Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 43
rækti það til 1998, lengst af á Skóla- braut 12-14, en frá 1983 á Kirkju- braut 54-56 er hann festi kaup á verslunarhúsnæðinu þar. Árið 1998 keypti Hörður, sonur hans, bakaríið og starfrækti það um nokkurt skeið en seldi það síðan vandalausum. Í bæjarstjórninni í 12 ár Hörður var einn af stofnendum Íþróttafélagsins Drangeyjar á Sauð- árkróki sem þar var starfrækt um skeið en 1948 sameinaðist félagið ungmennafélaginu Tindastóli. Hann æfði og keppti í frjálsum íþróttum, og tók þátt í fjölda íþrótta- móta. Hann sat síðar í knatt- spyrnuráði Akraness og var formaður þess 1988-89. Hörður gekk ungur í stúku, var æðsti templar stúkunnar Gleymmér- ei á Sauðárkróki, starfaði í stúkunni Akurblómið á Akranesi og sat í stjórn Stórstúku Íslands um langt árabil. Hörður söng í kirkjukór Sauðár- króks frá 1954, hjá Eyþóri Stef- ánssyni, tónskáldi og kórstjóra, og síðan í kirkjukór Akraness. Hann stofnaði, ásamt þremur öðrum, Skagakvartettinn, 1967, sem söng í 25 ár og sendi frá plötu sem Svavar Gests gaf út. Hörður hefur auk þess starfað í Oddfellowreglunni frá 1960. Hörður var bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Akranesi 1974- 86, sat í skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands um skeið, í stjórn Dval- arheimilisins Höfða og var stjórnar- formaður Skipasmíðastöðvarinnar Þorgeir og Ellert á Akranesi 1994- 2008. Hann var sæmdur fálkaorðunni fyrir atvinnu- og félagsstörf árið 2003. Fjölskylda Eiginkona Harðar er Inga Þórey Sigurðardóttir, f. 12.7. 1933, hús- freyja. Hún er dóttir Sigurðar Sand- hólm Magnússonar, verkstjóra á Hellissandi, og Guðrúnar Jónas- dóttur húsfreyju. Börn Harðar og Ingu Þóreyjar eru Guðrún Bryndís, f. 23.12. 1956, sendi- herrafrú í Japan, gift Stefáni Lárusi Stefánssyni sendiherra og eru synir þeirra Hörður og Stefán; Sigurður Páll, f. 16.7. 1961, verkfræðingur hjá Hafnarfjarðarbæ en kona hans er Ás- laug Árnadóttir, starfsmaður við íþróttamiðstöðina á Akranesi og eru börn þeirra Inga Tinna, Magnús Björn og Pétur Aron; Hörður, f. 31.7. 1966, starfsmaður hjá Íslandsbanka, búsettur í Reykjavík en kona hans er Sigríður Bjarnadóttir skrif- stofumaður og eru dætur þeirra Una Dís og Eva Rós en börn Harðar frá fyrra hjónabandi eru Auður Elísa, Hörður Þór og Maron; Sigríður Anna, f. 5.7. 1974, húsfreyja í Kópa- vogi en maður hennar er Jón Ottós- son, starfsmaður hjá Stakkavík í Grindavík. Systkini Harðar: Haukur Frí- mann, f. 20.1. 1931, d. 13.6. 2011, mjólkurfræðingur á Sauðárkróki; Óskar Sveinbjörn, f. 3.3. 1932, d. 24.5. 2000, bifvélavirki í Keflavík; Kolbeinn Skagfjörð, f. 11.8. 1934, d. 2.6. 2007, verslunarmaður í Keflavík; Ásta Eygló, f. 2.2. 1938, myndlistarkona í Keflavík, og Bragi, f. 4.4. 1939, d. 6.10. 1986, verkamaður í Keflavík. Foreldrar Harðar voru Páll Svein- björnsson, f. 8.3. 1909, d. 3.6. 1970, bifreiðastjóri á Sauðárkróki, og Sig- rún Ásbjörg Fannland, f. 29.5. 1908, d. 14.3. 2000, skáldkona. Úr frændgarði Harðar Pálssonar Hörður Pálsson Guðrún Þorláksdóttir húsfr. á Hofsgerði Kristján Jónsson b. í Hofsgerði á Höfðaströnd Hálfdán Kristjánsson form. á Sauðárkróki Anna Guðrún Sveinsdóttir húsfr. á Sauðárkróki Sigrún Ásbjörg Fannland skáldkona Guðrún Gísladóttir húsfreyja Sveinn Gottskálksson drukknaði ungur Sigríður Guðmundsdóttir húsfr. á Kjalarlandi Ósk Sigurðardóttir húsfr. á Kjalarlandi Sveinbjörn Guðmundsson b. á Kjalarlandi Páll Sveinbjörnsson bifreiðastjóri á Sauðárkróki Engilráð Sveinsdóttir húsfr. í Kambakoti Guðmundur Guðmundsson b. í Kambakoti á Skagaströnd Sigurbjörg Hálfdánardóttir verkakona í Rvík Guðrún Margrét Árnadóttir húsfr. í Rvík Sólveig G. Pétursdóttir fyrrv. ráðherra Hannes Pétursson yfirlæknir á geðdeild LSH Björn Sigurðsson kaupmaður í Flatey Sigurður Finnbogason eldri b. á Sæunnarstöðum Guðrún Guðmundsdóttir ljósmóðir Brúðhjón Hörður og Inga Þórey. ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 Valtýr Pétursson, myndlistar-maður og myndlistar-gagnrýnandi, fæddist í Grenivík 27.3. 1919. Hann var sonur Péturs Einarssonar, kennara í Höfðahverfi í Suður-Þingeyjarsýslu, og k.h., Þórgunnar Árnadóttur hús- freyju. Valtýr var kvæntur Herdísi Vig- fúsdóttur kennara. Valtýr lærði verslunarfræði og stundaði listnám jöfnum höndum. Hann var í Verslunarskóla Íslands í tvo vetur og stundaði nám í teikningu hjá Birni Björnssyni, teiknikennara í Reykjavík, jafnlangan tíma. Þá stundaði hann verslunarnám í Bryan College á Rhode Island í Bandaríkj- unum 1944-45, og listnám við Aca- demia dei Belle Arte í Flórens á Ítal- íu 1948, stundaði framhaldsnám i París 1949-50, nám í mósaíkgerð hjá G. Severini í París 1956-57 og fór í námsferðir víða um Evrópu. Valtýr var í hópi þekktustu mynd- listarmanna hér á landi um og eftir miðja síðustu öld. Hann var braut- ryðjandi í abstraktlist hér á landi, einn af stofnendum September- sýningarhópsins sem starfaði á ár- unum 1947-52. Hann var síðan einn af aðalhvatamönnum stofnunar Sep- tem-hópsins árið 1972 og sýndi með honum á hverju hausti fram til dauðadags. Valtýr var fyrstur til að sýna hér svo nefnd strangflatarmálverk þar sem óhlutbundin form eru einlita, áferðarlaus og skýrt afmörkuð á myndfletinum. Þá vann hann stein- fellumyndir með íslenskum grjót- flísum. Hann hélt fjölda einkasýn- inga hér á landi og erlendis. Valtýr var virkur í samtökum myndlistarmanna, var gjaldkeri og síðar formaður Félags íslenskra myndlistarmanna og sat í stjórn Norræna listabandalagsins. En auk þess að vera virtur mynd- listarmaður var hann ekki síður áhrifamikill myndlistargagnrýnandi. Hann skrifaði myndlistargagnrýni í Morgunblaðið um langt árabil frá 1952 og markaði þannig djúp spor í listasögu þjóðarinnar. Valtýr lést 15.5. 1988. Merkir Íslendingar Valtýr Pétursson 95 ára Elísabet Stefánsdóttir 85 ára Alda Guðmundsdóttir Björn J. Haraldsson Guðmundur H. Snæhólm Ragnhildur Bergþórsdóttir Unnur Þormar Þorbjörn Kjærbo 80 ára Birna Jónsdóttir Halldór Halldórsson Ólafía Sigríður Helgadóttir Sigurbjörg Andrésdóttir 70 ára Benedikt R. Jóhannsson Björn Halldórsson Halldór Halldórsson Kristinn Helgason Kristjana Aðalsteinsdóttir Kristjana Einarsdóttir Sigríður Jóhannsdóttir Thomas Stoddart Thomasson Þorgeir Ólafsson Þórður Vilhjálmsson 60 ára Bergur Elíasson Jóhann Rúnar Hilmarsson Kjartan Ólafsson Pálmi Valur Sigurðsson 50 ára Ásdís Hrönn Hilmarsdóttir Jón Helgi Ingvarsson Kolbrún Þóra Sverrisdóttir Kristján Stefánsson Orri Snorrason Sigurður Þ. Þórólfsson Unnar Sæmundsson 40 ára Anna Magnea Egilsdóttir Ása Linda Egilsdóttir Einar Karel Sigurðsson Einar Steindór Valbergsson Else Nielsen Eyvindur Sveinn Sólnes Gunnar Reynir Þorsteinsson Ragnar Arelíus Sveinsson Russell David Jackson Rúnar Hallgrímsson Sigurþór Örn Guðmundsson 30 ára Alfa Dröfn Jóhannsdóttir Eva Guðrún Gunnarsdóttir Marcin Dabrowski Maren Rut Karlsdóttir Michal Wojciechowski Piotr Naruszewicz Til hamingju með daginn 30 ára Gunnar lauk bók- lega hluta atvinnuflug- mannsprófs og vinnur nú við parketviðhald og lagn- ingu. Maki: Charlene Rocha Lelis, f. 1984, starfsmaður við umönnun. Sonur: Jón Tristan, f. 2005. Sjúpdóttir: Sigríður Kristbjörg, f. 2008. Foreldrar: Guðjón Birkis Helgason, f. 1962, og Að- alheiður Esther Gunn- arsdóttir, f. 1965. Gunnar Róbert Guðjónsson 40 ára Hulda ólst upp í Reykjavík, lauk prófum sem sjúkraliði og er sjúkraliði á geðdeild LSH. Maki: Þráinn Vikar Þrá- insson, f. 1967, bílstjóri. Börn: Þórey, f. 1998; Árni, f. 2000; Eygló Rut, 2001, og Eyþór Vikar, f. 2007. Foreldrar: Eygló Sig- urvinsdóttir, f. 1953, starfsm. hjá Barnavernd, og Eyþór Elíasson (stjúp- faðir), f. 1948, fyrrv. fram- kvæmdastjóri. Hulda Maggý Kristófersdóttir 40 ára Rut lauk BA-prófi í ensku og ferðamálafræði og kennaraprófi frá HÍ og er kennari við VÍ. Maki: Úlfar Markús Ell- enarson, f. 1970, kerf- isstjóri hjá Applicon. Dætur: Elísabet Freyja, f. 2001; Birgitta Ósk, f. 2003, og Kristjana Ellen, f. 2005. Foreldrar: Þórunn El- ísabet Sveinsdóttir, f. 1952, og Tómas Jónsson, f. 1950. Rut Tómasdóttir Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.