Morgunblaðið - 27.03.2013, Síða 32

Morgunblaðið - 27.03.2013, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 ✝ Lilja Dórafæddist á Ak- ureyri 17. sept- ember árið 2011. Hún lést 15. mars 2013. Foreldrar Lilju Dóru eru Svana Ósk Rúnarsdóttir, f. 11. ágúst 1983 á Ak- ureyri, og Ástþór Örn Árnason, f. 6. júlí 1984 á Akureyri, sauðfjárbændur í Fjósatungu í Þingeyjarsveit. Foreldrar Svönu Óskar eru Elín Sigurlaug Árna- dóttir, f. 3.9. 1956, og Rúnar Jónsson, f. 13.3. 1956. Foreldrar Ástþórs Arnar eru Kristín Linda Jónsdóttir, f. 9.8. 1961, og Sigurður Árni Snorrason, f. 14.6. 1961. Systkini Svönu Óskar eru Katrín, f. 6.1. 1987, sambýlismaður Birgir Örn Smára- son, f. 26.8. 1984, og Stefán Fannar, f. 7.10. 1993, bræður Ástþórs Arnar eru Halldór Logi, f. 4.7. 1989, sambýliskona Arndís Helgadóttir, f. 17.7 1989, og Jón Fjalar, f. 1.9. 1999. Útför Lilju Dóru fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 27. mars 2013, og hefst athöfnin kl. 13.30. Elsku Lilja Dóra okkar, engin orð fá því lýst sem við erum að ganga í gegnum eftir að þú varst tekin frá okkur, hugurinn reikar og minningarnar hlaðast upp, þó að ævi þín hafi verið allt of stutt er margs að minnast og mikils að sakna. Dagurinn sem þú komst í heiminn rennur okkur aldrei úr minni, mikið óskaplega fannst okkur þú lítil en samt svo stór. Ljósmæðurnar sögðu að þú vær- ir ekki sviplaust ungbarn, strax þá varstu svipmikil, ákveðin og vissir hvað þú vildir. Það sem einkenndi þína alltof stuttu ævi var hversu glöð þú alltaf varst, já þú varst glöð, ákveðin og fékkst þínu fram. Þú varst aldrei að væla yfir því sem ekki gekk vel, stundum reiddist þú út í það sem ekki gekk upp en það tók fljótt af og þú varst aftur farin að hlæja, skríkja og stríða. Já, þú varst mjög stríðin, sér- staklega við okkur, hljópst um húsið berrössuð og faldir þig fyr- ir okkur þegar við ætluðum að setja nýja bleiu á þig. Þú varst ekki mikið fyrir að liggja kyrr og kúra, alltaf að vinna, brasa eitt- hvað. En þegar átti að setja þig í náttföt hljópstu oft í fangið á pabba í sófanum og vildir þá kúra. Auðvitað fékkstu það, enda vissir þú að með því keyptir þú nokkrar mínútur áður en mamma fór svo með þig í rúmið og söng fyrir þig Bíum bíum bambaló sem við sungum alltaf fyrir þig áður en þú sofnaðir. Þú varst mjög dugleg, alltaf að vinna, þú varst svo mikil bú- kona og varst með okkur úti í fjárhúsum mörgum stundum, gafst kindunum og sagðir þeim til. Já, þú varst ekki hrædd við kindurnar og fyrr um morguninn daginn sem þú varst tekin frá okkur sastu á gólfinu fyrir fram- an rúmlega hundrað kinda hóp með litla röragrind á milli ykkar og sagðir þeim til, talaðir til þeirra og baðaðir út höndunum. Það sást vel að þarna varstu að stjórna þeim. Þess á milli faðm- aðir þú hundinn og siðaðir hvolp- ana sem þér þóttu mjög fyndnir. Þegar við komum út í fjárhús hengdum við úlpurnar okkar á snaga áður en farið var að sinna verkum. Þegar þeim var lokið, og við tókum úlpurnar okkar af snaganum vissir þú að nú værum við að fara og þá sagðir þú oft „jæja, jæja“, tautaðir þetta og settir hendur fyrir aftan bak og riggaðir út fóðurganginn í átt að útidyrunum eins og gamall bóndi. En nú er komið „jæja“ og þú ert farin. Núna ertu komin á grundirnar grænu til langömmu Dóru sem þú varst skírð eftir, hún var líka tekin frá okkur áður en við vildum. Nú leikur þú við ömmu og hún passar þig þangað til við komum og hittum þig, litli krúttengillinn okkar. Nú verðum við að kveðja þig, þó að við vitum ekki hvernig við eigum að gera það. Við vitum ekki hvernig við eigum að halda áfram án þín, elsku litli engillinn okkar, en við höfum hvort annað og minningarnar um þig, ynd- islegu stúlkuna okkar, sem lifir alla tíð í hjarta okkar. En ár og eilífð skilji okkur að og enginn getur komið í þinn stað, þó skal minning þín lifa á meðan lifi ég, á meðan lifi ég. Og ég þakka vil þá dýru gjöf að lífið leit til mín og leiddi mig til þín. (F.E.) Þessum yndislegu minningum sem þú gafst okkur á stuttri ævi þinni gleymum við aldrei. Með tárum, gleði og söknuði munu þær lifa með okkur og í hjarta okkar, allt okkar líf. Við elskum þig að eilífu. Pabbi og mamma. Meira: mbl.is/minningar Í dag kveðjum við yndislegu stelpuna okkar, hana Lilju Dóru. Ég var svo heppinn að kynnast þér vel og þú varst ekki gömul þegar foreldrar þínir treystu mér fyrir þér. Ég var heimamað- ur í Fjósatungu í fimm mánuði sumarið áður en þú varst eins árs og við áttum saman margar góðar stundir. Ófá lögin var ég búin að syngja fyrir þig, spjalla við þig við matarborðið og svæfa þig. Þú tókst alltaf vel á móti afa þegar hann hitti þig og oft varstu hjá mér á Akureyri, það voru gleðistundir. Svo á ég einstaka minningu um daginn þinn 17. september. Þá var ég í Fjósatungu og fór út fyrir allar aldir til að beisla hest- ana af því að það stóð til heima- landasmölun. Það var glampandi sól og allan daginn var ég í fjár- ragi í dalnum þínum og beið eftir símtalinu. Svo komstu í heiminn síðdegis og ég fór inneftir og sá þig. Elsku dúllan hans afa síns, þú fæddist í sólargeislum og varst sjálf sólargeisli alla tíð, minning þín lifir í huga mér. Nú veit ég að þú ert á góðum stað og langamma þín Dóra lítur eftir þér. Sigurður Árni Snorrason. Fjörið blikar augum í aldrei hik í spori. Lundin mikil hrein og hlý hlaðin kviku spori. (Bjarni Halldórsson.) Á fallegum haustdegi 2011 fæddist lítið ljós í þennan heim, sem stækkaði og dafnaði vel. Fyrr en varði var hún farin að hlaupa um, troða sér helst inn í alla skápa og príla upp á stóla og borð, hún þurfti alltaf að vera að vinna. Lilja Dóra var ákveðin lítil stúlka sem vissi hvað hún vildi. Í samverustundum okkar í vetur spjölluðum við oft saman um hvað við ætluðum að gera saman í vor og sumar, sem var mjög mikið. Hún svaraði okkur alltaf á sama hátt, brosti og sagði „da- da“. Minninguna um bjarta bros- ið og fallegu fingurkossana þína geymum við djúpt í hjarta okkar. Elsku Svana og Ástþór, sökn- uðurinn er sár og mikill fyrir okkur öll. Við verðum áfram til staðar fyrir ykkur. Við burtför þína er sorgin sár af söknuði hjörtun blæða. (…) (Guðrún Jóhannsdóttir) Afi Rúnar og amma Elín Sigurlaug, Stóragerði. Elsku besta Lilja Dóra mín. Allar stundir með þér voru einstakar. Það finnur maður nú þegar þú ert horfin á braut svo skyndilega. Þegar þú komst í af- mæli langafa þíns, svo skírnin þín í Draflastaðakirkju, 12.11. 2011. Þetta voru alveg sérstakir viðburðir þar sem þú varst aðal- manneskjan. Það var nú þannig með þig, þú varst svo sérstök, frísk, dugleg, ákveðin og starf- söm. Ég vil þakka þessar stundir með þér, elsku Lilja Dóra mín. Þær eru ljósir punktar í sorginni sem nú heltekur fjölskylduna. Mestur er missirinn hjá foreldr- um þínum Svönu Ósk og Ástþóri. Einnig er sorgin þung hjá ömm- um þínum og öfum, þeim Ellu og Rúnari, Lindu og Árna og svo móður- og föðursystkinum. Að hafa átt Lilju Dóru er ein- stakt ævintýri, sem við verðum að geyma í hjarta okkar. Við verðum að vera þakklát fyrir að hafa fengið að eiga þennan gim- stein um stund. Elsku Svana og Ástþór, þið hafið sýnt og sannað að þið eruð dugmikið fólk. Þið hafið unnið hvert þrekvirkið af öðru á und- anförnum árum. En þetta er það erfiðasta af öllu erfiðu. Við vitum að það er erfitt framundan. En látið ekki bugast. Við verðum að styðja hvert annað í þessari þungu sorg. Verum minnug þess að þeir einir missa sem eiga. Sólveig langamma. Ég man það svo vel í hvert skipti sem ég kom í Fjósatungu að þú komst hlaupandi til mín, teygðir hendurnar upp til mín og vildir að ég tæki þig upp. Svo þegar ég beygði mig niður til þín greipstu um hálsinn á mér og ég tók þig upp, svo vildir þú bara alls ekki sleppa. Þú faðmaðir mig alltaf svo fast og innilega þó þú hefðir ekki séð mig lengi. Mér þótti svo vænt um þig og þér um mig. Þegar ég var að passa þig og mamma þín og pabbi voru að vinna gekk alltaf vel hjá okkur. Þú varst alltaf svo glöð og skemmtileg og mér þykir ótrú- lega vænt um þig alltaf og ég sakna þín mjög mikið. Jón Fjalar Árnason. Elsku Lilja Dóra. Þú varst alltaf miðpunktur at- hyglinnar hvar sem þú fórst og allir elskuðu þig afar heitt. Þín verður sárt saknað en ég mun minnast þín með gleðinni sem þú breiddir út til allra sem þú hittir. Alltaf var ég svo montinn og stoltur stóri frændi þinn og ég hlakkaði alltaf til að vera þinn uppáhaldsfrændi. Í hvert skipti sem ég hitti þig þá gladdirðu mig með því hvernig þú horfðir alltaf svo einkennilega en gleðilega á mig. Þú munt alltaf eiga stóran sess í hjarta mínu og munt fylgja mér um ókomna tíð. Hún er ljóshærð og lagleg, hún er ljúf eins og vor. Stráir ástríku yndi við hvert einasta spor. Hún er elskuð af öllum, og í athöfnum dygg. Hún var sólskinsbarn síglatt. Hún er saklaus og trygg. (Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli.) Þinn frændi, Stefán Fannar. Lilja Dóra, svo yndisleg, þráð og elskuð. Augasteinn foreldra sinn og ljós fjölskyldunnar allr- ar. Ég þakka fyrir hverja stund með þér og geymi minningu þína að eilífu ljóslifandi í huga mínum. Þú varst ákveðin og kraftmikil stelpa sem sópaði að og amma var viss um að þú yrðir boðberi réttlætis, jöfnuðar, framtaks og framfara, skörungur, valkyrja. Þú fórst létt með að mæta í eld- húsið og halda ræðu og leggja áherslu á orð þín með viðeigandi líkamstjáningu og svipbrigðum þó að þú værir ekki farin að tala með hefðbundnum orðum. Þú hafðir þessa miklu innri orku, sterku ljómandi útgeislun, gleði, birtu og hlýju, mikinn persónu- leika. Þú átt einstaka foreldra sem umvöfðu þig ást og myndugleika og hvert atriði í uppeldi þínu var ígrundað og vandað. Þar var ekki kastað til höndunum heldur markvisst leitað nýjustu þekk- ingar á sviði uppeldismála og hver þáttur ákveðinn á besta veg hvort sem um var að ræða mótun svefnvenja, fæðuval, fatnað, leik- föng, reglur, örvun eða hvatn- ingu. Á einu andartaki misstum við þig frá okkur, harmurinn er dýpri en orð fá lýst. Okkar er að leggja hendur hvort um annað, hlúa allar stundir að foreldrun- um ungu sem misstu barnið sitt. Minnast þín ætíð, elskuð Lilja Dóra, með gleði og þakklæti og trúa að aftur lýsi ljós í dal. Kristín Linda Jónsdóttir. Ástarfaðir himinhæða, heyr þú barna þinna kvak, enn í dag og alla daga í þinn náðarfaðm mig tak. Náð þín sólin er mér eina, orð þín döggin himni frá, er mig hressir, elur, nærir, eins og foldar blómin smá. Einn þú hefur allt í höndum, öll þér kunn er þörfin mín, ó, svo veit í alnægð þinni einnig mér af ljósi þín. Anda þinn lát æ mér stjórna, auðsveipan gjör huga minn, og á þinnar elsku vegum inn mig leið í himin þinn. (Steingr. Thorsteinsson.) Elsku fallega frænka mín. Nú hefur ástarfaðir himin- hæða tekið þig í faðm sér svo skyndilega og svo unga og eftir stöndum við ringluð og sorg- mædd og skiljum ekki neitt. Við áttum alveg eftir að fá að kynnast þér eins og við höfum fengið að kynnast börnunum í okkar stóra frændgarði frá Upp- sölum. Ég sagði við ömmu þína í fyrrasumar að mig langaði að heimsækja ykkur í sveitina og kynnast þér betur – en þú varst of snögg fyrir mig og nú verðum við bara að kynnast í huganum. Elsku foreldrar, Svana mín og Ástþór. Saman eignuðust þið þetta litla ljós og nú verður það hlutskipti ykkar að eiga þetta litla ljós á himnum. Megi Guð gefa ykkur allan þann styrk sem þarf. Elsku Ella Silla, Rúnar, Kata og Stefán, Sólveig og Árni og öll fjölskyldan. Við sendum ykkur öllum okkar innilegustu samúð- arkveðjur og biðjum Guð að leiða litlu Lilju Dóru á ljóssins vegum. F.h. frændfólksins sunnan heiða, Sigurlaug Halldórsdóttir. Elsku hjartans Lilja Dóra mín. Þú komst með svo mikla gleði og birtu í lífið, þú varst allt- af svo kát og glöð. Þegar Svana systir bað mig um að vera skírn- arvott við skírnina þína þá var ég svo ánægð og var svo montin með að fá að vera guðmóðir þín. Ég er svo þakklát fyrir stund- irnar sem ég átti með þér og ég á mikið af góðum minningum sem munu fylgja mér alla tíð. Þá mun ég sérstaklega muna gleðina sem ríkti alltaf í kringum þig. Þín verður sárt saknað og þú munt ávallt vera í hjarta mínu, elsku Lilja Dóra. Elsku Svana og Ástþór, ég mun standa við hlið ykkar í gegnum þessa erfiðu tíma og verð ávallt til staðar fyrir ykkur. Hún mun í gegnum myrkrin lýsa þín minning hlý og sólskinsbjört, og hugljúf eins og vögguvísa, er vorið hefur bezta gjört. Hve björt hún var þín sólarsýn, og sólskinsgjafi brosin þín! Hve örðugt reyndist oss að skilja, hve angursár var hlutur þinn, er kveðjum við þig, hvíta lilja, við kumblið dökkt í hinzta sinn. Ó, sorgarinnar ljóðaljóð var líka um þig, sem varst svo góð. (Guðmundur Frímann.) Katrín. Þetta er tíminn þegar dagur- inn verður lengri en nóttin og sólin okkar skæra klifrar hærra og hærra upp himnastigann af svo miklu öryggi að snjórinn klökknar af aðdáun. Þessir von- björtu dagar sem hvísla heitar sumarsögur gegnum norðan- strenginn og kveikja drauma um gróður og líf. Og aldrei voru norðurljósin fallegri og aldrei var útmánaðadagurinn bjartari en einmitt þennan óskiljanlega dag. Daginn þegar harmurinn kom. Þá hurfu norðurljósin, tím- inn fraus og dagurinn þagnaði og hvarf. Ekkert eftir nema ör- væntingin og sorgin. Ekkert meir hægt að segja, samt var allt ósagt. Ég horfi á mynd af lítilli stúlku með þykka rauða vett- linga. Hún er í bláum kuldagalla og heldur hróðug á stóru snjó- stykki. Hún er greinilega að vanda sig fyrir myndavélina, ætl- ar að vera fín á jólakortsmynd- inni, en maður á samt von á því að skyndilega skipti hún um skoðun, fari að hlæja og bíti stór- an bita úr snjókökunni. Þetta er hún Lilja Dóra, litla frænka mín, sem situr þarna í tandurhreinni mjöll og horfir til mín. Hún er með snjóhvíta loðhúfu, svona ís- bjarnarhúfu, á höfðinu, það er hiti í bústnum kinnunum og svip- urinn minnir mig á Ellu ömmu hennar og ég les eitthvað und- urblítt úr fallegu augunum og mér finnst eins og hún bíði eftir að segja mér eitthvað, eða kannski ætlar hún að sýna mér fínu hlýju vettlingana sína. Eða kannski ætlar hún bara að bjóða mér bita af kaldri snjókökunni. Eða hvað? Það fæ ég aldrei að vita. Og þetta er líka tíminn sem heiðlóurnar tygja sig til farar hingað upp. Við skulum biðja þær við komuna að syngja dirrindístefin sín fyrir litla stúlku sem horfir til mín þar sem hún situr í hvítri mjöllinni með hlýju rauðu vettlingana og pass- ar stóru snjókökuna sína. Eyþór Árnason. Yndislega litla stelpan mín, Lilja Dóra. Þegar ég heyrði fyrst að þú værir á leiðinni í þennan heim varð gleði mín mikil, ég hafði nefnilega verið að bíða eftir þér í nokkurn tíma. Ég er mjög náin foreldrum þínum, hef verið mikið hjá þeim í sveitinni í gegn- um tíðina. Þau eru bæði æðislegt fólk en mjög ólík, þannig að ég vissi að þú myndir verða góð blanda. Svo komstu í heiminn brosmild, gull- falleg og ákveðin. Ég fékk þann mikla heiður að vera skírnarvott- ur þinn eða guðfaðir eins og ég vildi sjálfur kalla mig og gaf ég þér kross um hálsinn í skírnar- gjöf en við bræður fengum allir kross frá skírnarvottum okkar. Nú hugsa ég brosandi til þess að krossinn frá Loga frænda verður alltaf hjá þér og passar þig. Þú varst nú ekki alltaf alveg sátt við Loga frænda í fyrstu, hann bjó fyrir sunnan og þú varst líklega ekki sátt við hvað hann heimsótti þig sjaldan. Ég sagði alltaf að ég myndi ná þér seinna á mitt band. En því miður var sá tími alltof stuttur og sorgin yfir því að geta ekki fylgst með þér fullorðnast í fallegu sveitinni þinni er ólýsan- leg, en nú verðum við að lifa með henni og gleðjast í þínu nafni enda varst þú alltaf svo glöð og brosmild. Ég man þegar þú komst suður með mömmu og pabba nú í jan- úar. Þið voruð hjá ömmu og ég kom til ykkar eftir æfingu. Hafði ég með mér Serrano-skyndibita, þú komst til mín og vildir fá bita, mamma þín leyfði það eftir að hafa fengið að vita hvert inni- haldið var, þú beist í og svo kom þetta æðislega fallega bros og svo hljópstu í burtu að leika, en um leið og þú varst búin með bit- ann komstu hlaupandi aftur og vildir meira, Logi frændi gat ekki neitað þér um það og þarna náði hann þér á sitt band, þú varst svo ánægð með hann og hann með þig. Halldór Logi Árnason. Lilja Dóra Ástþórsdóttir ✝ Ástkær eiginkona mín, dóttir, systir, tengda- dóttir og mágkona, BEATA RYBAK ANDRÉSSON, skrifstofumaður og efnafræðingur, sem lést miðvikudaginn 20. mars á Land- spítalanum í Fossvogi, verður jarðsungin frá Landakotskirkju föstudaginn 5. apríl kl. 15.00. Þorsteinn Andrésson, Helena T. Rybak, Stanislaw Rybak, Robert Rybak, Sylwia Czaban, Stanislaw Rybak, Zdzislaw Rybak, Jensína Þórarinsdóttir, Andrés Sigurðsson, Þórarinn H. Andrésson, Sigríður Andrésdóttir, Linda Andrésdóttir. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HULDA VALGERÐUR JAKOBSDÓTTIR, lést laugardaginn 23. mars. Útförin fer fram í kyrrþey. André Bachmann, Emelía Ásgeirsdóttir, Jakob Bachmann, Auður Friðriksdóttir, Sigurður V. Bachmann, Guðrún Fjóla Björgvinsdóttir, Halldóra Sigurðardóttir, Runólfur Sigtryggsson, Júlíus Heiðar Sigurðsson, Kristín Birgisdóttir, Sigurbjörn Bachmann, Sigrún Bjargey Eðvarðsdóttir, Jóhannes Bachmann, Sigurrós Jónsdóttir, Kristín Bachmann, Gylfi Engilbert Rafnsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.