Morgunblaðið - 26.02.2013, Síða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2013
Fyrir hrun gortuðum við Ís-lendingar óspart af þvíhvað við værum eiginlegaalgerlega framúrskarandi
þrátt fyrir smæðina. Sú hugmynd
gufaði snarlega upp 2008 og hefur
ekki bært á sér síðan. Ég verð þó að
viðurkenna að það örlaði aðeins á
henni hjá mér þegar ég horfði á
stóra svið Borgarleikhússins iðandi
af syngjandi, dansandi og spilandi
fólki á frumsýningu Mary Poppins.
Þegar ég svo velti fyrir mér hvernig
mætti lýsa verkinu fann ég ekkert
betra en orðin: Alger þrusa. Ekki
sérlega háfleygt en nær að mínu
mati samt að miðla tilfinningunni
því ég man varla eftir annarri eins
veislu fyrir augu og eyru á íslensku
leiksviði.
Flestir muna eftir kvikmyndinni
Mary Poppins sem var með fal-
legum söngvum og fantasíum en
einnig óttalega væmin. Söngleik-
urinn á margt skylt við myndina og
boðskapurinn, með sinni nokkuð
fornlegu mynd af stöðu kynjanna,
er svipaður: Að varðveita einlægn-
ina, hlýjuna, hlúa að fjölskyldunni
og lifa þau ævintýri sem hversdags-
lífið er sífellt að bjóða okkur. Fram-
setning söngleiksins er hins vegar
einhvern veginn heilsteyptari og
glæsilegri en myndin eins og hún
hefur varðveist í endurminningunni.
Hér tekst því að miðla efni mynd-
arinnar eins og maður man hana og
bæta einhverju stórfenglegra við.
Sviðsmyndin er margbrotin og
glæsileg. Með myndböndum erum
við sett inn í hverfið í London og
götuna Kirsutrjárunn sem Banks
fjölskyldan býr við. Við fáum síðan
að sjá inn í stofu þeirra, upp á loft
til barnanna og Mary Poppins og
svo einnig niður í kjallara þar sem
eldabuska og þjónn þeirra hjóna
vinna. Síðan á atburðarásin eftir að
leiða okkur í garð með fjölda af
myndastyttum og á húsþök með sót-
urum.
Eins og flestum er kunnugt segir
sagan frá lífi Banks-hjónanna,
barna þeirra og þjónustufólks.
Herra Banks er bankamaður, afar
haminn og stirðlyndur og mikið í
mun að tilheyra heldri borgurum.
Frú Banks er heldur gufuleg og hef-
ur hætt störfum sem leikari til að
sinna börnunum tveimur, strák og
stelpu sem eru snarvitlaus og þurfa
nýja og nýja barnfóstru. Þá eru
þjónustufólkið, eldabuska og þjónn,
svona fremur af verri endanum.
Mikil breyting verður á lífi Banks
fjölskyldunnar og annarra íbúa við
Kirsutrjárunn þegar inn í líf þeirra
kemur hin hálf yfirnáttúrulega
barnfóstra Mary Poppins og með
henni hinn fjölhæfi Bert sem málar
myndir auk þess að vera sótari.
Mary nær strax fullkomnum tökum
á börnunum og þau upplifa ýmis
ævintýri með henni og Bert um leið
og fjölskyldan gengur í gengum
mikla eldraun.
Aðalhlutverkin, Mary Poppins og
Bert, eru leikin, sungin og dönsuð af
þeim Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur
og Guðjóni Davíð Karlssyni. Manni
finnst eins og Jóhanna Vigdís sé
fædd til að taka að sér þetta hlut-
verk og hún er á hárréttum aldri
fyrir það. Hún syngur hér, leikur og
dansar með glæsibrag. Guðjón Dav-
íð fer einnig mjög vel með hlutverk
Berts, dansar vel og þó að ég vissi
að hann gæti sungið finnst mér
koma á óvart hversu vel hann gerir
það. Af öðrum leikurum má nefna
Sigurð Þór Óskarsson sem fór al-
gerlega á kostum sem hinn vit-
granni og seinheppni þjónn Róbert-
son Æ, en líkamstilburðir hans voru
snilldarlegir. Sigrún Edda Björns-
dóttir var líka frábær sem eldabusk-
an Brilla. Halldór Gylfason var finn
sem hinn áhyggjufulli en hamdi fjöl-
skyldufaðir nema hvað hann mætti
stundum skerpa örlítið á framsögn-
inni. Hallgrímur Ólafsson var einnig
skemmtilegur garðvörður. Börnin
stóðu sig vel og ekki verður komist
hjá því að nefna sérstaklega Gretti
Valsson sem hin unga Mikael
Banks. Það er eiginlega eftirtekt-
arvert hvað börn í íslenskum leik-
sýningum leika orðið almennt vel.
Dansarar úr íslenska dansflokknum
sýndu stórkostleg tilþrif, söngvarar
sýningarinnar voru afbragðsgóðir
og hljómsveitin spilaði af mikilli
hind.
Mary Poppins er söngleikur fyrir
alla fjölskylduna og ég mæli ein-
dregið með að öll fjölskyldan fari
saman á sýningu. Það er algert
dauðyfli sem ekki kann að meta
hugmyndauðgina, fyndnina, sönginn
leikinn og dansinn. Þá tel ég að sýn-
ing af þessu tagi sé mjög mikilvæg
fyrir íslensk leikhús. Börn sem upp-
lifa aðra eins veislu í leikhúsi hljóta
að vilja leita þangað aftur.
Að lokum vil ég þó koma með
nokkur gagnrýnisorð um leik-
skrána. Þar hafa stælarnir borið
menn ofurliði þannig að hún er ill-
læsileg á köflum en það er eina
dæmið um að umbúðirnar yfirgnæfi
efnið í tengslum við þessa sýningu.
Alger þrusa!
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Borgarleikhúsið
Mary Poppins bbbbm
Söngleikur byggður á sögum P.L. Tra-
vers og kvikmynd frá Walt Disney.
Handrit: Julian Fellowes, frumgerð
tónlistar og texta: Richard M. Sherm-
an og Robert B. Sherman, ný lög og
textar: George Stiles og Anthony
Drewe.
Meðhöfundur: Cameron Mackintosh.
Upphaflega sett upp af Cameron
Mackintosh og Thomas Schumacher.
Íslenskun á lausu máli og bundnu:
Gísli Rúnar Jónsson, leikmynd Petr
Hloušek, aðstoðarleikstjóri: Hlynur Páll
Pálsson, búningar: María Ólafsdóttir,
lýsing: Þórður Orri Pétursson, hljóð:
Thorbjørn Knudsen, hljómsveitarstjórn:
Agnar Már Magnússon, leikgervi: Árdís
Bjarnþórsdóttir, danshöfundur: Lee
Proud.
Leikarar: Jóhanna Vigdís Arnardóttir,
Guðjón Davíð Karlsson, Halldór Gylfa-
son, Esther Thalía Casey, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson,
Hallgrímur Ólafsson, Hanna María
Karlsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Álf-
rún Örnólfsdóttir, Þórir Sæmundsson,
Margrét Eir Hjartardóttir, Theodór
Júlíusson, Sigríður Eyrún Friðriks-
dóttir, Orri Huginn Ágústsson, Margrét
Eir Hjartardóttir, Áslaug Lárusdóttir,
Rán Ragnarsdóttir, Grettir Valsson,
Patrekur Thor Herbertsson
Leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson.
Frumsýning á stóra sviði Borgarleik-
hússins 22. febrúar.
SIGURÐUR G.
VALGEIRSSON
LEIKHÚS
Leikhúsveisla „Manni finnst eins og Jóhanna Vigdís sé fædd til að taka að sér þetta hlutverk og hún er á hárréttum
aldri fyrir það. Hún syngur hér, leikur og dansar með glæsibrag,“ segir rýnir um frammistöðu leikkonunnar.
100/100
R.Ebert
100/100
Entertainment Weekly
Denzel Washington
Frá Óskarsverðlauna-
leikstjóranum sem
færði okkur Forrest
Gump og Cast Away
– Robert Zemeckis
2 óskarstilnefningar
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
þriðjudagur er tilboðsdagur
Flight Sýndkl.6-9
ZERo DaRk tiRty Sýndkl.6-9
vEsalingaRniR Sýndkl.6-9
laugaRásbíó sýningartímar
“Magnþrungin og
eftirminnileg”
t.v. - bíóvefurinn
h.s.s
-Mbl
Frábær spennumynd byggð á
leitinni af Osama Bin Laden.
m.a. Besta
leikkona
í aukahlutverki
12
12
16
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
óskarsverðlaun
M.a. Besti leikari ársins
daniel day-lewis
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%gLeRAugu SeLd SéR 5%
BORgARBÍÓ nÁnAR Á Miði.iS
nÁnAR Á Miði.iS
þRiðjudAgStiLBOðin
giLdA eKKi Í BORgARBÍÓ
-eMpiRe
tHiS iS 40 KL. 5.40 - 8 - 10.20 12
die HARd 5 KL. 8 - 10 16
HveLLuR KL. 5.40 L
tHiS iS 40 KL. 5 - 8 - 10.45 12
die HARd 5 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
die HARd LÚXuS KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
djAngO KL. 8 16
HvÍti KÓALABjöRninn KL. 3.30 L
LASt StAnd KL. 8 - 10.20 16
HÁKARLABeitA 2 KL. 3.40 L
tHe HOBBit 3d KL. 4.30 12
Life Of pi 3d KL. 5.20 10
“Mögnuð Mynd Í
ALLA StAði”
-v.j.v., SvARtHöfði
Byggð Á SönnuM AtBuRðuM
Yippie-Ki-Y
ay!
jAgten (tHe Hunt) KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
tHiS iS 40 KL. 6 - 9 12
die HARd 5 KL. 10.30 16
KOn-tiKi KL. 5.30 - 8 12
LincOLn KL. 9 14
veSALingARniR KL. 5.50 12
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð