Morgunblaðið - 29.04.2013, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú getur þurft að setja mörg per-
sónuleg mál til hliðar meðan þú sinnir vanda-
sömu verkefni. Ekkert er sjálfgefið í þeim efn-
um frekar en öðrum. Þú ættir að láta fylgjast
með heilsunni.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er erfitt að verða óvart vitni að
hlutum milli annarra. Rólegar stundir með
sjálfum þér gefa þér orku til að takast á við
lífið í sinni margbreytilegu mynd.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert heltekin/n af hugmyndinni
um að kaupa eitthvað í dag. Reyndu að setja
þér reglur og fara eftir þeim. Ekki er allt gull
sem glóir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt þú haldir áfram að vinna eins og
hestur, ertu samt ekki viss hvað þú hefur að
bjóða heiminum. Þú gætir sigrað heiminn
með persónutöfrum þínum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú getur gert eitthvað til að hjálpa
minni máttar. Allir eiga sér drauma um betra
líf. Þú ættir að sinna þér betur en þú hefur
gert síðustu mánuði.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur svo margt á þinni könnu að
þú sérð ekki út úr augum. Dekraðu við sjálfan
þig í kvöld. Dokaðu við og gefðu þér tíma til
þess að hugsa málin.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú skiptir öllu að huga að heilsufarinu og
gæta hófs í mat og drykk. Kvöldið verður
skemmtilegt í góðra vina hópi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það getur verið skemmtilegt að
krydda hversdagsleikann með smávægileg-
um uppátækjum. Langrækni er erfiðust þeim
sem er haldinn henni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft að taka ákvörðun varð-
andi einhvers konar eignaskiptingu í dag.
Gættu þess bara að hafa báða fæturna á
jörðinni þegar þú metur eigin frammistöðu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert svo kappsöm/samur að sól-
arhringurinn dugar þér ekki til að koma öllu
því í verk sem þú vildir. Þú ert hvunndags-
hetja.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú neitar að taka lífið alvarlega –
það er einn af þínum bestu kostum. Athug-
aðu hversu mikil alvara fylgir máli og af-
greiddu það svo eftir ástæðum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur unnið mikið seinustu tvær
vikurnar, og nú skaltu ákveða hvernig þú vilt
leika þér. Himintunglin segja að brátt muni
draga til tíðinda í ástalífinu.
Sigrún Magnúsdóttir, fyrrumborgarfulltrúi, er meðal ný-
kjörinna þingmanna Framsókn-
arflokksins. Hún er gift Páli Pét-
urssyni, fyrrv. ráðherra og
alþingismanni. Þegar Sigrún sagði
honum, að hún væri komin í fram-
boð kvað hann:
Alltaf hafði ég á þér trú
áratugum saman;
þegar ég verð þingmannsfrú
þá mun verða gaman!
Ég hef áður haft orð á því, að
Ólafur Thors hafi talið Eirík Ein-
arsson frá Hæli mestan skálda á Al-
þingi eftir daga Hannesar Haf-
steins. Hér eru nokkrar vísur eftir
hann. Fyrst um heybrækurnar:
Man ég svona brækur best
blásnar í rjáfri hanga;
nú hafa þær á þingi sést,
þóst vera menn og ganga.
Á kosningafundum dag eftir dag
hættir mönnum til að flytja sömu
þuluna. Eftir framboðsfund:
Ertu ei þreyttur, munnur minn?
Mjög var reynt á þrekið.
Nú höfum við í sjötta sinn
sama rjómann skekið.
Hér kemur þingvísa;
Hjörðin sem er dauf og dreifð,
dugir ei móts við bítinn.
Okkar fagra föðurleifð,
frelsið, treðst í skítinn.
Þessi vísa ber yfirskriftina frum-
varp um fjölgun presta:
Þótt kirkjan sé vegleg og kosinn hinn
lærðasti prestur,
ég kem inn um dyrnar og fer þaðan
aftur sem gestur,
því sitthvað er orðið og útþynntur
stólræðulestur.
Í einrúmi er Kristur mér næstur og
viðræðubestur.
Eftir kosningarnar 1937. Jör-
undur Brynjólfsson var þingmaður
Framsóknarflokksins:
Jafnan sigrar Jörundur,
játum vorar nauðir.
Hann er fjár- og fjörhundur
en fólkið mestu sauðir.
Í þingveislu:
Veisla þessi og vinahót
verða ei nema prettir;
eftir skammvinn skálamót
skyrpa þeir eins og kettir
Málþurrð:
Heiðri þingsins hrakar nú.
Háttar dagskrá leiðri
eins og væri eitt til þrjú
egg í tittlingshreiðri..
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Því sitthvað er orðið og
útþynntur stólræðulestur
Í klípu
„ÉG Á DÁLÍTIÐ ERFITT MEÐ AÐ
AÐLAGAST. SÍÐASTA VERKSTÆÐI SEM
ÉG VANN Á VAR MIKLU STÆRRA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞETTA ER GLAS NÚMER TVÖ HJÁ
ÞÉR, AÐALHEIÐUR. VIÐURKENNDU
ÞAÐ BARA, ÞÚ ERT ALKI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar ósætti varir
aldrei lengi.
MARK
1. VERÐLAU
1. VERÐLAUN
ÉG ER BÚINN AÐ GERA
FULLKOMIÐ LÍKAN AF
PARÞENON Í AÞENU.
ÞAÐ TÓK
MARGA
DAGA ...
... OG ÉG HEFÐI SENNI-
LEGA EKKI ÁTT AÐ GERA
ÞAÐ ÚR SÚKKULAÐI.
PABBI, HVAÐ KALLAR MAÐUR
FÓLK SEM FINNST ÞAÐ EIGA
RÉTT Á AÐ HAGNAST Á ERFIÐI
ANNARRA?
HMMM ...
ÞAÐ ER
AUÐVELT ...
... „VÍKINGA“!
Víkverji vakti fram á miðja fyrri-nótt til að sjá hvernig úrslit kosn-
inganna yrðu. Það var ekki langt liðið
á kvöldið þegar meginstef atkvæða-
greiðslunnar varð ljóst og í raun má
segja að lítið hafi verið um stór tíð-
indi, umfram það sem þegar hafði
komið fram í skoðanakönnunum.
x x x
Kosningakvöld er dálítið eins ogEurovisionkvöld. Fólk safnast
við sjónvarpið, á í kröftugum rökræð-
um um hvaða lag sé best (nú, eða
flokkur), veitingar eru bornar fram
og etnar og rætt er um hvort kynn-
arnir kunni ensku eða ekki. Eða
hvort Bogi Ágústsson hafi elst síð-
ustu 20 ár eða ekki.
Og rétt eins og í Eurovision sýnist
hverjum sitt um niðurstöður kosning-
anna. Margir eru sáttir, sumir von-
sviknir en þó ekki hissa og enn aðrir
eru hreint út sagt hundfúlir.
Víkverji ætlar ekki að leggja dóm á
það hér og nú hvort niðurstaða kosn-
inganna sé sú besta fyrir Ísland, en
auðvitað vonar hann það.
Þó að gaman hefði verið ef fleiri
þingmenn frá nýju flokkunum hefðu
náð kjöri, til að auka fjölbreytni í
þeim skoðunum sem fá hljómgrunn á
þinginu, er það þjóðin sem velur og
hún hefur lokaorðið.
x x x
Væntingar til nýrrar ríkisstjórnareru gríðarlega miklar, og hennar
bíða erfið verkefni. En þjóðin yrði
líka þakklát ef þingheimur gæti sam-
einast um afgreiðslu þeirra mála sem
brenna helst á henni, og það fljótt. Ef
þingmenn gætu lagt innbyrðis deilur
til hliðar í nokkrar vikur og samein-
ast um að finna leiðir til að hjálpa ís-
lensku atvinnulífi, íslenskum heim-
ilum og íslenskri framtíð.
Það verkefni hlýtur að vera mik-
ilvægara en að festast í gömlum deil-
um og ósætti? Mikilvægara en að
reyna að koma höggi á andstæðinga
sína eða tefja mál þeirra fram úr
hófi? Er það ekki?
x x x
Eins og Vilborg pólfari myndi orðaþað: „Það er rosalega hollt að
leyfa sér að dagdreyma.“
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Anda sannleikans, sem
heimurinn getur ekki tekið á móti, því
hann sér hann ekki né þekkir. Þér
þekkið hann, því hann er hjá yður og
verður í yður. (Jh. 14, 17.)