Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Verkfræðistofan Efla hefur sótt um
styrk til Viðlagatryggingar Íslands
til að útfæra mögulegar lausnir á
sjóflóðavörnum í Kvosinni í miðbæ
Reykjavíkur. Reynir Sævarsson,
byggingarverkfræðingur hjá Eflu,
segir flóðahættu á svæðinu hafa
verið í skoðun í mörg ár, enda liggi
það lágt og hafi a.m.k. einu sinni
farið undir sjó, í Básendaflóðinu
1799.
Hann segir hægara sagt en gert
að ætla sér að skera miðborgina
sundur með varnargörðum en að
hugsanlega megi nýta eldri bygg-
ingar, og þær sem enn liggja á
teikniborðinu, til þess að varna
ágangi sjávar ef til flóðs kæmi.
„Þetta svæði nær, má segja, frá
Seðlabankanum og að Slippnum;
þar er þetta op í landslaginu þar
sem Kvosin er opin fyrir hafi. Í dag
eru þarna Tollhúsið og fleiri bygg-
ingar, sem hugsanlega mætti nýta
sem varnir,“ segir Reynir en ýmsar
lausnir komi til greina.
Flóðbylgja eða djúp lægð
„Þetta gæti að hluta til verið
veggur þar sem skipin leggjast að
en svo er líka til í dæminu að bregð-
ast við þegar spáir svona löguðu og
setja þá upp lokanir á milli húsa eða
veggja. Það er gert víða um heim
þar sem stórar ár flæða reglulega,
t.d. í Mið-Evrópu,“ segir hann.
Reynir segir rannsóknir benda til
þess að viðburðir á borð við Bás-
endaflóð eigi sér stað á yfir 200 ára
fresti en ekki liggur fyrir hvað olli
flóðinu. Menn hafi þó getið sér til
um að um flóðbylgju hafi verið að
ræða eða fágæta djúpa lægð.
„Verkefnið snýr ekki að því hvort
slíkt flóð verði aftur, eða hvernig og
hversu oft, heldur um það hvernig í
ósköpunum menn myndu verja sig
fyrir slíku flóði ef til þess kæmi,“
segir hann.
Enn fremur sé engin ástæða til að
ætla að fólki myndi stafa hætta af
slíku flóði, enda allar líkur á að fyr-
irvarinn yrði góður og unnt að rýma
svæðið á tiltölulega skömmum tíma.
Eignatjón gæti hins vegar orðið
umtalsvert.
Ekki yfirvofandi hætta
„Þetta snýst eiginlega frekar um
að verja verðmæti en að mannslíf
séu í hættu. Það vill svo til að þarna
eru margar gersemarnar okkar
staðsettar, t.d. Alþingishúsið, og
hún nær í raun alveg inn að Nor-
ræna húsinu, þessi litla landhæð,“
segir Reynir.
Hann ítrekar að engin teikn séu á
lofti um sjóflóð í Kvosinni og segir
hækkun sjávarborðs litlu skipta í
því sambandi. Hins vegar hafi menn
bent á að hlýnun jarðar hafi leitt til
meiri öfga í veðurfari en erfitt sé að
spá fyrir um hvort sú þróun auki lík-
urnar á flóðum við Íslandsstrendur.
Skoða sjóflóðavarnir í Kvosinni
Verkfræðistofan Efla hefur sótt um styrk til að útfæra sjóflóðavarnir í Kvosinni Hugsanlega hægt
að nota eldri og nýjar byggingar til að varna flóði Mannslíf vart í hættu en eignatjón gæti orðið mikið
Morgunblaðið/RAX
Flóð Reynir segir vel við hæfi að ráðast í verkefnið núna, þar sem unnið sé að skipulagi fyrir það svæði sem varn-
irnar yrðu á. Á þessari mynd frá 2007 sést vel það svæði sem verkefnið tekur til.
Í Morgunblaðinu 3. október 1971
var rifjaður upp sá atburður
þegar fárviðri gekk af suðvestri
yfir Suðvesturland aðfaranótt
9. janúar 1799.
„Varð af þessu stórkostlegt
tjón alla leið frá Þjórsárósum og
vestur á Snæfellsnes,“ segir
m.a. í Morgunblaðinu. „Þá fuku
kirkjurnar á Hvalsnesi og á Nesi
við Seltjörn, en kirkjurnar í
Kirkjuvogi og Kálfatjörn stór-
skemmdust.
Á Eyrarbakka braut flóðið
vörugeymsluhús og flutu viðir
og vörur úr því upp að Flóagafli
og upp um alla Breiðamýri.
Verzlunarhús fauk í Ólafsvík og
verzlunarhúsin á Búðum við
Hraunhöfn brotnuðu.
Flóðið gekk yfir lægðina milli
Reykjavíkur og Seltjarnarness
og var Valhúsahæð að sjá sem
eyja úti í hafi. Mest varð þó
tjónið á Básendum, tók alveg af
þann stað og hefir hann ekki
byggzt síðan. Þess vegna er flóð
þetta jafnan nefnt Bás-
endaflóðið.“
Ein kona lést í flóðinu, Rann-
veig Þorgilsdóttir, 79 ára.
Mesta
sjávarflóð
á Íslandi
BÁSENDAFLÓÐIÐ
Vantar unglinginn á heimilinu
smá bíópening?
Við einföldum millifærslur í snjallsímanum
margfalt. Með nýja Íslandsbanka Appinu
má nálgast stöðuna á reikningum og færa
smærri fjárhæðir á vini og vandamenn með
fáeinum smellum.
Þjónusta í gegnumAppið:
Hraðfærslur á þekkta viðtakendur
Staða reikninga með einum smelli
Myntbreyta og gengi gjaldmiðla
Upplýsingar um útibú og hraðbanka
Aðgengi að Netbanka o.fl. sem opnar
á fleiri möguleika
Kynntu þér nýja Appið betur
á www.islandsbanki.is/farsiminn
Veldu eða skráðu
inn upphæð
Millifærsla
framkvæmd!
Þjónustan er í boði fyrir fjárráða einstaklinga með aðgang að Netbanka Íslandsbanka.
tveir þrír!og.
1.000 kr.