Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 7. M A R S 2 0 1 3
Stofnað 1913 72. tölublað 101. árgangur
FURÐULEGUR,
SVITABLAUTUR
DRAUMUR
SPORÐAKÖST
HVALA HEILLA
FERÐAMENN
SKÓLI REISTUR
MEÐ BERUM
HÖNDUM
HVALASKOÐUN Í SÓKN 6 FÁTÆK BÖRN GLÖDD 10AF LEIKHÚSI 46
Morgunblaðið/Ómar
Verslun Íslendingar halda minna eftir af
launum sínum en þeir gerðu árið 2000.
Skattar á einstæða foreldra á Ís-
landi með tvö börn hækkuðu úr
5,7% árið 2000 í 20,6% árið 2012.
Þar af hækkuðu þeir um 8,5 pró-
sentustig á árunum 2009 til 2012 er
hlutfallið fór úr 12,1% í 20,6%.
Þetta kemur fram í nýjum tölum
Efnahags- og framfarastofnunar-
innar, OECD, í París, en hér er mið-
að við einstæða foreldra sem hafa
67% af meðallaunum hjá sama við-
miðunarhópi í einkageiranum.
Skattar á þennan hóp voru að
meðaltali 18,7% hjá OECD árið
2000 en lækkuðu svo í 15,5% árið
2009. Þeir hækkuðu síðan í 16,8%
2012. Skattarnir eru fundnir út
með því að leggja saman skatta og
opinber gjöld. Skattar á fleiri hópa
hafa hækkað á Íslandi. »4
Skattar á einstæða
foreldra hækka mik-
ið á rúmum áratug
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ég stefni að því að þinginu verði
slitið á morgun,“ sagði Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir, forseti Al-
þingis, á tólfta tímanum í gærkvöldi.
Halda átti þingfundi áfram fram á
nótt og ljúka þinginu í kvöld, eftir að
ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan
virtust hafa náð saman um þinglok.
Þegar Morgunblaðið fór í prentun
sögðu þingmenn að allt stefndi í sam-
komulag þar sem kveðið er á um að
frumvörp um uppbyggingu á Bakka
verði afgreidd og að greidd verði at-
kvæði um eina af þrem tillögum í
stjórnarskrármálinu. Er þar um að
ræða tillögu sem gerir kleift að
breyta stjórnarskránni á næsta kjör-
tímabili án þess að rjúfa þing. Til
þess að stjórnarskrárbreyting nái
fram að ganga þarf atkvæði 42 þing-
manna og að a.m.k. 40% atkvæða-
bærra manna, þó alltaf meirihluta
greiddra atkvæða, til að samþykkja
breytingar í þjóðaratkvæði.
Gildistökunni frestað
Þá áttu náttúruverndarlög ekki að
taka gildi fyrr en næsta ár. Jafn-
framt áttu lög um Landspítalann
ekki að taka gildi fyrr en í haust en
þau varða útfærslu á framkvæmd við
byggingu nýs spítala. Þá átti að setja
frumvörp um stjórn fiskveiða, vatna-
lög og fleiri til hliðar.
Ásta Ragnheiður gagnrýnir Birg-
ittu Jónsdóttur, þingmann Hreyfing-
arinnar, fyrir að birta upplýsingar af
fundi formanna flokkanna í gær-
kvöldi á Facebook-síðu sinni. Vörð-
uðu þær stjórnarskrármálið. Efni
fundarins hafi verið trúnaðarmál.
Loks hillir undir þinglok
Stjórnarskrármálið og uppbygging á Bakka hluti af samkomulagi um þinglok
Stefnt að því að ljúka þingfundi í dag Ýmis stjórnarfrumvörp sett til hliðar
Morgunblaðið/Kristinn
Á Alþingi Sigurður Ingi Jóhannsson hlýðir á flokksbróður sinn, Ásmund Einar Daðason, úr stól forseta Alþingis. Sigurður Ingi er 4. varaforseti Alþingis.
Vinsæl Diana Damrau kemur fram í
helstu óperu- og tónleikahúsum.
Þýska sópransöngkonan Diana Dam-
rau kemur fram á tónleikum í Eld-
borgarsal Hörpu 2. júní næstkom-
andi, ásamt kunnum hörpuleikara,
Xavier de Maistre. Tónleikarnir eru á
dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Á
fyrri hluta þeirra verða flutt ljóð eftir
Schubert, Tárrega og Strauss en eftir
hlé valdar perlur franskra ljóðatón-
bókmennta.
Damrau er ein af skærustu stjörn-
um óperusviðsins um þessar mundir.
Hún hefur jafnframt lagt mikla rækt
við ljóðasöng og hefur verið kölluð
„drottning kóloratúr-söngs“ í dag.
Hún er sögð búa yfir einstakri söng-
tækni og mikilli útgeislun á sviði.
Fjöldi geisladiska hefur komið út með
söng hennar, meðal annars í sam-
starfi við de Maistre, en tónleikarnir
hér eru liður í tónleikaferð þeirra.
Hanna Styrmisdóttir, listrænn
stjórnandi Listahátíðar, segir
ánægjulegt að vera að kynna þátttöku
Damrau á Listahátíð á sama tíma og
fjölmiðlar heimsins ausa söngkonuna
lofi fyrir söng hennar sem Víoletta í
La traviata á sviði Metropolitan-
óperunnar, þar sem hún syngur á
móti Placido Domingo.
Damrau syngur á Listahátíð
Hin heimskunna sópransöngkona með tónleika í Hörpu
Ljósmynd/Michael Tammaro
„Á fimmtudag
og föstudag
verða suðaust-
lægar áttir og
skúrir, sérstak-
lega sunnan- og
vestantil. Á
föstudag má svo
búast við snjó-
komu á Vest-
fjörðum. Síðan
fer þetta enn
frekar batnandi.
Hæg austlæg átt á laugardag og
stöku él, einkum áfram sunnan- og
vestantil en annars bjartviðri. Á
sunnudag og mánudag verður svip-
að en fer hlýnandi,“ segir Einar
Magnús Einarsson veðurfræðingur.
Suðaustlægar áttir
og fer hlýnandi
Skíði Margir ætla á
skíði um páskana.
„Á venjulegum degi fáum við tíu til
tólf þúsund heimsóknir á síðuna en
þær hafa farið upp í 60 þúsund í dag,“
segir Sigurrós Jónsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Mílu, um heimsóknir á
heimasíðu þeirra í gær til að sjá
Heklu í beinni útsendingu í framhaldi
af fréttum um jarðhræringar í eld-
fjallinu. „En þetta eru aðallega ís-
lenskar heimsóknir svo það er greini-
legt að margir fara oft inn að kíkja,“
segir Sigurrós og bætir við: „Þetta er
mjög skemmtilegt og við erum með
mjög gott sjónarhorn á fjallið í beinni
sjónlínu. Ef þetta verður túristagos
mun þetta koma
vel út.“
Á vef mbl.is í
gær voru óvenju-
margar flettingar
á frétt frá árinu
2000 um að eldgos
í Heklu væri haf-
ið. Fréttin var
næstmest lesna
fréttin á vefnum í gær og skýringin
líklega sú að henni var deilt mjög víða
á Facebook með þeim afleiðingum að
margir fóru inn á hana án þess að átta
sig á aldri fréttarinnar. »2
60.000 skoðuðu Heklu í
vefmyndavél Mílu í gær