Morgunblaðið - 29.04.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013
Ragnar Arnalds bendir á, aðVG ákvað að sækja um aðild
að ESB, þótt það gengi gegn
stefnu VG og hagsmunum þjóð-
arinnar: Óumdeilt er að tvöfeldnin
sem í þessu fólst
varð VG dýrkeypt
og rýrði mjög það
traust sem VG
hlaut hjá kjós-
endum í kosning-
unum 2009. Senni-
lega er leitun að
stjórnmálaflokki í
Evrópu sem farið
hefur eins að ráði sínu og til-
einkað sér svo kostulega „kíkja-í-
pakkann-stefnu“. Að sjálfsögðu
sækir engin þjóð um inngöngu í
ESB ef hún vill ekki ganga þar
inn. Svo einfalt er það.
Kannski varð það VG til lífs að
gert var hlé á aðildarviðræðunum
í upphafi ársins. Málinu var þar
með vísað til komandi rík-
isstjórnar og nýs Alþingis að kosn-
ingum loknum og jafnframt hvarf
það í skuggann af öðrum deilu-
málum.
Algengt er í kosningum að tals-
menn flokka ræði um árangur
flokks síns út frá tölum sem birst
hafa í skoðanakönnunum. Að sjálf-
sögðu er það þó hæpin viðmiðun.
Hins vegar er ljóst að nýi for-maðurinn, Katrín Jak-
obsdóttir, stóð sig frábærlega vel í
kosningabaráttunni. Jafnframt ber
að viðurkenna að kosningarnar
2009, sem fram fóru í ringulreið-
inni rétt eftir hrun, og stórsigur
VG í þeim kosningum er vafasöm
viðmiðun. Eðlilegast virðist að
skoða útkomuna í samanburði við
meðalfylgi flokksins undanfarinn
áratug.
Tæplega 11% fylgi VG nú er
góður árangur ef haft er í huga
að meðalfylgi flokksins á árunum
1999-2007 var 10,7%. En tæplega
13% fylgi Samfylkingarinnar í
kosningunum er aftur á móti aug-
ljóst afhroð og hrun í samanburði
við meðalfylgi flokksins á árunum
1999-2007 sem var 28,2%.“
Ragnar
Arnalds
Munur á eðli taps
VG og Samfylkingar
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 28.4., kl. 18.00
Reykjavík 4 skýjað
Bolungarvík -1 alskýjað
Akureyri 0 snjókoma
Kirkjubæjarkl. 5 skýjað
Vestmannaeyjar 6 léttskýjað
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló 6 skúrir
Kaupmannahöfn 10 léttskýjað
Stokkhólmur 10 heiðskírt
Helsinki 7 heiðskírt
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 12 léttskýjað
Dublin 7 skúrir
Glasgow 7 skýjað
London 11 léttskýjað
París 11 heiðskírt
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 12 léttskýjað
Berlín 13 heiðskírt
Vín 20 skýjað
Moskva 7 alskýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 7 skýjað
Barcelona 11 skýjað
Mallorca 17 skýjað
Róm 25 léttskýjað
Aþena 26 heiðskírt
Winnipeg 12 skýjað
Montreal 17 skýjað
New York 17 heiðskírt
Chicago 12 alskýjað
Orlando 24 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:06 21:46
ÍSAFJÖRÐUR 4:55 22:06
SIGLUFJÖRÐUR 4:38 21:49
DJÚPIVOGUR 4:31 21:19
Reykjavík • Skútuvogi 1 • Sími: 562 4011
Akureyri • Draupnisgata 2 • Sími: 4600 800
Reyðarfjörður • Nesbraut 9 • Sími: 470 2020
Rangt nafn undir mynd
Nafn keppanda á Andrésar andar
leikunum var rangt undir mynd á
íþróttasíðu á laugardaginn. Á mynd-
inni er Aron Máni Sverrisson, Skíða-
félagi Akureyrar. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum. Þess má geta
að Aron Máni sigraði bæði í svigi og
stórsvigi í flokki 10 ára.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
LEIÐRÉTT
Sveit VÍS varð
Íslandsmeistari í
sveitakeppni í
brids í gær en
mótið var haldið í
Perlunni í
Reykjavík um
helgina.
Tólf sveitir
tóku þátt í mótinu og fjórar efstu
sveitirnar kepptu til úrslita í gær. Í
síðustu umferðinni spiluðu sveitir
VÍS og Lögfræðistofu Íslands hrein-
an úrslitaleik. Síðarnefnda sveitin
vann þá viðureign 20:10 en VÍS end-
aði samt einu stigi ofar. Sveit Spari-
sjóðs Siglufjarðar varð í þriðja sæti
og sveit Garðs apóteks í því fjórða
Í sigursveitinni spiluðu Hlynur
Garðarsson, Hrannar Erlingsson,
Hlynur Angantýsson, Jón Ingþórs-
son, Júlíus Sigurjónsson og Sig-
urður Vilhjálmsson. Í sveit Lög-
fræðistofu Íslands spiluðu Bjarni
Einarsson, Aðalsteinn Jörgensen,
Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson,
Sverrir Ármannsson og Steinar
Jónsson.
Sveit VÍS
Íslands-
meistari
í brids