Morgunblaðið - 26.02.2013, Síða 26

Morgunblaðið - 26.02.2013, Síða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013 Kveðja frá Knattspyrnu- sambandi Íslands Góður félagi, þjálfari og fyrr- verandi knattspyrnumaður Steinar Ingimundarson er fall- inn frá langt um aldur fram. Steinar tengdist knattspyrnunni allt sitt líf, fyrst sem hæfileika- ríkur leikmaður og síðan sem útsjónarsamur þjálfari. Steinar hóf feril sinn ungur að árum í Leikni Reykjavík en gekk snemma til liðs við KR og var einn af lykilleikmönnum í hinum sigursæla ’69-árgangi fé- lagsins. Hæfileiki Steinars til að skora mörk naut sín vel í þeim hópi og með félögum sínum í KR vann hann mörg mót í yngri flokkum enda var liðið nánast ósigrandi. Á þeim tíma lék Steinar m.a. níu drengjalands- leiki fyrir Íslands hönd. Steinar lék í meistaraflokki í efstu deild með KR, Leiftri og Víði, en einnig lék hann með Þrótti R. og Fjölni. Steinar þjálfaði lið Fjölnis í meistara- flokki með góðum árangri 2002- 2004. Hann tók við liðinu í 3. deild, fór með það upp um deild- ir og stjórnaði því í 1. deild 2004. Steinar tók síðan við þjálf- un Víðis, fór með liðið upp úr 3. deild 2007 og stjórnaði liðinu í 2. deild 2008 og 2009. Steinar þjálfaði síðan kvennalið Kefla- víkur í meistaraflokki 2010 og fram eftir ári 2011 þar til hann varð að hætta sökum veikinda. Steinari kynntist ég í leik og starfi og ég minnist samskipta sem voru skemmtileg og hrein- skilin. Hann hélt alltaf tryggð við knattspyrnuna sem gaf hon- um svo margt í áranna rás. Knattspyrnuhreyfingin sendir fjölskyldu, ættingjum og vinum Steinars samúðarkveðjur. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ. Góður drengur er fallinn frá. Steinar var vinur okkar hjóna, kynni okkar hófust þegar hann tók að sér þjálfun hjá Fjölni og Ívar okkar var liðsmaður þar. Flótlega kom í ljós að eiginleik- ar hans sem þjálfara voru mikl- ir, hann hafði brennandi áhuga Steinar Örn Ingimundarson ✝ Steinar ÖrnIngimundar- son fæddist í Reykjavík 27. janúar 1969. Hann lést hinn 17. febrúar á líknar- deildinni í Kópa- vogi. Steinar var jarðsunginn frá Grafarvogskirkju 25. febrúar 2013. á þessum ungu mönnum, sýndi þeim ástúð og um- hyggju og var vinur þeirra og fyrir- mynd. Við vorum svo heppin að fá að fara með liðinu sem fararstjórar til Portúgal í æfinga- ferð, þar urðum við vitni að mannkost- um Steinars og vin- skapurinn hélst áfram. Hann kom oft til okkar á verkstæðið, síðast í sumar kom hann til okk- ar á nýju hjóli sem hann hafði fest kaup á sem var með raf- magns-hjálparmótor, hann ætl- aði að byggja sig upp eftir veik- indin. En meinið tók sig upp og við ekkert fékkst ráðið. Lítið fékk stöðvað þennan duglega dreng ef hann ætlaði sér eitt- hvað og vitum við að hann hefur hjálpað mörgum ungum drengj- um og stúlkum á braut íþróttanna. Viljum við þakka góðan vinskap og Jónu og börn- um sendum við okkar dýpstu samúð. Sigurbjörg og Björn. Í dag er til grafar borinn Steinar Ingimundarson, sem lést 17. febrúar síðastliðinn, að- eins 44 ára gamall. Stundum skilur maður ekki gang lífsins, hver er tilgangurinn með því að taka burt ungt fólk sem ætti að eiga bjarta framtíð, en því er ekki alltaf þannig farið? Steinar átti við erfið veikindi að stríða síðastliðin tvö ár, hann var mik- ill keppnismaður og ætlaði að sigrast á þessum veikindum, því miður tókst það ekki. Ég kynntist Steinari þegar hann kom til Ólafsfjarðar að keppa fyrir Leiftur árið 1987, en bróðir hans Óskar var þá þjálf- ari hjá Leiftri og á þessum ár- um má segja að Leiftursævin- týrið hafi byrjað. Við fórum beint upp í úrvalsdeild það árið í fyrsta skipti í sögu félagsins og Steinar var markahæsti leik- maður Leifturs og skoraði mark í hreinum úrslitaleik er við unn- um Þrótt Reykjavík um hvaða lið færi upp í úrvalsdeild. Stein- ar spilaði með Leiftri í úrvals- deildinni 1988 og var lang- markahæsti leikmaður liðsins en hann skoraði sex mörk sem var helmingur skoraðra marka liðs- ins það árið. Steinar var mikill keppnismaður og naut sín á vellinum og kunni að njóta stundarinnar þegar vel gekk inni á vellinum. Steinar spilaði aftur með Leiftri 1998 í úrvalsdeildinni og skoraði þá eitt mark. Þrátt fyrir að Steinar byggi fyrir sunnan þá fylgdist hann vel með hvað væri að gerast fyr- ir norðan, hann var mikill Leift- ursmaður og var tilbúinn að fórna sér fyrir félagið og lagði ýmislegt á sig til þess, enda var Steinar mjög góðviljaður dreng- ur og tilbúinn að hjálpa öðrum sem ég veit að hann gerði mikið af. Nú er komið að leiðarlokum, Steinar minn, ekki fleiri mörk skoruð að sinni, hafðu þökk fyr- ir framlag þitt fyrir Leiftur og góð kynni. Hugur minn er hjá eiginkonu, börnum og fjölskyldu sem sjá á eftir góðum dreng sem átti eftir að gera svo margt. Megi góður Guð veita ykkur styrk í sorginni. Þorsteinn Þorvaldsson. Genginn er góður drengur, Steinar Örn Ingimundarson. Það má segja að kynni mín af Steinari hafi hafist við fyrirhug- uð félagaskipti hans yfir í Val árið 1991, sem aldrei varð af og átti ég líklega einhvern þátt í þeirri ákvörðun hans að skipta ekki úr KR, en við báðir vorum miklir KR-ingar áður en við urðum miklir Fjölnismenn. Steinar var mjög góður knattspyrnumaður og ég sem gamall KR-ingur man alltaf eft- ir sigurmarki Steinars í 3-2-sigri KR á Fram í Frostaskjóli sum- arið 1992. Mikið var gott að hafa Steinar í sínu liði. Steinar náði frábærum ár- angri í þjálfun hjá Fjölni. Hann gerði 3. flokk karla að Reykja- víkur- og Íslandsmeisturum árið 2001. Árið eftir tók hann við þjálfun meistaraflokks karla og tók þá úr 3. deild í 1. deild á þremur árum. Hreint út sagt ótrúlegur árangur sem seint verður leikinn eftir. Steinar var mjög framtaks- samur og oft á tíðum tók hann ákvarðanir langt á undan stjórn knattspyrnudeildar Fjölnis enda hafði hann skýra framtíðarsýn til að ná árangri. Ákvarðanir sem erfitt var annað en að fall- ast á eftir að Steinar hafði út- skýrt þær. Alltaf bar hann hag Fjölnis fyrir brjósti sem kom fram í ótrúlegri eljusemi og ástríðu í störfum hans fyrir fé- lagið. Mér þótti afskaplega vænt um Steinar og þótt við værum oft á tíðum ekki sammála um leiðir að sama markmiði, þá var það svo að kynni mín af Steinari voru mér einkar kær og ávallt fór vel á með okkur. Steinar var heiðarlegur, ein- lægur og góður drengur. Ég vil senda fjölskyldu Stein- ars mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Ég bið Guð að styðja þau og hjálpa þeim í sorg sinni. Snorri Snorrason, fv. formaður Knatt- spyrnudeildar Fjölnis. Kær félagi okkar og sam- starfsmaður Steinar Örn Ingi- mundarson er látinn – langt um aldur fram. Steinar var fram- kvæmdastjóri InnX innréttinga ehf. frá árinu 2009 og sinnti því starfi af mikilli festu, kjarki og áræðni. Hann var kröftugur leiðtogi, öflugur samherji og síð- ast en ekki síst – tryggur og góður vinur. Aðdáunarverðir styrkleikar hans kom skýrt í ljós í hetjulegri baráttu hans við illvígan andstæðing sem hafði þó betur að lokum. Steinars verður sárt saknað. Jónu og börnunum færum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur – mikill er þeirra miss- ir. Minning Steinars lifir. Fyrir hönd starfsfólks InnX innréttinga, Marten Ingi Lövdahl. Elsku Steinar. Við systkinin erum mjög lán- söm að hafa haft þig í lífi okkar. Við áttum svo margar góðar stundir saman. Nú ert þú fallinn frá í blóma lífsins og langar okkur að heiðra minningu þína. Áður en við byrjuðum að skrifa þessi orð rifjuðum við saman upp minn- ingarnar sem við eigum um þig. Eftir stutta stund áttuðum við okkur á því að við vorum farin að brosa og hlæja. Það er það sem þú færðir okkur, algjöra gleði. Það var ekki hægt að hitta þig án þess að brandarar og gamansögur flæddu yfir mann. Það var alltaf gaman að vera í kringum þig, þú varst hrókur alls fagnaðar með þinn einstaka húmor og öll þín frá- bæru uppátæki, sem við getum endalaust hlegið að. Þú varst svo miklu meira en bara brandarakall, þér þótti virkilega vænt um allt þitt fólk og alltaf tilbúinn til þess að hjálpa þeim sem þurftu á því halda. Hjarta þitt var fallegt. Þú varst fallegur maður bæði að innan sem og utan og yfir þér ríkti ávallt ákveðinn glæsileiki. En það er stutt á milli hláturs og gráts, nú þegar við áttum okkur á því að þú sért farinn þá streyma tárin niður vangana. Við munum sakna þín sárt. Í dag eru margir sem eiga um sárt að binda því þú gerðir líf okkar ríkara, en minningin þín lifir og munum við geyma hana í brjósti okkar. Elsku Jóna, Þór, Hrund og Björk. Við sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur. Hugur okkar er hjá ykkur á þessum erfiðu tímum. Karen Ósk, Birna Rós og Ingimundur Níels. Fallinn er frá góður félagi og vinur Steinar Örn Ingimundar- son. Mig langar með örfáum orð- um að minnast hans og þess tíma sem leiðir okkar lágu sam- an. Ég kynntist Steinari fyrst í gegnum unglingastarfið hjá Fjölni þar sem við meðal annars fórum saman með sonum okkar í keppnisferðir ásamt ýmsum uppákomum sem töluvert var af í starfi yngri flokkanna. Þetta voru skemmtilegar samveru- stundir og ekki var hægt að láta sér leiðast. Síðar starfaði ég með Steinari þegar hann þjálfaði meistara- flokk Fjölnis. Þetta var ótrúlega skemmtilegur tími og endalaus uppspretta minninga sem ylja okkur félögunum sem störfuðu með honum að knattspyrnumál- um Fjölnis á þessum tíma. Þetta var eins og alltaf endalaus barátta um fjármagn til æfinga og keppnisferða og útgjalda sem tengjast rekstri meistaraflokks sem vildi vera á meðal þeirra bestu. Það duldist engum sem kynntist Steinari að í honum bjó ótrúlegur drifkraftur og áræði og aldrei kom maður að tómum kofunum hjá honum þegar hug- myndir um fjáröflunarverkefni voru annars vegar. Hann taldi heldur aldrei eftir sér að taka sjálfur þátt í fjáröflunarverkefn- unum með leikmönnum og sjálf- boðaliðum sem bjástruðu við að reka metnaðarfullt starf. Steinar var mikill keppnis- maður og engin verkefni voru óyfirstíganleg að hans mati. Ekki voru félagarnir alltaf sam- mála um alla hluti en eitt var víst að Steinar fór aldrei í felur með álit sitt á málum og verk- efnum og samskipti voru ætíð hreinskiptin. Málin voru rædd og komist var að niðurstöðu sem allir voru sáttir við. Það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast manni eins og Steinari og minning hans lifir í huga þeirra sem kynntust hon- um. Ég votta fjölskyldu Steinars samúð mína á þessum erfiðu tímum. Kristinn Daníelsson, fv. formaður Knatt- spyrnudeildar Fjölnis. Það var árið 1982 þegar við KR-ingarnir mættum Leikni úr Breiðholti í úrslitaleik Reykja- víkurmótsins á gamla Melavell- inum. Þarna mættust tvö af sterkustu liðum landsins. Liðin voru ótrúlega jöfn að getu og þurfti þrjá úrslitaleiki til að knýja fram úrslit. Burðarmenn í liði Leiknis voru fjórir strákar. Rúni Kristins, Guðni Grétars, Stebbi Guðmunds og Steini Ingimundar. Þjálfara okkar KR- inga, Atla Helgasyni, tókst á einhver óskiljanlegan hátt að telja fjórmenningana á að ganga til liðs við okkur KR-inga. Ég man vel eftir því þegar þessir fjórir strákar úr Breiðholtinu komu á sína fyrstu æfingu vest- ur í bæ eftir langa strætóferð úr Breiðholtinu, aðeins þrettán ára að aldri. Þegar þessir tveir hóp- ar sameinuðust í klefanum kviknað ótrúlegt andrúmsloft sem erfitt er að lýsa með orð- um. Metnaður, keppnisskap, traust og síðast en ekki síst sterkur vinskapur myndaðist frá fyrsta degi. Steini Ingimundar og strákarnir úr Breiðholtinu spiluðu þar stórt hlutverk enda voru þeir lykilmenn í ’69-ár- gangi KR sem er einn sigursæl- asti árgangur í sögu Íslands. Steini Ingimundar sá um að skora mörkin og það var unun að spila með honum. Steini var ótrúlega hæfileikaríkur og skor- aði mörk í öllum regnbogans lit- um. Steini fór alltof snemma úr KR en hann hélt áfram að skora mörk á öðrum vígstöðvum. Við strákarnir í ’69-árgangi KR ásamt strákum fæddum ’70 höldum enn hópinn og vinskap- urinn hefur styrkst með hverju árinu. Við höfum farið í fjöl- margar utanlandsferðir saman og alltaf er andinn engum líkur. Hin árlega KR-skemmtun, sem merkt er sérstaklega í dagatalið með margra vikna fyrirvara, var alltaf einstök þegar Steini mætti. Prakkarastrikin og sög- urnar komu á færibandi frá Steina og hann tók algjörlega völdin. Það komust ekki margir að enda sátum við hinir með tárin í augunum og grenjuðum af hlátri. Steina verður sárt saknað en við munum halda áfram að rifja upp sögurnar af Steina þegar við hittumst. Ég var svo heppin að vinna lengi nálægt Steina. Það var alltaf gaman að koma í kaffi til hans í bílaumboðið og alltaf keyrði maður brosandi í burtu og einu sinni á nýjum bíl, sem Steini hafði selt mér inni á kaffistofu. Þótt Steini væri ekki með annan fótinn úti í KR eins og margir af okkur strákunum þá hugsaði hann alltaf mikið til okkar. Hann var fyrstur til að hringja og óska okkur til hamingju þeg- ar vel gekk en ekki síst var hann fljótur að hafa samband þegar áföll bönkuðu upp á. Þessu kynntist ég að eigin raun og er ævinlega þakklátur fyrir það. Hann veit það. Þessi hug- ulsemi lýsir góðum dreng sem var traustur vinur sama á hverju gekk. Hans verður sárt saknað en minningin lifir með brosi. Jóna, börn og fjölskylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Hilmar Björnsson. Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykk- ar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Höf. óþekktur) Takk fyrir okkur elsku hjart- ans Steinar. Þínir vinir, Guðbjörg og Andri Þór. Kveðja frá KR Góður drengur er fallinn frá langt um aldur fram. Steinari kynntist ég á sínum tíma er hann kom í KR. Hann var í hin- um sigursæla 1969 árgangi og þrátt fyrir að vera nokkrum ár- um eldri fylgdist maður með af aðdáðun. Við unnum einnig nokkrum sinnum saman í flug- eldasölu KR, höfðum aðsetur í JL-húsinu, það var skemmtileg- ur tími. Leiðir okkar lágu aftur saman er Steinar hringdi í mig á lokadegi félagaskiptagluggans um mitt sumar, einhvern tíma á síðustu öld. Hafði ég þá búsetu í Hollandi en var senn á heim- leið. Steinar var þá aðalmað- urinn hjá Fjölni og þrátt fyrir tilraunir mínar til að telja hon- um trú um að formið mitt væri afleitt lét ég til leiðast. „Það verður gott að hafa þig til taks á bekknum, erum með lítinn hóp,“ sagði Steinar. Ég lenti á skerinu og fór beinustu leið út á Reykjavíkurflugvöll til móts við nýju liðsfélagana án þess að hafa mætt á æfingu. Byrjunar- liðssæti strax í fyrsta leik, var sprunginn eftir tæpar fimm mínútur og gat miklu minna en ekkert. Slæmt tap „okkar“ gegn Völsungum á Húsavík stað- reynd, sannarlega engin happa- sending þessi Kiddi. Tilkynnti Steinari stuttu síðar að ég gæti ekki leikið næsta leik, væri að gifta mig deginum áður og lík- legast yrði frúin ekki sátt við að taka upp gjafirnar ein á sunnu- dagsmorgninum. Mér fannst Steinar taka þessu mætavel og skilja mína afstöðu. Hann hringdi hinsvegar er leikar stóðu sem hæst upp úr mið- nætti á laugardagskvöldinu og sagði „Kiddi: Fjölnir og Graf- arvogurinn þarfnast þín á morgun.“ Hvað gat maður sagt? Fór því um hádegisbilið og var eðli málsins samkvæmt betur fagnað af Steinari og strákun- um heldur en þeirri nýgiftu. Inni í klefa afhenti Steinar mér risastóran blómvönd og hélt síð- an magnaða ræðu rétt fyrir leik. Hann minnti mig á Al Pac- ino í „Any given Sunday“ er hann lagði línurnar og „við“ unnum Sindramenn í miklum markaleik. Ef mig misminnir ekki skoraði Steinar eitt og lagði upp öll fjögur mörk mín í leiknum. Honum þótti vænt um Fjölni, það fór ekki framhjá neinum. Því miður skiptast á skin og skúrir á lífsleiðinni. Veikindum Steinars fylgdist ég með úr fjarlægð en fékk hinsvegar reglulegar fréttir af æðru- leysinu og þeim mikla baráttu- vilja sem hann sýndi þessum válega gesti sem nú hefur tekið hann frá okkur í önnur verk- efni. Fjölskyldu, aðstandendum og vinum færum við KR-ingar okkar dýpstu samúðarkveðjur og þökkum af hlýhug hans framlag til knattspyrnunnar í KR. Blessuð sé minning Stein- ars Ingimundarsonar. F.h. knattspyrnudeildar KR, Kristinn Kjærnested formaður. Fyrir nokkrum árum kom Steinar með Jónu konunni sinni til fundar við heimhóp sem við höfðum tilheyrt í nokkur ár. Þau urðu hluti af þessum hópi og þrátt fyrir veikindi og reglu- lega fjarveru höfðum við eign- ast góðan vin og áhugasaman einstakling í málefnum sem sneru að lífinu og trúnni. Stein- ar var opinn, spurull og hafði skoðanir á mörgu. Trúin varð honum mikilvægur vegvísir í gegnum lífið, sem hafði tekið þessa óvæntu og erfiðu beygju við veikindin. Saman gátum við talað um tengsl okkar hvert við annað, og tengslin við Guð sem við lærðum að treysta sem leið- toga lífsins, í blíðu og stríðu. Við gerðum ýmislegt annað en að hittast í heimahúsum eða kirkjunni. Hann reyndist dug- legur og útsjónarsamur þátttak- andi í karnivali fyrir börn, sem við settum öðru hvoru á lagg- irnar og lögðum líf og sál í að gera sem skemmtilegast. Ég veit ekki hvor hópurinn skemmti sér betur, við eða börnin. Ég veit að Steinar hafði Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.