Morgunblaðið - 27.03.2013, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 27.03.2013, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ríkislögreglustjóri og lögreglustjórinn á Hvols- velli lýstu í gær yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðhræringa í Heklu og vöruðu fólk við ferðum á fjallið á meðan óvissustig væri í gildi. Veðurstofan hafði þá upplýst almannavarna- deild ríkislögreglustjóra um óvenjulegar jarð- hræringar í fjallinu og hækkað eftirlitsstig Heklu í gult vegna flugumferðar sem þýðir að eldfjallið sýni óvenjulega virkni. Með óvissustigi er aukið eftirlit haft með atburðarás sem geti ógnað heilsu og öryggi fólks eða umhverfi og byggð. Óvissustig er það lægsta af þremur og því er lýst til að upplýsa viðeigandi viðbragðsaðila um stöðu mála og er hluti af skipulagi almannavarna. Engar kvikuhreyfingar mældust þó í gær og síðdegis í gær sagði Víðir Reynisson hjá almanna- vörnum að litlar líkur væru á gosi fyrr en fleiri teikn sæjust en að gos í Heklu kæmu þó oftast með stuttum fyrirvara. ipg@mbl.is Óvissustigi lýst vegna Heklu  Fólk varað við ferðum í nágrenni eldfjallsins Morgunblaðið/RAX Órói Þó að órói mælist í Heklu var kyrrð yfir henni í gær þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið hjá. Gunnlaugur Árnason Stykkishólmi Georg Breiðfjörð Ólafsson í Stykkishólmi varð 104 ára í gær og er hann næstelsti núlifandi íslenski karlmaðurinn. Georg býr á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi en á enn sitt hús í bænum. Synir hans og fjölskyldur þeirra héldu ættföðurnum veislu á hans gamla heimili við Silf- urgötu í gær og gerði fjölskyldan sér glaðan dag. Georg er fæddur í Akureyjum á Breiðafirði. Árið 1927 fluttist fjölskyldan að Ögri við Stykkishólm og bjó þar til ársins 1940 að hún fluttist í Stykkishólm. Georg vann við smíðar allan sinn starfsaldur. „Ég náði ekki að læra smíðar, en var eftirsóttur samt,“ segir Georg er hann var spurður um menntun sína. Hann starfaði fyrst í gamla slippnum við skipasmíðar undir verkstjórn Sigurðar Guðmundssonar en vann síðar lengi með Kristjáni Guðmundssyni skipasmið og voru þeir við skipasmíðar og húsbyggingar í Stykkishólmi og víðar. Síðasti vinnustaður Georgs var Skipasmíðastöðin Skipa- vík þar sem hann vann í 12 ár eða þar til hann hætti störf- um árið 1984. Eftir þann tíma segist hann hafa verið að slæpast. Georg giftist Þorbjörgu Júlíusdóttur frá Bjarneyjum og eignuðust þau þrjá syni. Að sögn er hann ágætlega hress og fylgist vel með fréttum og sínu umhverfi. Þá hef- ur hann gaman af samvistum og spjalli við fólk. Í veislunni í gær var Laufey Björk Gylfadóttir, son- arsonardóttir Georgs, sem fæddist 1. janúar sl. og er því tæplega 104 ára aldursmunur á þeim. Bróðir Georgs, Eyj- ólfur Breiðfjörð Ólafsson, varð 98 ára nýverið. Þeir dvelja báðir á dvalarheimilinu í Stykkishólmi. Fagnar 104 ára afmæli  Georg Breiðfjörð Ólafsson er næstelsti núlifandi íslenski karlmaðurinn  Fylgist vel með fréttum og sínu umhverfi Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Feðgar Georg Breiðfjörð Ólafsson ásamt sonum sínum Gylfa, Ágústi og Júlíusi á afmælisdaginn í Stykkishólmi. 104 ára aldursmunur Georg og barnabarnabarnið Laufey Björk Gylfadóttir sem fæddist 1. janúar 2013. Nokkur frum- vörp urðu að lög- um á Alþingi í gær áður en þing- fundi var frestað í fyrsta sinn vegna viðræðna um lok þingstarfa. Má þar nefna að sam- þykkt var frum- varp um gjald- eyrismál og rýmkun heimilda sem lög og sam- þykktar voru breytingar á almenn- um hegningarlögum, nánar tiltekið varðandi kynferðisbrot gegn börn- um innan fjölskyldu. Þá varð frumvarp um velferð dýra að lögum sem og frumvarp um Þjóð- minjasafn Íslands. Loks má nefna að ný efnalög voru samþykkt og frum- vörp um búfjárhald og niður- greiðslur húshitunarkostnaðar urðu einnig að lögum. Nokkur mál lögfest í gær Þingfundur á Al- þingi í gærkvöldi. Viðar Guðjónsson Ingvar P. Guðbjörnsson „Við sjáum allt á myndbandinu. Við getum ekki sagt frá öllu sem fram kemur þar en við getum staðfest að um slys var að ræða. Við getum einnig sagt að nemandinn var í vandræðum og leiðbeinandinn reyndi að aðstoða hann. Það er óhætt að segja að hann hafi látist sem hetja,“ segir Melenie Snow, fjölmiðlafulltrúa lögreglunnar í Pasco-sýslu í Flórída. Fram kom á fréttamannafundi sem lögreglan hélt í gærkvöldi að Örvar Arnarson, leiðbeinandinn, hafi verið með myndavél á hjálm- inum sem tók upp stökkið. Á henni kom, að sögn Snow, fram að Andri Már Þórðarson lenti í vandræðum og að Örvar gerði sitt til að koma til bjargar. Hvorug aðalfallhlífin opnaðist Hún segir að hvorug aðalfallhlífin hafi opnast og aðeins önnur vara- fallhlífin. Það hafi hins vegar verið of seint. Báðir létust við höggið þeg- ar þeir komu til jarðar. Rannsókn stendur enn yfir á málinu. Þar er meðal annars rannsakað hvort bún- aðurinn hafi brugðist eða hvort slys- ið hafi orðið af öðrum orsökum. Að sögn Snow verður myndband af stökki Örvars og Andra Más ekki gert opinbert. Slysið varð á laugardag í Zephyr- hills sem er norðaustur af borginni Tampa á Flórída. Örvar, sem var á 41. aldursári, var þrautþjálfaður fallhlífarstökks- kennari og einn reyndasti fallhlíf- arstökkvari landsins. Arnar Már sem, var á 26. aldursári, var nem- andi Örvars og var í sínu sjöunda fallhlífarstökki. Örvar og Arnar Már höfðu farið í stærri hópi Íslendinga til Flórída til að taka þátt í árlegri kennsluferð fallhlífarstökksfélagsins Frjálst fall. Segir Örvar hafa látist sem hetju  Reyndi að bjarga nemanda sínum Fallhlífarstökk Lögreglan í Flórída segir Örvar hafa látist sem hetju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.