Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Það er brjálað að gera núna, þetta
eru mikil viðbrigði frá fyrri mán-
uðum sem voru mun rólegri. Veðrið
hefur verið einstakt síðustu daga
og mikið líf er í sjónum. Áðan sáust
til dæmis höfrungar og háhyrn-
ingar en ekki hnúfubakar eins og
oft áður,“ segir Rannveig Grét-
arsdóttir, framkvæmdastjóri hvala-
skoðunarfyrirtækisins Eldingar.
Tvöfalt fleiri farþegar fóru í
hvalaskoðun með Eldingu í mars-
mánuði en í sama mánuði í fyrra.
Hvalaskoðun er að sækja í sig veðr-
ið og eftirspurnin eykst jafnt og
þétt milli ára.
Í fyrra fóru um 64 þúsund manns
í hvalaskoðun með Eldingu, sem
sér fram á að farþegafjöldinn eigi
eftir að aukast upp í 70 þúsund á
þessu ári, miðað við ganginn sem
verið hefur í byrjun árs. Enda
eykst fjöldi erlendra ferðamanna í
borginni ár frá ári.
Óvenjumargir hnúfubakar
„Það er mismunandi eftir árstíma
hvaða dýr við sjáum. Höfrungar
eru hér allt árið. Hnúfubakar koma
og fara, þeir elta hingað fæðu eins
og síld og loðnu. Engar hrefnur
sjást yfir vetrarmánuðina en við er-
um farin að sjá þær aftur,“ segir
Rannveig.
Hrefnurnar láta sjá sig aftur hér
í byrjun mars. Á sumrin sjást þær
gjarnan ásamt höfrungunum.
Oftast sjást eins og einn eða
tveir hnúfubakar í hverri ferð, en
undanfarið hafa verið fjórir til fimm
á svamli. Rannveig segir það ekki
hafa gerst í fjölda mörg ár að jafn
margir hafi sést.
Sumarið ákjósanlegast
Á góðum degi í hvalaskoðun fari
um 200 manns. Sumarmánuðirnir
júlí og ágúst eru vinsælastir en
fleiri ferðir eru þá farnar á hverj-
um degi. Yfir sumartímann eru far-
þegarnir frá 450 til 600 manns á
hverjum degi.
Jólamánuðurinn og janúar eru
erfiðastir í hvalaskoðun, vegna veð-
urs og birtuskilyrða. Rannveig seg-
ir að í 95% ferðanna yfir sumartím-
ann sjáist einhverjir hvalir.
Hlutfallið sé ekki eins hátt yfir
vetrarmánuðina, þá sjáist hvalir í
82% ferðanna en fari stighækkandi
eftir því sem líður nær sumri. Um
97% farþeganna séu erlendir ferða-
menn.
Aðspurð hvort þau anni eftir-
spurn, segir Rannveig svo vera en
þau hafi fest kaup á nýjum báti í
fyrra, „ætli við látum það ekki duga
í bili en við erum alltaf að breyta
og bæta bátana okkar og gera þá
betri fyrir farþegana,“ segir Rann-
veig. Hún segir ekki loku fyrir það
skotið að keyptur verði annar bát-
ur, en þau séu með alla anga úti því
fyrirtækið bjóði einnig upp á sjó-
stangveiði, auk þess að vera með
samning við Reykjavíkurborg um
siglingar út í Viðey.
Sjóstangveiðin er einnig vinsæl
meðal ferðamanna.
Ferðir til Viðeyjar í sókn
„Góð stígandi er í ferðunum út í
Viðey en eftirspurnin þangað dróst
örlítið saman eftir hrun,“ segir
Rannveig og bætir við að það sé
líkt og allt sé að lifna við hjá ís-
lenskum fyrirtækjum. Þau sækja í
auknum mæli í svokallaðar hóp-
eflisferðir til Viðeyjar með starfs-
fólk sitt.
Sporðaköst sjávar-
spendýranna heilla
Tvöfalt fleiri í hvalaskoðun í mars í ár en í fyrra Gott
veður og mikið líf í sjónum 97% eru erlendir ferðamenn
Ljósmynd/Megan Whittaker
Hvalaskoðun Hvalaskoðunarbáturinn Hafsúlan með 140 farþega.
Ljósmynd/Megan Whittaker
Hnúfubakur Stökkvandi hnúfubakur rétt fyrir utan Vatnsleysuströnd.
Hvalaskoðun
» 97% farþeganna eru erlend-
ir ferðamenn.
» 64.000 fóru með Eldingu
árið 2012.
» Búast við að farþegafjöldinn
verði 70.000 í ár.
» Í 95% ferðanna, yfir sumar-
tímann, sjást hvalir.
» Háhyrningar við strendur
landsins allt árið.
Við bjóðum
góða þjónustu
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Skannaðu
kóðann til að
sækja Appið.
Millifærðumeð
hraðfærslum íAppinu
Veldu hraðgreiðslur
á upphafsskjámynd
og smelltu á þekktan
viðtakanda
einn ..ENNEM
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
11
4
2