Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013
Úthlutað var nú í mars í sjötta sinn
úr Auroru velgerðarsjóði. Að þessu
sinni er um fyrri úthlutun sjóðsins
að ræða en úthlutað verður aftur
seinna á árinu og þá einungis til
þróunarverkefna.
Úthlutað er að þessu sinni 48,3
milljónum króna til fimm verkefna.
ABC hjálparstarf í Kenýa fær 1,8
milljónir króna, Vinafélag Vinjar
fær 1 milljón á ári í þrjú ár og
Töfraflautan eftir Mozart fyrir
börn 500 þúsund. Þá fær Kraumur
tónlistarsjóður 20 milljónir og
Hönnunarsjóður Auroru 25 millj-
ónir.
Aurora velgerðarsjóður var
stofnaður árið 2007 af þeim hjónum
Ingibjörgu Kristjánsdóttur og Ólafi
Ólafssyni sem lögðu sjóðnum til
einn milljarð króna. Sjóðurinn er
sjálfseignarstofnun með fjögurra
manna stjórn sem starfar sjálfstætt.
Meginmarkmið sjóðsins er að
styrkja verkefni í þróunarlöndum
og menningartengd verkefni hér á
Íslandi.
Úthlutað úr Auroru
velgerðarsjóði
Hjallakirkja í Kópavogi var vígð á
páskadag, 11. apríl 1993, og á því 20.
ára vígsluafmæli í ár. Afmælinu
verður fagnað með hátíðarmessu í
kirkjunni á páskadag kl. 14 og á eft-
ir býður sóknarnefnd í afmæliskaffi
í safnaðarsal kirkjunnar.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup
Íslands, prédikar.
Hjallasókn var mynduð með skipt-
ingu Digranessóknar árið 1987. Haf-
ist var handa við byggingu kirkj-
unnar árið 1991 en hún er teiknuð af
Hróbjarti Hróbjartssyni arkitekt.
Sigurbjörn Einarsson biskup, sem
var sóknarbarn í Hjallasókn, tók
fyrstu skóflustunguna þann 19. maí
1991 og kirkjan var síðan vígð tæp-
um tveimur árum síðar.
Vígsluafmæli Tveir áratugir eru liðnir frá
vígslu Hjallakirkju í Kópavogi.
20 ár frá vígslu
Hjallakirkju
STUTT
Á fræðslukvöldi Íslenska vita-
félagsins í næstu viku munu Eiríkur
Valdimarsson þjóðfræðingur og
Trausti Jónsson veðurfræðingur
fræða gesti um veðurspár.
Eiríkur mun fjalla um alþýðlegar
veðurspár á 21. öld en hann hefur
m.a. rannsakað hæfni fólks í að gá
til veðurs.
Fræðslukvöldið verður í sjó-
minjasafninu Víkinni á Granda-
garði í Reykjavík, miðvikudags-
kvöldið 3. apríl kl. 20.
Fræðsla um veð-
urspár fyrr og nú
ASÍ segir að vörukarfa, sem miðað
er við í verðkönnunum sambandsins,
hafi hækkað mikið frá því í apríl
2008 þar til nú í byrjun mars.
Fram kemur á vef ASÍ að verð
vörukörfunnar hafi hækkað meira í
lágvöruverðsverslunum en öðrum
verslunum. Mest hafi hún hækkað í
Bónus og Samkaupum-Strax eða um
64% en minnst hjá Nóatúni um 26%.
Karfan hefur hækkað um 54% hjá
Nettó og Tíu-ellefu, um 53% hjá
Krónunni og 46% hjá Samkaupum-
Úrvali. Minnst hefur vörukarfan
hækkað hjá Nóatúni, um 26% og um
33% hjá Hagkaupum. ASÍ segir að
til samanburðar megi benda á að
verð á mat- og drykkjarvörum í vísi-
tölu neysluverðs hafi hækkað um
46% frá því í apríl 2008 þar til nú.
Hagar, sem reka Bónus og Hag-
kaup, sendu frá sér tilkynningu í
gær og sögðu að þessi niðurstaða
ASÍ væri staðfesting á óvönduðum
og ómarktækum vinnubrögðum.
Bónus hefði á árinu 2008 boðið ódýr-
asta valkostinn á dagvörumarkaði
og gerði enn. Því væri ljóst að að-
ferðir ASÍ við mælingu og upplýs-
ingagjöf stæðust enga skoðun.
Vörukarfa ASÍ – verðbreytingar apríl 2008 - mars 2013
180
160
140
120
100
80
60
40
20
0
Nóatún Hagkaup Samkaup-
Úrval
Krónan Tíu-ellefu Nettó Samkaup-
Strax
Bónus
146
126
133
146
153 154 154
164 164
Apríl 2008 Janúar 2009 Febrúar 2010 Febrúar 2011 Mars 2012 Mars 2013 Hagstofan
Heimild: ASÍ
Vörukarfa ASÍ
hækkaði mest í lág-
vöruverðsbúðum
Hagar gagnrýna vinnubrögðin og
segja þau óvönduð og ómarktæk
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070
fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
4ra rétta tilboðsseði
ll og A la Carte í Per
lunni
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 56
2 0207 • perlan@perlan.is
Verð aðeins
6.850 kr.
Næg bílastæði
Gjafabréf
Perlunnar
Góð gjöf við öll
tækifæri
Opið yfir páska
Skírdag - opið
Föstudaginn langa - opið
Páskadag - lokað
Annar í Páskum - opið
Landssamband veiðifélaga beinir
því til Landsvirkjunar að koma nú
þegar til móts við landeigendur við
Lagarfljót vegna þess tjóns sem
þegar sé orðið vegna aukins aur-
burðar.
Þá er því jafnframt beint til
Landsvirkjunar að vinna með
heimamönnum að uppbyggingu
fiskistofna á vatnasvæðinu.
Landsvirkjun bæti
tjón við Lagarfljót
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga