Morgunblaðið - 27.03.2013, Qupperneq 46
AF LEIKHÚSI
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Nemendur á lokaári leik-arabrautar leiklistar- ogdansdeildar Listaháskóla
Íslands ráðast ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur í lokaverkefni
sínu, setja upp Draum á Jónsmessu-
nótt eftir Shakespeare. Verkið var
frumsýnt föstudaginn 22. mars í
Smiðjunni, sýningarrými skólans við
Sölvhólsgötu og var ekki annað að
heyra af viðtökum áhorfenda að sýn-
ingu lokinni en að hún hefði verið vel
heppnuð, mikið lófatak og fagn-
aðarlæti. Og leikararnir hafa líklega
verið nokkrum kílóum léttari, slíkur
var hitinn í Smiðjunni. Kannski
gleymdist að kveikja á loftræsting-
unni? Kannski er engin loftræsting?
Hver veit. Eða kannski voru leik-
ararnir bara svona sjóðandi heitir,
ungir og graðir (afsakið orðbragðið
en kynlíf og skjóllítil klæði eru áber-
andi í uppfærslunni) og óhræddir að
takast á við snúinn og listilega ortan
texta Vilhjálms.
Uppfærslan er nútímaleg, karl-menn í þröngum gallabuxum
og háum stígvélum og konur í nær
gegnsæjum undirkjólum, á nærhald-
inu jafnvel eða einhvers konar sadó-
masókískum búningum. Enda ræður
lostinn ríkjum í álfaskóginum, þar
spila kynóðir og stríðnir álfar með
tilfinningar manna sem þangað rata,
breyta ást í hatur og mönnum í asna.
Við mennirnir eigum það til að haga
okkur eins og asnar og maklegt að
við fáum að kenna á því, svona af og
til, að náttúran taki í taumana. Álf-
urinn Bokki, ein af lykilpersónum
verksins, titrar af gleði og tilhlökkun
þegar hann fær unga og saklausa
elskhuga frá Aþenu að spila með.
Elskendur sem fá ekki að njótast
vegna ósanngjarnra hjúskaparlaga í
karlaveldi heimaborgarinnar og
flýja á vit frelsisins. Þeir eiga ekki
von á góðu.
Það er ekki hlaupið að því aðlýsa Draumi á Jónsmessunótt, í
Svitablautur
verkinu er engin ein meginsaga
heldur fjórar sem lifa hver sínu sjálf-
stæða lífi. Verkið er skemmtilega
skrítið, eins og furðulegur, blautur
draumur. Draumur sem maður vill
ekki að taki enda. Í uppfærslu Nem-
endaleikhússins, í leikstjórn Stefáns
Jónssonar, er fyrirferðarmestur sá
hluti sem fram fer í álfaskóginum og
hann er bæði spaugilegur og drama-
tískur. Skemmtilegust er þó sagan
af handverksmönnunum sem eru að
undirbúa leiksýningu fyrir Þeseif,
hertoga í Aþenu. Þar fer hreinn og
klár gamanleikur og bráðfyndinn.
Spóli, sá ákafasti handverksmann-
anna, er fantavel leikinn af Þorleifi
Einarssyni og ljóst að þar fer efni í
góðan gamanleikara. Leikrit hand-
verksmannanna í höll hertogans
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2013
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Hin heimskunna þýska sópran-
söngkona Diana Damrau kemur
fram á tónleikum á Listahátíð í
Reykjavík 2. júní næstkomandi,
ásamt hinum virta franska hörpu-
leika Xavier de Maistre. Tónleikarn-
ir verða í Eldborgarsal Hörpu.
Damrau hefur undanfarin ár verið
ein skærasta stjarna óperuheimsins,
og hefur til að mynda sungið frá
árinu 2005 mörg hlutverk í Metropo-
litan-óperunni í New York. Hún er
einnig afar vinsæll ljóðasöngvari,
sögð „drottning kóleratúr-söngs“ í
dag, búa yfir einstakri söngtækni og
mikilli útgeislun á sviði. Eru tón-
leikar þeirra de Maistre hér liður í
tónleikaferð um Evrópu í sumar.
„Sannkölluð stórstjarna“
„Ég get staðfest það að Diana
Damrau heldur tónleika hér ásamt
Xavier de Maistre. Það er afar
ánægjulegt því þessi kona er sann-
kölluð stórstjarna,“ segir Hanna
Styrmisdóttir, listrænn stjórnandi
Listahátíðar í Reykjavík.
Hanna segir tónleika Damrau hafa
verið eitt þeirra verkefna sem hafi
verið komin af stað þegar hún tók við
starfinu í haust enda fái Listahátíð
ekki stjörnur á borð við Damrau til
liðs við sig með nokkurra mánaða
fyrirvara. Hún segir segir ánægju-
legt að vera nú að kynna þátttöku
Damrau á Listahátíð á sama tíma og
fjölmiðlar heimsins ausa söngkonuna
lofi fyrir söng hennar sem Víoletta í
La traviata á sviði Metropolitan-
óperunnar, þar sem hún syngur á
móti Placido Domingo.
„Listahátíð vinnur bæði með ung-
um og efnilegum listamönnum og
stórstjörnum af hinu alþjóðlega
sviði; við spönnum allt litrófið í list-
unum. Ris Damrau upp á stjörnu-
himininn hefur verið hratt, hún slær
í gegn á árunum 2007 og 2008 og er
síðan, á örfáum árum, orðin að stór-
stjörnu, virt og vinsæl,“ segir Hanna.
Ljóðaperlur
Eins og Hanna segir er Damrau
stórstjarna í viðamiklum upp-
færslum helstu óperuhúsanna, en
samhliða því leggur söngkonan
mikla áherslu á flutning sönglaga og
ljóða á persónulegum og innilegum
nótum. Hefur komið út fjöldi diska
með henni, þar sem hún flytur jafnt
krefjandi efnisskrá óperuhúsanna og
ljóðatónlist.
Á væntanlegum tónleikum þeirra
de Maistre í Hörpu verður hefð-
bundið ljóðatónleikaform brotið upp
með samruna töfra mannsradd-
arinnar og margslungins hljóðheims
hörpunnar. Ljóð eftir Schubert, Tár-
rega og Strauss munu mynda dag-
skrá fyrri hluta tónleikanna en eftir
hlé leiða listamennirnir áhorfendur
til Frakklands þar sem fluttar verða
valdar perlur franskra ljóða-
tónbókmennta eftir Fauré, Hahn,
Chausso, Duparc og Dall’Acqua.
Diana Damrau og Xavier de Mai-
stre hafa unnið saman að flutningi og
upptökum á ljóðatónlist í nokkur ár
og hlotið hástemmt lof fyrir. Fyrir
diskinn „Nuit d’Etoiles“, þar sem
þau flytja tónlist eftir Debussy, hlaut
Maistre til dæmis þýsku tónlist-
arverðlaunin Echo Klassik Award
sem hlóðfæraleikari ársins.
Verðlaunaður hörpuleikari
Rétt eins og Damrau er lofuð fyrir
fegurð raddarinnar og fagra túlkun,
hefur Xavier de Maistré hlotið mikið
lof fyrir hörpuleik sinn og ekki síst
fyrir að breyta tónlistarlegu um-
hverfi hörpueinleikara. Hann leikur
oft á tíðum ögrandi verk sem yfirleitt
eru flutt af stórum hljómsveitum.
Sem einleikari hefur hann komið
fram með mörgum helstu hljóm-
sveitum og hljómsveitarstjórum
heims, og á virtustu tónlistarhátíðum
Evrópu. Nýjasti diskur hans, „Notte
Veneziana“, þar sem hann spilar bar-
okktónlist með hljómsveitinni L‘art
del mondo, fékk eindæma lof gagn-
rýnenda og er á topp tíu á klass-
ískum tónlistarlistum.
Miðasala á tónleikana hefst í dag á
vefnum www.listahatid.is og í miða-
sölu Hörpu.
Söngstjarnan Diana
Damrau á Listahátíð
Kemur fram í
Eldborg ásamt
Xavier de Maistre
Ljósmynd/Tanja Niemann
Sópransöngkonan Hinni þýsku Diana Damrau hefur skotið hratt upp á
stjörnuhimininn. Er hún með vinsælustu óperu- og ljóðasöngvurum í dag.
Tónskáldin Gerhard Stäbler, sem er þýskur,
og Kóreumaðurinn Kunsu Shim verða gestir á
tónleikum Jaðarbers á Kjarvalsstöðum í kvöld,
miðvikudag klukkan 20.
Tónskáldin tvö koma fram sem flytjendur á
tónleikunum, studdir hópi heimamanna.
Stäbler og Shim hafa starfað saman frá
árinu 2000 og hafa haft umtalsverð áhrif á
sviði tilraunatónlistar. Þeir stofnuðu í Duis-
burg miðstöð og vettvang fyrir tilraunatónlist
sem nefnist „Earport“. Stäbler hefur verið
áberandi í þýskri tilraunatónlist síðan á 9. ára-
tug seinustu aldar og þar gekk Shim til liðs við
Wandelweiser-hópinn árið 1994, hreyfingu
sem hefur unnið með „þögla“ tónlist.
Ókeypis er á tónleikana í kvöld.
Gerhard Stäbler og Kunsu Shim
gestir á tónleikum Jaðarbers
Tónskáldið Gerhard Stäbler
er annar gestanna.
Ófeigur gengur aftur
Ófeigur er nýlátinn en andi hans neitar að
halda yfir móðuna miklu og heldur til í sínu
gamla húsi þar sem þau Anna og Ingi búa
núna. Þar fylgist hann með öllu og er óhrædd-
ur við að láta skoðanir sínar í ljós. Leikstjóri:
Ágúst Guðmundsson og með helstu hlutverk
fara Laddi, Gísli Örn Garðarsson og Ilmur
Kristjánsdóttir.
Croods 3D
Þrívíddarteiknimynd um forsögulega fjöl-
skyldu sem neyðist í ferðalag þegar hellirinn
hennar hrynur saman. Leikstjórar: Kirk De
Micco & Chris Sanders.
Rottentomatoes.com: 66%
Draugur Laddi fer með
hlutverk Ófeigs.
Bíófrumsýningar
Afturganga og forsöguleg fjölskylda
Lækjargötu og Vesturgötu
Finndu fermingargjöfina í IÐU
30% afsláttur
til 4. apríl