Morgunblaðið - 27.03.2013, Síða 42

Morgunblaðið - 27.03.2013, Síða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013 Elín Tryggvadóttir er hjúkrunarfræðingur og starfar á bráðasviði Landspítalans. „Það er bara æðislegt. Okkur leiðist aldrei,“ segir hún um starfið, sem sé afar gefandi, þrátt fyrir mikið álag á spítalanum. Hún vinnur næturvaktir í bland við dagvaktir en eyðir frítímanum í faðmi fjölskyldunnar og hyggur á ferðalag um Vestfirði í sumar með eiginmanni, Guðjóni Guðmundssyni, og þremur börnum. Hún hefur einnig gaman af því að elda og hefur stundað boot camp í nokkur ár en vanrækt það undanfarið, með tilheyrandi afleiðingum. „Ég get varla hreyft mig núna. Er búin að skrópa svolítið en mætti í gær og er dálítið aum,“ segir hún og hlær. Líkaminn refsi sér sjálfur fyrir kæruleysið. Elín er 38 ára í dag en fagnar tvöföldu afmæli. „Já, það er svolítið skemmtilegt við afmælið mitt að ég fékk manninn minn í afmælisgjöf fyrir 20 árum. Þannig að við eigum 20 ára afmæli. Mágkona mín gaf mér hann,“ segir hún umbúðalaust en er umsvifalaust beðin um nán- ari útskýringar. „Við vorum saman í Versló, ég og mágkona mín, og hún átti svona ægilega sætan bróður sem hún gaf mér á afmælisdag- inn minn. Hún bauð mér í partí og þar var hann, prinsinn,“ segir hún og hlær aftur. Það fylgir ekki sögunni hvort mágkonan batt bók- staflega slaufu á bróðurinn en það varð ekki aftur snúið. „Ég held að hún hafi alveg vitað hvað hún var að gera,“ segir Elín um mágkon- una. „Örlagavaldurinn,“ bætir hún við. holmfridur@mbl.is Elín Tryggvadóttir er 38 ára í dag Barnalán Elín og Guðjón eiga börnin Grím Nóa 12 ára, Evu Elínbjörtu 8 ára og Auðbjörgu Eddu 3 ára. Myndin er tekin í Vestmannaeyjum. Fékk eiginmann- inn í afmælisgjöf Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Ósló Aron Freyr fæddist 27. janúar. Hann vó 3.260 g og var 50 cm langur. Foreldrar eru Kolbrún Ásta Jónsdóttir og Jósep Þ. Jónsson. Nýir borgarar Reykjavík Alexander Örn fæddist 11. júní. Hann vó 4.095 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Tinna H. Arnardóttir og Andrew Robert Harper. H örður fæddist á Skaga- strönd 27.3. 1933 en ólst upp á Sauð- árkróki. Hann var í sveit á sumrin á Sel- nesi á Skaga, á Gauksstöðum á Skaga í tvö sumur og á Syðstu-Grund í Blönduhlíð í þrjú sumur, auk þess sem hann var þar einn vetur og gekk þá í barnaskólann á Stóru-Ökrum. Eftir fermingu var Hörður á síld í eitt sumar. Hann lærði bakaraiðn hjá Guðjóni Sigurðssyni, bakarameistara á Sauðárkróki, lauk sveinsprófi á tví- tugsafmælisdeginum sinn og stund- aði framhaldsnám í bakstri í Þránd- heimi í Noregi 1953-54. Hann starfaði hjá Guðjóni í Sauð- árkróksbakaríi til 1958, tók þá við rekstri Alþýðubrauðgerðarinnar á Akranesi og rak hana 1958-63. Hann keypti þá bakaríið, breytti nafni þess í Harðarbakarí og starf- Hörður Pálsson, bakarameistari á Akranesi - 80 ára Fjölskyldan samankomin Hörður og Inga Þórey, ásamt Guðrúnu Bryndísi, Sigurði Páli, Herði og Sigríði Önnu. Bindindismaðurinn og bakarinn á Skaganum Afmælisbarnið Hörður Húnfjörð Pálsson, bakari og söngvari. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is BJÓÐUM NOKKRAR GERÐI R AF FERMINGARBORÐUM. Fjölbreyttir réttir smáréttabo rðanna okkar henta bæði í hádegis- og kvöldveislur. Steikarhlaðborðin eru alltaf vinsæl, sérstak- lega ef um kvöldveislu er að ræða. Bjóðum upp á tvær gerðir kaffihlaðb orða, en einnig er í boði að panta einstaka h luta úr þeim. t.d Kaffisnittur, fermingartertur. Pinnahlaðborð eru þægileg og slá hvenær s em er í gegn. Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is æðisleg veislan verður Ferming ar- Góð ferm ingar- veisla lifi r lengi TapasSmáréttir Kaltborð P innamatur SÚPA BRAUÐ OG SMÁRÉTT IR Hádegisveisla á milli kl 12 - 14 Verð frá kr. 2.412 TAPASVEISLA 9 RÉTTIR Síðdegisveisla 16 -19 Verð frá kr. 3.095 TERTU OG TAPASBORÐ. Miðdegisveisla 13 - 15 Verð frá kr. 3.222 STEIKARBORÐ Kvöldveisla 17 - 20 Verð frá kr. 3.095 FERMINGARKAFFIHLAÐBO RÐ Miðegisveisla 14 - 17 Verð frá kr. 2.090 LÉTTIR FORRÉTTIR OG STEIKARBORÐ Verð frá kr. 3.640 PINNAMATUR Miðdegisveisla 14-17 Verð frá kr. 2.460 KALT HLAÐBORÐ FISKRÉTTIR Verð frá kr. 4.687

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.