Morgunblaðið - 29.04.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.04.2013, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013 Egill Ólafsson egol@mbl.is Ein helsta spennan á kosninganótt er hverjir verða jöfnunarþing- menn. Nokkrir menn voru inni á þingi fram eftir nóttu en duttu út við lok talningar. Þetta átti t.d. við um Heiðu Kristínu Helgadóttur, annan formann Bjartrar framtíðar, og Magnús Orra Schram, þing- mann Samfylkingarinnar. Um sjöleytið á sunnudags- morgun, þegar lokatölur úr NA- kjördæmi voru birtar, varð ljóst að Píratar myndu ná manni á þing. Þá datt Heiða út af þingi og ljóst varð að Óttarr Proppé, borg- arfulltrúi Besta flokksins, næði inn. Álfheiður Ingadóttir var inni á þingi framan af nóttu, en datt út á lokametrunum. Elín Hirst og Óli Björn Kárason, frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í SV- kjördæmi, voru ýmist inn eða út af þingi meðan talning stóð yfir. Nið- urstaðan varð sú að Elín náði kjöri en Óli Björn ekki. Þegar leið á nóttina varð ljóst að Jóhanna María Sigmundsdóttir, 21 árs bú- fræðingur frá Látrum í Mjóafirði og formaður Samtaka ungra bænda, hefði náð kjöri sem þing- maður. Þegar Jóhanna datt inn á þing féll Eyrún Ingibjörg Sigþórs- dóttir, sveitarstjóri á Tálknafirði og þriðji maður á lista Sjálfstæð- isflokksins í NV-kjördæmi, út af þingi, en hún var inni samkvæmt fyrstu tölum. Magnús Orri Schram og Björg- vin G. Sigurðsson voru ýmist inni eða úti meðan talningin stóð yfir. Niðurstaðan varð sú að hvorugur þeirra náði kjöri.Fram eftir nóttu benti flest til að Framsóknarflokk- urinn fengi þrjá menn kjörna í NA-kjördæmi. Þegar öll atkvæði höfðu verið talin fékk flokkurinn fjóra þingmenn og þar með náði Þórunn Egilsdóttir, verkefnisstjóri frá Vopnafirði, kjöri á þing. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, sem var í 3. sæti á lista Sjálfstæð- isflokks í NA-kjördæmi, var um tíma í hópi þeirra sem virtust vera að fara á þing, en Þórunn náði hins vegar að fella hana. Í fyrstu tölum voru Píratar með fjóra þingmenn, en það voru Helgi Hrafn Gunnarsson, Jón Þór Ólafs- son, Birgitta Jónsdóttir og Smári McCarthy. Undir morgun varð ljóst að flokkurinn fengi þrjá menn kjörna. Smári náði því ekki inn á þing. Að endingu má nefna að Geir Jón Þórisson lögreglumaður var um tíma í hópi þingmanna, en nið- urstaðan varð sú að hann náði ekki kjöri. Jöfnunarhringekjan var í gangi alla nóttina Morgunblaðið/Kristinn Kosninganótt Árni Páll Árnason fylgist með nýjustu tölum í Útvarpshúsinu.  Fólk fór inn og út af þingi með hverjum nýjum tölum Álfheiður Ingadóttir Björgvin G. Sigurðsson Niðurstöður alþingiskosninga 27. apríl 2013 Listabókstafur: Flokkur/framboð: J Regnboginn I Flokkur heimilanna H Húmanistaflokkurinn G Hægri grænir D Sjálfstæðisflokkurinn B Framsóknarflokkurinn A Björt framtíð 7,3% 14,8% 23,7% 9 16 6 19 19 24,4% 24,4% 24,8% 26,7% 2,8% 1,7% 1,4% 3,0% 0,8% 1,1%0,1% 0,1% 8,2% Egill Ólafsson egol@mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn og Fram- sóknarflokkurinn eru samtals með rúm 51% atkvæða. Stjórn- armynstur þessara flokka er eina tveggja flokka stjórnin sem hægt er að mynda. Önnur stjórn- armynstur kalla á stjórn minnst þriggja flokka. Í síðustu tíu þingkosningum hafa Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur sjö sinnum fengið samtals meira en 50% atkvæða. Þessir tveir flokkar náðu hins veg- ar ekki meirihluta 2007 eða 2009. Útkoma Framsóknarflokksins er sú besta síðan í kosningunum 1979. Þá fékk flokkurinn 24,9% at- kvæða og 17 þingmenn. Nú fékk hann 24,4% og 19 þingmenn. Sjálf- stæðisflokkurinn er hins vegar að fá sína næstverstu kosningu í sögu flokksins. Samfylkingin fær verstu kosningu síðan flokkurinn var stofnaður. Alþýðuflokkurinn, for- veri Samfylkingarinnar, bauð síð- ast fram árið 1995 og fékk þá 11,4%. VG tapar miklu fylgi í þessum kosningum, en flokkurinn fær samt meira fylgi en hann fékk í kosningunum 1999 og 2003. Úrslitin þýða að Samfylkingin hefur tapað 56,7% af því fylgi sem flokkurinn fékk 2009. VG hefur tapað 49,8% af sínu fylgi. Til sam- anburðar má nefna að tap Sjálf- stæðisflokksins í kosningunum 2009 var 35,2%. Annar helsti sigurvegari kosn- inganna er Björt framtíð, sem fékk 8,4% fylgi. Ef horft er til nýrra framboða sem komið hafa fram í fyrri kosningum er þetta góður sigur. Þetta er meira fylgi en Bandalag jafnaðarmanna fékk í kosningunum 1983 (7,3%), meira en Þjóðvaki fékk í kosningunum 1995 (7,2%), meira en Kvennalist- inn fékk þegar flokkurinn bauð fyrst fram árið 1983 (5,5%), meira en Frjálslyndi flokkurinn fékk þegar hann bauð fram 1999 (4,2%) og meira en Borgarahreyfingin fékk þegar hún bauð fram 2009 (7,4%). Þetta er hins vegar minna fylgi en þegar Borgaraflokkur Alberts Guðmundssonar kom fram árið 1987 og fékk 10,9% fylgi. Í þessu samhengi verður árang- ur Pírata einnig að teljast all- góður, en flokkurinn fékk 5,1% og náði markmiði sínu um að fá menn kjörna á þing. Svipuð útkoma og 1987 Úslit kosninganna þýða að fjór- flokkurinn svokallaði (Framsókn- arflokkur, Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og VG) fær samtals 74,8%. Þetta er svipuð niðurstaða og í kosningunum 1987 þegar fjór- flokkurinn fékk 74,6%, en þá bauð Borgaraflokkur Alberts Guð- mundssonar fram og Kvennalist- inn fékk þá einnig sína bestu kosningu. Fjórflokkurinn fékk 90% at- kvæða í kosningunum 2009. Besta útkoma Framsóknar í 34 ár Morgunblaðið/Eggert Fögnuður Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fagnað á kosningavöku.  Fékk 24,9% atkvæða árið 1979

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.