Morgunblaðið - 29.04.2013, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2013
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Í þessu felast skýr skilaboð. Þau
sterkustu eru að það hefur aldrei
skipt meira máli en nú að hugmyndin
um breiðfylkingu jafnaðarmanna
verði að veruleika,“ sagði Árni Páll
Árnason, formaður Samfylking-
arinnar, um niðurstöðu alþingiskosn-
inganna. Hann kvaðst hafa lagt upp
með það í formannskjöri að flokk-
urinn yrði öflugur flokkur frá miðju
og til ysta vinstris. Til þess hefði hann
fengið skýrt umboð frá meirihluta
flokksmanna. „Ég er nýtekinn við og
hyggst feta þá leið áfram.“
Árni Páll sagði frambjóðendur
flokksins hafa fundið í kosningabar-
áttunni að afkoma fólks var því efst í
huga. Kjarnahópum eins og lífeyr-
isþegum og lágtekjufólki, sem Sam-
fylkingin hefur oft sótt stuðning til,
sveið mjög hve erfitt var að ná endum
saman og kenndu ríkisstjórninni um.
Árni Páll sagði marga ekki hafa áttað
sig á því hve mikil kjaraskerðing varð
með gengisfalli krónunnar í hruninu
og að sú skerðing yrði ekki auðveld-
lega leiðrétt. Hann sagði að efnahags-
leg velsæld hefði skipt mestu máli
fyrir kjósendur. Við lok þingsins hefði
Framsóknarflokkurinn verið byrj-
aður að tala um afkomu heimilanna
en á meðan hefði áhersla stjórn-
arflokkanna verið á ágreiningsmál í
þinginu eins og stjórnarskrármálið
og þinglokin.
„Fylgisaukningin er greinilega á
miðjunni,“ sagði Árni Páll. Hann
sagði að Samfylkingin hefði kannski
ekki fótað sig nægilega vel þar. Auk
þess hefði samkeppnin verið erfið við
Bjarta framtíð sem kom óflekkuð af
verkum í baráttuna. Einnig hefði
samstarfsflokkurinn VG talað með
áþekkum hætti og Samfylkingin um
málaflokka eins og kvenfrelsi, vel-
ferðarmál og umhverfisvernd og
e.t.v. „með kratískari blæ“ en áður.
– Voru það mistök að leggja svo
mikla áherslu á ESB-aðildarumsókn-
ina?
„Við lögðum áherslu á Evrópusam-
bandsaðildina sem hagnýta nauðsyn.
Þetta var aldrei trúaratriði hjá okkur
og hefur aldrei verið. Ég tel að það
deili fáir um mikilvægi aðild-
arumsóknarferlisins sem hluta af því
að halda landinu opnu,“ sagði Árni
Páll og benti á afstöðu atvinnulífsins
því til sönnunar. Sterk öfl þar vilji fá
að kjósa um samning.
Hann sagði að fylgi Samfylking-
arinnar hefði fallið við Icesave-
dóminn og mælst 12% daginn áður en
hann tók við formennsku. „Ég tel að
áhrif Icesave-dómsins hafi einnig
dregið úr áhuga þjóðarinnar á ESB-
aðild, einmitt núna,“ sagði Árni Páll.
Forseti Íslands hefur boðað Árna
Pál til fundar við sig klukkan 15.00 í
dag. Árni Páll telur eðlilegast að sig-
urvegarar kosninganna komi til
greina við að leiða stjórnarmyndun.
Stærsti sigurvegarinn sé Framsókn-
arflokkurinn en Björt framtíð og Pí-
ratar hafi einnig unnið sigra.
„Þegar um tvo jafnstóra flokka er
að ræða tel ég eðlilegt að formaður
Framsóknarflokksins fái umboð til
stjórnarmyndunarviðræðna,“ sagði
Árni Páll. En þykir honum dræmari
kosningaþátttaka vera áhyggjuefni?
„Það dregur almennt úr kjörsókn
og svo er verið að kjósa býsna oft. Það
kann að hafa áhrif,“ sagði Árni Páll.
Morgunblaðið/Kristinn
Jafnaðarmaður Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir að
flokkurinn hafi fengið skýr skilaboð í alþingiskosningunum.
Afkoman var
fólki efst í huga
Skýr skilaboð í kosningaúrslitunum,
segir formaður Samfylkingarinnar
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Eðlilegt er að Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur reyni að mynda
næstu ríkisstjórn. Kjósendur gáfu
flokkunum meirihlutaumboð til að
koma sínum stefnumálum í fram-
kvæmd og því eðlilegt að forseti Ís-
lands feli formanni annars hvors
flokksins umboð til stjórnarmynd-
unar, segir Guðmundur Stein-
grímsson, formaður Bjartrar fram-
tíðar. „Þó er forvitnilegt hvernig
sáttmáli um samstarf þessara flokka
verður og hvernig eigi að uppfylla
loforðin,“ segir formaðurinn.
Sáttur við árangur
Alls 15.583 atkvæði, stuðningur
8,2% þjóðar og sex menn á þingi.
Þetta var árangur Bjartrar fram-
tíðar í kosningnum og segist formað-
urinn sáttur.
„Þegar við fórum í þennan leið-
angur sagði ég að við fengjum á
bilinu 2-20% fylgi. Það gekk eftir,“
segir Guðmundur sem telur grunn-
markmið Bjartrar framtíðar, um fjöl-
breytt atvinnulíf, gott skólakerfi og
heilbrigðiskerfi, stöðugleika, áherslu
á umhverfismál, róttækni í mann-
réttindum og sátt í þjóðfélaginu, eiga
erindi til Íslendinga. Úrslit kosninga
staðfesti það líka að nokkru leyti.
„Við Heiða Kristín Helgadóttir
munum leggja áherslu á þessi mál á
þeim fundi með forseta Íslands sem
boðaður hefur verið. Við viljum ljúka
aðildarviðræðum við Evrópu-
sambandið og finna lausn á gjaldmið-
ilsmálunum, svo stöðugleiki geti auk-
ist. Svo viljum við auka fjölbreytni í
atvinnulífinu og auka veg skapandi
greina, græns iðnaðar og tækni- og
hugverkaiðnaðar. Við erum því ekki
hrifin af stóriðjulausnum,“ segir
Guðmundur sem kveðst hafa efa-
semdir um að skattalækkanir séu
góður leikur – miðað við núverandi
aðstæður. Vissulega kunni þó ein-
hverjar slíkar að vera skynsamlegar
og hafa örvandi áhrif. Fráfarandi
stjórnarflokkar guldu afhroð í kosn-
ingunum. Í umræðum á kosninganótt
sögðu fylgismenn þeirra skýringuna
meðal annars felast í því að framboð
á vinstri vængnum hefðu verið mörg
og því hefðu lið tvístrast.
Ekkert sérstaklega til vinstri
„Smáframboðin voru beggja vegna
miðjuássins. Það á enginn neitt í
stjórnmálum og Björt framtíð er
ekkert sérstaklega til vinstri. Ég
held að góður árangur okkar nú
helgist meðal annars af því,“ segir
Guðmundur.
Úrslitin staðfesta erindið
Formaður Bjartrar framtíðar sáttur við árangur Eðli-
legt að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur myndi ríkisstjórn
Morgunblaðið/Rósa Braga
Framtíð Smáframboðin beggja vegna miðjuássins, segir Guðmundur Stein-
grímsson, sem telur ný stjórnmálaöfl ekki skýra afhroð stjórnarflokkanna.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, bar sig vel þrátt fyrir
talsvert fylgistap flokksins nú frá
því í síðustu kosningum. Flokk-
urinn fékk sjö þingmenn nú og
10,9% fylgi og tapaði helmingi
þingsæta sinna. „Þetta er betri
staða en við gátum kannski átt von
á miðað við skoðanakannanir og
við þökkum þessa niðurstöðu góðri
kosningabaráttu,“ segir Katrín.
Klofningur á vinstri vængnum
Hún telur að fylgistapið megi
rekja til klofningsframboða eins og
Dögunar, Regnbogans, Alþýðu-
fylkingar og Pírata. „Þetta fylgis-
tap dreifist víða, en það er ljóst að
vinstri vængurinn þarf að skoða
sína stöðu og leita leiða til að
styrkja raddir sem tala fyrir um-
hverfisvernd og félagshyggju,“
segir Katrín.
Hún telur að umhverfismál verði
ein af stóru málunum á næsta kjör-
tímabili og það sé fyrir atbeina VG,
sem hafi sett þau á oddinn í stjórn-
artíð sinni. „En ekki bara þau
heldur líka jafnréttismálin og
skattamálin, sem hafa breytt um-
ræðu um jöfnuð í samfélaginu. Sú
staðreynd að við höfum náð að
breyta umræðunni mun skila sér
áfram inn í næsta kjörtímabil,“
segir Katrín.
Hún telur það mikið áhyggjuefni
hve konum fækkar á þingi. „Nýlið-
unin er mikil en hins vegar fellur
hlutfall kvenna. Það helgast
kannski af því að stórbætta stöðu
kvenna á þingi í síðustu kosningum
má að langmestu leyti rekja til
sterkrar stöðu vinstriflokkanna
þá,“ segir Katrín. Af sjö þingmönn-
um Vinstri grænna eru fjórar kon-
ur. Þingkonum fækkar úr 27 í 25.
Rammaáætlun mikilvæg
Af einstökum málefnum mun
flokkurinn að sögn Katrínar leggja
mikla áherslu á rammaáætlun.
„Það er mjög mikilvægt að sú
vinna sem unnin hefur verið við
rammaáætlun verði virt og ekki
farið í fljótfærnislegar ákvarðanir
um að taka hana upp og færa til
virkjunarkosti sem ekki hafa verið
rannsakaðir að fullu. Það er t.d.
hætta á slíku með álver í Helguvík,
sem við stöndum gegn,“ segir
Katrín.
Hún telur að næstu ríkisstjórnar
bíði erfið verkefni og mikilvægt sé
að hún geti myndað breiða sátt í
þjóðfélaginu. „Við þurfum að hefja
uppbyggingu samfélagsþjónustu,
heilbrigðisþjónustu, í skólunum og
almannatryggingunum. Þetta eru
okkar áherslur á næsta þingi,“ seg-
ir Katrín.
Morgunblaðið/Eggert
Katrín Jakobsdóttir VG tapaði sjö þingmönnum en bætti við sig fylgi á loka-
sprettinum miðað við skoðanakannanir. Katrín telur umhverfismál ein af
stóru málunum á komandi kjörtímabili og að skapa þurfi sátt í samfélaginu.
Þurfum sátt á
vinstri vængnum
Umhverfismál ein af stóru málunum