stofn- unum, með því að herma eftir árásum raunverulegra hakkara. Höfuðstöðvar Syndis verða í Há- skólanum í Reykjavík, en einnig verður fyrirtækið með skrifstofur í Kaup- mannahöfn og New York. Á sviði tölvuöryggis ● Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 15. febrúar til og með 21. febrúar 2013 var 90. Þar af voru 59 samningar um eignir í fjölbýli, 24 samningar um sérbýli og 7 samn- ingar um annars konar eignir en íbúðar- húsnæði. Heildarveltan var 2.966 milljónir króna og meðalupphæð á samning 33 milljónir króna. Þetta er umtalsvert minni velta en í vikunni á undan en þá var veltan á höfuðborgarsvæðinu 4.136 milljónir en þá var 118 samningum þing- lýst. Þetta kemur fram í frétt frá Þjóðskrá Íslands. Minni velta fasteigna ‹`ii”Kr HDˆKircvHP@c‹ l”c”‹”‹`ii”Kr ‹¿cHl lKÂc” c`KHl lKÂc” H(cHl lKÂc” H<rHHcÎ xK”clr o”P”cHlD oˆc H‹K ˆ<K” fˆÔ”ivˆcvrÌ<rÔHlrPD”<`v £K¿cv f…Ul%Ye H%% uj‰„\\€^žj„j‰ ½·Í Œ"^:%^ ½ÉÇ» t…~…“¬ HU%"%k… Û]%k“] ȾµÓȾ È®ÊÓ®° Ⱦ¼Ó¾¾ ¾¾ÓºÊÈ ¾¾Ó¼°¸ ȮӲº° ȼµÓÈ ÈÓ¼º¼È È®ÈÓ¼¾ ȵ²ÓȺ ȾµÓº¾ È®ÈÓºº Ⱦ¼Ó¸° ¾¾Óºµ² ¾¾Óº¸È ȮӰʵ ȼµÓº° ÈÓ¼º² È®ÈÓ°® ȵ²ÓµÈ ¾¾²Ó¾¸¸¾ ȾµÓ²¾ È®ÈÓ® Ⱦ¼Ó®º ¾¾Ó¸¼¼ ¾¾Ó¸È² ȮӰµº ȼµÓ°µ ÈÓ¼¸Ê® È®¾Óºµ ȵ°Óʰ STUTTAR FRÉTTIR Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Skráning ogmorgunverður Ráðstefna sett GraemeNewell – Emotional marketing Hlé Kaspar Basse – Joe & the Juice Capacent rannsókn Hádegishlé – léttur hádegisverður Simonetta Carbonaro - People’s longing for authenticity. More than just a new marketing trend. TomAllason – Shutl: Delivering web orders in 90minutes will change buyers behaviour. Hlé Peter Dee – JohnnieWalker: KeepWalking Ráðstefnulok. 08.30 09.00 09.10 10.10 10.30 11.15 11.30 12.45 13.45 14.30 15.00 16.00 Dagskrá ÍMARK dagsins ÍMARKDagurinn 1.mars 2013 Harpa Skráning á imark.is #imark Hinfimmfræknu Fimm frábærir fyrirlesarar á ÍMARK deginum íHörpu föstudaginn 1. mars. Fróðleg og skemmtileg erindi sem enginnmarkaðsmaður vill missa af. Ráðstefnustjóri er Ingólfur ÖrnGuðmundsson, framkvæmdastjóri markaðssviðsMarel. Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.