Morgunblaðið - 29.04.2013, Blaðsíða 36
AF LISTUM
Friðjón F. Hermannsson
fridjon@mbl.is
Hinn 6. maí 2013 verðurEVE-online-tölvuleikurinnbúinn að vera á netinu í
10 ár. Mörg ár fóru í þróun og
hönnun leiksins áður en hann varð
loks að veruleika. Það voru nokkr-
ir starfsmenn hugbúnaðarfyr-
irtækisins OZ sem gengu með
þann draum í maganum að búa til
sinn eigin tölvuleik. Árið 1997
stofnuðu þeir nýtt fyrirtæki sem
þeir nefndu CCP og hófu undir-
búningsvinnu að draumi sínum.
Mikla hugsjón og atorku
þurfti til að koma svona stóru
verkefni í framkvæmd og auk þess
talsvert mikið fjármagn. Erfiðlega
gekk í fyrstu að afla fjármagns í
verkefnið, en það hafðist með því
að gefa út borðspilið Hættuspilið
árið 2000 sem seldist í 10.000 ein-
tökum á Íslandi. Hagnaðurinn af
sölu spilsins gerði það að verkum
að CCP-tölvuleikjafyrirtækið gat
gefið út leikinn EVE-online 6. maí
2003. Þess má til gamans geta að
spilið var gefið út á ensku í tilefni
afmælisins. EVE hefur vaxið og
dafnað með hverju árinu. Í dag er
svo komið að heildarfjöldi spilara
er 500.000 og hefur fjölgað í hópi
spilara ár frá ári. Stjórnendur
EVE tóku saman þær tölur í tilefni
10 ára afmælisins að samtals væru
hönnuðir og spilarar leiksins búnir
að eyða milljón mannsárum við
leik og störf í kringum leikinn.
Hátíðin í ár var haldin líkt ogí fyrra í Hörpu. Erlendir
gestir voru í talsverðum meiri-
hluta, rúmlega 2.000 af 3.500, og
koma þeir alls staðar að úr heim-
inum. Auk þess voru rúmlega
200.000 manns sem fylgdust með
beinni útsendingu á netinu. Opn-
unaratriði hátíðarinnar var tón-
leikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands
þar sem hún flutti tónlist tölvu-
leiksins EVE. Þeir tónleikar voru
einkar vel heppnaðir, stjórnandi
Sinfóníunnar hóf tónleikana með
því að leika á didgeridoo (ljóða-
lurk) og svo fylgdi sinfónían í kjöl-
farið. Angurværir tónar og stemn-
ingsstef voru svo myndskreytt
með geimskipum fljúgandi um sól-
kerfi leiksins. Skemmtileg út-
færsla sem ber að hrósa fyrir.
Stærstu tíðindin af hátíðinni
eru samt þau að hafin er und-
irbúningsvinna að gerð bæði sjón-
varpsþátta byggðra á tölvu-
leiknum EVE sem og teiknimynda-
sögublaða. Baltasar Kormákur
hefur verið fenginn til að leiða
sjónvarpsþáttaverkefnið og teikni-
myndasögufyrirtækið Dark Horse
Comics kemur til með að gefa út
blöð um EVE. Það fyrirtæki gefur
m.a. annars út blöð um Sin City,
Hellboy, Buffy the vampire slayer
og Star Wars. Auk þessara atriða
var líka tilkynnt að unnið væri að
því hörðum höndum að koma
snjallsímaforriti á markað til að
tengja spilara EVE enn betur
leiknum. Næstu þrír dagar voru
svo undirlagðir af umræðuþingum
um málefni EVE, keppnum í tölvu-
leikjum og góðgerðarsamkomum
þar sem söfnuðust tvær milljónir
króna sem renna til góðra mál-
efna. Í enda hvers dags var sam-
koma í Eldborg þar sem kynnt
voru framtíðarplön EVE og nýj-
asta fjölskyldumeðlimsins, DUST
514. Sá leikur kemur einmitt form-
lega út 14. maí 2013.
Hátíðinni var svo lokað á
laugardagskvöldinu með glæsi-
legum tónleikum sem CCP kallar
#Party at the top of the world.
Þar var boðið upp á það besta í ís-
lenskri tónlist, sem er þessa dag-
ana, Retro Stefson og Skálmöld.
Til að bæta um betur fengu þeir
þekktan erlendan plötusnúð, DJ Z-
trip, til að loka þessari glæsilegu
hátíð. Það má því með sanni segja
að stórir landvinningar séu á dag-
skránni hjá CCP og ef þeir halda
áfram að rækta samband sitt við
þá sem spila leikinn eins og þeir
hafa gert hingað til ættu þeim að
vera allir vegir færir. Því samband
og samskipti stjórnenda og spilara
er til fyrirmyndar hjá CCP. Sem
dæmi um það má nefna að par
gekk í hjónaband á Fanfest í ár og
svo voru fjórir leikmenn verðlaun-
aðir sérstaklega fyrir að hafa ver-
ið virkir þátttakendur í allan þann
tíma sem EVE hefur verið á net-
inu.
Morgunblaðið/Kristinn
Hátíð Engin önnur en Sinfóníuhljómsveit Íslands lék tónlist úr EVE Online á opnunartónleikum Fanfest-hátíðarinnar í Eldborg í Hörpu.
Einbeiting Aðdáendur leiksins nutu þess að spila hann í Hörpu. Blek Ólafía hjá Reykjavik Ink húðflúrar gest hátíðarinnar.
EVE-online í áratug og milljón mannsár!
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013
14
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
MISSIÐ EKKI AF FYNDNUSTU
OG BESTU MYNDINNI Í SERÍUNNI
EIN FLOTTASTA
SPENNUMYND ÁRSINS!
Stór og yfirdrifinn
teiknimyndahasar af betri gerðinni.
T.V. - Bíóvefurinn
VJV
Svarthöfði
KEMUR FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS
ROBERT DOWNEY JR.
BEN KINGSLEY
GWYNETH PALTROW
GUY PEARCE
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR
-Empire
-Hollywood
Reporter
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:40
- T.K.
kvikmyndir.is
H.V.A
-Fréttablaðið
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
12
12
12
IRON MAN 3 3D Sýnd kl. 5:20 -8 -10:10 -10:40 (P)
LATIBÆR - BÍÓUPPLIFUN Sýnd kl. 6
OBLIVION Sýnd kl. 5:30 - 8
SCARY MOVIE 5 Sýnd kl. 10:30
G.I. JOE 2 3D Sýnd kl. 8
Stórmyndin sem tekin var upp á Íslandi
-H.S., MBL
G.H.J., RÚV
NÝ ÍSLENSK SPENNUMYND
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI
METSÖLUBÓK. MYND SEM
ENGIN MÁ MISSA AF!
-H.V.A., FBL
“FÍNASTI FUGL”
FRÁBÆR SPENNUMYND MEÐ HALLE
BERRY Í AÐALHLUTVERKI
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
- H.S.S., MBL
FALSKUR FUGL KL. 6 14
OBLIVION KL. 10 12 / THE CALL KL. 8 - 10 16
SCARYMOVIE 5 KL. 8 14
LATIBÆR KL. 6 L
PASSION KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
THE CALL KL. 8 - 10.10 16
NABUCCO ÓPERA KL. 6.15 L
FALSKUR FUGL KL. 6 - 8 - 10 14
OBLIVION KL. 9.30 12 / KAPRINGEN KL. 5.45 12
THE CALL KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
THE CALL LÚXUS KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
LATIBÆR KL. 4 L
FALSKUR FUGL KL. 6 - 8 14
SCARYMOVIE 5 KL. 6 - 8 - 10 14
OBLIVION KL. 8 - 10.40 12
G.I JOE RETALATION 3D KL. 10 12
THE CROODS 3D ÍSL. TALKL. 3.30 - 5.45 L
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 L
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 2D KL. 3.30 L