Morgunblaðið - 06.03.2013, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.03.2013, Blaðsíða 31
Mér er minnisstætt þegar ein stærsta stund okkar í fótboltan- um rann upp á þjóðhátíðardegi okkar 17. júní 2001. Þá vígðum við nýjan völl og glæsilega stúku í Grindavík í fyrsta Evrópuleik okkar á móti FC Vilash frá Aserbaídsjan í Intertoto-keppn- inni. Kvöldið fyrir leik var mót- taka í Gulahúsinu með forráða- mönnum Vilash og sólin hátt á lofti. Þá voru nokkrir stuðnings- menn mættir í stúkuna til að létta af sér spennu. Þar sátu Halldór og bræður hans. Frá fyrsta leik sátum við sam- an í stúkunni í merktum sætum á næstum öllum leikjum Grindavík- urliðsins. Síðasti leikur sem Dóri horfði á úr stúkunni var á móti Val 5. júlí 2012. Eftir það var hann orðinn talsvert veikur og fylgdist með úr fjarlægð. Hann mætti þó á lokahófið og síðasta samkoman sem við fengum að njóta samveru við hann var á árlegri hangikjöts- veislu í desember. Nú er Halldór Sigurðsson kominn á stað þar sem honum mun líða vel. Stað þar sem hann mun örugglega fylgjast með þeim sem honum þótti vænst um. Á komandi árum munum við finna fyrir ástríðunni, baráttuandanum og gleðinni sem alltaf einkenndi Dóra. Hann verður alltaf hluti af knattspyrnusögu okkar Grindvík- inga. Við viljum færa Jónu og fjöl- skyldu okkar bestu samúðar- kveðjur. Þakklæti og virðing er það sem okkur er efst í huga þeg- ar við kveðjum okkar kæra vin. Minningin um góðan félaga mun lifa um ókomna tíð. Jónas Karl Þórhallsson, formaður knatt- spyrnudeildar UMFG . Fallinn er frá góður félagi og vinur, Halldór Sigurðsson. Ég kynntist Dóra fyrst þegar ég fór að vinna í saltfiskvinnslu föður míns, Þorbirni hf. hér í Grindavík, hann var þá verkstjóri hjá Hrað- frystihúsi Grindavíkur og nokkur viðskipti voru á milli fyrirtækj- anna. Strax við fyrstu kynni sýndi Dóri hvaða mann hann hafði að geyma, hann var ákveðinn, traustur og hjálpsamur. Það voru þessi kynni sem urðu svo til þess að Dóri réð sig til Þorbjarnar hf. og við unnum saman við verk- stjórn í fiskvinnslu fyrirtækisins. Á þessum árum var mikið að gera allan ársins hring, fyrst vetr- arvertíð, með miklum afla og mik- illi vinnu fjölmargra starfsmanna, sem komu alls staðar af landinu og einnig erlendis frá. Sumar- vinna var talsverð og í kjölfarið kom síldarvertíðin með enn meiri afla, og enn fleiri starfsmönnum. Það segir sig sjálft að það reyndi á okkur við að skipuleggja vinnuna og fylgja hlutunum eftir. Í öllu þessu starfi var einstaklega gott að vinna með Dóra og okkar sam- skipti byggðust á trausti og sam- stöðu. Eftir áratugar samstarf fór Dóri til annarra starfa, en leiðir okkar áttu aftur eftir að liggja saman og nú síðustu árin höfum við unnið náið saman. Dóri hefur verið aðalverkstjóri í ferskfisk- vinnslu Þorbjarnar hf. og séð um alla framleiðslu og daglegan rekstur ásamt samskiptum við fjölmarga þjónustuaðila vinnsl- unnar. Allir sem unnið hafa með Dóra bera honum vel söguna. Þrátt fyr- ir ábyrgðarmikið starf var stutt í gamansemina hjá honum, hann hafði alltaf frá einhverju skemmtilegu að segja og glettni og saklaus stríðni aldrei langt undan. Það kom fyrir að við ferð- uðumst saman bæði innanlands og utan og heimsóttum viðskipta- vini fyrirtækisins og höfðum mikla ánægju af því. Hann hafði mikinn áhuga á íþróttalífinu hér í Grindavík og fylgdist vel með og var eldheitur stuðningsmaður knattspyrnuliðs UMFG. Við ræddum líka oft um lífið og fólkið norður á Ströndum, en þaðan var Dóri ættaður og þangað hugsaði hann oft. Í vetrarlok á síðasta ári hrönn- uðust óveðursskýin upp, Dóri veiktist skyndilega og við fylgd- umst með baráttu hans við illvíg veikindi, hann missti aldrei móð- inn og sýndi mikið æðruleysi allt til síðasta dags. Nú á kveðjustundu vil ég þakka fyrir góð kynni, vináttu og trú- mennsku og fyrir hönd samstarfs- fólks og vina Dóra hjá Þorbirni hf. senda Jónu, börnum þeirra og öll- um aðstandendum, okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Gunnar Tómasson. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2013 harmi því hér enginn höfðingja liðinn. Fagur var hans lífsdagur, en fegri er upp runninn dýrðardagur hans hjá drottni lifanda. Stríð er starf vort í stundarheimi, berjumst því og búumst við betri dögum. Sefur ei og sefur ei í sortanum grafar sálin, – í sælu sést hún enn að morgni. (Jónas Hallgrímsson.) Árið er 1990 og það er vor. Dráttarskipið Vakur er að ferðbúast í höfninni á Þórshöfn og ungur vélskólanemi fær fregnir af því að það vanti vél- stjóra á skipið í siglingu til Vopnafjarðar með dýpkunar- skipið Gretti í drætti og grjótp- ramma með. Ráðningarsamning- ur var gerður í snarheitum og vinna hófst við að ferðbúa skipin, útbúa dráttartaugar og tóg sem þurfti. Sú vinna stóð langt fram á nótt og þegar við vorum komnir út úr höfninni kom Sigurvin til mín, gaf mér stuttar leiðbeining- ar um vélgæsluna og fór til koju, örþreyttur eftir langan vinnu- dag. Þannig hófust kynni okkar og samstarf sem átti heldur bet- ur eftir að verða lengra. Síðar kom hann til Þórshafnar sem vél- stjóri á aflaskipið Júpíter ÞH 61 og fór þaðan til Vopnafjarðar til hennar Dúu sinnar og starfaði þá sem yfirvélstjóri á eldra Sunnu- berginu. Þegar Sunnuberg NS 70 kom til landsins gerðist Sig- urvin yfirvélstjóri á skipinu og markaði skipið nokkur tímamót í atvinnusögu Vopnfirðinga, stórt og vel búið skip með kælikerfi sem styrkti stoðir landvinnslu uppsjávarfisks á staðnum. Fljót- lega eftir komu skipsins til lands- ins fór ég að leysa þar af og varð þar síðar vélstjóri í fáein ár. Gott var að vinna með Sigurvin. Hann hélt ró sinni þó að mikið gengi á og lét sér ekki bregða þó að eitt- hvað bjátaði á með vélbúnað skipsins. Mér er það mjög minn- isstætt hvað Sigurvin var ramm- ur að afli. Eitt sinn var ég að brasa við að ná öxli úr vírastýri, búinn að koma keðjutalíu fyrir og þá stóð allt fast, sama hvað tekið var á því. Má ég aðeins sjá, sagði þá Sigurvin. Vatt hann keðjunni um aðra höndina og kippti snöggt í. Var þá allt laust og Sigurvin brosti sínu góðlátlega brosi sem náði til augnanna. Þannig minn- ist ég vinar míns, með hlýju og þökk. Kæra Dúa. Við Jóhanna vott- um þér okkar dýpstu samúð. Af- komendum og aðstandendum öðrum votta ég samúð einnig. Guðmundur Vilhjálmsson. Mig langar í fáeinum orðum að minnast tengdaföður míns Hjart- ar Guðmundssonar. Ég kynntist honum fyrst þegar þau hjónin fluttu frá Djúpavogi í Kópavoginn sumarið 1982. Fjölskylda Hjartar flutti nokkrum sinnum búferlum í gegnum tíðina. Ég efast um að margir geti státað af því að eiga átta börn og hafa eignast tvö börn á hverjum stað sem þau bjuggu. Tvö elstu börnin fæddust á Eyr- arbakka, æskustöðvum Eddu þar sem þau hjónin kynntust og stofn- uðu sitt fyrsta heimili. Næstu tvö börnin fæddust í Kópavogi, þá tvö í Keflavík og loks tveir yngstu synirnir á Djúpavogi, æskuslóð- um Hjartar. Þegar þau fluttu í Kópavoginn aftur voru yngstu synirnir fermd- ir og farnir að huga að framhalds- skóla og eldri börnin flutt til Reykjavíkur. Því togaði borgin í þau og ákveðið var að flytja í bæ- inn. Þau bjuggu sér fallegt heimili í Hjallabrekkunni og við hjónin eignuðumst okkar fyrsta heimili á neðri hæðinni hjá þeim. Börnin okkar sóttu mikið upp til ömmu og afa og var góður samgangur á milli okkar. Betri nágranna var ekki hægt að hugsa sér en hin ljúfu hjón, Hjört og Eddu. Alltaf var gott að leita til þeirra. Á heim- ili þeirra var mikið líf og fjör og iðulega margt um manninn, enda samheldnin mikil í fjölskyldunni. Heimilið var prýtt fallegu steinasafni, steinum sem Hjörtur hafði sjálfur safnað í mörgum ferðum sínum um fjöllin í ná- grenni Djúpavogs. Einn af hans stærstu og fegurstu steinum er á Náttúruminjasafni Íslands. Úti- vistaráhuginn var mikill hjá Hirti og þegar þau hjónin byggðu sum- arbústað gekk hann um holt og hæðir, mela og móa og spáði í steina og jurtir. Alltaf var nota- legt að koma til þeirra í bústaðinn, þar sem margt var brallað og mik- ið hlegið. Hjörtur talaði aldrei illa um nokkurn mann og hann hélt góða skapinu og húmornum þrátt fyrir veikindin sem ágerðust og lögðu hann að lokum að velli. Hjörtur hefur verið börnum sínum og barnabörnum góð fyrirmynd og við minnumst hans af hlýju og góðum hug. Kristín Sigurðardóttir. Hver er þessi stelpa? spurði Hjörtur mágur minn glettinn á svip þegar ég 12 ára bað hann um að gefa mér og vinkonu minni í næsta húsi fyrir bíómiða á þrjú bíó í Bjössabíó Keflavík. Svona var Hjörtur í reynd, hafði gaman að segja sögur af mönnum og málefnum, og oftar en ekki var mikil húmor í sögunum. Í dag kveðjum við Hjört sem er látinn eftir erfið veikindi til nokkra ára. Ég kynntist honum Hjörtur Guðmundsson ✝ Hjörtur Guð-mundsson fæddist á Steins- stöðum á Djúpa- vogi 10. janúar 1934. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Mörk 22. febr- úar sl. Útför Hjartar fór fram frá Kópa- vogskirkju 4. mars 2013. fyrst á Eyrarbakka þar sem hann var kaupfélagsstjóri og systir mín Edda og hann fóru að búa saman og elstu tvö börnin fæddust. Síð- an fór hann til Kefla- víkur og var ég þar hjá þeim nokkur sumur, átti að vera barnapía en það var nú ekki mikið á mig að stóla í þeim efnum þar sem mikið var um að vera í Keflavík á þessum árum fyrir ungan dreng. Eftir verslunarstörf í Keflavík og Reykjavík lá leiðin hjá þeim austur á heimaslóðir Hjartar á Djúpavogi þegar hann gerðist kaupfélagsstjóri þar til næstu fimmtán ára. Þar var hann á heimavelli og kaupfélagið var allt í öllu þar, meðal annars var byggt nýtt frystihús og skuttogari keyptur. Og var ég hjá þeim um tíma að vinna á síldarplani, og var það ógleymanlegur tími. Hjörtur hafði gaman af að veiða lax á sínum yngri árum, einnig hafði hann gaman af fjall- göngu og annarri útivist. Eftir að Hjörtur hætti sem kaupfélags- stjóri á Djúpavogi fór hann að vinna á Fiskistofu og líkaði honum þar vel því þar var hann í tengslum við sjávarútveginn þar sem hann þekkti vel til, var hann þar til hann hætti að vinna vegna aldurs. Eddu og Hirti er gefið mikið barnalán og eiga þau 8 mannvæn- leg börn, sem öll eru gift og eiga börn og barnabörn. Ég held að stórfjölskyldan telji nú um 40 manns. Um leið og við Tobba vottum Eddu, börnum,tengdabörnum, barnabörnum og barnabarna- börnum, systkinum og öðrum ætt- ingjum og vinum, okkar dýpstu samúð, vil ég að leiðarlokum þakka Hirti fyrir allt það góða sem hann gerði fyrir mig og mína. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem.) Valdimar Sigurjónsson. Elsku besti afi okkar, nú er komið að kveðjustund. Þegar við hugsum til baka koma upp marg- ar yndislegar minningar um þig, sem gaman er að rifja upp. Afi var alltaf að brasa eitthvað og þá sérstaklega í steinunum sín- um. Hann átti stórt steinasafn í Hjalló sem fyllti skrifstofuna og miklu meira til, enda var alltaf far- ið þangað að dást að steinunum í hverri heimsókn. Við nutum þess að hlusta á hann segja okkur frá þeim, en hann gat vakið áhuga allra á steinum. Skemmtilegt er að minnast þess að í einni utan- landsferðinni var afi tekinn í toll- inum, enginn skildi hvers vegna það pípti svona á hann; kom svo í ljós að vasar hans voru fullir af steinum sem hann hafði safnað í ferðinni. Afi var alltaf svo uppátækja- samur og sérstaklega þegar kom að matvenjum en þær voru mjög frumlegar. Við öllum eigum minn- ingar um gistinætur í hlýjum faðmi ömmu og afa í Hjalló. Á morgnana sat afi klæddur rönd- óttu náttfötunum sínum að blanda ótrúlegustu fæðu út í grautinn sinn. Í einni útilegunni skellti hann svo krækiberjum á borgarann sinn, en hann var ekki kallaður afi blandari fyrir ekki neitt. Það var alltaf jafn yndislegt að fara með ömmu og afa upp í bú- stað. Þar var ýmislegt brasað með afa, allt frá því að smíða, fara í göngutúra, tína ber og fara í sund. Afi hafði gaman af útivist og hreyfingu og var alla tíð mjög hraustur. Hann var barngóður og var alltaf til í að kenna manni nyt- samlega hluti, hvort sem það var umhverfið, mannganginn eða eitthvað annað sniðugt. Maður fór alltaf fróðari frá honum en til hans. Þú varst alltaf svo hress og stutt í húmorinn hjá þér, manni leiddist aldrei í kringum þig. Það var alltaf svo gott að koma til þín og ömmu í huggulegheitin í Hjalló. Þið amma fylgdust að í gegnum súrt og sætt í rúmlega 57 ár og þrátt fyrir það voruð þið alltaf jafn ástfangin. Þið eruð fyr- irmynd okkar allra í ástinni, stóð- uð alltaf við bakið á hvort öðru og gáfust aldrei upp. Við eigum svo margar ljúfar minningar frá ykk- ur, til dæmis þegar við sáum ykk- ur dansa saman þegar þið hélduð að enginn sæi til. Við erum ótrúlega heppin að hafa fengið svona kærleiksríka og yndislega afa og ömmu sem tóku okkur alltaf opnum örmum og voru svo góð við okkur. Fann ég á fjalli fallega steina faldi þá alla, vildi þeim leyna, huldi þar í hellisskúta heilla steina, alla mína unaðslegu óska steina. Langt er nú síðan leit ég þá steina lengur ei man ég óskina neina er þeir skyldu uppfylla um ævidaga ekki frá því skýrir þessi litla saga. Gersemar mínar græt ég ei lengur, geti þær fundið telpa eða drengur silfurskæra kristalla með grænu og gráu gullna roðasteina rennda fjólubláu. (Hildigunnur Halldórsdóttir.) Þegar erfiðleikar og ótti steðja að, munum við ávallt finna frið því afi á himnum vakir yfir okkur. Við lofum að passa vel upp á ömmu. Blessuð sé minning þín elsku afi, þín verður sárt saknað en við vitum að nú ertu kominn á betri stað. Minningin um þig mun lifa í hjörtum okkar allra að eilífu. Þín barnabörn og barnabarnabörn, Sigrún Erna, Edda Björk, Þórkell, Hjörtur Helgi, Hlyn- ur Þráinn, Íris Dögg, Birkir Fannar, Valdís Björk, Erna Rós, Gyða Marín, Gunnar Karl, Snæfríður, Björk, Guðný Erna, Sóllilja, Baldur, Kristján Örn, Þórður Björg- vin, Hjörtur Ívan, Arnar, Ernir, Ragnheiður Margrét, Ólafur Þór, Gabríel Ingi, Bjarki Þórður, Þorgeir Daði, Birkir Máni. ✝ Ástkær frændi okkar, HELGI JÓNSSON frá Reykjanesi, Hlíðarvegi 29, Kópavogi, sem lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 25. febrúar, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju föstudaginn 8. mars kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, María Jónsdóttir, María Haraldsdóttir, Sigurlaug E. Rögnvaldsdóttir. ✝ Ástkæra eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MATTHEA K. GUÐMUNDSDÓTTIR, Laugarnesvegi 87, andaðist á heimili sínu laugardaginn 2. mars. Útför hennar verður gerð frá Langholtskirkju mánudaginn 11. mars kl. 13.00. Ingimar Einarsson, Guðrún Katrín Ingimarsdóttir, Ásgeir Helgason, Jóhanna Sigrún Ingimarsdóttir, Marinó Flóvent, barnabörn og langömmubörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, ÁRNI VILHJÁLMSSON, fyrrv. prófessor, Hlyngerði 10, Reykjavík, lést þriðjudaginn 5. mars. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ingibjörg Björnsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR INGÓLFUR ÁGÚSTSSON múrarameistari, Sóleyjarima 3, lést á Landspítalanum föstudaginn 1. mars. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 11. mars kl. 15.00. Anna Jónsdóttir, Ómar Óskarsson, Ásdís Petra Kristinsdóttir, Ósk Óskarsdóttir, Númi Björnsson, Kristín Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.