Morgunblaðið - 06.03.2013, Síða 38

Morgunblaðið - 06.03.2013, Síða 38
AF ÚTRÁS Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Mér brá í brún þegar Sig-tryggur Baldursson, sámikli höfðingi, birtist á sjónvarpsskjánum hjá mér í fásinn- inu á Kjalarnesi á dögunum og upp- lýsti að tónleikahald Íslendinga á er- lendri grundu myndi ná áður óþekktum hæðum í mánuðinum, hátt í tvö hundruð gigg væru fyrir- huguð. Sigtryggur er alltaf svo sposkur á svipinn þegar hann birtist þjóð sinni á skjánum að maður getur aldrei verið alveg viss um að hann sé ekki að grínast. Svo var ekki, Sig- tryggi var fúlasta alvara. Það staðfestir eftirfarandi klausa á heimasíðu Útflutnings- skrifstofu íslenskrar tónlistar en Sigtryggur er einmitt fram- kvæmdastjóri hennar: „Nú er svo komið að nýtt met hefur verið sett í tónleikahaldi ís- lenskra tónlistarmanna á erlendri grundu og í marsmánuði eru fyr- irhugaðir 187 tónleikar með íslensk- um flytjendum erlendis og þá eru ekki taldir tónleikar þar sem ís- lenskir óperusöngvarar eru að syngja í tónleikahúsum þar sem þeir eru ráðnir og fleira slíkt heldur að- allega flutningur á frumsaminni tón- list erlendis.“    Þetta verður að teljast meðnokkrum ólíkindum en í máli Sigtryggs kom fram að gott hefði þótt þegar yfir sjötíu tónleikar ís- lenskra listamanna voru haldnir er- Útlendingum sendur tónninn Morgunblaðið/Eggert Málmur Sólstafir eru í vöskum hópi íslenskra hljómsveita og tónlistarmanna sem gera víðreist í marsmánuði. lendis í einum mánuði síðasta sumar. Tónleikarnir fara fram hér og þar og á morgun, fimmtudaginn 7. mars, verður hægt að sjá hvorki fleiri né færri en átta íslenskar hljómsveitir og/eða sólólistamenn á sviði í útlöndum. Sam Amidon í Sid- ney, Ástralíu; Pascal Pinon í Stutt- gart, Þýskalandi; Muck í Oklahoma City, Bandaríkjunum; Blásarakvint- ett Reykjavíkur í New York, Banda- ríkjunum; Sólstafi í Leipzig, Þýska- landi; Mugison, Of Monsters and Men og Sigur Rós í Lundúnum, Englandi. Tveir fyrrnefndu verða í O2 Shepherd’s Bush Empire en Sig- ur Rós í Brixton Academy. Af öðrum listamönnum sem verða á faraldsfæti í mánuðinum má nefna Björk, Sunnu Gunnlaugs, Ás- geir Trausta, Kira Kira, Svavar Knút, Snorra Helgason, GusGus, Sykur, Önnu Þorvaldsdóttur, End- less Dark, Orgelkvartettinn Apparat og Retro Stefson. Eins og sést á þessari upptaln- ingu er breiddin mikil, allt frá vin- sælustu hljómsveitum og listamönn- um landsins yfir í aðila sem minna hefur farið fyrir hér heima. Persónulega gleðst ég mest yfir útrás málmverjanna í hópnum, svo sem Muck, Endless Dark og Sól- stafa. Á útgáfutónleikum síðast- nefndu sveitarinnar vegna plötunnar Svartra sanda í Gamla bíói fyrir ári sagði Aðalbjörn Tryggvason, söngv- ari og gítarleikari, sem frægt er: „Við erum þungarokksband sem enginn hefur komið að sjá – nema í útlöndum.“    Mikið til í því en auk Þýska-lands leika Sólstafir í Tékk- landi, Frakklandi, Ungverjalandi, Austurríki, Sviss, Lúxemborg, Belg- íu, Bretlandi og Hollandi áður en mars er á enda. Enginn er víst spá- maður í sínu föðurlandi. Tónleikar Sigur Rósar og Bjarkar í útlöndum sæta vitaskuld engum tíðindum, stærri frétt þegar þau koma fram hér heima. Einnig er gaman að sjá Ásgeir Trausta á listanum en hann tók ís- lenska tónlistarsenu með trompi í fyrra. Fróðlegt verður að sjá hvern- ig Bandaríkjamenn taka honum. Þá hyggst Svavar Knútur ylja Texasbúum með söng sínum og hlýju. Það hlýtur að ganga vel, margt bandarískt við Svavar. » Við erum þunga-rokksband sem enginn hefur komið að sjá – nema í útlöndum. 38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2013 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Colin Stetson hefur starfað með mörgum heimskunnum tónlistarmönnum og hljóm- sveitum á undanförnum árum auk þess að vinna að eigin tónlist og gefa út sólóplötur. Meðal þeirra sem Stetson hefur leikið með eru Arcade Fire, Tom Waits, Bon Iver (hann er einn liðsmanna þeirrar hljómsveitar), LCD Soundsystem, David Byrne og Godspeed You! Black Emperor. Stetson hefur gefið út fjórar sólóplötur og í fyrra gaf hann út plötu í sam- starfi við sænska saxófónleikarann Mats Gust- afsson. Fimmta sólóplata Stetson er svo vænt- anleg 30. apríl. Hljóðin sem Stetson nær að galdra úr hljóðfæri sínu eru æði mögnuð (þeir sem vilja tóndæmi eru hvattir til að leita Stet- son uppi á myndbandavefnum YouTube) og má því búast við því að tónleikar hans á Volta við Tryggvagötu, 17. mars, verði forvitnilegir. Stetson er fæddur og uppalinn í Ann Arbor í Michigan og hóf tónlistarnám tíu ára gamall. Í fyrstu lærði hann á altsaxófón og síðar á fleiri gerðir hljóðfærisins og klarinett, franskt horn, þverflautu, trompet og önnur blásturshljóð- færi. Bassasaxófóninn tók hann sér í hönd öllu síðar, árið 2005, enda ekki hlaupið að því að leika á það hljóðfæri. „Ég vissi að það yrði erf- itt að spila á hann en ég varð sannarlega hissa á því hversu miklu erfiðara er að spila á hann en barítónsaxófóninn, til dæmis. Það er óskap- lega erfitt líkamlega,“ segir Stetson. -Þú þarft þá væntanlega að vera í góðu formi, líkamlega sterkur? „Já, ég reyni að vera það.“ Spurður að því hvort hann sé með sérstakan stíl sem bassasaxófónleikari segir Stetson svo ekki vera, það sé í raun ekkert nýtt við það hvernig hann leiki á hljóðfærið. Hann beiti sömu aðferðum og slíkir hljóðfæraleikarar hafi gert um áratugabil. Hvað tónlistarsköpun varðar segist Stetson sækjast eftir því sama og aðrir tónlistarmenn, að tónlist hans sé að ein- hverju leyti frábrugðin tónlist annarra. Lærdómsríkt að vinna með Waits -Nú hefurðu starfað með mörgum heims- kunnum tónlistarmönnum. Hefur einhver þeirra veitt þér meiri innblástur en aðrir, ein- hver sem þú hefur lært mikið af? „Tja, maður lærir ólíka hluti við hverjar að- stæður fyrir sig,“ svarar Stetson. „En jú, ég hef lært mikilvæga hluti af mörgum þeim sem ég hef unnið með, sérstaklega Tom Waits sem ég vann með fyrir tíu árum,“ bætir hann við. Hann hafi lært af Waits að losa sig við egóið þegar komi að því að semja og flytja tónlist, að tónlistin snúist um persónuleika og myndir m.a. og að hún verði að eiga sér sjálfstætt líf. Tónlistin þurfi ekki að eiga rætur í lífsreynslu eða persónuleika skapara síns. „Það er ekki annað hægt en að læra eitthvað af þeim tón- listarmönnum sem maður dáir og þeirri tónlist sem maður hrífst af,“ bætir Stetson við en hann leikur á þremur plötum Waits: Blood Money, Alice og Orphans: Brawlers, Bawlers & Bastards. -Nú er bassasaxófónninn ekki dæmigert rokkhljóðfæri. Eru margir bassasaxófónleik- arar í rokkinu? „Nei, það held ég ekki. Þeir eru líklega fleiri nú en áður var. Ég hef séð nokkra skjóta upp kollinum á síðustu árum og er viss um að þeim mun fjölga. En þetta er ekki aðeins erfitt hljóðfæri að leika á heldur líka erfitt að ferðast með. Það eru ýmsar ástæður fyrir því að menn nota það ekki meira,“ svarar Stetson. Hljóm- urinn sé það sérstakur að hljómsveitir verði að sækjast sérstaklega eftir honum og vera vissar um að hann falli að þeirra hljóðheimi. Hljóðfæri sem reynir á  Bandaríski saxófónleikarinn Colin Stetson heldur tónleika á Volta 17. mars næstkomandi Ljósmynd/Robert Nethery Eftirsóttur Saxófónleikarinn Colin Stetson hefur leikið með mörgum heimskunnum hljómsveit- um og tónlistarmönnum, m.a. Tom Waits, David Byrne, Laurie Anderson og Arcade Fire. Vefsíða Stetson: colinstetson.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.