Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013
Alþjóðleikhúsdagurinn er haldinn
hátíðlegur í dag og af því tilefni hef-
ur ítalska nóbelsverðlaunaskáldið
Dario Fo samið ávarp. Dario Fo,
sem er á níræðisaldri, er ádeiluhöf-
undur, leikskáld, leikstjóri, leikari
og tónskáld. Höfundarverk hans
byggist á hinni fornu ítölsku com-
media dell’arte aðferð, leikhúsaðferð
sem var vinsæl meðal lægri stétta.
Verk Dario Fo þykja gagnrýnin á
skipulagða glæpastarfsemi, pólitíska
spillingu, kaþólsku kirkjuna og
stríðið í Mið-Austurlöndum.
„Fyrr á tíð brugðust yfirvöld við
sviðsetningum commedia dell’arte-
leikara með því að flæma þá úr landi.
Yfirstandandi kreppa veldur því að
leikarar og leikhópar eiga í erfið-
leikum með að finna leikrými og að
ná til áhorfenda með sýningum sín-
um. Þar sem gagnrýnið leiklistarfólk
býr við þær aðstæður að hafa hvorki
leiksvið né áhorfendur stafar yfir-
völdum engin hætta af þeim lengur.
Á tímum endurreisnarinnar á Ítalíu
urðu valdhafar hins vegar að leggja
mikið á sig til þess að hafa taumhald
á gamanleikurum, enda nutu hinir
síðarnefndu almennrar hylli. […]
Það er því óskandi að reynt verði
með skipulögðum hætti að hrekja
okkur á brott, ekki síst unga fólkið
sem vill mennta sig í leiklistinni; að
leiklistarfólki verði tvístrað öðru
sinni, enda myndi slík áþján án efa
verða til þess að endurnýja list-
formið,“ segir m.a. í þýðingu Bjarna
Jónssonar.
Barnasýningum farið fækkandi
Að venju fékk Leiklistarsam-
bandið íslenskan sviðslistamann til
að semja íslenskt ávarp dagsins og í
ár er höfundur þess Messíana Tóm-
asdóttir. Hún er höfundur að leik-
myndum og búningum í yfir sjötíu
leiksýningum fyrir leikhús, óperur
og sjónvarp bæði hér og erlendis.
Hún helgar ávarp sitt börnum vegna
þess að nú er ár barnaleikhúss.
„Það hefur verið lögð mikil
áhersla á færni í uppeldi barna og er
það vel, en á móti þurfum við að
styrkja andlega þáttinn í uppeldi
þeirra og þar gegna listir lykilhlut-
verki, ásamt trúnni á fegurð, kær-
leika og réttlæti,“ segir m.a. í ávarp-
inu. „Nú vill svo sérkennilega til, á
ári barnaleikhússins, að mjög fáar
barnaleiksýningar eru frumfluttar.
Fyrir aðeins fáeinum árum sýndu
margir leikhópar barnaleiksýningar
sínar ýmist í opinberu rými eða í
skólum og leikskólum og gegndu
þannig mikilvægu uppeldis-
hlutverki. […] En hinn kaldranalegi
veruleiki í dag er sá að stöðugt minni
styrkir renna til barnaleikhússins,
þannig að opinberir styrkir til
barnaleikhúsa eru í engu samræmi
við hlutfall barna meðal þjóðarinnar.
Þess vegna hafa margir leikhópar
sem áður gerðu leiksýningar fyrir
börn gefist upp og fáir nýir verða til.
Annars staðar á Norðurlöndum eru
styrkir nær því að vera í samræmi
við hlutfall barna meðal þjóðanna og
þar er starf barnaleikhúsa öflugt.
Leikhúsið er mannbætandi þegar
það er best, þegar það eflir með
áhorfendum, á hvaða aldri sem þeir
eru, trúna á hugtök eins og fegurð,
kærleika og réttlæti. En vegur
barnaleikhússins verður að vaxa svo
um muni ef okkur á að takast að
kynna það besta í list hvers tíma fyr-
ir öllum aldurshópum leikhúsgesta
og veita þannig djúpum og sterkum
tilfinningum þeirra næringu.“
Dario Fo Messiana Tómasdóttir
Leikhópa skortir
leikrými og tengsl
Hörku spennumynd
16
Páskamyndin 2013
Stórkostleg
ævintýramynd fyrir
alla fjölskylduna
Sýnd með íslensku
og ensku tali
GLEÐILEGA PÁSKA
OPIÐ ALLA PÁSKANA
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
12
L
L
L
L
L
12
I GIVE IT A YEAR Sýnd kl. 6 - 8 - 10
SNITCH Sýnd kl. 10:15
THE CROODS 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 2 - 4 - 6
THE CROODS ÍSL TAL Sýnd kl. 2 - 4
THE CROODS 3D ENSKT TAL ÓTEXTUÐ Sýnd kl. 6 - 8
BROKEN CITY Sýnd kl. 8
IDENTITY THIEF Sýnd kl. 10
FLÓTTIN FRÁ JÖRÐU Sýnd kl. 2 - 4
Þegar góða veislu
gjöra skal...
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
STÓRSKEMMTILEG
ÆVINTÝRAMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
MEÐ ÍSLENSKU TALI Í 3-D OG 2-D.
I GIVE IT AYEAR KL. 8 - 10.15 12
I GIVE IT AYEAR LÚXUS KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15 12
SAFE HAVEN KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
THE CROODS 3D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.45 L
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 - 5.45 L
THE CROODS 3D ENSKT TAL, ÁN TEXTA KL. 5.45 - 8 L
BROKEN CITY KL. 10.10 16
IDENTITY THIEF KL. 8 12
21 AND OVER KL. 10.30 14
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 2D KL. 3.30 L
BROKEN CITY KL. 5.50 16
SAFE HAVEN KL. 5.50 - 8 12
SNITCH KL. 8 - 10.10 16
IDENTITY THIEF KL. 10.10 12
QUARTET KL. 8 - 10.15 12
THE CROODS 2D / 3D ÍSL.TAL KL. 5.45 L
SAFE HAVEN KL. 8 - 10.30 12
SNITCH KL. 8 - 10.30 16
ANNAKARENINA KL. 5.15 12
JAGTEN (THE HUNT) KL. 5.30 - 8 - 10.30 12