Morgunblaðið - 26.02.2013, Síða 28

Morgunblaðið - 26.02.2013, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013 Við systkinin munum varla eftir æsku okkar öðruvísi en Sigga sé þar inni í myndinni og að fylgjast með okkur. Hún var „hin mamman“ hans Jóns Páls og bjó í sama húsi fyrstu árin. Og hún bókstaflega tók á móti Álfheiði þó að ljósmóðirin hafi fylgst grannt með; mamma seg- ir berum orðum að það hafi ver- ið stórskemmtileg fæðing. Þeg- ar við áttum heima á Patró vorum við mikið hjá Siggu og Bjössa og eftir að við fluttum suður áttum við alltaf vísan samastað hjá þeim í vesturferð- um. Ekki kom til greina að gista annars staðar. Það er hægt að dást að Siggu fyrir svo margt. Hún studdi ein- staklega vel við börnin sín í einu og öllu, barnabörnin og frænd- systkinin sömuleiðis en svo átti hún alltaf tíma og athygli fyrir okkur tvö og ósköpin ein af öðru fólki. Við munum alltaf muna eftir Siggu með aðdáun í huga, segja börnunum okkar frá henni og hún verður alltaf ein af okkar fyrirmyndum. Með þakklæti og kveðju til Bjössa, Þorsteins, Önnu Lilju og allra hinna. Álfheiður og Jón Páll. Febrúarsól er að ganga til viðar. Vogurinn tekur á sig bleikan, gulan og dumbrauðan lit. Himinninn glóandi gull. Feg- urðin blasir við í allri sinni dýrð. Við horfum hugfangin, hljóð á sólina síga í sæ og kvöldhúmið leggjast yfir. En innan við gluggann er barist fyrir lífi. Þar kvöldar allt of snemma og sólargeislar Sig- ríðar Sigfúsdóttur, svo verm- andi, kærleiksríkir og umvefj- andi hefðu átt að skína svo miklu lengur. Sorg og söknuður læðast að hjartanu. Sorg vegna þess sem orðið er og enginn mannlegur máttur fær við ráðið og sökn- uður vegna vinar sem er að hverfa á braut og á ekki aft- urkvæmt. Aldrei hef ég eignast eins góðan vin á svo stuttum tíma og þegar ég kynntist Sigríði Sig- fúsdóttur. Boðið var til kvöldverðar þar sem sonur okkar vildi kynna okkur fyrir foreldrum unnustu sinnar. Við höfðum ekki áður hist og grínuðumst með að boðið gæti orðið þvingað og vand- ræðalegt. Dyrabjallan hringir og þar standa þau í kvöldsólinni Sigga og Bjössi – stórglæsilegt par. Og skemmst er frá því að segja að kvöldið flaug við spjall og spaug og sumarnóttin var runnin inn í nýjan dag þegar við kvöddumst. Það var eins og við hefðum alltaf þekkst. Í þessari fyrstu heimsókn var lagður grunnur að traustum og afar verðmætum vináttuböndum þar sem börnin okkar og síðar barnabörnin voru í brennidepli, endalaus uppspretta hamingju og gleði. Ferðalög innan lands og utan, stórviðburðir, hátíðir – alltaf öll saman að njóta. Sigríður elskaði fjölskyldu sína takmarkalaust og lagði mikla rækt við frændgarðinn Sigríður Helga Sigfúsdóttir ✝ Sigríður HelgaSigfúsdóttir fæddist á Ísafirði 17. maí 1946. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi aðfara- nótt mánudagsins 18. febrúar 2013. Útför Sigríðar Helgu fór fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 25. febrúar 2013. allan. Hún var vin- ur vina sinna í þess orðs fyllstu merk- ingu. Umhyggju- söm, úrræðagóð og hvetjandi, ævinlega boðin og búin að leggja lið og örlát á tímann sinn ef aðrir þurftu á aðstoð hennar að halda. Hún hafði áhuga á lífinu og líðandi stund. Hafði sterkar skoðanir og var ekkert að pakka því sér- staklega inn ef henni mislíkaði. Snyrtifræðin var hennar starfsgrein og þar var kona á réttri hillu. Það var í eðli hennar að hlúa að, fegra og bæta. Þær eru ófáar konurnar sem nutu þeirrar listar hennar. Þar var Sigríður Sigfúsdóttir á heima- velli – snyrtifræðingurinn kunni sitt fag. Fáar manneskjur hef ég hitt á lífsleiðinni sem kunnu betur að gera gott úr aðstæðum þann- ig að allt sem virtist erfitt og óyfirstíganlegt varð að áskorun til að takast á við eða tilefni til að sætta sig við orðinn hlut. Þessi hæfileiki Sigríðar endur- speglaðist ekki hvað síst í bar- áttu hennar við veikindin þegar ágjöfin varð óvægin og ljóst hvert stefndi. Elsku vinkona mín, ég kveð þig með þakklæti, söknuði og trega. Ég mun af fremsta megni hlúa að gullmolunum þínum sem þú þráðir svo mjög að fá að fylgja lengur á lífsgöngunni. Ég mun segja þeim sögur af ynd- islegu ömmunni sem hafði svo margt að gefa þeim. Ég mun benda þeim á skærustu stjörn- una á himinfestingunni og segja þeim að þar sért þú með faðm- inn þinn hlýja og brosið þitt bjarta og vakir ævinlega yfir þeim. Sigríður Johnsen. Hún var einstök upplifunin fyrir tólf ára stúlku vestur á Patreksfirði að vera viðstödd kirkjubrúðkaup í fyrsta sinn á ævinni þar sem Bjössi móður- bróðir minn var að kvænast sinni heittelskuðu. Mér er það einstaklega minnisstætt við und- irleik orgelsins þegar drottning- in gekk inn kirkjugólfið há, tign- arleg, einstaklega falleg í fallega hvíta brúðarkjólnum sínum með slör og allt tilheyrandi. Hún bar sig eins og sannri hefðadömu sæmdi. Skyndilega fannst manni litla kirkjan vestur á Patreks- firði breytast í heimsfræga dóm- kirkju og fyrir dyrum stóð kon- unglegt brúðkaup í útlöndum svona eins og þau sem maður las um í Family journalen eða Hjemmet. Allar götu síðan hef- ur þessi ímynd fylgt henni Siggu, falleg, tignarleg og mikill fagurkeri sem hefur látið sig varða og tekið mikinn þátt í lífs- hlaupi samferðamanna sinna. Hún hefur átt því láni að fagna að vera einstaklega vinamörg sem fylgir gjarnan einstakling- um sem gefa mikið af sér. Vina- hópurinn skannar breitt aldurs- bil og ólíkar manngerðir. Það var oft skemmtilegt og uppá- tækjasamt samlífið fyrir vestan þar sem allskyns hugdettur urðu að veruleika og lét Sigga ekki sitt eftir liggja hvað það varðaði. Söngur, gleði, dans og fjör. Lífið hefur líka tekið sinn toll þar sem sonarmissir skildi eftir sig stórt skarð í fjölskyld- una. Þar fór móðir sem sýndi ótrúlegt æðruleysi sem svo sannarlega létti okkur hinum áfallið. Eins hefur ótakmarkað æðruleysi einkennt hennar þrautagöngu þau ár sem hún hefur barist við sinn sjúkdóm. Þó að á milli okkar væru tíu ár og ég vel innan við fermingu þegar okkar kynnu hófust var hún alltaf jafningi minn að mér fannst. Maður fór fljótt að heim- sækja hana og ræða um sínar langanir og væntingar og alltaf gat hún gefið sér tíma til skrafs og ráðagerða. Þó svo að þeim stundum hafi fækkað eftir að ég hleypti heimdraganum þá skipti það ekki máli því þegar við hitt- umst næst var alltaf auðvelt að taka upp þráðinn þar sem hún fylgdist alltaf með. Eftir að ég hóf hjúkrunarfræðinám sýndi hún því sérstaklegan áhuga og sagði mér oft frá því að þangað hefði hugur hennar stefnt. Það má með sanni segja að þangað náði hennar starfssvið ekki síð- ur en margra annarra sem vinna við þetta starf. Vinir hennar Siggu nutu ríkulega færni hennar og meðfæddra hæfileika sem slíkt starf krefst ef á að rækja það vel. Það voru til að mynda ófáar ferðir hennar á sjúkrahúsið fyrir vestan eða heimsóknir til lasburða vina um allt þorpið til að létta undir með snyrtingum, nuddi og uppörv- andi framkomu og sefandi um- ræðum. Það var mikilvægt inn- legg í heilbrigðisþjónustu samborgaranna sem seint verð- ur þakkað. Elsku Bjössi minn, mínar innilegustu samúðarkveðjur til þín og fjölskyldu þinnar, til systkina og allra þeirra sem nú eiga um sárt að binda. Það hafa verið forréttindi að hafa tengst Siggu fjölskyldu- og vináttu- böndum og ég er stolt af frænd- systkinum mínum þeim Þor- steini og Önnu Lilju, þau bera foreldrum sínum vitni um sam- hent og heiðarlegt uppeldi. Hanna Ingibjörg Birgisdóttir. Ég heyrði fyrst minnst á Siggu á tímum „Piparsveina- félagsins“ á Patró. Það fór ekki framhjá okkur að einn meðlim- anna var farinn að mæna stöð- ugt í norðurátt, til Ísafjarðar þar sem Sigga ólst upp. Eitt leiddi af öðru og innan skamms flutti hún að norðan til Bjössa vestur á Patró. Þau hófu búskap í Króknum í sama húsi og við Halli, um það leyti sem við báð- ar eignumst okkar fyrstu börn. Við áttum því mikla samleið og það var líka auðvelt að tengjast Siggu. Upp frá þessu fléttaðist líf okkar saman öll fullorðins- árin. Vinátta okkar Siggu hefur verið einstök alla tíð síðan. Fyrstu árin með strákana okkar var dásamleg samvera, ungum foreldrum ógleymanlegt ævin- týri. Vináttan og samgangurinn hélst áfram þó að við flyttum í sitt hvorn bæjarendann. Við hittumst oft, aðstoðuðum hvor aðra með allt og ekki neitt og börnin okkar gistu mikið hvert hjá öðru. Fljótlega vorum við einnig komnar saman í slysa- varnafélagið, kvenfélagið, ýmis ráð og nefndir og hvaðeina sem við gátum skipt okkur af. Þegar litið er til baka þá var þetta skemmtilegur tími sem hægt er að vera þakklátur fyrir. Eftir að ég flutti suður breyttist sam- veran en alltaf gáfum við okkur nokkra daga á ári til að vera saman, fyrir utan öll símtölin. Og þegar börnin mín fóru í heimsókn vestur áttu þau vísan stað hjá Siggu og Bjössa, hve- nær sem var. Sigga starfaði alltaf sem snyrtifræðingur en þegar hún vann fór einnig mikill tími í sál- gæsluna og vinskapinn við þá sem sóttu til hennar. Hún gaf mikið af sjálfri sér og stóð vel við bakið á sínu fólki. Alltaf þeg- ar ég þurfti á að halda var hún til staðar fyrir mig, hvort sem þegar sorgin knúði að dyrum eða illa stóð á að öðru leyti. Ég er henni óendalega þakklát fyrir það. Við höfum alltaf „passað“ hvor aðra og því ég er ég jafn þakklát fyrir að hafa fengið að vera með henni í baráttunni síð- astliðna mánuði. Og þessa mán- uði var hún jafn aðdáunarverð sem fyrr, bar sig vel og stund- um miklu betur en efni stóðu til. Jafnvel þegar hún úlnliðsbrotn- aði fékk hún fólk til að dást að fallegu grifflunum fremur en að ræða það sem undir var. Fáir gerðu sér grein fyrir hversu veik hún var síðasta árið því hún hélt uppi húmornum á bið- stofunum, studdi konur í sömu sporum og hvatti þær t.d. til að nota hárkollur, það væri miklu penna en þessir höfuðklútar. Áfram átti hún tíma fyrir aðra, jafnvel fyrir læknanemana á lokametrunum. Og líka fyrir mig – takk fyrir allt. Elsku Bjössi, Þorsteinn, Anna Lilja og fjölskyldur, ég votta ykkur mína innilegustu samúð. Aldís. Miklum eiginleikum varst þú gædd elsku vinkona, jákvæð, glaðvær og réttsýn á lífið sjálft. Þú varst mín fyrirmynd. Ég kynntist þér 1974 og áttum við mikla og góða samleið, okkur leið svo vel nálægt hvor annarri. Þegar þið bjugguð á Patreks- firði brölluðum við ýmislegt saman og gaman er að rifja það upp. Þegar okkur þótti þörf á að taka hreingerningu á heimilum okkar skelltum við okkur saman í hana, því það var miklu skemmtilegra þannig. Skelltum músík á fóninn og sveifluðumst með þveglana í hólf og gólf, það var eins gott að enginn yrði fyr- ir okkur því sveiflan var mikil og heimilisfólkið átti fótum fjör að launa. Einnig tókum við reglulega heilu morgnana í það að baka saman úr miklu magni af hveiti í einu, það var ekkert smá, þetta var eins og í bakaríi. Við fengum alltaf rosalegt hlát- urskast þegar við horfðum á af- raksturinn, hveitikökur, kleinur og kanelsnúðar sneisafylltu els- húsborðið og voru eins og stærsta fjall. Allt rann þetta ljúflega ofan í okkur og okkar fjölskyldur. Ég man þegar við og fjölskyldur okkar fórum sama á Siglufjörð um verslunar- mannahelgi og það hellirigndi á okkur. Þér fannst það nú lítið mál, okkar menn fóru bara út í búð og keyptu helling af bygg- ingarplasti sem var strekkt á milli tjaldanna okkar og fengum við þarna stærðar þurrt partí- pláss og mikið var sungið þar og trallað. Alltaf varst þú tilbúin að aðstoða fólk og ég flutti alltaf til þín með fjölskylduna þegar ég var rekin út úr mínu húsi vegna snjóflóðahættu hér á árum áður þegar við sáum snjó og gerðum við eitthvað skemmtilegt úr þeirri samveru. Þú hafðir mjög góða nærveru og sást alltaf björtu hliðarnar á öllum sköp- uðum hlutum. Í sumar áttum við skemmtilega samveru um sjó- mannadagshelgina á Patreks- firði að ógleymdu frábæru ætt- armóti sem var haldið í Tálknafirði á æskuslóðum fjöl- skyldu eiginmanna okkar. Þið Bjössi voruð þar að sjálfsögðu ásamt fjölskyldu ykkar, hlátur, söngur og gleði réðu þar ríkjum. Við skemmtum okkur líka vel í brúðkaupi dóttur minnar sl. sumar og áttum líka góðar stundir nú í vetur. Það er margs að minnast og minningarnar tekur enginn frá manni. Þú gafst mikið af þér og fólk lað- aðist að þér vegna þess að þú varst svo vel gerð og heilsteypt manneskja. Mikið á ég eftir að sakna þín elsku vinkona og hláturskastanna sem við fengum reglulega. Þú lifðir mjög heil- brigðu lífi og hvattir aðra til þess að hugsa vel um heilsuna og mér finnst mjög óréttlátt að þú hafir fengið þennan illvíga sjúkdóm sem krabbameinið er. Þú varst alltaf ákveðin í því að vinna þá baráttu og varst alveg ótúlega sterk og æðrulaus í þeim slag. Það má segja að þú hafir notað tímann sem þú fékkst mjög vel en fráfall þitt var ekki tímabært. Þú ert örugglega farin að skipuleggja og stússa í mörgum verkefnum þar sem þú ert núna, það er al- veg á hreinu! Elsku Bjössi, Þorsteinn, Anna Lilja og fjölskyldur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Megi Guð styrkja ykkur á þess- um erfiðu tímum. Sólrún Ólafsdóttir. Sigríður vinkona mín hefur nú yfirgefið þennan stað og til- veran hefur skipt um lit, falleg sál er horfin til englanna og englarnir hafa fengið góðan liðs- mann. Sigríður var stórglæsileg kona, tignarleg og bar sig alltaf vel. Hún lifði í núinu og nýtti tækifærin sem gáfust vel. Líf hennar hafði áhrif til góðs, kona sem bar umhyggju fyrir öðrum og sýndi kærleik í verki, enda hafði hún fengið að kynnast sorginni sem fylgdi sonarmissinum og síðan allri baráttunni sem fylgdi hennar eigin veikindum í mörg ár. Sig- ríður kunni listina að hlusta og gefa af sér og var einstaklega gjafmild. Það var alltaf gaman að koma í „Hallargarðinn“ til hennar og njóta samverunnar með léttu spjalli og hlátri. Sigríður hlakkaði til vorsins, þá yrði allt bjartara og betra. Fjölskyldan var henni afar mikils virði og voru þau hennar stoð alla tíð. Blessuð sé minning hennar. Ég votta Birni og fjölskyldu innilega samúð. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afar góð ég alltaf mun þín sakna. (GVG) Valgerður. Sigríður Sigfúsdóttir var fædd og upp alin á Ísafirði. For- eldrar hennar voru hjónin Sig- fús G. Valdimarsson og Guð- björg Þorsteinsdóttir. Þau bjuggu í næsta nágrenni við Al- þýðuhúsið þar sem ég ólst upp. Sigfús var verkamaður hjá Ísa- fjarðarbæ en veitti jafnframt forstöðu Hvítasunnusöfnuðinum. Sigfús var óþreytandi við að boða kristna trú og heimsótti að ég held því sem næst hvert eitt og einasta skip, sem kom til Ísa- fjarðarhafnar og dreifði ritum safnaðarins Sigríður var nokkrum árum yngri en ég. Á barns- og ung- lingsárum er fárra ára aldurs- munur mikil gjá milli barna og unglinga svo ég kynntist ekki Sigríði mikið á Ísafjarðarárun- um en man þó eftir henni. Bróð- ir hennar, Hermann, var mér nær í aldri. Þegar leiðir okkar Sigríðar lágu saman var hún orðin hús- móðir á Patreksfirði og ég kom- inn í framboð fyrir Alþýðuflokk- inn. Sá flokkur stóð sterkum rótum á Patreksfirði. Ömmu- bræður mínir voru þar í forystu framan af 20. öldinni. Um mið- bik þeirrar aldar hófst annað blómaskeið kratanna þegar til Patreksfjarðar fluttist Ágúst H. Pétursson sem á örfáum árum gerði Alþýðuflokkinn að meiri- hlutaafli í hreppnum og var síð- an lengi ýmist oddviti eða sveit- arstjóri í Patrekshreppi. Hann var þar enn í forystu þegar ég kom til leiks árið 1974 en fólk af yngri kynslóð var að taka við. Fremstir í þeim flokki voru Björn Gíslason, eiginmaður Sig- ríðar, Gunnar Pétursson og Guðfinnur Pálsson. Með þeim var hópur hæfileikaríkra karla og kvenna sem er í minni mínu einhver samhentasti hópur vel gerðs fólks, sem ég hef átt þess kost að starfa með. Þeir Björn, Gunnar og Guðfinnur sátu svo allir í sveitarstjórn – Björn lengi oddviti. Hann var jafnframt kjörinn varaþingmaður minn og sat um skeið á Alþingi á árunum 1988, 1990 og 1991. Heimili þeirra Björns og Sig- ríðar var því eitt af þeim heim- ilum vestur á fjörðum þar sem ég var tíður gestur. Þau hjón voru bæði hörkudugleg; Björn umsvifamikill byggingameistari og Sigríður rak snyrtistofu, en hún var snyrtifræðingur. Þau voru höfðingjar heim að sækja. Áttum við félagarnir á Patreks- firði margar ánægjulegar sam- verustundir á heimili þeirra hjóna sem og á heimili þeirra Ágústar og Ingveldar, sem var mitt annað heimili á Vestfjörð- um auk heimilis foreldra minna. Leiðir þeirra hjónanna Björns og Sigríðar lágu eins og margra annarra brott af æsku- slóðum og til höfuðborgarsvæð- isins. Þar hélt Sigríður áfram störfum sem snyrtifræðingur og meistari í þeirri grein. Fáar urðu samverustundir mínar við þau hjón eftir flutninginn. Horf- in að öðrum verkum en fyrrum – þau og ég. Sigríður var glæsileg kona, hávaxin, ljóshærð og bar sig vel. Hún var glaðlynd og hjálpsöm og mikill vinur vina sinna. Höfð- ingleg á að líta. Ég kveð þessa gömlu samstarfskonu og vin- konu með þakklæti og söknuði. Því miður á ég þess ekki kost að vera við útför hennar en sendi vini mínum, Birni, og börnum þeirra hjóna og barnabörnum einlægar samúðarkveðjur. Sighvatur Björgvinsson. Lífið er fljótt, líkt er það elding, sem glampar um nótt, ljósi, sem tindrar á tárum, titrar á bárum. (Matthías Jochumsson) Það er rétt eins og andar- taksstund sé liðin síðan við Sigga Sigfúsar vorum nágrann- ar og vinir á blómaskeiði ævi okkar vestur á Patreksfirði. Það voru góðir tímar og skemmti- legir, tekist var á við mörg verkefni í dagsins önn. Hús- byggingar, félagsstörf, barna- uppeldi og vinna var það sem lífið snerist um. Það var mikill uppgangur í byggðarlaginu en segja má að staðurinn hafi löngum verið mikið menningar- þorp. Unga fólkið var djarft, drífandi og atorkusamt og fullt af góðum hugmyndum. Ég minnist skemmtilegs fé- lagsstarfs sem við tókum þátt í bæði í Málfreyjudeildinni sem var stofnuð á þessum árum, Norræna félaginu og fleirum. Saman vorum við gestgjafar á vinabæjarmótum og fórum á slík mót til Noregs og Dan- merkur. Þau hjón voru skemmtilegir ferðafélagar og hópurinn góður sem þá lagði land undir fót. Það er svo bjart yfir þessum tímum í minning- unni, eiginlega eilíft sumar. Það var alltaf gott að koma á snyrtistofuna til Siggu í róleg- heitin og spjallið bæði fyrir vestan og hér syðra. Stundum var haft á orði að það væri á við að fara til sálfræðings, svo gef- andi, hrein og bein var hún. Eft- ir að við báðar fluttumst suður hittumst við annað slagið og alltaf var jafnnotalegt að koma til Siggu og ræða málin. Á seinni árum hefur það orðið sjaldnar en af tilviljun hittum við þau hjón á leið austur í sum- arbústað ekki fyrir löngu. Það var gott að hitta þau eins og alltaf og var Sigga jákvæð og bjartsýn. En lífið er þannig að stundum dregur ský fyrir sólu. Þau fóru ekki varhluta af sorginni en stóðu keik eftir. Og árum saman hefur Sigga barist við erfiðan sjúkdóm en alltaf sýndi hún ótrúlegt æðruleysi og von í veik- indum sínum. Það er huggun harmi gegn fyrir fjölskyldu og vini að nú er hún laus við þján- ingar þessa heims og er komin þangað sem eilíft sumar ríkir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.