Morgunblaðið - 26.02.2013, Side 44

Morgunblaðið - 26.02.2013, Side 44
ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 57. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Andlát: Þorvaldur Þorsteinsson 2. Elva Brá er týnd 3. „Aðeins of mikið morgunkaffi“ 4. Leynilegur bardagaklúbbur »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM _ Tökur eru hafnar á næstu kvikmynd leikstjórans Baldvins Z, Vonarstræti, en sú verður dramatísk og ætluð full- orðnum ólíkt unglingamynd Baldvins, Óróa, sem hefur gert það gott á er- lendum kvikmyndahátíðum. Handrit Vonarstrætis skrifaði Baldvin með Birgi Erni Steinarssyni og í aðal- hlutverkum í myndinni eru Þorsteinn Bachmann og Þorvaldur Davíð Krist- jánsson, sem hér sjást á tökustað, og Hera Hilmarsdóttir. Stefnt er að því að frumsýna myndina í haust. Tökur hafnar á Von- arstræti Baldvins Z _ Leikkonan Ís- gerður Gunn- arsdóttir birti heldur ófrýnilega ljósmynd af sér á Facebook föstu- daginn sl. og var engu líkara en hún hefði breyst í uppvakning. Í ljós kom að myndin var tekin af henni þegar hún var í hlutverki afturgöngu í breskri spennumynd, Four Walls, sem verið er að klippa þessa dagana. Heldur ófrýnileg Ísgerður á Facebook _ Listamaður listahátíðarinnar Listar án landamæra í ár er Atli Viðar Eng- ilbertsson, myndlistarmaður og rit- höfundur. Munu verk hans prýða allt kynning- arefni hátíð- arinnar og hann mun einn- ig sýna ný verk á hátíðinni sem hefst 18. apríl. Atli Viðar listamaður Listar án landamæra Á miðvikudag Suðvestan 13-18 m/s og éljagangur, en úrkomulítið eystra. Hiti víða 1-5 stig, en sums staðar vægt frost inn til landsins. Á fimmtudag Hæg vestlæg breytileg átt og víða bjartviðri. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, 8-15 m/s. Rigning eða súld víða um land. Heldur úrkomuminna eftir hádegi, en bætir í vind og úr- komu suðvestantil í kvöld. Hiti 5-13 stig, hlýjast norðaustanlands. VEÐUR Gylfi Þór Sigurðsson skor- aði dýrmætt mark fyrir Tottenham þegar liðið sigr- aði West Ham, 3:2, í ensku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu í gærkvöld. Gylfi jafnaði metin í 2:2 áður en Gareth Bale skoraði sig- urmarkið og kom Totten- ham upp fyrir Chelsea og í þriðja sæti deildarinnar. „Það var tími til kominn,“ sagði Gylfi. »1 Gylfi skoraði mikilvægt mark Trausti Stefánsson fór ekki að æfa frjáls- íþróttir fyrr en hann var orðinn 22 ára gam- all, en fram að því vissi hann ekki að hann væri sérstaklega fljótur að hlaupa. Nú er hann í baráttu um að komast á stórmótin og æfir af krafti í Svíþjóð með frjálsíþróttafólki sem er í fremstu röð í Evrópu. »1 Hlaupari sem fór seint af stað en stefnir hátt Akureyringar stöðvuðu langa sig- urgöngu FH-inga í N1-deild karla í handknattleik í gærkvöld og sigruðu þá norðan heiða, 29:24. Ótrúlegar lokatölur litu dagsins ljós í Mos- fellsbæ þegar Haukar unnu Aftureld- ingu 16:13. ÍR-ingar knúðu fram sigur á Valsmönnum, 25:23, og Hlíð- arendaliðið situr því enn á botni deildarinnar. »2-3 Akureyri stöðvaði sigurgöngu FH-inga ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Þegar ég var táningur fór ég á bólakaf í menningarsamskipti við kínverska alþýðulýðveldið á meðan það virtist vera flestum lokað vegna menningarbyltingarinnar,“ segir Arnþór Helgason, sem byrjaði snemma að flytja inn kínversk tíma- rit og hljómplötur og hefur starfað manna lengst sem formaður Kín- versk-íslenska menningarfélagsins. Arnþór hreifst af kínverskri tón- list sem barn. Erindi Stefáns Jóns- sonar fréttamanns um Kína í Ríkis- útvarpinu 1966 urðu sem olía á eld og hann gekk í Kím 1969. Arnþór var kjörinn í stjórn 1974 og hefur verið formaður samtals í ríflega tvo áratugi, 1977-1988, 1995-2006 og frá 2009. Í Eyjapistli tvíburabræðranna Arnþórs og Gísla í útvarpinu á dög- um Heimaeyjargossins mátti gjarn- an heyra kínverska tónlist. Arnþór segir að kínversk menning hafi löngum hrifið sig og nefnir sér- staklega óperutónlist, þjóðlaga- tónlist og byltingartónlist. „Lof- söngvar hafa alltaf heillað mig.“ Árangursríkt starf Kím hefur unnið að því að efla samskipti við Kína á sviði menning- ar og lista. Arnþór segir að upp úr standi árangur starfsins. „Ég minn- ist með mikilli ánægju fjöllistahóps sem kom hingað frá Tianjin 1975 en um 13.000 manns sáu sýningar hópsins.“ Hann segir líka skemmtilegt að hafa átt þátt í því að bjóða ís- lensku tónlistarfólki til Kína. Kím hafi til dæmis skipulagt hljómleikaferð Stuð- manna til Kína 1986, en það hafi verið fyrsta vestræna popp- hljómsveitin sem hafi fengið að spila í Kína eftir að breska hljómsveitin Wham hafi gengið þar berserksgang um þremur árum áð- ur. Arnþór leggur áherslu á að Kím sé ópólitískt félag. Menningar- samskipti eyði tortryggni á milli þjóða og besta leiðin til að koma í veg fyrir mannréttindabrot sé sam- ræður. „Við höldum því fram að með slíkum samræðum holi dropinn steininn.“ Hann áréttar að íslensk lög um til dæmis tryggingar, heil- brigðismál, félagsmál og mannrétt- indamál hafi vakið athygli kín- verskra sendinefnda og Kínverjar hafi tekið mið af þeim við breytingar á eigin félagsmálalögum. „Þannig hafa Íslendingar lagt talsvert mikið til bættra þjóðfélagshátta í Kína.“ Dropinn holar steininn - Hefur átt sam- skipti við Kína í nokkra áratugi Morgunblaðið/Árni Sæberg Leiðtogi Arnþór Helgason hefur verið formaður Kím lengst allra en dr. Jakob Benediktsson gaf tóninn 1953-1975. Í ár verður efnt til veglegrar hátíðar í tilefni 60 ára afmælis Kínversk- íslenska menningarfélagsins, sem var stofnað 20. október 1953. Tón- leikar Caput-hópsins á Myrkum músíkdögum í byrjun mánaðarins mörk- uðu upphaf hátíðarinnar og þátttaka Kínverja í Reykjavík- urskákmótinu í skák er liður í henni. Listakonan Lu Hong verður með sýningu í Ráðhúsinu í júní, kínverskir kvik- myndagerðarmenn taka þátt í alþjóðlegu kvikmyndahátíð- inni í Reykjavík í haust, kínverskur stjórnandi stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands í nóvember og þá leikur fiðlu- leikarinn Li Chunyuan með sveitinni. Caput-hópurinn fer til Kína í maí og hjónin Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau halda þar tónleika í haust. Viðamikil dagskrá á árinu KÍNVERSK-ÍSLENSKA MENNINGARFÉLAGIÐ 60 ÁRA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.