Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 11
Vinnusemi Kjartan var lengi að losa tréð án þess að notast við vinnuvélar.
læddust þá út og heim til sín.
Kenndi börnum að lesa
Jónína kunni lítið í spænsku
þegar hún lagði af stað í ferðina en
hafði reyndar lært smávegis í
menntaskóla. „Það bara kom, svo
er maður allt í einu kominn í ein-
hverjar aðstæður og þá verður
maður bara að nýta það sem maður
kann,“ segir Jónína, en þau kenndu
stærðfræði, lestur, ensku, nátt-
úrufræði, samfélagsfræði og
spænsku. „Að kenna barni að lesa
á tungumáli sem maður varla skil-
ur sjálfur, er alveg magnað,“ segir
hún. Skemmtilegast fannst henni
að finna gleðina hjá börnunum sem
voru svo ánægð að fá að læra. „Þau
komu alltaf öll hlaupandi á móti
okkur á morgnana, þau voru svo
glöð að við kæmum.“
Tóku málin í sínar hendur
Húsakynni skólans sem Jónína
og Kjartan kenndu í voru vægast
sagt bágborin. Skólastofan var 15-
20 fermetrar en þar voru að jafnaði
45 krakkar á aldrinum þriggja til
þrettán ára. „Þakið náði ekki yfir
allt rýmið og það var brunnur á
gólfinu sem ekki var búið að
byggja yfir,“ segir Jónína og bætir
við: „það vildi enginn sitja þar sem
sólin skein og þar sem það vantaði
hluta þaks, var allt fullt af sandi og
viðbjóði“.
Þegar Jónína Sif og Kjartan
voru orðin leið á hrörlegum húsa-
kynnum barnaskólans ákváðu þau
að gera eitthvað í málinu. „Það var
eitt kvöldið að við sögðum sem svo:
Eigum við bara ekki að byggja nýj-
an skóla?“ Þau hófu söfnun heima á
Íslandi og söfnuðu sex hundruð
þúsund krónum sem dugðu fyrir
verkinu.
Vopnuð skóflu og járnkarli
Þau hófust handa nokkrum
dögum síðar og fundu lóð sem gæti
hentað og hafði ekki skaddast í
flóðunum. „Það var ekki fræðilegur
möguleiki að fá neinn verkamann
inn í hverfið með vinnuvélarnar
sínar,“ segir Jónína, „af ótta við að
þeim yrði stolið.“ Það var því ekk-
ert annað í boði en að nota hand-
aflið. „Það var mjög fyndið að
leggja af stað kannski klukkan
fimm um morguninn með skóflu og
járnkarl í hendi, labbandi í gegnum
borgina. Fólkið horfði á okkur eins
og við værum sturluð, túristarnir,“
segir Jónína og hlær. „Það voru að-
allega við þrjú, ég, Kjartan og Osc-
ar sem stóðum í þessu og við þurft-
um að rífa upp tré, en jarðvegurinn
þarna er rosalega harður,“ segir
hún. Þau þurftu að jafna jarðveg-
inn áður en hægt var að hefjast
handa við að byggja. Þau hömuðust
dag eftir dag í heilan mánuð í
steikjandi hita. Vinnan var erfið og
ekki mjög hreinleg, en þau létu
ekki deigan síga.
Vilja fara aftur út
Jónína og Kjartan sneru heim
til Íslands sex mánuðum seinna,
áður en að húsið reis. Aðrir sjálf-
boðaliðar tóku við og kláruðu verk-
ið sem þau hófu. Skólahúsið reis á
innan við einu ári og enn er þar
starfræktur barnaskóli, en einnig
er þar rekin heilbrigðisþjónusta
um helgar og fullorðinsfræðsla á
kvöldin. Jónína segir að þau fari
einhvern tímann aftur út. „Það er
bókað mál,“ svarar Jónína. „Það er
ekki annað hægt, við náum ekki að
ljúka þessu verkefni fyrr en við er-
um búin að fara aftur.“
Átök Jónína tekur á því, en vinnan var erfið í hitanum. Gleði Börnin kættust þegar þau sáu Jónínu.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013
Þú getur verið afslappaður og öruggur við
grillið með AGA gas. Öruggur um að þú
ert að nota gæðavöru og að þú fáir góða
þjónustu þegar þú þarft áfyllingu
á gashylkið, hvort sem þú nýtir
þér heimsendingarþjónustu á
höfuðborgarsvæðinu eða þegar þú
heimsækir söluaðila AGA.
Farðu á www.gas.is og finndu
nálægan sölustað eða sæktu
öryggisleiðbeiningar og fáðu
upplýsingar um AGA gas.
ÍSAGA ehf. • www.gas.is
Breiðhöfða 11 • 110 Reykjavík • Sími 5773000
www.GAS.is
VIÐ ERUM
SÉRFRÆÐINGAR
Í GASI
Umboðsmenn ÍSAGA ehf:
Selfoss: Vélaverkstæði Þóris, s. 482 3548. Vestmannaeyjar: Bíla- og vélaverkstæðið Nethamar, s. 481 3226.
Sauðárkrókur: Byggingarvörudeild Kaupfélags Skagfirðinga, s. 455 4626. Ísafjörður: Þröstur Marsellíusson hf, s. 456 3349.
Akureyri: Sandblástur og málmhúðun hf, s. 460 1515. Reyðarfjörður: Verslun BYKO, s. 470 4200.