Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.03.2013, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 Ásdís Ásgeirsdóttir asdis.asgeirsdottir@gmail.com Í byrjun árs 2011 ákvað ungt par frá Íslandi að leggja land undir fót og halda á vit ævintýranna. Jónína Sif Eyþórsdóttir og Kjartan Þórsson völdu borgina Santa Marta í Kólombíu og ætlaði Kjart- an þar í skóla, en hann hafði áður verið skiptinemi í Venesúela. Jón- ína Sif var búin að ákveða að kom- ast í hjálparstarf, enda víða þörf. Stuttu eftir komuna þangað kynnt- ust þau manni að nafni Oscar sem rak einsamall hjálparstarfið Gulu fiðrildin í fátækrahverfunum. Hann hafði sjálfur búið þar sem drengur og hafði náð að krafsa sig upp úr fátækt og eymd með því að selja ljósaperur. Hann útvegaði Jónínu vinnu við kennslu í barna- skóla og ákvað þá Kjartan að slást í hópinn. Heitt og rykugt Gífurleg fátækt er í hverfinu þar sem skólinn stendur. Þar eru illa byggðir kofar og hús og ekkert rennandi vatn er þar að finna. „Það var mjög slæmt ástand í þessu hverfi, helmingur húsanna hafði skolast í burtu í flóðum,“ segir Jón- ína. Rykugir malarvegir liggja gegnum hverfið og loftið er mettað af ryki og drullu. „Það er bara mold, sandur og ryk! Það er ekki séns að vera úti,“ segir hún. Hitinn er kæfandi oft á tíðum, allt upp í 40 gráður. Fátæktin er mikið vanda- mál í Kólombíu og göturnar fullar af betlurum. Jónína segist hafa heyrt að yfirvöld stundi svokall- aðar „hreinsanir“. „Oscar varð sjálfur vitni að því. Sums staðar lá fólkið saman til að halda á sér hita á nóttinni, og svo kom bara einn bíll og hreinsaði upp svona hóp,“ segir Jónína. Glæpagengi víða Mörgum innfæddum fannst einkennilegt að ungt hvítt fólk frá Vesturlöndum væri á ferðinni í þessu hættulega hverfi, en glæpa- gengi voru mörg þar. Eitt skipti er þau voru að kenna, komu nokkrar stúlkur til Jónínu og voru óðamála. Fyrir utan dyrnar heyrðu hún í strákum sem voru að þenja mót- orhjólin sín. Jónína hlustaði ekki á þær fyrr en hún heyrði: „Proffi, proffi, það eru menn þarna úti sem ætla að ræna ykkur!“ Fyrsta sem Jónína hugsaði var „vesen!“ Hún útskýrir að innfæddir líti á alla Vesturlandabúa sem ríka. „Þau halda bara að við séum moldrík, eigum jafnvel olíufyrirtæki,“ segir Jónína og hlær. „Þau hugsa ekki: Þetta eru fátækir námsmenn frá Íslandi. Það er ekki þeirra fyrsta hugsun.“ Eina sem var í boði var að bíða þá af sér og læsa. Jónína vissi að ef þeir færu að vera með læti, myndu þeir vekja á sér at- hygli og einhver kæmi þeim til hjálpar. Eftir nokkra tíma var farið að rökkva og loks gáfust þeir upp og fóru. Jónína, Kjartan og börnin Skóli byggður með berum höndum Þegar ungu pari frá Íslandi blöskraði aðstæður í barnaskóla í Kólumbíu, ákváðu þau að byggja nýjan skóla. Börnin, sem búa í fátækrahverfi, glöddust mikið að fá skóla með þaki sem skýldi þeim frá brennheitri sólinni. Magnað Jónína að kenna börnum að lesa á tungumáli sem hún kunni varla. Á góðri stund Jónína og Kjartan. Páskasöfnun Hjálparstarfs kirkj- unnar Hjálpum heima er hafin. Hjálp- arstarfið felst í mataraðstoð með inneignarkortum í matvöruversl- unum, stuðningi við framhaldsskóla- nemendur, lyfjaaðstoð, fataúthlutun, stuðningi við foreldra vegna skóla- gagna og fatnaðar á grunnskólabörn, ráðgjöf og stuðningi til endurhæf- ingar. Hjálparstarfið hefur að leiðarljósi að rjúfa vítahring fátæktar, hvetja og styrkja fólk til að nýta sér hæfileika sína og getu til virkni í samfélagi sem þarf á framlagi allra að halda. Í þess- ari vinnu er staða hvers og eins skoð- uð og reynt að beina ljósi að rótum vandans. „Hef aldrei fyrr upplifað jafn mörg erfið mál á jafn stuttum tíma,“ segir Vilborg Oddsdóttir, fé- lagsráðgjafi Hjálparstarfsins. Hægt er að hringja í söfnunarsím- ann 907 2002 (2.500 krónur) eða leggja inn á söfnunarreikning: 0334- 26-886, kt. 450670-0499. Vefsíðan www.help.is Aðstoð Hjálparstarf kirkjunnar veitir bágstöddum um allt land aðstoð. Hjálpum heima - páskasöfnun Eftir að hafa haldið vestur til Ísa- fjarðar, austur til Seyðisfjarðar og norður til Akureyrar er kominn tími á síðustu Partíþokuna í kvöld í höfuð- borginni. Tónleikapartíið verður á efri hæðinni á Faktorý og byrjar klukkan 22. Það ætti engum að leiðast við að hlusta á Jónas Sigurðsson, Prins Póló, Borko og Sin Fang. Þeir sem vilja vera öruggir um að fá tækifæri til að hlýða á þessa vinsælu tónlist- armenn ættu að tryggja sér miða í forsölu á midi.is. Miðinn kostar 2.000 krónur. Endilega… …farðu í partí í kvöld á Faktorý Morgunblaðið/Ernir Tónleikar Jónas Sigurðsson stígur á svið á Faktorý í kvöld. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir heimildarmyndina Villta Kína – Heimkynni pöndunnar (5. hluti af 6) í Öskju 132, í dag, miðvikudag, kl. 16.30. Þessi magnaða þáttaröð BBC fjallar um ýmis landsvæði Kína og það dýra- og mannlíf sem fyrir augu ber. Í þessum fimmta hluta er sýnt frá hjarta Kína þar sem Gulaá og Yangzi-á renna og markast af múrn- um mikla í norðri. Sýningartími: 60 mín. Allir velkomnir. Heimildarmynd í dag Heimkynni pöndunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.