Morgunblaðið - 26.02.2013, Page 31

Morgunblaðið - 26.02.2013, Page 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013 ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, HILMAR KRISTJÁN BJÖRGVINSSON lögmaður og fv. forstjóri Innheimtustofnunar sveitarfélaga, Fögrubrekku 27, Kópavogi, lést á heimili sínu laugardaginn 23. febrúar. Rannveig Haraldsdóttir, Haraldur Arason, Helen Hreiðarsdóttir, Björn Stefán Hilmarsson, Laufey Fjóla Hermannsdóttir, Valdimar Héðinn Hilmarsson, barnabörn og langafabörn. ✝ Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, ODDFRÍÐUR LILJA HARÐARDÓTTIR hjúkrunarkona, Hörðalandi 16, lést á líknardeild Landspítalans aðfaranótt 16. febrúar. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 1. mars kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Karitas hjúkrunar- og ráðgjafarþjónustu. Þórður Guðmannsson, Hörður J. Oddfríðarson, Guðrún Björk Birgisdóttir, Arnar Oddfríðarson, Berglind Rós Davíðsdóttir, barnabörn og bræður hinnar látnu. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR REYKDAL KARLSSON, Grænuhlíð 3, Reykjavík, lést sunnudaginn 24. febrúar á Land- spítalanum í Fossvogi. Sigríður Ólafsdóttir, Jón Þór Gunnarsson, Fríða Ólöf Ólafsdóttir, Skúli Gunnarsson, Ólafur Karl Ólafsson, Lena Friis Vestargaard, Anna María Ólafsdóttir, Heimir Jónsson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Okkar ástkæra móðir og amma, VIKTORÍA HANNESDÓTTIR, lést heima í faðmi barna sinna laugardaginn 16. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Blóm og minningargreinar vinsamlegast afþakkaðar en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarkort Heimahlynningar LSH. Sérstakar þakkir fær starfsfólk 11-B og Heimahlynningar LSH fyrir góða umönnun. Ólafur Geir Guttormsson, Hera Brá Gunnarsdóttir og barnabörn ✝ Elskuleg frænka okkar, ÁSGERÐUR JÓNSDÓTTIR kennari frá Gautlöndum, lést mánudaginn 18. febrúar. Kveðjuathöfn verður haldin í Neskirkju fimmtudaginn 28. febrúar næstkomandi kl. 13.00. Jarðað verður frá Skútustaðakirkju, Mývatnssveit, föstudaginn 1. mars kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á menningar- og friðarsamtök. Systkinabörn og fjölskyldur. ✝ Elskulegur maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, EGILL GR. THORARENSEN, Bólstaðarhlíð 50, Reykjavík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Mörk mánudaginn 18. febrúar, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju fimmtudaginn 28. febrúar kl. 11.00. Ásdís Matthíasdóttir, Grímur Thorarensen, Lilja Andrésdóttir, Egill Thorarensen, Darri Már Grímsson, Kristín Thorarensen, Örn Vigfússon, Guðríður Thorarensen, Þórður Ásgeirsson, Guðlaugur Thorarensen, Gloría Thorarensen, Daníel Thorarensen, Sigurður Thorarensen, Áslaug Guðmundsdóttir. ✝ Við sendum okkar bestu þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURJÓNS SIGURÐSSONAR. Sérstakar þakkir og kveðjur sendum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót í hans garð. Björg Ólafsdóttir, Snorri Sigurjónsson, Anna Birna Ragnarsdóttir, Hrefna Sigurjónsdóttir, Sigurður Snorrason, Kristján Sigurjónsson, Áslaug Óttarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til vina og vandamanna fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSTU BJARNADÓTTUR frá Stað í Steingrímsfirði, til heimilis að Hólagötu 25, Njarðvík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á D-álmu Heilbrigðis- stofnunar Suðurnesja fyrir góða umönnun og hlýju í hennar garð, einnig sendum við innilegar þakkir til 13-G og blóðskilunardeildar Landspítalans. Margeir B. Steinþórsson, Magnús Steingrímsson, Marta Sigvaldadóttir, Bjarni Steingrímsson, Irena Maria Motyl, Kristín Steingrímsdóttir, Árni Magnús Björnsson, Loftur Hilmar Steingrímsson, ömmu- og langömmubörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HJÖRTUR GUÐMUNDSSON frá Djúpavogi áður til heimilis að Hjallabrekku 15, Kópavogi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Mörk föstudaginn 22. febrúar. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju, mánudaginn 4. mars, kl. 13.00. Guðný Erna Sigurjónsdóttir, Ragnheiður S. Hjartardóttir, Þorgeir Helgason, Sigurjón Hjartarson, Kristín Sigurðardóttir, Guðbjörg Lilja Hjartardóttir, Þórður Þórkelsson, Bylgja Hjartardóttir, Hans J. Gunnarsson, Kristín Hjartardóttir, Sigbjörn Þór Óskarsson, Guðmundur Hjartarson, Júlíana Hansdóttir Aspelund, Bjarni Þór Hjartarson, Aðalheiður Una Narfadóttir, Hjörtur Arnar Hjartarson, Lenka Zimmermannová, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Kjartan Ingi-marsson fædd- ist í Reykjavík 2. janúar 1919. Hann lést 12. febrúar síð- astliðinn á Hrafn- istu í Reykjavík. Foreldrar hans voru Sólveig Jó- hanna Jónsdóttir, d. 1982, og Ingimar Ísak Kjartansson, d. 1973. Kjartan var einn af tíu systkinum. Eft- irlifandi systkini hans eru Guð- finna, Þórunn, Kristín, Garðar og Erla. Eiginkona Kjartans var Sigurbjörg Unnur Árnadóttir, f. 9.7. 1921 í Reykjavík, d. 23.7. 1981. Þau eignuðust fimm börn: 1) Þóru, f. 8.5. 1944, maki Guð- mundur Karlsson, d. 30.6. 2010, og eignuðust þau fjögur börn. 2) Ingimar, f. 11.5. 1948. 3) Jón Kristján, f. 23.3. 1953, d. 10.11. stritað við rófurækt í nokkur ár. Fljótlega létu þeir byggja yfir annan vörubíl farþegahús, sem í komust 20 farþegar. Þeir fengu síðan fyrstu rútuna sína afhenta 16. júní 1944 frá Agli Vilhjálms- syni hf. Þeir bræður fluttu fólk á Alþingishátíðina á Þingvöllum 1944, í rútunni. Þar með var hafinn rekstur þeirra bræðra á fólksflutningafyrirtækinu Kjart- an og Ingimar. Lengi vel voru þeir með sérleyfi að Ljósafossi og Miðfelli í Þingvallasveit og sáu um allan akstur að virkj- ununum á Sogni. Þeir sáu gjarn- an um skólaakstur og ófáar voru ferðirnar sem þeir bræður fóru með skátaflokka og skíða- iðkendur. Bræðurnir störfuðu saman til ársins 1965. Í kjölfarið stofnaði Kjartan fyrirtækin Hópferðabíla Kjart- ans Ingimarssonar og Bílaleig- una Aka. Bílaleiguna rak hann og vann þar til vorsins 2008, þá orðinn 89 ára gamall. Hann var þá búinn að vera í bílaútgerð í 71 ár. Útför Kjartans fer fram frá Laugarneskirkju í dag, 26. febr- úar 2013, og hefst athöfnin kl. 13. 2002. 4) Kristin Árna, f. 3.3. 1955, d. 19.9. 2009, maki Guðrún Ágústs- dóttir og eignuðust þau tvö börn. 5) Björgu Vigfúsínu, f. 15.12. 1964, og á hún einn son. Kjartan bjó alla tíð í Reykjavík. Hann ólst upp í Laugarásnum en flutti með konu sinni á Kirkju- teig. Þau bjuggu fyrst á númer 11, síðan byggði Kjartan húsið númer 23 með bróður sínum Ingimar, en árið 1977 flutti fjöl- skyldan að Kirkjuteigi 9. Kjart- an dvaldist tæplega tvö ár á Hrafnistu í Laugarásnum. Kjartan var mikill athafna- maður og vinnusamur. Hann hóf bílaútgerð með bróður sínum, Ingimar, og keyptu þeir saman vörubíl árið 1937 eftir að hafa Elsku afi. Nú hefur þú kvatt þennan heim. Þú hefur átt ynd- isleg ár hér og ég fékk að njóta þeirra með þér. Það eru svo margar minn- ingar sem ég á um þig. Öll sumrin sem við fengum að njóta saman, vorum saman að taka til í garðinum eða þegar ég fékk að koma með þér í vinnuna. Sem barn þótti mér alltaf jafn gaman að fara með þér upp í Gufunes því þá fékk ég að fara út á næturnar og við stálumst til að leyfa mér að stýra bílnum á planinu, þetta var mjög mikið sport fyrir mig. Og ég tala nú ekki um hvað það var alltaf gott að koma og fá súpu og brauð hjá þér á sunnudögum. Ég mun varðveita allar fal- legu minningar okkar í hjarta mínu. Hvíldu í friði, elsku afi. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur) Þín sonardóttir, Sigurbjörg Unnur Árnadóttir. Hópurinn okkar krakkanna í Laugarási við Laugarásveg (nú númer 46) er alltaf að minnka, við vorum 10, en nú eru fimm látin. Stórt skarð er höggvið við það að elskulegur bróðir, Kjart- an Ingimarsson, er fallinn frá. Hann var stuðlabergið í hópn- um sem kom sér áfram í lífinu af dugnaði. Ingimar bróðir og Kjartan komu sér upp fyrirtæki sem var þekkt á Íslandi fyrir áreiðanleg viðskipti og kraft, frumkvöðlar í fólksflutningum. Þar sem ég var litla systir þá var gott að eiga stóra bróður eins og Kjartan sem fór með okkur öll í bíltúra út á land. Það var yndislegt að fara í þessar ferðir og stoppa í laut þar sem allt af öllu var í boði fyrir svanga kroppa, heitt kakó og allskyns meðlæti sem Unnur kona Kjartans útbjó ásamt mömmu og fleirum. Kjartan og Unnur bjuggu á Kirkjuteig þar sem bræðurnir höfðu byggt sér sannkallaða höll, ég var í skólanum hinum megin við götuna þannig að ég hljóp til þeirra í frímínútum og eftir skóla, fékk alltaf góðar móttökur með hlýju og ein- hverju kjarngóðu í mallakút. Eftir því sem árin liðu og ég stálpaðist skildi ég betur hvurs- lags brautryðjandastarf Kjartan var að vinna. Hann reisti stórt verkstæði heima í Laugarási þar sem allur bílaflotinn mætti í viðhald og viðgerðir og ekki var dregið af sér við vinnuna. Mér þótti gaman að hitta bíl- stjórana sem unnu hjá bræðr- unum, oft komu þeir inn í kaffi til mömmu og pabba í eldhúsið og þá var hlegið og spjallað þar sem Kjartan var hrókur alls fagnaðar. Hann var mikill mömmustrákur sem kunni að meta ráðdeild, að fara vel með eins og mamma kenndi okkur krökkunum sem var eini val- kosturinn í stórum barnahóp. Það verður aldrei þakkað það sem Kjartan lagði til, allar veislurnar á Kirkjuteignum, fermingar og afmæli, ekkert skorið við nögl. Sérstaklega er mér minnisstæð brúðkaups- veislan okkar Halla, sem Kjart- an og Ingi héldu okkur af mikl- um rausnarskap, tímamót í lífinu sem aldrei gleymast. Ég kveð þig, elsku bróðir, með söknuði og þökk fyrir kærleik- ann sem ég naut frá þér. Þóra, Lilla og Ingimar, ykkur sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur sem og öðrum aðstand- endum og vinum. Litla systir, 75 ára, Erla Ingimarsdóttir. Einn af mínum bestu vinum til 44 ára er fallinn frá. Honum kynntist ég gegnum Hrafnkel frænda minn, sem hafði um nokkurt skeið dyttað að bíla- flota Kjartans. Í fyrstu vann ég eitthvað smálegt fyrir hann meðan fjölskylda Kjartans bjó á Kirkjuteigi 23. En okkar vin- átta hófst þegar fjölskyldan keypti prestsbústaðinn á Kirkjuteigi 9. Þar hjálpuðumst við að, ásamt mörgum fleiri, við að endurbyggja húsið alveg upp á nýtt. Á þessum árum var mik- il sveifla á mínum manni í orðs- ins fyllstu merkingu. Nýtt íbúð- arhús, nýtt verkstæði á Vagnhöfða 25, rútum fjölgað og margir smærri bílar keyptir. Ég sé Kjartan fyrir mér koma þjótandi með eitthvað sem vant- aði til framkvæmdanna, bíllinn varla stoppaður og hann á hlaupum. Dokað við í smástund og drukkið kaffi með Unni, Kristjáni og mér, segir nokkrar sögur. Unnur lítur á klukkuna og segir: „10 mínútur í Eimskip eða Gufunes, 20 mínútur í Blá- fjöll.“ Þau voru svo samhent og krafturinn svo mikill. Svipaða minningu eiga allir sem kynnt- ust þessum heiðurshjónum. Kjartan var á fullu frá klukkan fimm á morgnana til miðnættis og virtist sjaldan þreyttur. Á hans löngu ævi hefur margt skeð, bæði í sorg og gleði. Mikið reyndi á Kjartan og hans fjölskyldu þegar Unnur dó langt um aldur fram. Kristján sonur þeirra lést árið 2002. Árna son sinn missti hann 2009, hann var giftur Guðrúnu Ágústsdóttur. Árið 2010 missti hann tengdason sinn, mann Þóru. Á kveðjustund er mér þakk- læti efst í huga fyrir að hafa kynnst Kjartani og hans góðu fjölskyldu. Þóra, Ingimar, Lilla og Ingimar Ísak og aðrir að- standendur, megi minningin um Kjartan lifa. Kristinn Guðmundsson. Kjartan Ingimarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.