Morgunblaðið - 06.03.2013, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2013
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Stjórnvöld í Norður-Kóreu hóta að rifta á mánudag
vopnahléi sem gert var við grannana í Suður-Kór-
eu árið 1953 eftir þriggja ára, mannskætt stríð.
Ástæða þessara hótana Kim Jong-uns, forseta
Norður-Kóreu, er sögð spenna sem skapast hafi
vegna sameiginlegra heræfinga Suður-Kóreu-
manna og Bandaríkjamanna. Tekið var fram í til-
kynningu stjórnvalda í Pjongjang að beitt yrði
kjarnorkuvopnum ef Bandaríkin hótuðu kjarn-
orkuárás.
Einnig var sagt að heræfingarnar væru „ósvífni
Hóta að rifta vopnahléssáttmálanum
Norðanmenn æfir vegna áætlana Bandaríkjamanna og Kínverja um að
fá öryggisráð SÞ til að herða refsiaðgerðir vegna kjarnorkutilraunanna
og ögrun“, Bandaríkjamenn og
bandamenn þeirra hefðu gert
áætlun um að láta herða refsi-
aðgerðir öryggisráðs Samein-
uðu þjóðanna vegna kjarnorku-
tilrauna norðanmanna.
Kínverjar hafa lengi verið öfl-
ugustu stuðningsmenn ráða-
manna í Pjongjang. En í gær
var skýrt frá því að Kínverjar
hefðu náð bráðabirgðasam-
komulagi við Bandaríkjamenn um drög að tillögu
um hertar refsiaðgerðir í öryggisráði SÞ. Kínverj-
ar hafa ávallt hvatt til varkárni í refsiaðgerðunum.
Kim Jong-un
Þeir óttast mjög umrót á landamærunum að hinni
blásnauðu Norður-Kóreu ef allt fer á versta veg og
stríð hefst á Kóreuskaga.
Tillagan verður sennilega lögð fram á fundi ör-
yggisráðsins fyrir helgina. Enn er óljóst hve harka-
legt orðalagið í henni verður og segja Suður-Kór-
eumenn auk þess að ekki sé búið að ná endanlegu
samkomulagi um efni hennar.
Talið er hugsanlegt að N-Kóreumönnum hafi nú
tekist að minnka kjarnaodda svo mikið að hægt sé
að koma þeim fyrir á eldflaug. Norðanmenn hafa
þegar smíðað öflugar eldflaugar og segjast ráða yf-
ir flaugum sem geti hitt skotmörk í Bandaríkjun-
um.
Fátækt kjarnorkuveldi
» N-Kóreumenn sprengdu í
þriðja sinn kjarnorku-
sprengju 12. febrúar, sú
fyrsta var sprengd haustið
2006.
» Öryggisráðið hefur þegar
fordæmt tilraunina í febrúar.
» Bandaríkjamenn studdu
sunnanmenn í Kóreustríðinu
1950-1953 og misstu yfir 36
þúsund hermenn. Kínverjar
studdu N-Kóreu.
Kona í Moskvu með eins konar helgimynd af einræðis-
herranum Jósef Stalín en í gær voru liðin 60 ár frá því
að hann lést. Á Vesturlöndum er hans einkum minnst
fyrir óstjórnlega grimmd gagnvart pólitískum and-
stæðingum og morð á milljónum saklausra borgara en
í Rússlandi hylla margir hann ennþá. Ráðamenn í
Kreml hafa eftir hrun Sovétríkjanna verið tvístígandi
en nú eru þeir oftast jákvæðir. Er þess nú gjarnan
minnst að hann hafi stýrt baráttunni gegn nasistum
1941-1945.
AFP
Minnast andláts Stalíns
Sagnfræðistofnun í Washington seg-
ir að í ljós hafi komið að nasistar hafi
ekki rekið um 20.000 fangabúðir og
gettó í Evrópu þar sem gyðingar og
fólk af öðru þjóðerni var oft myrt
heldur hafi þær verið minnst 42.000.
Fram kemur í Aftenposten að aðeins
fólk í nágrenni við sumar af minni
búðunum hafi vitað um tilvist þeirra.
Um 15-20 milljónir manna voru í
umræddum búðum og margir voru
myrtir, þar af voru að líkindum um
sex milljónir gyðinga en einnig yfir
milljón Róma-fólks og fjöldi her-
fanga frá Austur-Evrópu og fleiri
svæðum. Flestar búðirnar voru í
Þýskalandi og Póllandi.
Helfararsafnið í Washington hef-
ur staðið fyrir rannsókninni og
verða niðurstöðurnar birtar í sjö
binda riti um gyðingaofsóknir nas-
ista undir stjórn Adolfs Hitlers, tvö
bindi eru þegar komin út. Helstu
heimildarmennirnir eru um 400
fangar sem sögðu frá því hvernig
þeir voru fluttir milli búða þegar
herir bandamanna sóttu fram gegn
Þjóðverjum undir lok seinni heims-
styrjaldar.
„Við fundum m.a. yfir 300 gettó
sem aldrei fyrr höfðu verið skrá-
sett,“ segir Geoffrey Megargee í við-
tali við þýska blaðið Die Zeit. „Einn-
ig voru staðir sem enginn komst
lifandi frá og því gat enginn vitnað
um tilvist þeirra.“
Deilt er um það hve mikið almenn-
ingur í Þýskalandi hafi vitað um
búðirnar, flestir sögðust ekkert hafa
vitað. En starfsbróðir Megargees,
Martin Dean, segir í viðtali við New
York Times að „þrælkunarbúðir,
stríðsfangabúðir og einangr-
unarbúðir“ hafi verið svo margar að
fólk hljóti að hafa vitað hvað nasistar
gerðu við fanga. kjon@mbl.is
Nasistar ráku yfir
40.000 fangabúðir
Tvöfalt fleiri en áður var talið
Hungur Gyðingar í Buchenwald-
fangabúðunum í Þýskalandi.
Þegar um 40% kjörstaða í forseta-
kosningunum í Kenía höfðu sent frá
sér tölur var Uhuru Kenyatta vara-
forsætisráðherra með um 53%
stuðning, aðalkeppinautur hans,
Raila Odinga forsætisráðherra, var
með um 41%. En um 320 þúsund at-
kvæði eða 5% höfðu verið úrskurðuð
ógild, að sögn AFP. Kosningarnar á
mánudag fóru að mestu friðsamlega
fram en margir óttast nú átök.
Keppinautarnir koma hvor úr sín-
um þjóðflokki en eftir kosningarnar
2007 féllu liðlega 100 manns í átök-
um sem aðallega urðu milli ólíkra
þjóða og þjóðarbrota í landinu.
„Þessar kosningar marka vatnaskil
og niðurstöður þeirra munu segja til
um það hvort þjóðin mun halda
áfram að búa í siðmenntuðu ríki,“
sagði í leiðara dagblaðsins Daily Na-
tion. Blaðið bætti við að allir yrðu að
sætta sig við niðurstöðurnar.
Alþjóðasakamáladómstóllinn í
Haag vill rétta yfir Kenyatta vegna
ákæru um glæpi gegn mannkyninu.
Hann er sakaður um að hafa ásamt
öðrum staðið fyrir ofbeldinu árið
2007. kjon@mbl.is
Kenyatta sigur-
stranglegur
Sætir ákæru vegna ofbeldisins 2007
Raila OdingaUhuru Kenyatta
Afdrifaríkt ofbeldi
» Auk þess sem margir dóu
urðu um 600 þúsund manns
að flýja heimili sín eftir kosn-
ingarnar 2007.
» Efnahagur landsmanna varð
einnig fyrir miklum skakkaföll-
um vegna blóðbaðsins.
» Hagvöxtur, sem var yfir 7%
árlega fyrir 2007, hrapaði í
rúm 1% í fyrra. Tekjur af ferða-
þjónustu drógust mjög saman.
Kópavogur 544 5000
Njarðvík 421 1399
Selfoss 482 2722www.solning.is
Smurþjónusta RafgeymarSmáviðgerðir RúðuvökviRúðuþurrkur
JEPPADEKK
ER Í LAGI MEÐ BREMSURNAR?
VIÐ GETUM AÐSTOÐAD!
EINFÖLD ÁKVÖRÐUN
VELDU
ÖRYGGI
FYRIR ÞIG OG ÞÍNA
TILBOÐ
Á BREMSU-
KLOSSASKIPTUM
EF VARAHLUTIR ERU KEYPTIR HJÁ SÓLNINGU
AðeinS kR. 2.000