Morgunblaðið - 29.04.2013, Síða 1
M Á N U D A G U R 2 9. A P R Í L 2 0 1 3
Stofnað 1913 98. tölublað 101. árgangur
SKRIFAR
BARNABÓK UM
VÍKINGA
VEL
LUKKAÐ
FANFEST
KOHL BETRUM-
BÆTTI SAMFÉLAGIÐ
Í VESTMANNAEYJUM
MILLJÓN MANNSÁR 36 UPPBYGGING OG JARÐEPLI 34VÍÐFRÆGT SKÚFFUSKÁLD 10
Kjartan Kjartansson
Guðni Einarsson
Líklegt er að fulltrúar Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks ræði
ríkisstjórnarsamstarf flokkanna á
næstu dögum. Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins,
segir að eðlilegast sé að láta reyna
á að mynda tveggja flokka stjórn
og að hann geri ráð fyrir að við-
ræður hefjist við framsóknarmenn
á næstunni. Það sé þó ekki sjálf-
gefið að flokkarnir tveir nái sam-
komulagi um samstarf.
„Nú er mikilvægast að mynda
sterka stjórn með skýra efnahags-
áætlun til að bæta lífskjör og auka
ráðstöfunartekjur fólks. Ég ætla
að leyfa mér að vera bjartsýnn á að
hægt sé að mynda slíka stjórn,“
segir Bjarni, sem er jafnframt
tilbúinn til að leiða næstu ríkis-
stjórn.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
segist bjartsýnn á að það takist að
ná samstöðu um baráttumál flokks
síns og að í fylgisaukningu hans
felist krafa um að ráðist verði í
þau.
„Þetta veitir okkur sterka stöðu
til þess að knýja á um að sú verði
raunin,“ segir hann.
Baðst lausnar á Bessastöðum
Búast má við að línur taki að
skýrast varðandi stjórnarmyndun
eftir daginn í dag en Ólafur Ragn-
ar Grímsson, forseti Íslands, hefur
boðað formenn allra flokka sem
náðu manni á þing á sinn fund áður
en hann ákveður hverjum hann fel-
ur umboð til að mynda nýja stjórn.
Jóhanna Sigurðardóttir, fráfar-
andi forsætisráðherra, gekk á fund
forsetans í gær til að biðjast lausn-
ar fyrir ríkisstjórn sína. Hún mun
þó starfa áfram þar til ný ríkis-
stjórn hefur verið mynduð. Þakk-
aði forsetinn henni forystu sína á
síðustu árum og sagði jafnframt að
enginn hefði verið öfundsverður af
því að stýra ríkisstjórn á þeim erf-
iðleikatímum sem verið hefðu hér á
landi undanfarin ár.
Eftir kosningarnar á laugardag
eru Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur stærstu flokkarnir á
Alþingi með nítján þingmenn hvor
flokkur. Saman eru flokkarnir með
meirihluta atkvæða og geta mynd-
að meirihluta með 38 þingmönnum,
sem er sex mönnum fleira en til
þarf fyrir meirihluta.
Stjórnarflokkarnir guldu afhroð
og töpuðu samtals átján þingmönn-
um frá því í kosningunum 2009.
Þar af tapaði Samfylkingin ellefu
þingmönnum og Vinstri græn sjö.
Nýju framboðin Björt framtíð og
Píratar komu bæði inn mönnum,
fyrrnefndi flokkurinn verður með
sex þingmenn á næsta þingi og sá
síðarnefndi kom að þremur mönn-
um. »2, 4, 6, 12, 14-17 og 20
Bíða eftir umboði forseta
Formenn allra flokka á þingi á fund forseta í dag Stjórnarflokkarnir guldu afhroð og töpuðu rúm-
um helmingi þingsæta Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur stærstir með 38 þingmenn samtals
Morgunblaðið/Kristinn
Formennirnir Það var létt yfir þeim Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir umræðuþátt á
Stöð 2 í gærkvöldi enda eru flokkar þeirra stærstir eftir kosningarnar á laugardag. Þeir hafa 19 þingmenn hvor.
Grindavík tókst að verja Íslands-
meistaratitil sinn í körfuknattleik
karla þegar liðið hafði betur gegn
Stjörnunni 79:74 á heimavelli sínum
í Grindavík í gærkvöldi. Grindavík
sigraði samanlagt 3:2 í úrslita-
rimmu liðanna um titilinn.
Leikurinn í gærkvöldi var æsi-
spennandi rétt eins og rimma lið-
anna var. Stjarnan var 2:1 yfir að
loknum þremur leikjum og virtist
líklegri til sigurs en Grindavík
tókst að vinna síðustu tvo leikina og
í fyrsta skipti í sögu félagsins land-
aði liðið titlinum á heimavelli.
Gríðarleg stemning var á áhorf-
endapöllunum í íþróttahúsinu í
Grindavík í gærkvöldi og voru
stuðningsmenn liðanna svo gott
sem búnir að fylla húsið þegar rúm-
ur klukkutími var í að leikurinn
skyldi hefjast.
Því verður tæplega á móti mælt
að Grindavík og Stjarnan hafi
reynst bestu körfuboltalið landsins
þennan veturinn því auk þess að
komast í úrslit Íslandsmótsins kom-
ust þau einnig í úrslit bikarkeppn-
innar. Þar hafði Stjarnan hins veg-
ar betur og varð bikarmeistari en
Garðbæingar þurfa að bíða enn um
sinn eftir fyrsta Íslandsmeistaratitli
félagsins í íþróttinni. Liðið komst
einnig í úrslit Íslandsmótsins árið
2011 en tapaði þá fyrir KR.
kris@mbl.is » Íþróttir
Grindvíkingar
vörðu titilinn
Stjarnan þarf að bíða enn um sinn
Morgunblaðið/Eggert
Bikarinn á loft Þorleifur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur, hóf bikarinn á loft við góðar undirtektir samherjanna.
Mikil endurnýjun átti sér stað í al-
þingiskosningunum á laugardaginn
var. 27 nýliðar voru kjörnir á þing
eða sem nemur um 42,85% þing-
heims. Mest er endurnýjunin frá
hruni í röðum Framsóknarflokks-
ins en meðaltal starfsaldurs þing-
flokks hans er rúmt eitt og hálft ár.
Aðeins hjá Samfylkingunni varð
engin nýliðun í þingliðinu. Í kosn-
ingunum 2009 náðu 27 nýir þing-
menn kjöri og sitja 14 þeirra áfram.
Athygli vekur í samanburðinum
að meðaltalið hjá Bjartri framtíð er
um heilu ári meira þó að flokkurinn
sé nýr á þingi. Munar þar mestu
hátt hlutfall nýliða Framsóknar en
tólf af nítján þingmönnum flokksins
koma nú nýir inn á þingið eða sem
samsvarar um 63% þingflokksins.
Meðaltal starfsaldurs Vinstri
grænna á þingi er tæplega tíu ár.
Munar þar að sjálfsögðu mest um
aldursforseta þingsins, Steingrím J.
Sigfússon, sem hefur nú sitt níunda
kjörtímabil.
Úrslit kosninganna
26,7%
19
24,4%
19 12,9% 9
10,9% 7
8,2%
6
5,1%
3
D
B S
V
A
Þ
Endurnýjun
á þingi rúm-
lega 40%